Verkamaðurinn - 23.09.1960, Qupperneq 3
Föstudaginn 23. sept. 1960
VERKAMAÐURINN
3
Sigur stjórnarandstæðinga í kosningum
til Alþýðusambandsþings er sigur ylir
hallærisstjórn íhalds og krata
Fulltrúakosningar til Alþýðu-
sambandsþings standa nú yfir. —
Víðast hvar koma fram tveir list-
ar: Listi borinn fram og skipað-
ur mönnum beint úr röðum laun-
þeganna sjálfra, mönnum, sem
gerþekkja aðstöðu þeirra og
þarfir, hver í sínu stéttarfélagi og
sem heildar, mönnum, sem njóta
trausts og virðingar þeirra með-
lima stéttarfélaganna, sem skilja
þörf og styrk einhuga verkalýðs-
forystu. Hinn listinn borinn fram
af útsendurum atvinnurekenda,
mönnum úr Sjálfstæðisflokknum
og hjálparflokki hans, Alþýðu-
flokknum, mönnum, sem eru
reiðubúnir til að gera vilja at-
vinnurekenda og ríkisstjórnar-
innar í einu og öllu, stuðnings-
menn núverandi ríkisstjórnar.
Þessum mönnum blöskrar ekki
þó að gengið sé fellt, og allar vör-
ur stórhækki í verði, en kaupið
standi í stað. Þessum mönnum
blöskrar ekki þó að verkföll séu
bönnuð, og munu ekki reyna að
koma í veg fyrir, að ríkisstjórnin
banni allar kauphækkanir með
lögum, nú þegar laimastéttirnar
fara fram á leiðréttingu á kaupi
sínu á komandi vetri til samræm-
is og með hliðsjón af hinni geig-
vænlegu dýrtíð, sem nú þjakar al-
þýðuheimilin, ásamt okurvöxtum
af skuldum, sem eru ofviða lág-
launamönnum, er lagt hafa í að
byggja yfir fjölskyldur sínar
undanfarin ár og skulda þess
vegna háar upphæðir. Hjá fjölda
manna blasir við greiðsluþrot, ef
svo heldur fram, sem horfir. —
íbúðirnar verða seldar fyrir
áhvílandi skuldum á næstu miss-
irum. Hamingjusamar fjölskyld-
- Orðið er laust
(Framhald af 2. síðu.)
inga, því að allir, sem stálpaðir
eru orðnir, hvað þá fullorðnir,
greiða söluskatt, heldur er átt
við, að birt verði skrá um inn-
heimtumenn söluskattsins ,hversu
miklu hver og einn skilar til rík-
isins. Þar kæmi frarp, hvað miklu
hvert kaupfélag skilar, hvað
miklu hver kaupmaður, hvað
miklu hvert verkstæði eða verk-
smiðja o. s. frv. Þetta væri fróð-
leg skrá og áreiðanlega nokkurt
aðhald fyrir innheimtumennina,
sem eðlilega eru breyskir eins og
annað fólk. Allir heiðarlegir inn-
heimtumenn söluskattsins myndu
áreiðanlega fagna slíkri opinberri
birtingu innheimtunnar og væri
raunar ekki óeðlilegt, að þeir
krefðust hennar sjálfir.
Fá Sjálfsbjörg, Akureyri! —
Skemmtifundur verður að
Bjargi á sunnudaginn kemur
kl. 3 e. h. Hefjum vetrarstarfið
með því að fjölmenna stundvís-
lega.
ur verða eignalausar á ný. Al-
ræði braskaranna ríkir með mikl-
um blóma.
Utsendarar stjórnarflokkanna
reyna að ginna fólk með alls kon-
ar falsrökum, biðja um frest
stjórninni til handa, svo að „við-
reisnin1' fái tíma til að sanna
ágæti sitt o. s. frv. Eftir því sem
þessir flokkar fá fleiri fulltrúa
kosna á Alþýðusambandsþing,
þess fastar og lengur situr nú-
verandi ríkisstjórn. Er þessi rík-
isstjórn ekki búin að sanna okk-
ur, svo að ekki verður um villzt,
að hún er málrsvari braskara og
milliliða, en svarinn andstæðing-
ur launastéttanna. Þessar kosn-
ingar standa ekki aðeins um
launamálin. Þær standa líka um
það, hvort ríkisstjórnin þorir að
semja við Breta um landhelgina.
Sjómenn hér norðanlands vita
hvað það þýðir ef landhelgin verð
ur minnkuð um helming fyrir
Norður- og Austurlandi, eins og
altalað er, að stjórnarflokkarnir
ætli sér að semja um við Breta.
Launamenn, munið, að hvert
það atkvæði, sem listar ríkis-
stjórnarflokkanna fá nú við kosn-
ingar til Alþýðusambandsþings,
er sama og samþykki við öllum
aðgerðum núverandi stjórnar,
bæði í efnahags- og kaupgjalds-
málum og undanhaldi í landhelg-
ismálinu.
