Verkamaðurinn - 28.10.1960, Side 4
4
V F, R K A M A Ð U R í N N
Föstudaginn 28. október 1960
Verkalýðsvinátfa Moggans
(VÍORGUNBLAÐIÐ ræðir í gær
nokkuð um drög þau að kjara-
bótakröfum, sem miðstjórn ASÍ
hefur samið og sent sambandsfé-
lögunum til athugunar. Sem bú-
ast mátti við finnur Morgunbiað-
ið þessum tillögum Alþýðusam-
bandsins alit til foráttu, en alveg
sérstaklega ræðst það þó gegn
því atriði, að hið svonefnda eftir-
vinnukaup verði fellt niður og
eiíí og sama kaup greitt fyrir alla
yfirvinnu, eða 100% álag á dag-
vinnutaxta. Segir blaðið, að þeir,
sem vilji verkalýðnum vel (á þar
sennilega við Moggaliðið) telji
eðlilegra, að eftirvinnukaupið
verði lækkað freinur en að yfir-
vinna verði greidd hærra verði
en nú er.
Glöggt er, hvað þarna liggur á
bak við hjá Moggamönnum. Þeir
vilja leggja áherzlu á, að vinnu-
dagur verkafólks verði sem allra
lengstur, kaupið verði sem lægst
fyrir yfirvinnuna, svo að atvinnu
rekendur þurfi ekki af þeim
ástæðum að reyna að forðast
hana. Um það, hversu óhollt og
aliavega óhagkvæmt það er
verkafólki að vinna sem næst
ótakmarkaðan vinnudag hugsar
íhaldið ekki. Það er ekki verið
að hugsa um hvíldina fyrir verka
fólkið, það er víst ekki of gott til
að vinna myrkranna á milli. Það
er ekki verið að hugsa um, að
verkafólk fái tíma til að sinna fp-
lagsmálefnum eða menningar-
starfsemi í cinni eða annarri
mynd. Það er ekki verið að
hugsa um, að verkafólkið geti
aflað sér menntunar í frístund-
um eða Iesið góðar bækur.
Nei, íhaldið telur verkafólkið
ekki of gott til að þræla, og til
þess að það þurfi að þræla sem
lengst fyrir mat sínum og öðrum
óhjákvæmilegum nauðsynjum,
þá vill íhaldið láta lækka kaupið.
Hugsunin sem á bak við liggur er
þessi: Það verður fegið að vinna,
þegar það má til, svo að það fái
satt svangpn maga. Það hefur lít-
ið breytzt ihaldið á fslandi, þó að
það þykist stundum vera orðið
frjálslyndara en það var fyrir 20,
30 eða 40 árum. Andinn er einn
og samur.
19. ÞING Æ. F.
Þing Æskulýðsfylkingarinnar,
hið 19. í röðinni, var haldið á
Akranesi um miðjan þennan
mánuð. — Var það fjölmennasta
þing Fylkingarinnar til þessa,
sátu það 70 kjörnir fulltrúar ein-
stakra deilda auk margra áheyr-
endafulltrúa og einstakingsmeð-
lima.
Þingið tók mörg mál til um-
ræðu og gerði ýmsar samþykktir
og ályktanir.
Gerðar voru allmiklar breyt-
ingar á skipulagi sambandsins og
yfirstjórn. Framvegis verða Fylk
ingarþing aðeins háð annað hvort
ár, en ekki árlega, eins og verið
hefur, en sambandsstjórn skipuð
fulltrúum víðs vegar af landinu
kemur saman til funda það árið,
sem þing ekki er haldið.
Framkvæmdanefnd Fylkingar-
innar til næsta þings var kjörin:
Eysteinn Þorvaldsson, forseti,
Jón Norðdahl, varaforseti, Hörð-
ur Bergmann, ritari, Gissur J.
Kristinsson, gjaldkeri, Árni
Björnsson, Björgvin Salomons-
son, Gísli Magnússon, Guðmund-
ur Magnússon, Gunnar Guttorms-
son, Jón Böðvarsson og Jón B.
