Verkamaðurinn - 19.02.1954, Síða 1
VERKfltHflÐURi fltl
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 19. febrúar 1954 6. tbl.
Spilakvöld Sósíalista-
félagsins
Sósíalistaíéiag Akureyrar
heiur ákveðið að hafa vikuleg
spilakvöld í Ásgarði. Verða þau
framvegis á föstudagskvöldum.
Á fyrsta spilakvöldinu, sem
var sl. föstudag var fjölmenni
Frá lyrsfa lundi hinnar nýkjörnu bæj
arsfjórnar
Steinn Steinsen endurkjörinn bæjarstjóri með
6 atkvæðum - Kæru Alþýðuflokksins visað frá
- Þorsteinn M. Jónsson kosinn forseti bæjar-
stjórnar með 11 atkvæðum - Marteinn og Stein-
dór höfðu kosningabandalag við Framsókn en
höfnuðu samstarfi við fulltrúa Sósíalistafl.
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu
bæjarstjórnar var haldinn 9. þ.
m. og mættu þar allir aðalfulltrú-
ar flokkanna. Áheyrendur voru
eins margir og húsrúm leyfði.
Kæra Alþýðuflokksins.
Samþykkt var með 9 atkvæð-
um að taka fyrst mála á dagskrá
kæru Alþýðuflokksfélags Akur-
eyrar um kosningarnar. Sátu
fulltrúar Sósíalistafl. hjá við þá
atkvæðagreiðslu, þar sem þeir
töldu of skamman tíma til athug-
unar á kærimni og umsögn yfir-
kjörstjórnar, en bæjarfulltrúar
höfðu hvorugt plaggið séð fyrr
en á fundinum. Að lokinni stuttri
ræðu um kæruna var samþykkt
með 8 atkv. gegn 2 (Alþýðufl. og
l>jóðvamar) að vísa henni frá.
Forsetakjör og bæjarstjóra.
Þessu næst fór fram kjör for-
seta og hlaut Þorst. M. Jónsson
öll atkv., 11, sem forseti. Vara-
forseti var kjörinn Guðmundur
Fuðlaugsson með 7 atkv. (Jón
Sólnes hlaut 4 atkv.) og 2. vara-
forseti Steindór Steindórsson
með 5 atkvæðum, en 6 seðlar
voru auðir.
Bæjarstjóri var endurkosinn
Steinn Steinsen með 4 íhaldsat-
kvæðum og 2 Framsóknaratkv.,
en 5 seðlar (Alþýðufl., Þjóðvarn-
ar, sósíalista og Guðm. Guð-
laugssonar) voru auðir.
Nefndakjörið.
Strax af afstöðnum kosningum
leituðu bæjarfulltrúar Sósíalista-
flokksins eftir samstarfi um
nefndakosningar við Steindór og
Martein, enda var augljóst að
slíkt 4urra manna samstarf var
tiltölulega mjög sterkt og hefði
tryggt fulltrúa í allar nefndir og
störf í bæj arstj órninni, önnur en
forseta og bæjarstjóra. Eftir
langa umhugsun höfnuðu þeir
félagar slíku samstarfi og kusu
heldur að halla sér að Framsókn,
sem beið þeirra með opna arma,
þótt hún hvorki gæti né vildi
tryggja þeim jafn mikil áhrif og
samstarf við sósíalistana hefði
gert. Ekki gat Framsókn þó stiUt
sig um að auðmýkja Martein með
því að úthluta honum og flokki
hans aðeins 3 aðalmönnum en
Steindór fékk aftur á móti 10! Er
því tökubörnum þessum heldur
en ekki mismunað í hinni nýju
vist.
Við kosningar í 4rra manna
nefndir hefðu sósíalistar og
íhaldið lent í hlutkesti sín í mUU
um 1. og 2. fuUtrúa, og í því falli
að íhaldið ynni slík hlutkesti
hefði það fengið meirihluta í
þeim nefndum, þar sem bæjar-
stjórinn er sjálfkjörinn í þær.
Framsóknarmenn kusu ekki að
eiga slíkt undir hlutkesti og varð
því samkomulag miUi þeirra og
fuUtrúa Sósíalistafl um kjör í
allar fjögurra manna nefndir,
nema eina, en þar vann Sósíal-
istaflokkurinn hlutkestið.
Nefndir eru þannig skipaðar:
í bæjarráð voru kjörnir:
Tryggvi Helgason, Steindór
Steindórsson, Jakob Frímanns-
son, Helgi Pálsson og Jón Sólnes.
Varmenn: Björn Jónsson, Guð-
mundur Guðlaugsson, Marteinn
Sigurðsson, Guðmxmdur Jör-
undsson og Jón Þorvaldsson.
