Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.12.1948, Blaðsíða 15

Verkamaðurinn - 22.12.1948, Blaðsíða 15
ELÍSABET EIRÍKSDÓTTIR: A1 þýðukona, látla meira að þér kveða í stjórnarskrá okkar er ákvæði unr prentírelsi, sem tryggja á þegnunum rétt til að koma hugsunum sínum og skoðunum á prenti út til fjöldans. í þrjátíu ár hefur verkalýður Akur- eyrar háð harða og þrautseiga baráttu fyrir þvi, að geta hagnýtt þennan rétt, þetta tjáningarfrelsi. Auðvelt hefur það ekki verið fyrir il'la launaða og stundum atvinnulausa menn, karla og konur, að gefa út blað, þó að lítið væri. Það er ójafn leíkur í hinum borgaralegu þjóðfélögum, blaða- og bókaútgáfan. Auðbórgarinn hefur alla möguleikana sín megin: Vélar, pappír, starfslið, allt, sem peningar geta veitt. Aróðurstæki borgaranna eru þar sterk og virk: Ausið er út yfir landsbyggð- ina moldviðri ósanninda og blekk- inga. Loftið er lævi blandið. Villt er um hvern þann einstakling, sem ekki er á verði gegn hinni andlegu árás stéttarandstæðingsins, og ekki er brynj- aður þekkingu og stéttvísi. Erfðileik- ar þeir, sem eru á blaðaútgáfu fyrir alla alþýðu, eru ein höfuðástæða fyrir því, hvað fáar konur gefa út blöð, til að ræða bæði sérmál kvenna og al- menn þjóðmál. Jafnvel konur yfirstétt- arinnar, sem að öllum líkindum ættu að hafa aðgang að þeim auðlindum, sem auðborgararnir ausa af til sinnar áróðursstarfsemi, hagnýta sér ekki þessa möguleika, annað hvort af áhugaleysi, eða eru þar ráðum bornar af körlunum. Þrátt fyrir það, sem áður er sagt, gætu konur látið oftar til sín lieyra í blöðum og tímaritum, en þær gera. Sérstaklega er það hættulegt þjóð- félagslega séð, hvað hinar vinnandi konur, hvort heldur er í bæ eða sveit, eru lengi að brjóta af sér fjötra hins hefðbundna vana og láta draga sig í sérstaka þjóðfélagsdilka. Koriurnar eru nú á leiðinni að drepa sig úr dróma þess sinnuleysis um opinber mál, sem vaninn hefur skapað. Tími er kominn til þess, að þær taki virkan þátt í fram- kvæmdarstarfi að sköpunar þeirrar framtíðar, sem bíður barna þeirra; það er ekki nóg að slíta sér andlega og líkamlega upp til agna með dag- legu striti og starfi fyrir börn og heim- ili. Horfa síðan á eftir börnum sínum út urn hverfi stórspillts auðvaldsþjóð- félags, sem þær Iiafa gefið karhnönn- unum umboð til að skapa. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að karl- ar, en ekki konur, skipa ábyrgðarstöð- ur þjóðfélagsins, í gegnum þeirra greipar renna allir þræðir atvinnu, fjármála og menningarlífs þjóðarinn- ar. Það má líka fullyrða, að þeir liafa engan áhuga fyrir því, að gera konur þátttakendur í stjórn þessara mála; því verður það að sjál'fsögðu að vera þeirra sjálfsverk. Konur tuttugustu aldarinn- ar hafa enga afsökun fyrir afskipta- leysi sínu, þær hafa öll skilyrði til að fylgjast með og þjáffa sjálfstæða hugs- un, því hljóta þær að bera ábyrgð á því, sem er að gerast í dag í okkar litla þjóðfélagi. Þær, sem eru meiri- hluti þjóðarinnar, geta ráðið úrslitum í þeirri baráttu, sem er háð um það, hvort landið okkar, með öllum sínum gögnum og gæðum, fegurð og yndis- leik, og öllum sinum börnum, verður selt af nokkrum spilltum kögurmenn- um á vald hins magnaðasta afturhalds og auðvalds, sem nú drottnar í heim- inum, eða hvort fólkið sjálft, hin heil- brigða, vinnandi alþýða, tekur stjórn sinna mála, varðveitir fengið frelsi lands síns og hagnýtir sér gæði þess. Nú, á þessum tímamótum í ævi blaðs- ins okkar, ,,Verkamannsins“, ættu akureyrskar alþýðukonur að taka ákvörðun sína með það, að framvegis verði fleiri raddir frá þeim á síðum hans, en hingað til, og þannig að taka virkan þátt í þeirri baráttu alþýðunn- ar, sem framundan er. Elímbet Eiriksdóttir. Stofnþing Alþýðusambands Norðurlands 1947. 15

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.