Hannibalsson, meðstjórnendur.
Ruddaleg tilraun til íhlutunar um
samningaviðræður Iðju og vinnu-
veitenda
Menirnir, sem hér eru að ræðast við, eru Sigurður Thoroddsen,
verkfræðingur, og Stefán Sigurðsson, bóndi á Geirastöðum. Myndin
var tekin sl. laugardag, er mannvirkin í Geirastaðakvísl voru tekin
í nokun. Stíflan í kvíslinni er rétt við túnfótinn hjá Stefáni bónda.
- Framkvæmdir við Laxá
Sl. þriðjudag, er samningavið-
ræður milli Iðju annars vegar og
Vínnumálasambands samvinnufé-
laganna hins vegar um launakjara-
breytingar voru að komast á loka-
stig, kom Alþýðumaðurinn út. I
honum var grein um samningavið-
ræðurnar eftir ritstjórann, Braga
SigurjónsSon, sem bar yfirskrift-
ina „Einskonar prófmál“.
Þar var reynt á mjög fólskuleg-
an og frekjulegan hátt að ráðast
aftan að því verkalýðsfélagi, Iðju,
sem hér átti hlut að máli, með
rógi um stjórn félagsins og samn-
inganefnd, og sérstaklega formann
filagsins, sem undanfarið hefur
unnið að því, ásamt öðrum for-
ráðamönnum Iðju, að ná fram
kjarabótum iðnverkafólki til
handa, svo að það geti fremur
þolað þá miklu dýrtíð, sem Al-
þýðuflokkurinn hefur steypt yfir
allt launafólk.
Fyrir utan hina rætnu árás á
stjórn Iðju og samninganefnd, var
mottóið í grein Braga tvíþætt: I
fyrsta lagi voru vinnuveitendur
mjög ákveðið minntir á það, að ef
þeir samþykktu að veita Iðjufólki
bætt laun, yrðu þeir að greiða það
allt úr sínum vasa, og viður-
kenndu þá jafnhliða, ef þeir gætu
þetta, ágæti þess hagkerfis, sem
Alþýðuflokkurinn hefur komið á í
samvinnu við íhaldið. I öðru lagi
var svo sá hlutinn, sem iðnverka-
fólki var ætlaður, og hann var á
þá leið, að ef Iðja ekki gerði nýja
samninga yrði atvinnulífið í bæn-
um lamað í vetur.
Þetta frammígjamm Braga Sig-
urjónssonar er óafsakanlegt, því
að það er greinilega til þess eins
sett fram, að reyna að spilla fyrir
samkomulagi. Slíkt er algert eins-
dæmi hér á Akuréyri, að maður,
sem ekki er beinlínis atvinnurek-
andi sjálfur, leyfi sér svona nokk-
uð. Skynsamra manna háttur er að
þegja um það, sem þeim kemur
ekkert við.
Rétt er að taka það fram, að
Vinnumálasambandið mun alls
ekki hafa óskað eftir þessarri liðs-
veizlu frá Braga. Og enda þótt
ekkert væri gert með þessa íhlut-
un, þá var söm Braga gerð. Það er
eins og sá maður þurfi alls staðar
að beita kröftum sínum til þess, að
hlutur verkafólksins verði sem
mínnstur. lðjufélaéi.
- BRÉF ASÍ
(Framhald aí' 1. síðu.)
3. Kaupgjaldsákvæði samninga
falli úr gildi og nýjar samninga-
viðræður verði teknar upp, ef
verðlag hækkar um ákveðna
hundraðstölu — t. d. 3%.
4. Krafa um, að fast vikukaup
verði greitt alls staðar, þar sem
hægt er að koma því við. — Þar
sem því verður ekki við komið,
verði tímakaupið 4% hærra.
5. Allir eftirvinnutaxtar verði
afnumdir, og öll vinna, sem unn-
in er umfram dagvinnu, verði
þannig greidd með 100% álagi á
dagvinnukaup.
