Verkamaðurinn - 25.06.1954, Blaðsíða 1
VERKfflMRinn
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 25. júní 1954
20. tbl.
ViSskiptasamningur um sölu sjávaralurSa lyrir 300
milljónir króna gerSur viS Sovélríkm
Sovétríkin kaupa 35000 tonn af freðfiski og 150000 tn.
af síld, en selja í staðinn olíur, byggingavörur, korn-
vörur, bíla og fleira
A sama tíma og þessir stórfelldu markaðir opnast liggja yfir 30 af 43
togurum landsmanna bundnir við bryggjur, þrátt fyrir uppgripaafla
Fordæmi fyrir eldri
sem yngri
Síðastl. laugardag varð sá
þjóðkunni frömuður sundíþrótt-
arinnar hér á landi, Lárus J. Rist,
75 ára. Hélt hann upp á afmælis-
dag sinn með því að synda 200
metrana á samnorrænu simd-
keppninni hér í sundlauginni. —
Mun það engin tilviljun að Lárus
valdi þann stað til þátttöku sinn-
ar, þótt aðrir þægilegri staðir
byðust til þess sunnan heiða. —
Hér á Akureyri liggur meginið af
æfistarfi Lárusar og hér vann
hann það afrek, sem öllum ein-
stökum verkum framar opnuðu
augu manna fyrir nytsemd og
göfgi sundíþróttarinnar, er hann
synti yfir Eyjafjarðarál klæddur
sjóklæðum 7. ágúst 1907. Hér
kenndi Lárus þúsundum ungra
manna sund við erfið skilyrði og
áhrif þeirrar kennslu og lifandi
áhuga brautryðjandans bárust
vítt um landið. Mun á engan
mætan íþróttafrömuð hallað, þótt
fullyrt sé að enginn hafi verið
þessari íþrótt þarfari en Lárus og
er það því ekki með öllu sárs-
aukalaust, að sjá hans að engu
getið í bæklingi þeim sem Sam-
norræna sundnefndin hefur gefið
út, en þar hefur farið sem oftar,
að sjóndeildadrhringur höfuð-
staðarbúa hefur ekki náð út fyrir
Elliðaárnar. Þetta mun þó á eng-
an hátt snerta Lárus, hann hefur
aldrei metið eigin frægðarorð
mikils, en áhugamál sín þeim
mun meira.
Þátttaka Lárusar í sundkeppn-
inni nú ætti að verða öllum Ak-
ureyringum hvatning til þess að
sækja keppnina fast og að sýna,
að þrátt fyrir að skilyrði eru ekki
hin ákjósanlegustu, viljum við
sem áður fyrri engir eftirbátar
vera annarra. En sundkeppnin er
ekki aðeins metnaðarmál, því að
með þátttöku sinni er hver maður
um leið að gerast hæfari til bjarg-
ar sjálfum sér og öðrum og eykur
um leið líkamshreysti sína.
Fylgjum fast fordæmi braut-
ryðjandans. Sýnum að forusta
hans og holl áhrif lifi enn og beri
ávöxt.
Á sunnudaginn kemur forseti
íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
í opinbera heimsókn til Akureyr-
ar ásamt forsetafrú Dóru Þór-
hallsdóttur.
orsetinn mun koma með bifreið
til bæjarins upp úr hádegi, en hin
opinbera móttökuathöfn fer fram
í Lystigarðinum kl. 4 síðdegis.
Hefst hún með því að Lúðrasveit
Akureyrar leikur og karlakórar
bæjarins syngja ættjarðarlög.
Síðan flytur forseti bæjarstjóm-
ar, Þorsteinn M. Jónsson, ræðu,
og forsetinn ávarpar bæjarbúa.
Þann 19. þ. m. var undirritað-
ur í Moskvu mesti viðskipta-
samningur í sögu íslendinga — að
heildarverðmæti um 300 milljón-
ir króna. Samkvæmt samningun-
um kaupa Sovétríkin af íslend-
ingum 35 þús. tonn af freðfiski,
150 þús. tunnur af saltsfld og 2000
tonn af freðsfld. í staðinn fá ís-
lendingar allar þarfir sínar af
brennsluolíum, benzíni, sementi,
helztu kornvörum. Ennfremur
steypujárn, kol, bfla og landbún-
aðarvélar, baðmullarvörur og
ýmsar aðrar vörur.
