Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 22.10.1954, Page 3

Verkamaðurinn - 22.10.1954, Page 3
Föstudaginn 22. október 1954 VERKAMAÐURINN S ¥TANN kenndi mér aS lesa fyrir * * tuttugu og fimm árum, og ég man enn eftir því eins og ritúali, allan tímann frá því ég sá hon- um bregða fyrir niðri við Rósen- borg, hvernig sem viðraði að vetrinum, með eitthvað undir hendinni, sem ég bar talsverða virðing fyrir, og þegar ég trítlaði á eftir honum, eftirvæntingar- fullur, upp stigann til stærsta herbergisins á suðurloftinu, sem veit út að Pollinum og Vaðla- heiðinni, og við settumst hlið við hlið á koffort við hrufótt borð, sem allt var í blekklessum sum- part af völdum skólanemenda og sumpart af mín, og þegar hann tók upp gleraugun, fægði þau og setti þau á sig snyrtilega og brá teygisnúrunni utan af þessu, sem var undir hendinni, og opnaði það og í ljós kom Stafrófskver séra Jónasar á Hrafnagili og síðar, þegar fram í sótti, Barnagull eft- ir sama og lét mig stauta þar til hann sagði: Nóg í dag, og klapp- aði á kollinn á mér. Hann kom alltaf með útilykt með sér, og hann kom oftast á morgnana nokkuð snemma, og það var alltaf góð kaffilykt af honum. Mér fannst alltaf verða ilmur úr því, þegar hún og útilyktin blönduð- ust saman við neftóbakslyktina, en hana fann ég greinilegast, þeg- ar hann tók fram rauða klútinn og brá honum á nefið eða þurrk- aði rauða grástirnda efrivarar- skeggið, sem ég gaut oft augun- vun til í laumi og með lotningu. Mér fannst allt í stíl, og síðan átti ég lengi bágt með að hugsa mér kennara og kennslu öðruvísi. Bækumar þessar, sem hann tók fram og setti fyrir framan mig, voru gamlar og gular, og hann hafði haft þær í umferð fjölda ára, og ekki lengur hægt að henda reiður á tölu þeirra, sem höfðu lært til stafs með aðstoð þeirra og hans, er átti þær. Það var líka skrýtin lykt af þeim, og mér þótti alltaf vænt um hana, og síð an hefur hún minnt mig á leynd ardóma vizkunnar, ef nokkuð hefur. Ég varð rígmontinn af því, að mega handfjatla þessar bækur og læra á þær hjá honum, og hvert sinn sem ég fletti blöðunum og rýndi í táknin, andaði ég að mér lyktinni eins og reykelsis ilmi í kaþólskri athöfn. Ég hélt eg yrði vitrari en ella, ef ég gerði það. Og ég var oft hátíðlegur á þeim stundum og forðaðist að láta mig langa of mikið í snjókast eða fara á skíði á Barðstúninu. Ámi Hólm kenndi mér fjóra vetur — það voru góðir dagar — og enn finnst mér hátíð að rifja upp, þeg- ar hann kom með pennastöngina og tók splunkunýjan axarpenna upp úr vestisvasanum eða budd- unni — skakkpenna, sem „fínt“ fólk á dönsku Akureyri kallaði Skævepen, sagði mér að bleyta hann á tungubroddinum, af því að hann væri alveg nýr, kenndi mér í eitt skipti fyrir öll, hvemig ég ætti að stinga honum í grófina og hvemig ég ætti að dýfa hon- um í blekbyttuna með þeirri glæsifágun, sem ég mun seint gleyma, og að lokum hvemig hann stýrði á mér hendinni mjúklega, þegar ég þá í fyrsta sinn paufaðist við skrifstafina. Níræður: ÁRNI HÓLM MAGNÚSSON, kennari Hann dró sjálfur upp stafina, kenndi eftir sinni forskrift. Hann var listaskrifari og fór víða orð af, kenndi snarhönd, studdist við Gröndalskerfi, sem svo er kennt við skáldið Benedikt, og hélt Árni fast við. Koparstungufor- skrift, eins og hún var kennd, kom síðar til sögunnar með for- skriftarbókum Jóns Þórarinsson- ar, fræðslumálastjóra. Snarhöndin aótti mörgum listrænni og per- sónulegri og ekki bundin fast- mótaðri forskrift eins og kopar- stungan. í þann tíð tíðkuðust fagrar rithendur og litið á slíkt sem list. J¥JÁ ÁRNA hlaut ég mennt, sem streymdi til hjartans, því þar varð allt að ævintýri. Á þriðja vetri fór hann að sýna mér á landakort, og þá byrjaði hann einnig að fræða mig um parta ræðunnar í ísienzku og málfræði, allt án bókar, og hjá honurn skrif- aði