Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 16.09.1960, Blaðsíða 3

Verkamaðurinn - 16.09.1960, Blaðsíða 3
Föstudaginn 16. sept. 1960 VERKAMAÐURINN 3 Kosningar til Alþýðusambandsþings Kjaramálin verða höfuðmál þingsins Um þessa helgi hefjast kosning- ar til 27. þings Alþýðusambands fslands, sem haldið verður síðari hluta nóvembermánaðar n.k. — Kosninga til Alþýðusambands- þings hefur ávallt verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, enda leiðir af sjálfu sér, að eigi skiptir litlu fyrir þróun þjóðmála, hver afstaða heildarsamtaka verkalýðsins er. Að þessu sinni er þann veg komið málum, að afstaða þings Alþýðusambandsins til kjara- mála verkalýðsstéttarinnar ann- ars vegar og þeirrar stefnu, sem fylgt er af valdhöfunum hins vegar, hljóta að hafa mjög mikil áhif á þróun mála á næstunni. Frá því að „vinstri stjórnin“ svokallaða fór frá völdum hafa dunið yfir alþýðu þessa lands meiri kjaraskerðingar en dæmi munu til áður. Frá því um ára- mótin 1958—59 hafa Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkurinn farið með stjóm landsins, og það verður vart annað séð af stjórnarathöfn- um þeirra, en að helzta áhuga- málið hafi verið að skerða kjör almennings, koma lífskjörum vinnandi fólks, fólksins, sem skapar þau verðmæti, sem þjóð- in lifir af, það langt niður, að leita verði aftur til kreppuáranna milli 1930 og 1940 til að finna eitthvað sambærilegt. Árásirnar á lífskjörin hófust þegar í ársbyrjim 1959 með því að Alþingi var látið samþykkja lög um 13,4% beina kauplækkun og gera þar með að engu löglega gerða kjarasamninga hvers ein- asta verkalýðsfélags í landinu. Mun einsdæmi í þjóðfélögum, sem kenna sig við lýðræði, að samningafrelsi einstaklinga og samtaka sé skert á svo blygðun- arlausan hátt. Þetta var þó ein- ungis upphaf og smámunir einir hjá því sem á eftir kom, þ. e. a. s. „viðreisninni“ svokölluðu, sem barin var í gegnum Alþingi í vor af ofurvaldi flokksforystu stjórn- arflokkanna. Með gengislækkun- inni var hleypt af stað mestu verðbólgu og dýrtíðarflóði, sem um getur hérlendis, og eru eng- an veginn öll kurl komin til grafar ennþá og hefur flestum þó þótt nóg um þær svo til daglegu verðhækkanir jafnt á nauðsyn- legum sem ónauðsynlegum vam- ingi, sem verið hafa daglegt brauð allt frá því að „viðreisnar- lögin“ voru samþykkt í vor. T. d. er nú þessa dagana verið að hækka allar landbúnaðarvörur mjög verulega. Eitt ákvæði „viðreisnarinnar“ var að afnema og banna strang- lega kaupbreytingar í samræmi við breytt verðlag, en vísitölu- uppbótin var ein helzta vörn launþeganna gegn dýrtíðarflóð- inu og jafnframt nokkurt aðhald fyrir dýrtíðarspekúlantana. Með því ákvæði réðst löggjafinn í annað sinn á löglega gerða kjara- samninga stéttarfélaganna og það hefur aldrei þótt gæfumerki á fs- landi að vega tvisvar í sama knérunn. Annars eru afleiðingar „við- reisnarinnar“ öllum landsmönn- um svo ljósar, hvert einasta mannsbarn í landinu hefur þær daglega fyrir augum og þreifar á þeim, að um þær þarf ekki að fara mörgum orðum. Hver ein- asti larmþegi verður þess áþreif- anlega var, að með hverri viku sem líður, fær hann minna fyrir kaupið sitt. Þegar svo þar við bætist að óhjákvæmilegt er að atvinna dragist saman, enda þeg- ar farið að bera á því, sbr. frétt- ir, sem þessa dagana eru að ber- ast frá Siglufirði og Raufarhöfn, hlýtur hverjum þeim, sem af al- vöru og hlutlægni hugsar um þessi mál, að vera ljóst, að full- komin vá er fyrir dyrum, og skorturinn á næsta leiti, verði fallöxi afturhaldsins og veita arásum þess blessun