6. Kröfur um almennt kvenna-
kaup verði eigi lægra en kvenna-
nefnd sú, sem kosin var á kvenna
ráðstefnu ASÍ sl. vor, hefur sett
fram, og birtar hafa verið sam-
bandsfélögum í bréfum, dags. 20.
sept. og 4. okt. sl.
Meginefni þeirra er það, að bil
ið milli kvennakaups og karla
styttist þannig, að kvennakaupið
verði ekki lægra en 90% af al-
mennu karlmannskaupi og að
undir karlmannskaup falli
nokkru fleiri vinnuflokkar en
hingað til, þar á meðal öll ræst-
ingarvinna, öll vinna í sláturhús-
um, öll vinna við blautan saltfisk
og skreið, svo og við humar o. s.
frv. Sjá bréfin. — Þessi síðasti
liður var samþykktur með sam-
hljóða atkvæðum. Einn sat hjá.
Viðræður við ríkisstjórnina.
Jafnframt framanrituðum kröf-
um var samþykkt að kjósa fjóra
menn til að hefja þegar viðræður
við ríkisstjórnina um eftirfarandi
ráðstafanir:
1. Almenna lækkun á vöru-
verði, m. a. með niðurfellingu
viðaukasöluskatts í tolli (8,8%),
lækkun aðflutningsgjalda og
ströngum verðlagsákvæðum.
2. Lækkun útsvara af almenn-
um launatekjum.
3. Almenna lækkun útíáns-
vaxta.
4. Afnám ákvæðis laga, sem
banna að kaupgjaldssamningar
séu tengdir verðlagi.
5. Aðrar ráðstafanir, sem
verkalýðsfélögin kynnu að meta
til jafns við beinar launahækk-
anir.
Þessi tillaga, töluliðir 1—5, var
samþykkt með 6 : 3 atkvæðum.
Forsætisráðherra hefur þegar
verið ritað bréf og farið fram á,
að þessar viðræður geti hafizt
sem fyrst. í nefndina voru kosn-
ir: Eðvarð Sigurðsson, Eggert G.
Þorsteinsson, Oskar Hallgríms-
son og Snorri Jónsson.
Væntum við, að félögin taki nú
til óspilltra málanna við að gera
sér grein fyrir þessum málum,
ræða þau og gera um þau eigin
tillögur. Er nauðsynlegt, að mið-
stjórn berist vitneskja um af-
stöðu félaganna sem allra fyrst.
— Og höfuðnauðsyn er, að full-
trúar á sambandsþingi hafi að
baki sér mótaða félagsafstöðu til
aðalatriða kjaramálanna.
Við vonumst eftir ötulu starfi
og ákveðnum og skjótum svör-
um.
Með félagskveðju.
P'. h. Alþýðusambands íslands.
Hannibal Valdimarsson.“
(Framhald af 1. síðu.)
sumar, og er nú lokið stærsta
áfanga þess verks, sem áformað
var.
Farvegur Geirastaðakvíslar
hefur verið dýpkaður á 6 til 700
metra löngum kafla og bakkar
hlaðnir úr grjóti til að fyrir-
byggja það, að áin brjóti sér nýj-
an farveg eða flæði verulega út
yfir bakka sína. Hinar kvíslarn-
ar hafa aftur á móti verið stíflað-
ar. Þá hefur verið komið upp
stíflu í hinum dýpkaða hluta
Geirastaðakvíslar, og eru í stífl-
unni þrjár lokur til þess gerðar,
að hægt sé að stjórna því, hvort
mikið eða lítið rennur hverju
sinni. Þegar hætta verður á
krapi í ánni verður opnað meira
fyrir en ella til þess að fá meiri
straum og fyrirbyggja krapastífl-
ur eða grunnstingul. Mjög tryggi
lega er frá því gengið, að lokur
þessar ekki frjósi fastar eða verði
ekki hreyfðar af öðrum ástæðurn.
