Verkamaðurinn - 13.04.1956, Blaðsíða 3
Föstudaginn 13. apríl 1956
VERKAMAÐURINN
3
Hannibal Valdimarsson:
KROSSFERÐ Á KJÖRDEGI
Ekkert verkalýðsfélag má láta
blekkjast af þeim fölsunum, sem
afturhaldsblöðin beita nú gegn
hugmyndinni um, að komið verði
á fót kosningasamtökum eða kosn-
ingaflokki, sem skuldbindi sig til
að starfa á grundvelli þeirrar
stefnuyfirlýsingar Alþýðusam-
bandsins, sem allir keppast nú við
að yfirlýsa sig samþykka.
Fyrsta blekkingin eða fölsunin,
sem beitt er, er sú, að Alþýðusam-
bandið bjóði fram í kosningunum
í sumar.
Þetta eru ósazmindi frá rótum.
Alþýðusambandið mun hvergi
bjóða fram, og sjálft tekur það
engan beinan þátt í kosninunum.
Onnur blekkingin er sú, að nú-
verandi sambandsstjórn sé með
samþykkt sinni frá 13. marz að
gera Alþýðusambandið að stjórn-
málaflokki.
Einnig þetta er algerlega til-
hæfulaust. Engin minnsta breyt-
ing hefur verið gerð á skipulagi
Alþýðusambandsins, enda verður
slíkt ekki gert, nema með laga-
breytingu á Alþýðusambandsþingi.
Þá er því haldið fram, að verið
sé að gera verkalýðsfélögin að
flokksfélögum. — Þetta er alger
tilbúningum, sem sögumennirnir
sjálfir geta enga grein gert fyrir.
Málið er ofur einfalt, svo að all
ir, sem skilja vilja, geta skilið það:
Það, sem gerzt hefur, er þetta:
Fundur fullskipaðrar sambands-
stjórnar, ásamt fulltrúum frá
fjórðungasamböndunum og Full-
traúráði verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, gerði um það einróma
samþykkt, að fela nefnd frá sam
bandsstjórninni (þeirri, sem ann-
azt hefur viðtölin við vinstriflokk-
ana) að vinna að því að koma á
fót kosningasamtökum, er allir
þeir, sem aðhyllast stefnuyfirlýs-
ingu Alþýðusambandsins, geti
fylkt sér um í kosningunum í
sumar.
Annað en þetta hefur ekki
gerzt.
Stjórnmálaflokkarnir geta að
vísu látið í ljós, að þeim sé mein-
illa við, að slík samtök verði til.
En þeir hafa ekkert vald til — og
eiga engan rétt á að skipta sér af
því, hvaða samþykktir Alþýðu
samband Islands gerir, fremur en
Alþýðusambandið hefur nokkurn
húsbóndarétt yfir því, hvaða
ókvarðanir og ályktanir flokks-
stjórnir gera á löglegum fundum
sínum.
Hér verður því hver að búa að
sínu. Enginn getur bent á, að
framanrituð samþykkt brjóti í
bága við sambandslögin. Hún
skerðir ekki á nokkurn hátt rétt
nokkurs verkalýðsfélags í Alþýðu
sambandinu, né heldur rétt nokk-
urs einstaklings í verkalýðsfélagi.
— Þá leggur hún heldur ekki
neina skyldu á herðar nokkrum
einstaklingi eða verkalýðsfélagi.
Kosningaflokkur sem þessi er
heimill samkvæmt kosningalögun-
um. Hann verður óhóður Alþýðu-
sambandinu, og það líka skipu-
lagslega óháð honum. Verkalýðs-
félögin og allir félagsmenn í þeim
eru alfrjálsir að velja, hvaða flokk
sem þeir vilja, og hvaða kosninga-
bandalag sem þeir vilja. — Hér er
því um enga pólitíska þvingun að
ræða. — Þeir, sem því vilja halda
fram, gera sig aðeins hlægilega.