sína, eða snúast kröftuglega til varnar, vinna aftur þá kjaraskerðingu, sem orðin er, gera 8 stunda vinnudaginn aftur að veruleikg, tryggja Alþýðusambandinu þá forystu, sem fær sé um að leiða kjarabaráttrma til sigurs. Hver einasti félagi verkalýðs- félaganna verður að krefjast ský- lausra og afdráttarlausra svara allra þeirra, sem valdir verða til að fara með umboð félaganna á þingi Alþýðusambandsins, um af- stöðu hans til þessarra mála. Krefjast þess að þeir segi afdrátt- arlaust, hvort þeir ætli sér að veita þeim öflum lið, sem hafa þrengt svo kjörum alþýðu þessa lands, að kaupmáttur launa mun nú hvergi í Evrópu, nema ef vera skyldi í einræðisríkjum Pyrenea- ekki rammar skorður við reistar. skagans, vera svo lítill sem hann Verkalýðssamtökin hafa ekki er orðinn hér á landi, eða hvort enn hafið neinar verulegar að-| þeir vilji nú veita öflugt viðnám gerðir til verndar kjörum með- lima sinna. Þau hafa viljað bíða og láta afleiðingar stjórnarstefn- unnar koma rækilega í ljós. Þau mótmæltu kröftuglega þegar í upphafi og vöruðu alvarlega við afleiðingum stjórnarstefnunnar, en þeim mótmælum og þeim að- vörunum var ekki sinnt. Reynsl- an hefur leitt í ljós hver hafði rétt fyrir sér. Máske halda ein- hverjir misvitrir stjómarherrar að aðgerðaleysi verkalýðshreyf- ingarinnar sé veikleikamerki, en þeim mun sannarlega ekki verða að trú sinni. Þeir skulu heldur ekki láta sér detta í hug, að bið- lund verkalýðsins vari til eilífð- arnóns, og það er þeim bezt að gera sér ljóst í tíma, að þegar verkalýðurinn reiðir til höggs, verður það ekkert vindhögg. Þannig er viðhorfið í landinu í dag, þegar kosningar til þings Al- þýðusambandsins eru að hefjast. Og um það snúast þessar kosn- ingar: hvort að verkalýðurinn vill sjálfviljugur leggja sig undir og hrinda af höndum sér þeim afturhaldsdraugi, sem nú hefur riðið húsum manna of lengi. — Finnst í raun og sannleika nokk- ur verkamaður eða verkakona, sem tekur aðra afstöðu? Um þetta verður kosið. Og aldrei hefur valið fyrir verka- lýðinn verið jafn auðvelt. Hver afstaða verkalýðsins raunveru- lega er, má marka af einróma samþykkt ráðstefnu Alþýðusam- bandsins í vor, en þar segir m. a.: „Ráðstefnan álítur að kjara- málwn verkafólks sé nú svo komið, að óhjákvæmilegt sé fyrir verkalýðsfélögin að láta til skarar skriða og hækka kaupgjald og hrinda þannig þeirri kjaraskerðingu, sem orðið hefur.“ Þetta er sú leiðarstjarna, sem verkalýðurinn á að hafa, og hann verður að tryggja að á þing ASÍ komi þeir einir, sem hafa hug og dug til að hrinda árásum aftur- haldsins og vinna aftur þá „kjaraskerðingu, er orðið hefur.“ FRA GAGNFRÆÐASKÓLANUM Á AKUREYRI Að gefnu tilefni skal á það bent, að öll þau börn, er fulln- aðarprófi luku frá barnaskólunum á Akureyri sl. vor, skulu skrásett til framhaldandi skyldunáms, og fer sú skrásetning fram á vegum gagnfræðaskólans hér, hvort sem bömin hafa í hyggju að ljúka skyldunámi sínu í þeim skóla eða annars staðar. Að þessu sinni fer skrásetning nýnema skv. ofan- sögðu fram í skrifstofu minni í skólahúsinu (sími 2398) dag- ana 14.