Fréttatilkynning ríkisstjórnar-
innar um samningana er á þessa
leið:
„Laugardaginn 19. júní var
undirritað í Moskvu samkomu-
lag um viðskipti milli íslands og
Sovétríkjanna. Pétur Thorsteins-
son, sendaherra, undirritaði sam-
komiflagið fyrir íslands hönd, en
I. G. Kabanov, utanríkisverzlun-
arráðherra, fyrir hönd Sovét-
ríkjanna.
Með samkomulaginu fylgja ný-
ir vörulistar, en viðskipta- og
greiðslusamningurinn, sem gerð-
ur var í fyrra, helzt að öðru leyti
Að ávarpi forseta loknu verður
sunginn þjóðsöngurinn við undir-
leik Lúðrasveitarinnar.
Á sunnudagskvöldið hefur bæj-
arstjóm boð inni fyrir forsetann
að Hótel KEA og býður þangað
ýmsum bæjarbúum, eftir því sem
húsrúm leyfir.
Á mánudag fer forsetinn í op-
inbera heimsókn til Eyjafjarðar-
sýslu og fer m. a. að Laugalandi
á mánudag og til Árskógs á
þriðjudag. Á miðvikudagsmorgun
fer forsetinn áleiðis til Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar.
óbreyttur. Gilda vörulistarnir í
eitt og hálft ár, frá 1. júlí 1954 til
31. desember 1955. Ennþá hafa
ekki verið gerðir neinir kaup- og
sölusamningar, en á listanum yfir
íslenzkar afurðir eru 35.000 tonn
af freðfiski, 150.000 tonn af salt-
sfld og 2.000 tonn af freðsfld. —
Ráðgert er að Sovétríkin afgreiði
í staðinn eftirtaldar vörur og
magn:
Brennsluolíur og benzín
Rúgmjöl
Hveitiklíð
Hrísgrjón
Kartöflumjöl
Hveiti
Maís
Sement
Járnpípur
Steypustyrktarj ám
Koks
Antrhacitkol
Ennfremur er gert ráð fyrir að
keyptar verði aðrar rússneskar
vörur, svo sem bflar, landbúnaðar
vélar, asfalt, baðmullarvefnaður,
vín og eldspýtur.
Islenzka samninganefndin, sem
nú er stödd í Moskvu vinnur að
því að gera sérstaka samninga um
sölu íslenzku afurðanna og um
kaup á helztu vörunum frá Sov-
étríkjunum, og er ekki að svo
stöddu hægt að segja, hvenær
þeim samningum lýkur.“
Verða samningarnar ekki
uppfylltir?
Á sama tíma og viðskiptasamn-
ingarnir eru gerðir, er svo komið
að 3/4 hlutar togaraflotans liggja
bundnir við bryggjur og hafast
ekki að, enda þótt augljóst sé að
samningarnir verði ekki upp-
fylltir nema tryggð sé fullkomin
nýting togaraflotans, og enn
átakanlegra verður þetta þegar
þess er gætt að að undanfömu
hefur verið uppgripaveiði, eink-
um af karfa, en það er einmitt sú
fisktegundin, sem Sovétríkin
vilja frekast kaupa og munu þau
hafa beðið um allt að 22 þúsund
tonn af þeirri vöru.
Það er öllum ljóst, að það er
algerlega á valdi ríkisstjómar-
innar að rétta svo hlut togara-
sjómannanna og útgerðarinnar að
forðað verði því geyptilega tjóni,
sem þjóðin verður að þola af
stöðvun togaraflotans. En hver
dagur sem líður án aðgerða er
dýr. Fyrst og fremst tapast dag-
lega allt að 3/4 úr milljón í gjald-
eyrisverðmæti og auk þess
streyma sjómennimir nú á sfld-
veiðibátana og í ýmsa aðra sum-
aratvinnu, svo sem á Keflavíkur-
flugvöll, og gæti orðið örðugt að
Samningar hafa nú tekizt milli
sameiginlegrar samninganefndar
allra sjómannafélaga á landinu,
annarra en í Vestmannaeyjum og
á Vestfjörðum, og útgerðarmanna
um sfldveiðikjörin. Helztu samn-
ingsatriði eru þessi: Á skipum 70
smálesta og minni hækkar hlutur
sjómanna úr 38,55% af brúttóafla
í 40,5%, eða 2,7% á mann, þegar
skipin hafa aflað fyrir 350 þús. kr.