Þar sem lokurnar falla í föls, er
hituð olía leidd meðfram í leiðsl-
um, og þannig eiga fölsin alltaf
að haldast þýð. Vélaafl er að
sjálfsögðu notað til að hreyfa lok-
urnar. Lokurnar eru þrjár, ein
veltiloka og tvær hleralokur. —
Lokuútbúnað þennan hafa þeir
SEMENT FLUTT ÚT
Sementsverksmiðja ríkisins
hefur nú gert samning við brezkt
firma um að selja því 20 þúsund
tonn af sementi. Ut af fyrir sig
er það gott að geta drýgt gjald-
eyristekjur þjóðarinnar með út-
flutningi sements eða annarra
iðnaðarvara. En það er líka fróð-
legt og segir sína sögu um þróun-
ina innanlands að athuga, hvern-
ig stendur á því, að við getum
nú selt sement til annarra landa,
en í fyrra höfðum við þörf fyrir
allt það sernent, sem framleitt
var. Ástæðan er sú, að nú selzt
stórum minna af sementi í land-
inu en verið hefur undanfarin ár.
Fátt er gleggri vottur um minnk-
andi framkvæmdir í landinu. Og
án efa fagnar ríkisstjórnin, því
af þessu getur hún séð, að við-
reisnin hefur ekki brugðizt
henni á öllum sviðum. Samdrátt-
urinn er í fullum gangi. Á eftir
kemur atvinnuleysið.
Albert Sölvason og Jón G. Al-
bertsson vélaverkfræðingur smíð-
að og sett upp.
Þetta nýja mannvirki, sem
gert hefur verið á vegum Laxár-
virkjunar var formlega tekið í
notkun síðastliðinn laugardag, að
viðstaddri stjórn virkjunarinnar
og ýmsum þeim aðilum, sem ann-
ast hafa framkvæmdir þarna,
fréttamönnum og nokkrum fleiri
gestum.
Sigurður Thoroddsen verk-
fræðingur, sem haft hefur á
hendi verkfræðilega stjórn og
eftirlit með framkvæmdum þess-
um, lýsti gerð mannvirkja þarna
og tilgangi þeirra. Lét hann í
ljósi það álit, að þessar fram-
kvæmdir myndu hafa verulega
þýðingu til að tryggja rennsli ár-
innar og koma í veg fyrir raf-
magnsskort á orkuveitusvæðinu.
Hins vegar kvað hann þörf meiri
aðgerða og skýrði frá því, að
áfram yrði haldið þarna og unnið
að því að dýpka upptök árinnar
og farveg ofan við mannvirki
það, sem nú hefur verið gert.
Það er því vert að leggja
áherzlu á það, að hér er aðeins
um stóran áfanga að ræða, sem
allir vona að verði til mikilla
bóta, en framkvæmdum þeim,
sem þarna eru áformaðar, er
ekki að fullu lokið. Það er því
ekki vert að svo komnu, að
reikna með því, að Laxá ekki
geti týnzt einhvern tima í vetur.
Menn verða aðeins að vona, að
ekki komi til jafn alvarlegra
truflana á orkuframleiðslu og t.
d. í fyrravetur.
Ætlunin mun, að eitthvað verði
unnið þama áfram í haust eftir
því, sem veðrátta leyfir, en næsta
sumar verður væntanlega unnið
af fullum krafti að því að Ijúka
þeim framkvæmdum, sem þarna
er eftir að gera.
Eins og áður segir hefur Sig-
urður Thoroddsen annast verk-
fræðilegt eftirlit með fram-
kvæmdum þessum, en verkstjórn
hefur Georg Karlsson annast. —
Framkvæmdastjórn í umboði
stjórnar Laxárvirkjunar hefur
verið í höndum Knut Otterstedt
rafveitustjóra.
Kostnaður við framkvæmdir
þessar mun vera orðinn milli 7
og 8 miljónir króna.