Byggingarnefnd: Innan bæjar-
stjómar: Marteinn Sigurðsson og
Jón Þorvaldsson. Utan bæjar-
Stefán Reykjalín og Karl Frið-
riksson.
Hafnamefnd: Innan bæjarstj.:
Guðmundur Guðlaugsson, Helgi
Pálsson. Utan bæjarstjómar: Al-
bert Sölvason og Magnús Bjarna-
son.
Framfærslunefnd: Jón Ingi-
marsson, Kristján Ámason, Ingi-
björg Halldórsdóttir, Svava
Skaftadótitr og Helga Jónsdóttir.
Varamenn: Eggert 01. Eiríksson,
Jónína Steinþórsdóttir, Sveinn
Tómasson, Einhildur Sveinsdótt-
ir og Ásta Sigurjónsdóttir.
Rafveitustjórn: Guðm. Snorra-
son, Þorsteinn M. Jónsson, Sverr-
ir Ragnars, Indriði Helgason og
Steindór Steindórsson.
Sóttvamarnefnd: Bjami Hall-
dórsson.
Heilbrigðisnefnd: Þorst. M.
Jónsson.
Verðlagsskrárnefnd: Jakob Frí-
mannsson.
Sjúkrahúsnefnd: Sigríður Þor-
steinsdóttir, Sigurður O. Bjöms-
son og Sverrir Ragnars.
Varamenn: Gísli Konráðsson,
Kristófer Vilhjálmsson og Helgi
Pálsson.
Bamavemdarnefnd: Margrét
Sigurðardóttir, Haraldur Sig-
urðsson, Anna Helgadóttir, Frið-
rik J. Rafnar og Gunnhildur
Ryel.
Varamenn: Jóhanna Júlíus-
dóttir, Kristín Konráðsdóttir,
Pétur Sigurgeirsson og Þorbjörg
Gísladóttir.
(Framhald á 2. síðu).
Lii
og skemmtu menn sér hið
bezta. Næsta spilakvöld verð-
ur í kvöld og er þess vænst að
sem flestir félagsmenn mæti og
taki með sér gesti. Spiluð verð-
ur félagsvist og hiustað á út-
varpssöguna í kaffihléinu. —
Nefndin.
Rússneska stórmyndin
r v
Arið ógleymanlega 1919
Eins og auglýst er á öðrum
stað hér í blaðinu í dag, sýnir
MlR á sunnudaginn nýja stór-
mynd frá Ráðstjómarríkjunum
er nefnist „Árið ógleymanlega
1919“.
Atburðir þeir, sem myndin
sýnir, eru vöm innsiglingarinnar
til Pétursborgar, þegar brezk
flotadeild sótti að og tilvera Ráð-
stjórnarlýðveldanna var undir
vörn innsiglingarinnar og þar
með borgarinnar komin.
Höfundur myndarinnar, Mik-
hail Chiaureli, sá hinn sami er
stjómaði töku myndarinnar „Fall
Berlínar", segir að verkefnið hafi
verið að gera sanna, sögulega og
nákvæma mynd af þessum þýð-
ingarmiklu atburðum.
Efni myndarinnar eða atburða
verður annars ekki rakin hér
frekar, en óhætt er að fullyrða,
að þessi mynd er í tölu þeirra
mynda er beztar hafa verði sýnd-
ar hérlendis.
Tónhstin í myndinni er eftir
frægasta núlifandi tónskáld Ráð-
stjórnarríkjanna, Dmitri Sjosta-
kóvitsj.
Bílslys í Giljareilum
Vöruflutningabifreiðin A-37 valt 65 metra leið
um urðir og kletta en tveir menn, sem í bifreið-
inni voru komust lífs af
„Öríugir tímar geta veriS framundan"
Heildarvörusala KEA minnkaði um
rúmlega 1 mlljón krónur á s. 1 .ári
Frá aðalfundi Akureyrardeildar KEA
Á mánudagsmorguninn varð
það slys í Giljareitum á Oxna-
dalsheiði, skammt vestan við
svonefnt Reiðgil, að stormsveipur
feykti vörubifreiðinni A—37 út
af svelluðum veginum og hrapaði
hún og valt 65 metra leið niður á
eyri þar fyrir neðan. Oll er leiðin
sem bíllinn hrapaði snarbrött og
5—6 m. hár klettur um miðja
vegu.
Komust lífs af.