—16. sept. n. k. (þ. e. miðvikud., fimmtud. og föstud.) kl. 4—7 síðdegis alla dagana. Nauðsynlegt er, að allir fyrr- greindir nemendur — eða forráðamenn þeirra — mæti á þessum tímum til viðtals. Sama gildir og um skólaskylda unglinga, sem kunna að hafa flutzt í bæinn á þessu ári, enda hafi þeir með sér skírteini sín um fullnaðarpróf í barnaskóla. — Eldri nemendur, er óska að ráðgast við mig um fram- haldsnám sitt í G. A., eru hins vegar beðnir að hafa tal af mér á sama stað laugardaginn 17. sept. n. k., kl. 4—6 síðd. Samkvæmt auglýsingu fræðsluráðs, er væntanlega mun birt í bæjarblöðunum samtímis tilkynningu þessari, munu eyðublöð undir beiðnir um undanþágur frá skólaskyldu, þegar sérstaklega stendur á, liggja frammi hjá mér á sama stað og tímum, er að ofan greinir, til útfyllingar og undir- skriftar forráðamanna þeirra unglinga, sem slíkrar undan- þágu kunna að óska, enda mun aðstoð veitt við útfyllingu þessara skilríkja, ef þess verður óskað. Akureyri, 12. september 1960. JÓHANN FRÍMANN, skólastjóri. VERKAKVENNAFÉLAGIÐ EINING heldur FÉLAGSFUND n. k. sunnudag kl. 4 að Ás- garði. D A G S K R Á : 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Kosning fulltrúa á 27. þing Alþýðusambands íslands. 3. Önnur mál. STJÓRNIN. SÍ MASKRÁIN Ákveðið er að prentuð verði ný símaskrá í byrjun næsta árs. — Allar breytingar við skrána óskast sendar skriflega í skrifstofu mína fyrir 20. þ. m. SÍMASTJÓRINN. FRÁ TÓNLISTARSKÓLA AKUREYRAR Tónlistarskóli Akureyrar tekur til starfa 1. október næstk. Umsóknir um skólavist sendist skólastjóra, Jakob Tryggvasyni, Byggðaveg 101 A, sími 1653, fyrir 25. sept. — Eldri nemendur eru einnig beðnir að til- kynna áframhaldandi skólavist. TÓNLISTARBANDALAG AKUREYRAR. FÉLAGSMENN K.E.A. Arðmiðum fyrir það sem af er þessu ári óskast skilað sem fyrst á aðalskrifstofu vora. Arðmiðamir þurfa að vera í lokuðu umslagi, er greinilega sé merkt nafni félagsmanns og félagsnúmeri. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AÐVÖRUN UM SKÓLASKYLDU 0. FL. Af gefnu tilefni viljum vér benda forráðamönnum ung- menna hér í skólahverfinu á ákvæði gildandi laga um skóla- skyldu allra barna og imglinga á aldrinum 7—15 ára, en þar er m. a. tekið fram, að heimilisfaðir skólaskylds barns beri ábyrgð á, að það hljóti lögmæta fræðslu og sæki lögskipuð próf, enda varðar það dagsektum, ef barn kemur að ástæðu- lausu ekki til innritunar í viðkomandi skóla, þegar það er skylt. Lögin gera þó ráð fyrir, að hægt sé að veita undanþágu frá skólaskyldu, þegar sérstaklega stendur á, en að sjálfsögðu verður þá að sækja um slíkar undanþágur til fræðsluráðs í tæka tíð og hlíta úrskurði þess, hvort umsóknin skuli tekin til greina eða ekki. Vegna unglinga þeirra, er eiga samkv. framangreindum ákvæðum að sækja unglingadeildir framhaldsskólanna hér næsta skólaár, en telja sig hafa ástæðu til að æskja imdan- þágu frá þeirri skólaskyldu, höfum vér látið gera eyðublöð fyrir slíkar umsóknir, og munu þau liggja frammi til útfyll- ingar og undirskriftar hjá skólastjóra gagnfræðaskólans hér á þeim tímum, sem tilgreindir eru í auglýsingu hans um skrásetningu nýnema, og birtast mun í bæjarblöðunum sam- tímis aðvörun þessari. Þá viljum vér og í þessu sambandi benda atvinnurekend- um á þau ákvæði gildandi barnaverndarlaga, að stranglega, er bannað að ráða skólaskyld börn eða unglinga til vinnu, t. d. í verksmiðjum og á skipum, og mun þar þó einkum átt við þann árstíma, þegar skólarnir eru starfandi, enda hafi engin undanþága verið veitt frá skólaskyldu. Virðist því sjálfsagt, þegar vafi kann að leika á um þetta, að atvinnu- rekendur krefjist skriflegra heimilda fyrir undanþágunni frá réttum aðiljum, áður en ráðning fer fram. Vér teljum skylt að hlutast til um það með öllum tiltæk- um ráðum, að framangreindum ákvæðum laga um skóla- skyldu og barnavemd verði, nú og framvegis, framfylgt hér í skólahverfinu, ekki síðui- en tíðkast annars staðar á land- inu. Akureyri, 12. september 1960. FRÆÐSLURÁÐ AKUREYRAR.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.