Kosnignabandalag alþýðunnar
verður öllum opið, og það mun fá
fylgi einstaklinga úr öllum flokk-
um. Enginn þarf að ganga úr sín-
um pólitíska flokki, þó að hann
kjósi það, enda mun heldur ekki
til þess ætlazt, að Framsóknar-
menn, sem kjósa eiga Alþýðu-
folkksframbjóðendur í ýmsum
kjördæmum eða Alþýðuflokks-
menn, sem kjósa eiga Framsókn-
arframbjóðendur, eigi að breyta
flokkspólitískri afstöðu sinni,
þrátt fyrir stjórnmálasamstarf í
þetta sinn.
Nei, þetta mál er ekki auðvelt
að flækja. — Verkalýðurinn vel-
ur á milli Sjálfstæðisflokksins,
kosningabandalags Framsóknar og
Alþýðuflokksins og Alþýðubanda-
lagsins.
Þeir, sem stöðva vilja dýrtíðar-,
gengisfellingar- og skattpíningar-
stefnu íhalds og Framsóknar,
kjósa gegn þeim flokkum. Þeir,
sem stuðla vilja að sameiningu al-
þýðustéttanna, kjósa gegn Þjóð-
varnarflokknum, og þeir, sem vilja
eiga öruggan brimbrjót á Alþingi
gegn gengislækkun og kaupbind-
ingu og til að verja kaupmátt
launanna, ganga nú vígreifir út í
kosningabardagann með kjörseðil-
inn að vopni og kjósa Alþýðu-
bandalagið.
Hér hefur það eitt gerzt, að for-
usta verkalýðssamtakanna ráð-
leggur, eins og sakir standa, breytt
vinnubrögð í kjarabaráttunni.
í stað þess að heyja látlausa
verkfallsbaráttu til að vernda
kaupmátt launanna, eru allir
launamenn nú hvattir til að standa
saman á stjórnmálasviðinu, hvar í
flokki sem þeir standa og vinna
sinn kjarasigur með krossi á kjör-
seðli.
Út í þá krossferð mun alþýða
landsins ganga sameinuð og sigur-
viss og standa af sér hverja raun
eins og verkfall væri.
- „Vestrænt rétíarfar"
(Framhald af 2. síðu).
Afríkumenn af Kikujuættflokkn-
2. nóvember.
Enskar lögreglusveitir drepa 11
Afríkumenn. Fjórir þeirra voru
foringjar í mótspyrnuhreyfingunni.
17. desember.
9 Afríkumenn hengdir — fimm
fyrir morð, einn fyrir að hafa í
fórum sér ólögleg skotfæri, einn
fyrir ólöglega skammbyssu, einn
vegna heimagerðrar byssu og einn
fyrir að hafa hitt þann síðarnefnda
að máli.
Já! Þið lesið rétt, hengdur fyrir
að hafa hitt mann að máli. Slíkar
eru aðfarir „frjálsa heimsins“, í
þeim hlutum veraldar, sem ekki er
tekið þegjandi við „lýðræðinu“. í
franska hluta Norður-Afríku er
reyndar alls ekki nauðsynlegt að
hitta neinn að máli, til þess að
geta átt von á að ver,ða útrýmt.
En bót er sú í máli, að franskir
ráðherrar tala mjög sannfærandi
um að dagar nýlendukúgunarinnar
séu úr sögunni. Alsír er jú engin
nýlenda — bara hluti af Frakk-
landi.
Aðeins fáar svipmyndir frá höf-
uðstöðvum „hins frjálsa heims“,
Bandarikjunum, frá sl. ári: Hver
minnist nú Matusows? Matusow
var fremsta vitni ríkislögreglunnar
og McCarty’s gegn öllum „óamer-
ískum“. Hann var maðurinn sem
sendi með vitnisburðum sínum
fjölda manna í margra ára fang-
elsi, m. a. marga kommúnista. En
svo skeði það að hann „frelsaðist".
Hann játaði opinberlega í blöðum
að vitnisburður sinn hefði verið
upploginn og að sér hefði verið
mútað. Hann fékk sinn dóm:
tveggja ára fangelsi fyrir að lítils
virða réttinn! En fórnarlömb
hans? Jú, þau sitja í fangelsum
enn þann dag í dag, og áfrýjunum
þeirra hefur hvergi verið anzað.
