Verkamaðurinn - 07.12.1956, Síða 1
VERKAMAÐURINN
er í Reykjavík seldur í
Sölutuminum við Am-
arhól.
Mikið atvinnuleysi
Bæjarstjórn hefur nú loks ákveðið að
opna vinnumiðlunarskrifstofu
Vinnumiðlimarnefnd bæjarins annast vinnu-
miðlunina fram yfir áramót
Stjórnmálaályktun flokksstjórnar Sósíalistaflokksins:
Stöndum vörð um réttindi þjóðarinnar:
brottflutning hersins og stækkun landhelginnar
annast það starf. Var búið að
vera mikið og undarlegt þóf um
þetta í bæjarstjórn og börðust
Framsóknarmenn sérstaklega
gegn því og báru það m. a. fyrir
sig, að hér væri ekkert atvinnu
leysi, og sennilega hafa þeir álit-
ið, að það myndi aldrei verða!
Betur að rétt væri, en staðreynd-
irnar segja annað, svo sem verka
mönnum er bezt kunnugt. Og
fjöldi verkamanna var vinnulaus
sl. þriðjudag, þrátt fyrir yfirlýs-
ingar Stefáns Reykjalíns á bæj-
arstjórnarfundinum um að allir
hefðu vinnu.
Vinnumiðlunamefnd bæjarins
annast vinnumiðlunina fyrst
um sinn.
Þar sem nokkur dráttur hlýtur
enn að verða á því, að vinnu-
miðl'unarskrifstofan geti tekið til
starfa, auglýsa þarf eftir starfs-
manni o. s. frv., ákvað bæjar-
stjórnin, eftir tillögu frá Jóni
Ingimarssyni, að fela vinnumiðl-
unarnefnd bæjarins að annast
vinnumiðlunina þar til vinnu-
miðlunarskrifstofan verður opn-
uð.
Mun því skráning atvinnulausra
manna fara fram á skrifstofu
bæjarins, og ættu þeir, sem enga
vinnu hafa og vilja verða vinnu-
miðlunar aðnjótandi eða .öðlast
(Framhald á 2. síðu).
r
Avarp til bæjarbúa
Góðir Akureyringar!
Nú, eins og undanfarin ár, leit-
ar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar
til bæjarbúa með jólasöfnun
nefndarinnar og væntir góðra
undirtekta. Síðastliðið ár nam
söfnun nefndarinnar kr. 13.619.55.
Úthlutun varð kr. 19.300.00, auk
mikilla og góðra fata, sem gefin
voru bæði, af verzlunum og öðr-
um. — Nú eru fleiri, sem þurfa
hjálpar við, sérstaklega einstæðar
mæður, einnig barnmargar fjöl-
skyldur og gamlar konur, sem
aðeins hafa sín ellilaun, og ekki
vilja leita til þess opinbera. —
Næstu daga munu skátarnir
ganga um bæinn og safna pen-
ingum og fötum. Gömul föt eru
vel þegin, ef þau eru hrein og
heil.
Um leið og nefndin þakkar fyr-
ir það örlæti og velvild, sem
margir hafa sýnt henni, treystir
hún því, að nú muni verða ham-
ingja með störfum hennar. Við
viljum biðja þær konur, sem
óska eftir aðstoð, að gefa sig fram
við nefndarkonur. — Geta þær
hringt í einhvern eftirtalinna
síma: 2243, 2111, 1315, 1187, 2267,
1115, 1851, 1174.
Mæðrastyrksnefnd.
Skrifstofa Mæðrastyrksnefndar
er í Verkalýðshúsinu, Strandgötu
| 7. Opin kl. 5—7 e. h. á mánudög-
um og föstudögum.
í síðustu viku var haldinn í Reykjavík flokksstjórnarfund-
ur Sósíalistaflokksins, þar sem mættir voru fulltrúar víðs veg-
ar af landinu. Var þar rætt um stjórnmálaviðhorfið, starfsemi
flokksins og fleiri mál.
