Verkamaðurinn - 18.03.1960, Qupperneq 1
ÞJÓÐVILJINN
er dagblað íslenzkrar al-
þýðu. A þeim örlagaríku
tímum, sem nú eru fram-
undan, verða allir að lesa
ÞJÓÐVILJANN.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 18. marz 1960
11. tbl.
TILLÖGUR
Alþýðubandalagsins
í bæjarstjórn
Á fundi bæjarstjórnar Ak-
ureyrar á þriðjudaginn, þegar
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir
þetta ár var til lokaafgreiðslu,
lagði Jón B. Rögnvaldsson
fram eftirfarandi tillögur:
„Bæjarstjórn samþykkir, að
af framlagi til Framkvæmda-
sjóðs verði tilskilið, að kr.
1.000.000.00 renni til byggingar
togaradróttarbrautar.“
Tillagan vai felld með 9 at-
kvæðum gegn 2.
„Bæjarstjóm samþykkir, að
tekinn verði upp á fjárhags-
áætlun nýr liður: Til íbúða-
bygginga til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæði kr.
500.000.00. Framlag til Fram-
kvæmdasjóðs lækki um sömu
upphæð.“
Tillagan var felld með 9 at-
kvæðum gegn 2.
„Bæjarstjóm samþykkir, að
bundið verði í fjárhagsáætlun
yfirstandandi árs, að af fram-
lagi til Framkvæmdasjóðs
skuli kr. 1.000.000.00 varið til
kaupa á togurum eða öðrum
fiskiskipum."
Tillagan var felld með 9 at-
kvæðum gegn 2.
„Liður X, g^tnagerð og
skipulag, hækki um kr.
500.000.00, er skiptist til helm-
inga á undirliði 4 og 5.“ (Þ. e.
viðliald vega og nýjar götur.)
Tillagan var felld með 9 at-
kvæðum gegn 2.
„Styrkur til Ferðamálafélags
Akureyrar, liður XIII, undir-
liður 15, falli niður.“
Tillagan var felld með 9 at-
kvæðum gegn 1.
Allir fulltrúar íhaldsins,
kratinn og Framsóknarmenn-
irnir sameinuðust um að fella
þessar tillögur, og sýndu með
því hug sinn til framkvæmda
á vegum bæjarins.
Þessi mynd er af Helga Fló-
ventssyni, nýja bátnum, sem
kom til Húsavíkur í byrjun
mánaðarins. — Innsett í annað
hornið er mynd af skipstjóran-
um, Hreiðari Bjamasyni. Skip
og skipstjóri stunda nú veiðar frá
Keflavík, og í fyrsta róðrinum
kom báturinn með meiri fisk að
landi en aðrir gerðu þann dag.
©----------------------------•
Jónas Halldórsson skák-
meistari Norðurlands
Þá eru loksins fengin úrslit í
keppninni um titilinn Skák-
meistari Norðurlnads 1960. Eins
og menn minnast urðu þrír
keppendanna efstir og jafnir að
vinningúm á Skákþingi Norð-
lendinga í vetur, þeir Jóhann
Snorrason, Margeir Steingríms-
son og Jónas Halldórsson. Var
ákveðið, að þeir skyldu síðar
keppa til úrslita um meistaratit-
ilinn. Sú keppni hófst hér fyrir
nokkru. í fyrstu atrennu urðu
allar skákirnar jafntefli, en í
annarri umferð bar Jónas Hall-
dórsson sigur úr býtum, hann
vann Jóhann og gerði jafntefli
við Margeir, Jóhann vann Mar-
geir. .
Jónas Halldórsson er því Skák-
meistari Norðurlands 1960. Jónas
er kornungur maður frá Leys-
ingjastöðum í Austur-Húnavatns-
sýslu.
VAXANDI AFLI
Afli hefur mjög glæðst að und-
anförnu, bæði hjá togurunum og
togbátunum, sem veiðar stunda
hér fyrir Norðurlandi og leggja
afla sinn upp í Ólafsfirði, Hrísey
og Dalvík, t. d. landaði Sigurður
Bjarnason í Hrísey í vikunni 111
tonnum úr einni veiðiferð.
Kaldbakur landaði hér í hrað-
frystihúsið á miðvikudag og
fimmtudag ca. 250 tonnum og
Harðbakur var væntanlegur í
nótt, einnig með góðan afla. —
Svalbakur hefur verið í Slipp í
Reykjavík, en er væntanlegur
næstu daga og heldur þá strax á
veíðar. Sléttbakur er á veiðum.
BRETINN Á UNDANHALDI
Englendingar hafa nú gefizt
upp við að láta herskip sín halda
vörð um togara sína að ólöglcg-
um veiðum innan íslenzkrar
landhclgi. Sl. þriðjudagskvöld
tilkynntu herskipin ensku togur-
unum, að þeir yrðu ekki lengur
verndaðir innan landhelgi Is-
lands og héldu síðan á brott. —
Togaramir fóru einnig allir út
fyrir línu, enda þó búast megi
við, að þeir reyni framvegis að
stelast inn fyrir línu, eins og
enskir togarar hafa jafnan reynt
hér við land. En þá verður auð-
veldara að ná þeim, þegar her-
skipir eru ekki lcngur annars
vegar.
Af enskra hálfu er því haldið
fram, að þeir hafi hætt herskipa-
vemdinni til þess að hafa betri
vígstöðu á haflagaráðstefnunni,
sem nú er hafin í Genf. Verður
þó varla séð, að aðstaða þeirra sé
nokkru betri þó að þeir hætti að
stela á meðan ráðstefnan stend-
ur. Enda mun það sönnu nær, að
raunveruleg ástæða sé sú, að
þeir séu orðnir fullþreyttir á
hernaði sínum hér og hafi nú
fundið tylliástæðu til að hætta
honum um sinn a. m. k. Er því
full ástæða til að fagna sigri. Þó
að hér sé ekki um endanlegan
sigur í landshelgisstríðinu að
jræða, þá er þetta stórsigur.