Og negrapresturinn Lee, sem
var skotinn til bana af óþekktum
bófaflokki 1. júní 1955 — hann
hafði neitað að láta strika sig út
kjörskrá. Eða 14 ára svertingja-
drengurinn, sem var myrtur fyrir
að hafa blístrað í návist hvítrar
konu. Líki hans var svo misþyrmt
að það var nær óþekkjanlegt og á
þeirri forsendu voru morðingjarn-
ir dæmdir sýknir, meira að segja
af hæstarétti! Þann 11. október
var svertingjakirkjan í Lake City
í Californíu brennd til ösku, af því
að presturinn þar var leiðtogi gegn
kynþáttámisréttinu. 12 ára svert-
'ngjadrengur, Tim Hudson, fannst,
í nóvember, drepinn á hryllilegan
hátt. Rétt áður en hann var myrt-
ur hafði hann átt í sennu við hvít-
an jafnaldra sinn út af einum doll-
araseðli, sem þeir höfðu fundið.
Herbert Johnson í Texas, formað-
ur nefndar, sem berst fyrir jafn-
rétti hvítra og svartra manna, sem
fannst stunginn til bana 7. desem-
ber. Hvítur kviðdómur sýknaði á
Þorláksmessu kaupmanninn Ira
Hinton, sem drepið hafði svert-
ingjann Howard Bromley í Vir-
ginia. Svertinginn hafði notað
„gróf skammaryrði" og þá hlupu
óvart skot úr skammbyssu kaup-
mannsins. Reyndar þrjú talsins.
Já, það er vissulega engin furða
þótt fyrirsvarsmenn „frjálsa heims
ins“ hafi sig alla við að passa upp
á „frelsi einstaklingsins" og „rétt-
indi borgaranna“, t. d. í Tékkó-
slóvakíu og öðrum Austur-Ev-
rópulöndum og gráti fögrum tár-
um yfir því sem miður er um rétt-
arfar í þeim löndum.
Fundur
stuðningsmanna
Alþýðubandalagsins
verður haldinn í ALÞÝÐUHÚSINU á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 4 síðdegis.
FUNDAREFNI:
Stjórnmálaviðhorfið og
kosningabaráttan.
Málshefjandi verður EINAR OLGEIRSSON, varafor-
maður Alþýðubandalagsins.
Allir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins eru velkomnir
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ.
Pálmholt
Dvalarheimilið Pálmholt tekur til starfa 1. júní og verð-
ur starfrækt 3i/£ mánuð.
Tekin verða börn á aldrinum þriggja til fimm ára.
Þeir, sem ætla að koma börnum til dvalar þar, snúi
sér til undirritaðara kvenna, sem gefa allar nánari upp-
lýsingar.
Kristín Pétursdóttir, Spítalaveg 8, sími 1038.
Soffía Jóhannesdóttir, Eyrarveg 29, sími 1878.
Nýjung!
■■■d^^S^þ
VINNUBUXUR
Fataverksnúðjan Hekla á Akureyri cr
nú byrjuð að framleiða nýja gerð af
vinnubuxum úr vinnufataefni, er ber
af öðrum slíkum efnum. Er það ofið
úr ull, bómull og undraefninu Grilon,
sem er sterkara en nælon. Ullin gefur
buxunum lilýleika, sem venjulegar
vinnubuxur hafa ekki, og Grilon gef-
ur þeim slitþol langt fram yfir aðrar
vinnubuxur. Kynnizt þessari nýjung,
reynið Grilon-vinnubuxumar. — Þær
fást hjá kaupfélögum um allt land og
fjölmötgum öðmm verzlunum.
SALA
hefst á ódýrum og gölluðum vörum í bak-
húsinu Hafnarstræti 103, þriðjud. 17. apr.
Komið og gerið góð kaup á:
Prjónavörum, vefnaðarvörum,
fatnaði o- fl.
Verzlunin DRÍFA.