Ymsar gróusögur hafa að undanfömu gengið um illdeilur
og ósamkomulag á fundinum, en Verkamanninum er það
ánægja að geta frætt lesendur sína á því, að allar slíkar sögur
eru uppsuni einn og úr lausu lofti gripnar, og því til sönnun-
ar má benda á, að allar ályktanir flokksstjómarfundarins vom
samþykktar í einu hljóði. Slúðursögumar em aðeins tilbún-
ingur óvandaðra manna, sem hafa vonast eftir ágreiningi, en
verða nú að ganga vonsviknir til herbúða sinna.
Stjórnmálaályktunin var sam- I
þykkt í einu hljóði, eins og aðrar
ályktanir flokksstjómarfundar-
ins, og fer hún hér á eftir:
Fagnar miklum árangri.
„Flokksstjórn Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíalistaflokks-
ins fagnar þeim mikla árangri, er
náðst hefur í því að koma á ein-
ingu alþýðustéttanna á íslandi
með stofnun Alþýðubandalagsins
og myndun vinstri ríkisstjórnar.
Lýsir flokksstjórnin sig sam-
þykka gerðum miðstjórnarinnar í
báðum þessum þýðingarmiklu
ráðstöfunum.
Órjúfandi samheldni.
„Flokksstjórnin heitir á allar
vinnandi stéttir landsins að varð
veita og efla þá einingu vinnandi
stéttanna, sem myndazt hefur um
stefnuskrá ríkisstjórnarinnar, og
skapa órjúfandi samheldni um að
knýja fram þá stefnu, er stjórn-
arsáttmálinn markar og meiri-
Nýir samningar um dvöl ameríska selu
liðsins á Islandi
Ráðherrar Alþýðubandalagsins voru
ekhi hafðir með i ráðum um orðalag
eða innihald samninganna
Þeir voru staðfestir og birtir á Alþingi í gær
Verulegt atvinnuleysi er nú
ríkjandi meðal verkamanna hér
í bænum, og hefur farið stöðugt
vaxandi frá því um miðjan nóv-
ember, en til þess tíma munu
flestir hafa haft nokkurn veginn
stöðuga vinnu, enda veðrátta
mjög hagstæð til hvers konar
útivinnu.
Mjög lítil vinna er nú hjá Út-
gerðarfélaginu, þar sem togar-
arnir selja aflann ýmist á erlend-
um markaði eða í frystihús út
um land og vinna við frystihúss-
bygginguna liggur niðri sakir
fjárskorts.
Þá hefur vinna við bygginga-
framkvæmdir almennt mjög
dregizt saman að undanförnu, svo
sem jafnan á þessum árstíma og
lítil vinna er hjá bænum.
Slæmar horfur.
Því miður lítur út fyrir, að at-
vinnuhorfur mikils hluta verka-
manna séu nú með versta móti.
Raunar má gera ráð fyrir, að dá-
lítil vinna, einkum skipavinna,
verði núna fram að hátíðum, en
eftir áramót eru ekki horfur á
öðru, en að mikið atvinnuleysi
verði ríkjandi.
Allt mun í óvissu um, hverjar
veiðar togararnir stunda eftir
áramótin, en imdanfarna vetur
hefur verið mikil atvinnubót að
löndimum þeirra hér, er þeir hafa
stundað veiðar í salt eða til
skreiðarverkunar, en nú liggur
það í loftinu, að minna verði
landað hér heima en verið hefur
undanfarna vetur.
Er illt til þess að vita, að enn
skuli líða einn vetur, án þess að
draumur verkamanna um vinnu í
hraðfrystihúsinu rætist. Eins og
nú standa sakir mun enn vanta
um 3,5 millj. króna til að ljúka
framkvæmdum við frystihúsið.
Hefur stjórn Útgerðarfélagsins
nú sett alla sína von á, að ríkis-
stjómin leysi það mál, og er von-
andi að sú lausn berist hið fyrsta,
svo að hægt verði að ljúka bygg-
ingunni og tryggt verði, að þetta
verði síðasti veturirm, sem landa
þarf afla togaranna á öðrum stöð-
um á sama tíma og verkamenn
hér ganga atvinnulausir.
Vinnumiðlun —
atvinnuleysistryggingar.