ég mína fyrstu ritgerð — hún var um vorið minnir mig — og síðar þegar ég fór í annan skóla átti ég eftir að skrifa fleiri rit- gerðir um vorið, en þá þurfti maður endilega að fara öðruvísi að því. Mér hafði þótt gaman að því í~ fyrsta sinn hjá Árna. Ég fékk aldrei á tilfinninguna, að ég væri þvingaður til að læra þetta, sem ég átti að læra hjá honum, og mér fannst allt vera eðlilegt og sjálfsagt eins og veðrið og snjór- inn úti. Á RNI HÓLM MAGNÚSSON er níræður í dag, fæddur 22. október 1864 á hreppsenda í suð- lægum inndal Eyjafjarðar, að Öxnafelli í Saurbæjarhreppi. Þar sátu jafnan hreppstjórar í hans tíð. Foreldrar hans voru Steinunn Benjamínsdóttir Pálssonar, bónda í Víðigerði í Eyjafirði, og Magnús hreppstjóri Ámason, prests Snorrasonar, sem seinast bjó á Tjörn í Svarfaðardal, hafði áður þjónað á Felli í Sléttuhlíð. Magnús faðir Árna var af Húsa- fellsætt, og þaðan eru runnir margir kennimenn og gáfumenn. Hann var tvíkvæntur, og hét fyrri kona hans Hólmfríður frá Ána- stöðum í Eyjafirði, og með henni átti hann tvær dætur, hétu báðar Ragnheiðir, en önnur, sú yngri Guðrún Ragnheiður, giftist séra Jóni syni Jóns lærða á Möðrufelli, sem þjónaði Grundarþingum Ragnheiður hin átti Sigurð bónda á Jórunnarstöðum. Hann var orð- lagður ferðamaður. Synir þeirra voru Magnús stórhöldur á Grund og þeir bræður. Árni var getinn af síðara hjónabandi, og má hik- laust telja ætt hans hafa ,blátt blóð‘, — að hún sé göfug og stór í rót og að eðli. Hann ólst upp í Öxnafelli til fermingaraldui'S. Fór í Möðruvallaskóla haustið 1881 og brautskráðist þaðan 1883. Þá þóttu gerðar harðar kröfur til nemenda, kennarar eftirgangs- harðir og óvægir í einkunnagjöf og 'ekki hneigðir fyrir að „favera“ eins og á skólamáli segir, og við lokapróíið yar Árni sá eini nem- enda, sem hlaut fyrstu aðaleink- unn. Að loknu námi á Möðruvöll- um stundaði Árni kennslu að einhverju leyti með venjulegum sveitarstörfum, en tók nú að búa sig undir skóla hjá séra Jakobi Björnssyni í Saurbæ, sem síðar varð tengdafaðir hans, lærði latínu 1% ár og settist í annan bekk Latínuskólans haustið 1885 að afloknu 1. bekkjar prófi. Hann var tvo vetur suður þar, en veikt- ist af augnveiki seinna veturinn og varð að hætta námi af þeim sökum. Árni gat sér "glæsilegan orðstír fyrir snerpu og afrek í námi. í bekk hans voru þá annál- aðir harðvítugir námsgarpar eins og heitnir Haraldur Níelsson pró- fessor og Sæmundur Bjarnhéð- insson. holdsveikralæknir. Árni varð efstur um vorið eftir fyrra veturinn, en þreytti ekki próf árið síðara vegna þess, sem að framan greinir. Þó var lærdómsáhugi hans svo mikill, hef ég heyrt, að hann bað rektor um að fá að sitja í tímum löngu eftir að hann gat ekki greint á bók sakir sjón- deprunnar og höfuðkvalanna, sem af sjúkleikanum stöfuðu. Árni þótti yfirburðamaður í ýms- um námsgreinum, einkum grísku — þar hafði hann spilin, spaðana og ásana — og sennilega engu lakari í íslenzku og veraldarsögu, því að hann lék sér að þrístimdu praei yfir línima. í lærða skólan- um var þá lögð megináherzla á artes bonae, — fagrar menntir, hinar klassisku dygðir. Inntöku- skilyrði í I. bekk voru 100 síður í Caesar: Það svarar sennilega til fjórða bekkjar lesningar í menntaskóla nú í sömu grein og freklega það. Sjö kennslustundir í henni viku hverja í neðri bekkj um og níu í þeim efri, og 5—7 í grísku. Námið var hart, og það sótti rjóminn af ungmennum þjóðarinnar, og það hafa verið ill örlög, sem sviptu einn mesta námsvíking þeirra allra af miðri framabraut æðri menntunar. Skólaferill Áma hefur verið eins og leiftur, sem bar að, norðan komið undan bröttum hlíðum eyfirzkri dalakyrrð og sló niður þar syðra og brá ljóma yfir nafn þessa yfirlætislausa unga lær- dómsmanns, sem hlaut virðing allra skólapilta og félaga fyrir hæfileika sína, svo lengi var minnum