Á 70 til 100 smál. skipum, sem
fiskað hafa fyrir 430 þús. kr.
hækkar hlutur háseta úr 37,28 í
38,8%, eða 2,43% á mann af því
sem fram yfir er lágmarkið.
Hlutur skipverja á skipum af
öðrum stærðum hækkar í svip-
uðu hlutfalli.
Kauptrygging háseta hækkar
samkvæmt samningunum úr kr.
1830,00 í kr. 1941,00 (grunntrygg-
ing).
Fari fæðiskostnaður ekki fram
úr kr. 750,00 á mán., þá fær mat-
sveinn frítt fæði. Verði fæðis-
kostnaður hærri, en þó ekki yfir
kr. 850,00, fær matsveinn frítt
fæði að hálfu.
Samningarnir gilda til 1. júní
1955 og framlengjast um 1 ár í
senn hafi þeim ekki verið sagt
upp með 2ja mánaða fyrirvara.
Æ. F. A. efnir til
skemmti- og kynnis-
ferðar til Norðf jarðar
Æ. F. A., félag ungra sósíalista
á Akureyri, hefur ákveðið að efna
til 3—4 daga skemmti- og kynn-
isferðar til Neskaupstaðar um
miðjan næsta mánuð. Er ætlunin
að leggja af stað að morgnil
föstudags og koma aftur til bæj-
arins á mánudag eða á aðfaranótt
mánudags. Komið verður við á
ýmsum stöðum á leiðinni.
Þátttaka er heimil ungu fólki,
þótt ekki sé það í Æskulýðsfylk-
ingunni og ættu þeir, sem hug
hafa á að slást í förina, að hafa
sem fyrst tal af Birni Hermanns-
syni, Aðalstræti 54, Braga Sigur-
geirssyni, Glerárgötu 8, eða
Gunnlaugi Björnssyni, Kotá, en
þeir gefa alla rnánari upplýsingar
um ferðina.
Væntanlegir þátttak. eru beðnir
að mæta í Ásgarði í kvöld kl. 8.30.
Fyrir Sjómannafélag Akureyr-
ar átti Lórenz Halldórsson sæti í
samninganefndinni.
Ungur sjómaður
hverfur.
Ungur sjómaður hefur horfið
héðan úr bænum og ekkert til
hans spurzt síðan á aöfaranótt 17.
þ. m. Maðurinn er Jóhannes Sig-
urðsson frá Húsavík, rúmlega
þrítugur að aldri.
Að kvöldi 16. þ. m. var Jóhann-
es á dansleik í Alþýðuhúsinu og
er ekkert vitað xun ferðir hans frá
því hann fór þaðan. Það var ekki
fyrr en þrem dögum eftir hvarf
Jóhannesar að skipsfélagar hans
tóku að undrast um hann, því að
þeir hugðu hann hafa skroppið
heim til sín.
Undanfama daga hefur verið
gerð ýtarleg leit að Jóhannesi,
skátar hafa leitað út með sjó og
slætt hefur verið í höfninni og
ennfremur hafin viðtæk eftir-
grennslan eftir honum. En leitin
hefur engan árangur borið, enn
sem komið er.
Jóhannes var ráðinn hér í skip-
rúm á síldveiðar og nýkominn til
bæjarins.
Tekið skal fram, að ekki varð
ölvun séð á Jóhannesi kvöldið
sem hann hvarf.
Forseti íslands kemur hingað í
opinbera heimsókn á sunnud.
Opinber móttökuathöfn fer fram í Lysti-
garðinum kl. 4
tonn.
355.000
4.000
3.000
1.000
6.00
4.000
5.000
75.000
2.000
2.000
1.700
1.100
(Framhald á 4. síðu).
Heildarsamningar gerðir um
'I I a<¥al ■
sildveiðikjorin
Sjómenn fá hærri hlut eftir að vissu aflamagni
er náð - Kauptrygging hækkar