Fjárhagsáætlun hæjarsjóðs Akureyrar
er í heild óraunhæf
Ekkert tillit er tekið til þeirrar miklu útgjalda-
aukningar, sem hlýtur að verða vegna gengis-
lækkunarinnar, söluskattsins og vaxtaokursins
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar var endanlega sam-
þykkt á fundi bæjarstjómarinnar sl. þriðjudag. Niðurstöðu-
tölur fjárhagsáætlunarinnar tekna- og gjaldamegin em kr.
25.208.700.00, eða rúmlega þremur milljónum króna hærri
en í áætlun liðins árs. Útsvör em nú áætluð kr. 17.772.700.00,
og lækkra frá fyrra ári um 5,7%, eða röska milljón króna.
Áður en áætlunarfrumvarpið
kom til 2. umræðu fjallaði bæj-
arráð um það og gerði nokkrar
tillögur til breytinga, sem allar
voru samþykktar af bæjarstjóm,
en þær voru helztar, að inn kem-
ur nýr tekjuliður, sem er hluti
bæjarins af söluskatti, áætlaður
2,8 millj. kr. á árinu, hækkun
verður á fjárveitingum til trygg-
inga- og framfærslumála, alls 530
þús., framlag til Framkvæmda-
sjóðs lækkar um 500 þús. og
lækkun á heildarupphæð útsvara
verður 2 millj. 738 þús. kr. frá
því, sem var í upphaflegu áætl-
uninni. Tillagan um lækkun
framlags til Framkvæmdasjóðs
var samþykkt með 6 atkv. íhalds
og Braga, en Framsóknarmenn-
irnir greiddu atkvæði gegn lækk
uninni og fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins greiddu ekki at-
kvæði. . — . .
Tillögur Alþýðubandalagsins
um skiptingu á fé Framkvæmda-
sjóðsins hlutu ekki samþykki í
bæjarráði, og annars staðar hér
á síðunni er greint frá, hverjar
móttökur þær hlutu, er þær voru
aftur teknar upp í bæjarstjórn
lítið breyttar. En þær, ásamt
öðrum tillögum fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, voru allar felldar.
í umræðum á bæjarstjórnar-
fundinum á þriðjudaginn lögðu
bæjarfulltrúarnir Jón B. Rögn-
valdsson og Jón Ingimarsson
mikla áherzlu á það, að fjárhags-
áætlunin í heild væri óraunhæf
og myndi valda mjög miklum
samdrætti um atvinnu og fram-
kvæmdir hjá bænum og auk þess
væri stórhætta á því, að síðar á
árinu yrði að grípa til þess neyð-
arúrræðis að láta fara fram auka-
niðurjöfnun útsvara. Gagnrýndu
þeir það mjög ákveðið, að ekki
skyldi neitt tillit vera tekið til
þeirra stórfelldu hækkana á út-
gjöldum, sem sú dýrtíðaralda,
sem nú hefur verið steypt yfir
þjóðina, hlýtur að hafa í för með
sér fyrir bæjarfélagið jafnt sem
einstaklinga. Auk þeirra vöru-
verðshækkana, sem nú eru að
verða fullljósar, bentu þeir á, að
óhjákvæmilega hlytu- að verða
miklar hækkanir á almennú
kaupgjaldi. Á 4. síðu blaðsins er
nánar sagt frá gangi umræðna á
fundinum.
Við atkvæðagreiðslu um fjár-
hagsáætlunina í heild greiddu
fulltrúar Alþýðubandalagsins
ekki atkvæði, en Jón Rögnvalds-
son gerði grein fyrir afstöðu
sinni á þessa leið:
„Eg greiði fjárhagsáætlun fyrir
Akureyrarkaupstað árið 1960
ekki atkvæði af eftirfarandi
ástæðum: Eg tel áætlunina í
heild óraunhæfa, þar sem ýmsir
útgjaldaliðir hennar hljóta að
fara langt fram úr áætlun vegna
þeirra aðgerða í efnahagsmálum,
sem ýmist hafa þegar verið sam-
þykktar eða gert er ráð fyrir, að
samþykktar verði á Alþingi
næstu daga. Ennfremur er eg
ósammála afgreiðslu ýmissa þýð
ingarmikillt liða í áætluninni,
svo sem því, að lagt sé mikið fé
í svonefndan Framkvæmdasjóð
án þess að jafnhliða sé ákveðið,
hvemig því verði ráðstafað.“
Góður loðnuafli
á Húsavík
Húsavík 16. marz. — Hér hef-
ur verið indæl veðrátta að und-
anförnu og gæftir góðar. Fiskafli
hefur þó verið lélegur, en mikið
hefur aflast af loðnu og hefur
Fiskiðjusamlagið keypt hana til
frystingar. Rauðmagaveiði hefur
einnig verið ágæt, og Fiskiðju-
samlagið kaupir þann afla einn-
ig. Menn eru að vona, að fisk-
ganga komi í kjölfar loðnunnar.
XII. ÞING
Sósíalistaflokksins
Tólfta þing Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins —
verður sett í Reykjavík kl. 4 í
dag. Þingið sækir fjöldi fulltrúa
frá Sósíalistafélögunum víðs
vegar um land. Sósíalistafélag
Akureyrar sendir 9 fulltrúa á
þingið. Sumir þeirra fóru suður
í gær, en hinir fara í dag.
Gert er ráð fyrir, að þingfundir
verði á laugardag og sunnudag
og þingslit á sunnudagskvöld.