Launþegar. Látum stjórnar-
flokkana sjá það svart á hvítu,
að við styðjum þá ekki í myrkra-
verkunum. Kjósum allir sem
einn maður, hver í sínu félagi,
lista stjórnarandstöðunnar. Sigur
stjómarandstæðinga í þessum
kosningum er sigur yfir núver-
andi hallærisstjóm íhalds og
krata.
LAUNÞEGI.
LÖGREGLUÞJÓNSSTAÐA
laus til umsóknar. — Umsóknir sendist undirrituðum
fyrir 30. þ. m.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI.
Frá barnaskólum Akureyrar
Skólarnir verða settir laugardaginn 1. okt. kl. 2 síðd.
Barnaskóli Akureyrar verður settur í kirkjunni. Börn-
in mæti við skólann kl. 1.45.
Setning Glerárskóláns verður auglýst síðar.
Skólaskyld börn, sem flutt hafa til bæjarins í sum-
ar, og ekki hafa þegar verið skráð, eru beðin að mæta
í viðkomandi skólum föstudaginn 30. sept. kl. 3 síðd.
og hafi þá með sér einkunnir frá síðasta vorprófi.
Akureyri, 20. september 1960.
SKÓLASTJÓRARNIR.
Frá Oddeyrarskólanum
Skólasetning fer fram í Oddeyrarskólanum laugardag-
inn 1. okt. næstkomandi klukkan 2 síðdegis. Þá mæti
í skólanum börn, sem verða í 4., 5. og 6. bekk í vetur.
Foreldrar barnanna eru velkomnir.
SKÓLASTJÓRI.
BYGGINGALÁNASJÓÐUR
Umsóknir um lán úr Byggingalánasjóði Akureyrar-
bæjar sendist undirrituðum fyrir 1. október n. k.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunum.
Endurnýja þarf eldri umsóknir.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 16. september 1960.
MAGNÚS E. GUÐJÓNSSON
FRA HUSMÆÐRASKOLA AKUREYRAR
Námskeið í fatasaum og vefnaði hefjast í skólanum
um miðjan október og matreiðsla úr mánaðamótum
október—nóvember. — Upplýsingar gefnar í síma 1199
milli kl. 6 og 7 næstu daga.
FIÐLUKENNSLA
Fiðlukennari hefur verið ráðinn við Tónlistarskóla
Akureyrar. — Væntanlegir nemendur eru beðnir að
gefa sig fram, sem allra fyrst, við skólastjóra Tónlist-
arskólans, Jakob Tryggvason, Byggðavegi 101 A,
sími 1653.
TÓNLISTARBANDALAG AKUREYRAR.
TILKYNNING
frá Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar
Ákveðið hefur verið, að kosning fulltrúa Verkamanna-
félags Akureyrarkaupstaðar á 27. þing Alþýðusambands
íslands fari fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.
Kjörlistum með nöfnum 5 aðalmanna og 5 varamanna
skal skilað til formanns kjörstjórnar, Jóns Ingimarsson-
ar, Byggðaveg 154, fyrir kl. 12 á hádegi laugardaginn
24. sept. — Hverjum lista skulu fylgja meðmæli eigi
færri en 47 fullgildra félagsmanna.
KJÖRSTJÓRNIN.
TILKYNNING
frá Bílstjórafélagi Akureyrar
Ákveðið hefur verið að kosning fulltrúa Bílstjórafélags
Akureyrar á 27. þing Alþýðusambands Islands fari fram
að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Kjörlistum með
nafni 1 aðalmanns og 1 varamanns skal skilað til for-
manns kjörstjórnar, Amfinns Amfinnssonar, Glerár-
eyrum 1, fyrir kl. 6 e. h. mánudaginn 26. sept. Hverj-
um lista skulu fylgja meðmæli eigi færri en 14 full-
gildra félagsmanna.
KJÖRSTJÓRNIN.
ORÐSENDING
til félagsmanna Máls og menningar
Undirritaður, Rcjgnvaldur Rögnvaldsson, Munkaþver-
árstræti 22, Akureyri, hefur tekið við untboði Máls og
menningar á Akureyri af Elísabetu Eiríksdóttur, er lét
af því starfi í sumar vegna heilsubrests.
Félagsmenn eru því vinsamlegast beðnir að snúa sér
til mín eftirleiðis hvað áhrærir viðskipti þeirra við fé-
lagið. — Ég get nú útvegað allar eldri bækur Máls og
menningar og Heinrskringlu meðan upplag endist með
25% afslætti frá búðarverði. Enn fremur Ritgerðir
Þorbergs Þcirðarsonar og íslenzk mannanöfn eftir Her-
mann Pálsson með sömu kjörurn.
Léttið innheimtustörfin. Árgjöldum veitt móttaka
alla daga.
Akureyri, 22. sept. 1960.
RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON.