Verkamaðurinn - 11.10.1963, Blaðsíða 1
Verkamaðurinn
Síðari áfangi
Oddeyrarskóla
Fulltrúar á 8. þingi Alþyái sr.mbands Norðurlonds.
Einhuga þing A N
Þing AlþýSusambands NorSur-
lands sem háS var á Akureyri um
helgina varð fjölmennasta þing
sem norðlenzka verkalýSshreyf-
ingin hefur haldið, en í samband-
inu eru nú 23 verkalýðsfélög með
rúmlega 4200 féiagsmönnum.
Hafa tvö félög bætzt í sambandið,
Verkamannafélagið Farsæll, Hofs-
ósi, og Verkalýðsfélag Þórshafnar.
bingiS, sem var 8. þing Alþýðu-
sambands Norðurlands var haldið
á Akureyri á laugardag og sunnu-
dag, 5. og 6. október.
Forseti Alþýðusambands Norð-
urlands, Tryggvi Helgason, for-
maður Sjómannafélags Akureyrar
setti þingið kl. 4 síðdegis á laug-
ardag, en þingi var slitið laust
eftir kl. 20 á sunnudagskvöld.
Til þingsins mættu 36 fulltrúar
og auk þeirra sat forseti Alþýðu-
sambands lslands, Hannibal
Valdimarsson, þingið sem gestur.
Þingforseti var kjörinn Jón
Ingimarsson, formaður Iðju, fé-
lags verksmiðj ufólks á Akureyri
og varaforseti Óskar Garibaldason
formaður Verkamannafélagsins
Þróttar á Siglufirði. Ritarar þings-
ins voru kjörnjr Þórir Daníelsson,
Akureyri og Kolbeinn Friðbjarn-
arson, Siglufirði.
Þingið gerði ályktanir í kaup-
gjaldsmálum og atvinnumálum á
sambandssvæðinu. Einnig voru
gerðar nokkrar lagabreytingar og
allmikið rætt um skipulagsmál
verkalýðshreyfingarinnar o. fl.
Oll störf þingsins einkenndust af
einhug og ákveðinni samstöðu
allra fulltrúa og ályktanir allar
einróma samþykktar.
I stjórn Alþýðusambands Norð-
urlands næstu tvö ár voru kosnir
þessir:
Forseti sambandsins var endur-
kjörinn Tryggvi Helgason, for-
maður Sjómannafélags Akur-
eyrar.
Varaforseti: Björn Jónsson,
formaður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar, Akureyri.
Gjaldkeri: Jón Ingimarsson.
Ritari: Þórir Daníelsson.
Meðstjórnandi Freyja Eiríks-
dóttir.
( Framhald á bls. 8 )
Á þessu hausti hafa verið
teknar í notkun allar kennslu-
stofur í síðari áfanga af byggingu
Oddeyrarskólans, og er skólahús-
ið að mestu fullgert að innan, en
eftir er að ganga til fulls frá
nokkrum atriðum, og eftir er að
fullgera húsið hið ytra og ganga
frá lóð. Er ætlunin, að þessu verði
öllu lokið á næsta ári.
Fyrri áfangi skólabyggingar-
innar var tekinn í notkun í byrj-
un desembermánaðar 1957 og
lokið við hann að fullu á árinu
1958. Eru þar 4 almennar
kennslustofur, kennarastofa, skrif-
stofa skólastjóra, geymslur, snyrt-
ingar og rúmgóður skáli, auk
kjallara undir hluta húsins fyrir
kynditæki.
I síðari áfanga byggingarinnar,
sem nú hefur að mestu verið tek-
inn í notkun og er þriggja hæða
aðalbygging með einnar hæðar
útbyggingu, eru 8 kennslustofur,
þ. e. 5 almennar kennslustofur, 2
handavinnustofur og ein lítil sér-
kennslustofa. Þá er á þriðju hæð
salur, sem einkum er ætlaður fyr-
ir söngkennslu, myndasýningar
og samkomuhald, en honum er
hægt að breyta í tvær kennslustof-
ur. I útbyggingunni eru herbergi
fyrir heilsugæzlu og húsvörð,
geymslur og salerni.
Einnar hæðar, rúmgóður og
bjartur skáli, tengir fyrri og síð>
áfanga
by
ffííinsarinnar.
Ei
Miðstjórn Alþýðusambonds Norðurlands. Frá vinstri til hægri: Þórir Daníels-
son, Freyja Eiríksdóttir, Tryggvi Helgoson, Björn Jónsson, Jon Ingimarsson.
Krðfurnar ákveðnar á mánudag
þar aðalinngangur skólans. Skól-
inn er kynntur með svartolíu, er
geislahitun í kennslustofum en
lofthitun á göngum.
Framkvæmdir við síðari áfanga
byggingarinnar hófust í júlímán-
uði 1961, og var byggingin gerð
fokheld á því ári. Aðaluppdrætti
af skólanum gerði Jósef Reynis
arkitekt. Byggingameistarar hafa
verið Bjarni Rósantsson og Oddur
Kristjánsson, byggingameistarar
Akureyrarbæjar. Ymis fyrirtæki
og iðnaðarmenn í bænum hafa
unnið við bygginguna.
Flatarmál þessa síðari áfanga
er 550 fermetrar og byggingar-
innar allrar 1000 fermetrar. Síð-
ari áfangi er 4225 rúmmetrar, en
skólinn í heild 6250 rúmmetrar.
Kostnaður við fyrri áfanga varð
2,6 millj. kr., en við síðari áfanga
er hann orðinn um 6 millj. kr., í
báðum tilfellum er kostnaður við
kaup húsgagna og kennslutækja
meðtalinn. Rétt er að geta þess,
að stofnkostnaður skólabygginga
skiptist til helminga milli ríkis og
bæjar.
Oddeyrarskólinn er nú skemmti-
legasta og nýtízkulegasta skóla-
húsið á Akureyri, og telur skóla-
stjórinn, Eiríkur Sigurðsson, þar
vera aðstöðu til að kenna 450—
500 börnum, með tvísetningu í
skólastofurnar. I vetur verða í
skólanum um 350 börn í 14
bekkjardeildum. Enn fremur verða
í skólahúsinu 2 deildir úr Gagn-
fræðaskólanum, með 55 nemend-
um, og Iðnskólinn fær til umráða
litlu sérkennslustofuna.
Einn kennari, Eiríkur Jónsson,
hverfur nú frá Glerárskólanum,
en nýir kennarar eru íþrótta-
kennararnir Margrét Rögnvalds-
dóttir og Jóhann Daníelsson, sem
einnig kennir söng, og Jens Holze
verður stundakennari við handa-
vinnu drengja.
af íundum Einingar, Dagsbrúnar og Hlífar
Á þingi Alþýðusambands Norð-
urlands um síðustu helgi var mik-
ið rætt um þá kjarabaráttu, sem
framundan er, og voru fulltrúar á
einu máli um, að nú væri skjótra
°g ákveðinna aðgerða þörf til að
verkafólk fengi einhverjar bætur
vegna hinnar stórfelldu dýrtíðar-
aukningar. Á þinginu var ekki
fjallað um væntanlegar kröfur í
einstökum atriðum, en það mun
verða gert á ráðstefnu, sem A.S.I.
hefur boðað til í Reykjavík um
næstu helgi, og yfir 30 foryztu-
menn verkalýðsfélaganna sitja.
AS þeirri ráSstefnu lokinni kemur
aS hverju einstöku félagi aS taka
sínar ákvarðanir.
Þrjú af stærstu verkalýSsfélög-
unum, Eining á Akureyri, Dags-
brún í Reykjavík og Hlíf í Hafn-
arfirSi, hafa ákveSið fundi strax
á mánudagskvöldiS til aS ganga
frá sínum kröfum og setja þær
fram.
Fundur Einingar verSur
Bjargi, húsi Sjálfsbjargar viS
Hvannavelli, og hefst kl. 20.30 á
mánudagskvöldiS.
HETRT Á GÖTUNHl
AD umsjónormönnum Friðbjarn-
arhúss við Aðalstræti hafi
ekki unnixt timi til að þrifa
lóð hússins í sumar og slétra
njólagróðri þar.
AÐ einum ai stjórnarmönnum
Fegrunarfclogs Akurcyror hafi
eigi hcldur unnixt tími til að
slá hlaðvarpa sinn í sumar og
þor sé njóloskógur myndor-
legur bæjarbúum og ferða-
mönnum til yndisauka.
AÐ vcgno endurtekinna stór-
þjófnaða syðra, séu menn við
því búnir að leso einhvern
morguninn í dagblöðunum:
Ríkissjóði íslands stolið í nótt.