haft. skap. 1890 kvæntist hann núlif- andi konu sinni Ragnheiði Jak- obsdóttur prests Bjömssonar, síns gamla kennara, sem síðast sat að Saurbæ. Bjöm faðir Jakobs var gullsmiður og af Húsafellsætt, svo að ættir Árna og konu hans renna þar saman. í Húsafellsætt þykja jöfnum höndum ráða gáfur og listrænn hagleikur, enda ekki tal- ið fara svo sjaldan saman. Árni reisti bú í Saurbæ, jörðin stór og tvíbýli. Þar var hann oddviti um skeið, 1900—1910. Hann eignaðist sex böm við konu sinni og lifa tveir synir, Magnús Hólm, bóndi á Krónustöðum í Saurbæjar- hreppi og Jakob bóksali, sem lengi var ritstjóri Verkamannsins á Akureyri. Báðir taldir geðfelld- ir gréindarmenn, Jakob listfeng- ur, drátthagur og afburðasnjall skrifari sem faðir hans. Ámi stundaði heimiliskennslu ein göngu fyrstu árin framan af, kenndi börnum og unglingum þar í sveit ýmsar greinar: lestur, skrift og reikning og tungumál, einkum dönsku og ensku og jafn- vel þýzku, sem hann nam af sjálfum sér mestmegnis. Á þeim árum hafði hann samneyti nokk- urt við séra JónaS á Hrafnagili, og fékk léðar hjá honum þýzk skemmti- og fræðirit. Bókmennt irnar Göthe og Schiller lagði hann sér snemma til munns jafn- framt og las mikið tímaritið Die Auslese, sem þótti merkt. Klass- isku málunum kvað hann líka hafa haldið við að talsverðu leyti. Farkennari gerðist hann 1910; er meðal fyrstu hér á landi í þeirri grein, og á því sviði starfaði hann samfleytt til 1928, að hann fluttist til Akureyrar og stundaði kennslu þar á vetrum í einka tímum og ýmsa algenga verka mannavinnu á sumrum, þegar hún gafst. Og kennslunni hélt hann áfram óslitið þar til fyrir 4 —5 árum og hafði þá unnið að ^EGAR fékk norður kom smam saman og hann heilsu ný, byrjaði hann kennslu og bú- henni hvorki meira né minna en rúm sextíu ár. Aldrei í skóla, heldur eingöngu eins og sá, sem á erlendri tungu heitir tutor, og þess vegna aldrei verið háður neinu skólakerfi né bimdinn á klafa fræðslulaga. Hann miðlaði að nemendum sínum eftir kerfi hjarta síns í það og það sinnið eins og góðra kennara er háttur, og hann lánaði börnum og ung- lingum lykla að lífsnauðsynlegri þekkingu, sem honum tókst að gera svo töfrandi og skemmtilega, svo sálrænt og persónulega, að orðin kennari og að Iæra og að lesa urðu að rómantískri mynd, sem aldrei getur fymzt í skugg- anum af ögrandi kaldyrðinu_ skóli. P'G HEIMSÓTTI gamla kennar- ann minn í fyrradag hér á Akureyri. Hann býr í Ránargötu sex niðri á Oddeyri. Ég gekk upp brattan stiga, og á leiðinni þar upp vitjuðu gömul atvik mín og urðu snarlifandi. Ég barði að dyr- um spurði lítil böm, sem komu til dyra, hvort Árni Hólm væri heima. Þau ljómuðu og bentu mér á dyrnar til hans. Ég hafði ekki séð hann nokkuð lengi. Það var svarað kom inn, og ég opnaði, og þar sátu gömlu hjónin hvort gegnt öðru við borð í litlu eld- húsi, konan að vinda hnykil og Ámi á skyrtunni, ylhýr í bragði og em og þekkti mig óðara og tók mér fagnandi eins og ég væri að koma í tíma til hans sem forðum daga. Hann bauð mér í stofu, og þar rabbaði ég við hann. Mér fannst ég læra mikið. Akureyri, 21. október 1954. Steingrímur Sigurðsson. ,»iini>iniiiiiiuiiiitnunMWMminMiWMniiMiMiwiiwm Ritsafn Jóns Trausta 1-8 í Með afborgumim. Bókaverzl. Edda h.f. | Akureyri. Gilbarco-ol í ubrennarar og olíugeymar til húsakyndingar jafnan fyrir liggjandi. — Útvegum olíukynta katla, elda- vélar og hvers konar önnur olíukynditæki með stuttum f^TÍrvara. Olíusöludeild KEA. Vinnan og verkalýðurinn er eiva verkalý ðsvíálatimaritið, sem út kennir að staðaldri hér á landi. Vinnan og verkalýðurinn flytur greinar um verkalýðsmál, erlend sent innlend jöfmtm höndum, e-nnfremur almenn- an fróðleik, Esperantóþátt, kvæði, vísnabálka o. fl. Afgreiðsla Skólavörðustíg, Rvík — Sími 7500

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.