Tveir menn voru í bifreiðinni,
Þór Árnason, bflstjóri, Höfðaborg
x Glerárþorpi, og Stefán Jónsson,
stúdent, Brekkugötu 12 hér í
bænixm. Eftir veltxxxnar komust
þeir félagar út úr mölbrotnu bfl-
flakinu, þrátt fyrir mikil meiðsli,'
sem þó eru ekki lífshættuleg og
tókst Þór, sem er hið mesta karl-
menni, að koma Stefáni, sem mxm
hafa skaddast meira, upp úr gil-
inu litlu norðan þar sem bfllinn
valt, en engum manni er fært þar
upp sem bfllinn hrapaði. Hlúði
Þór að Stefáni þar við veginn, en
hélt síðan gangandi að Kotum í
Norðurárdal, en þangað er um 8
km. leið. Þykir sú ferð hin mesta
þrekraun eins og meiðslum Þórs
var háttað ,enda var harm að
þrotxxm kominn er harm kvaddi
dyra að Kotum.
Brugðið við.
Gnnar Valdimarsson, bóndi að
Kotxxm, brá skjótt við og ók á
slysstaðinn á vönxbifreið siimi og
sótti Stefán. Jafnframt var símað
eftir sjúkrabifreiðð og lækni frá
Akureyri. Var þeim félögum
hjúkrað á Kotum eftir beztu
föngum þar til sjúkrabifreiðin
kom með lækni og þeir voni
fluttir á Akureyrarspítala.
Líðan þeirra félaga er vonum
betri.
Kirkjan. Æskulýðsmessa á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h. í
Akureyrarkix-kju. Þó að messan
sé sérstaklega helguð xmga fólk-
inu eru allir hjartanlega vel-
komnir. — P. S.
Fækkandi félagsmannatala.
Aðalfundur Akureyrardeildar
KEA vair haldinn að Varðborg í
gærkvöldi og sátu hann allt að
100 félagsmenn, aðallega starfs-
fólk félagsins.
Ármann Dalmannsson, foimað-
ur deildarinnar, flutti skýrslu um
störf deildarstjórnar. Samkv.
skýrslu hans fækkaði deildar-
mönnum á árinu um 37 og eru
þeir nú 2219 talsins. Ástæður fyr-
ir fækkuninni taldi Ármann
brottflutning fólks og úrsagnir
fólks, sem eingöngu hefði gengið
í félagið vegna skömmtxmarinnar
sem nú er afnumin.
Vörusalan minnaði að krónutali.
Jakob Frímarmsson flutti
skýrslu um starfsemi félagsins.
Kvað harm erm allt í óvissu um
útkomu reikninga og afkomu
félagsins.
Vörusalan á árinu, í búðum
félagsins varð 373^ milljón kr. á
(móti 383/^ milljón 1952) og
minnkaði þannig um rúml. 1
millj. króna. Aðallega stafar þessi
samdráttur af minni innflutningi
og sölu á landbúnaðar- og heim-
ilisvélum, en vörusala véla- og
varahlutadeildar varð 1,5 millj.
kr. minni en árið áður.
Minni mjólkuraeyzla almennings.
Mjólkurinnlegg bænda varð
5% meira en árið áður, en hins
vegar varð sala neyzlumjólkur 27
þús. lítrum minni.
Verklegar framkvæmdir
voru ekki stórvægilegar. Ný
verzlun var opnuð í Hafnarstr.
93, byggt hús fyrir útibú ný-
lenduvörudeildar í Mýrahverfi og
verzlunarhús, sem verið hefur í
3 ár í smíðum á Dalvík, fullgert
að nokkru. í byggingu er starfs-
mannahús að Brúnalaug og úti-
bú að Hauganesi.
Kreppuspár?
Framkvæmdastjórinn kvaðst
ekki bjartsýnn nú í ársbyrjxm.
Orðugir tímar gætu verið fram-
xmdan vegna verðfalls á afurð-
um okkar á erlendxim markaði
og sölutregðu innanlands. „Mar-
hallshjálpin er búin og enginn
veit hve setuliðið verður hér
lengi.“ Var á ræðu framkv.stj. að
heyra, að ekki horfði vænlega, er
þessum stoðum undir „hinum
tilbúna peningastraum" væri
kippt burtu. Þó kvaðst hann vona
að hægt yrði að auka svo fram-
leiðsluna, að nokkuð gæti vegið
á móti glötxm marshallhjálpar og
erlends setxiliðs.
Kosningar.
í stjórn deildarinnar, til tveggja
ára voru kosnir Haraldur Þor-
valdsson með 62 atkv. og Þorst.
Þorsteinsson með 53 atkv. Vara-
menn voru kjömir Sigurður O.
Björnsson og Kári Sigurjónsson.
f stjórn til eins árs var kjörinn
Sigtryggur Þorsteinsson og til
vara Þorst. Þorsteinsson. Að lok-
xxm voru kosnir 75 fulltrúar á að-
alfund KEA.
-K Fjáreigendur, Akureyri! Fxmd
ur fjáreigenda verður í Varð-
borg sunnudaginn 21. þ. m. —
FjölmennlS.