Á bæjarstjórnarfundi á þriðju-
daginn var loks samþykkt, að sett
skuli upp hér vinnumiðlun í sam-
ræmi við lög þar um frá sl. vori,
og ráðinn sérstakur maður til að
Það hefur verið á almennings
vitorði að undanförnu, að ríkis-
stjórnin gekk í fyrra mánuði frá
nýjum samningum við stjórn
Bandaríkjanna um dvöl setuliðs
þeirra hér á landi. Þessir samn-
ingar voru birtir á Alþingi í gær,
og það sorglega kemur í ljós, að
þeir eru gruggugir mjög, og lítt
gerðir í anda samþykktar Al-
þingis frá 28. marz sl.
Einnig kom það í ljós, að ríkis-
stjórnin hefur ekki öll fjallað um
samningana, heldur hafa einstak-
ir ráðherrar algerlega um þá
fjallað og sniðgengið alveg ráð-
herra Alþýðubandalagsins a.
m. k.
Eru þetta hin undarlegustu
vinnubrögð og virðist svo, sem >
þeim, er þau viðhafa, sé lítt um-
hugað að treysta samstarfið inn-
an ríkisstjórnarinnar eða milli
stjórnarflokkanna almennt. Er
það greinilegt, að ef slík vinnu-
brögð verða tekin upp almennt,
getur núverandi ríkisstjórn ekki
orðið langra lífdaga auðið, en al-
menningur um allt land hefur
bundið miklar vonir við hana og
myndi verða mjög vonsvikinn, ef
hún yrði að fara frá á næstunni.
Þar sem blaðinu bárust ekki
hinir nýju samningar, sem eru í
tvennu lagi og voru í gær stað-
festir með skeytasendingum milli
ríkisstjórnanna, er ekki hægt að
ræða þá ýtarlega nú, en það er
fljótsagt, að þetta eru ekki gæfu-
leg plögg, þó er í þeim sá ljósi
punktur, að ríkisstjórn íslands
getur, hvenær sem er, með 18
mánaða fyrirvara, sagt hernum
að fara.
Samningarnir fara hér á eftir,
ásamt yfirlýsingu frá ráðherrum
(Framhald á 2. síðu.)
hluti þjóðarinnar samþykkti í
kosningunum í sumar.
Varar við sundrungaröflum.
„Flokksstjórnin hvetur alla al-
þýðu til þess að standa einhuga
gegn öllum tilraimum auðmanna-
stétta innanlands og utan til þess
að eyðileggja stjórnarstefnu vinn
andi stéttanna og sundra einingu
þeirra. Sérstaklega hvetur flokks
stjórnin alþýðuna til þess að vera
vel á verði gagnvart þeim af
hægri mönnum Alþýðuflokksins,
sem nú hafa hafizt handa í sama
skyni innan frá úr herbúðum
stjórnarflokkanna sjálfra.
Brottför hersins og stækkun
landhelginnar.
„Flokksstjórnin skorar á alla
hernámsandstæðinga að fylgja
fast eftir baráttu sinni fyrir brott
för hersins og tryggja að staðið
verði við fyrirheit Alþingis og
ríkisstjórnar um það efni. Heitir
flokksstjórmn á öll þau samtök
með þjóðinni, sem vilja, að vér
íslendingar sjálfir, og vér einir,
ráðum landi voru og landgrunni,
að sameinast um að standa vörð
um rétt þjóðarinnar í þessuih
sjálfstæðismálum: um fram-
kvæmd kröfunnar um brottflutn-
ing hersins og stækkun landhelg-
innar.
Lán til stórframkvæmda.
„Flokksstjórnin lýsir sérstak-
lega fylgi sínu við stórhuga fyrir-
ætlanir ríkisstjórnarinnar um
kaup 15 togara og nýrra báta og
hvetur til þess, að undinn sé
bráður bugur að því, að taka er-
lend lán með hagkvæmum kjör-
um til þessara framkvæmda, sem
framtíðaratvinnulíf þriggja lands
fjórðunga byggist á.
Framkvæmd stjórnarsáttmálans.
„Flokksst j órnin felur mið-
stjórninni og öllum flokksfélög-
um að gera allt, sem í þeirra
valdi stendur til þess að fylkja
vinnandi stéttum landsins og öll-
um þjóðhollum fslendingum sam-
an um framkvæmd stjómarsátt-
málans frá 21. júlL“