Verkamaðurinn - 17.04.1964, Side 3
skapi, sem fylkingar hemaðar-
bandalaganna riðlast. I þeirra
höndum hvílir frumkvæðið í bar
áttunni fyrir því, að friður hald
ist. Þess vegna er orðið hlut- .
leysi í sjálfu sér rangtúlkun á
afstöðu þessarra þjóða, enda
skilgreina leiðtogar þeirra svo
afstöðu sína, að þeir séu óháð-
ir eða óskuldbundnir (non-al-
igned, uncommitted). Orðið
hlutleysi felur í sér, að sá, sem
er hlutlaus er óvirkur, áhorfandi
þess, sem gerist; skerst ekki í
leikinn. Sviss er hlutlaust í þess
um skilningi. En um mikinn
meirihluta þeirra þjóða, sem
standa utan við og eru óháðar
hernaðarbandalögum, er allt
öðru máli að gegna .Þær hafa
bókstaflega ekki við að skerast
í leikinn, firra vandræðum, sem
hernaðarþjóðir hafa stofnað til,
miðla málum milli stórvelda og
gera þeim þannig kleift að af-
vopnast eða draga úr spennu, án
þess að á það sé litið sem veik-
leikamerki eða álitshnekkS. í
stuttu máli: Þau hafa ekki við
að bjarga friðnum. — Þessi af-
staða, sem ranglega er kölluð
hlutleysi, heitir á máli íslenzkra
hernámssinna siðleysi, og vitna
þeir í Stalín máli sínu til sönn-
unar. Loksins fékk sá maður
verðuga lærisveina. En þá fyrst
fer málið að snúast um siðfræði,
þegar talið berst að þeirri sið-
ferðilegu ábyrgð, sem við ís-
lendingar hlj ótum að bera á
framferði bandamanna okkar
gagnvart nýlenduríkjum þeirra,
núverandi og fyrrverandi.
Sama máli gegnir um mál-
flutning þeirra, sem segja, að
óhæði Islands í þessum skiln-
ingi, fái ekki staðizt vegna þess
að einangrun landsins sé rofin.
Eða, að þeir, sem krefjist úr-
sagnar úr Atlanzhafsbandalag-
inu vilji þar með einangrun
landsins frá samstarfi við ná-
grannaþjóðir. Þessir menn
verða að láta sér skiljast, að
óháð utanríkisstefna þýðir ekki,
að við ætlum að loka okkur úti
frá umheiminum til þess að
spinna á rokk eða kveða rím-
ur hver upp í annan. Hún þýð-
ir, að við höfum frjálsar hend-
ur til að móta stefnu okkar í
samskiptum við aðrar þjóðir og
á alþjóðavettvangi, eftir því sem
hagsmunir og sæmd þjóðarinnar
krefst hverju sinni. Ef það er
einangrunarstefna að taka hönd
um saman við meirihluta aðildar
ríkja Sameinuðu þjóðanna í bar
áttu fyrir friði og afvopnun,
gegn nýlendukúgun og arðráni
ríkra þjóða á snauðum, hvers
konar erkieinangrunarstefna er
það ekki að skuldbinda sig fyr-
irfram til að hlíta í einu og öllu
forsjá eins stórveldis?
Það eru aðeins ein rök gild
fyrir aðild okkar að Nato: það
eru nauðungarrökin. 1 stuttu
máli: að aðild okkar að Nato
sé frumskilyrði þess, að við fá-
um haldið uppi eðlilegum við-
skiplum við þessi ríki og að
samvinna við þau á sviði efna-
hags- og menningarmála sé sama
skilyrði liáð. Ef forsendan er,
að íslenzkt þjóðfélag fái ekki
staðizt án þessara skilorðs-
bundnu viðskipta, þá er spurn-
ingin ekki lengur um, hvað við
viljum, heldur verðum við, hvað
svo sem við viljum. Við hljót-
um þá að beygja okkur fyrir
ofríkinu, hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Er það þetta,
sem meint er með „vestrœnni
samvinnu“: afsal sjálfforrœðis
í utanríkis- og innanríkismálwm,
viðskiptabann og útskúfun ella?
Leppríki? — Annað hvort það,
eða við getum tekið okkar þátt
í vestrœnni samvinnu án aðildar
að Nato, og á jafnréttisgrund-
velli, líkt og Svíþjóð. Það er að
vísu ekki fullreynt, hvort okkur
verður látið haldast uppi að
vera sjálfstœð þjóð, þótt Svíar
komist upp með það. En þá fœst
loks úr því skorið, hvað töfra-
orðin þýða: Vestræn samvinna?
Barátta íslenzkra hernámsand
stæðinga gegn erlendri hersetu
og fyrir óháðri utanríkisstefnu,
er taki mið af íslenzkum hags-
munum og íslenzkri sæmd, er
orðin löng og ströng. Og hún
hefur löngum verið ójöfn. Gegn
áróðursmætti flokksvélanna og
málgagna þeirra, sem berast því
sem næst inn á hvert einasta ís-
lenzkt heimili, hafa staðið laus-
lega skipulögð fjöldasamtök
fólks úr ýmsum flokkum, sem
snýr bökum saman um utanrík-
ismál milli kosninga, en sundr-
ast og tvístrast um innanríkis-
mál í kosningum. Þessi samtök
hafa aldrei ætlað sér að taka þátt
í baráttu stjórnmálaflokka um
völd, heldur aðeins að virkja
almenningsálitið, svo að þeir,
sem valdið hafa neyðist til að
beygja sig fyrir vilja þess. Það
er eðli þessarar starfsemi, að
henni verður ekki haldið uppi sí
felt, jafnt og þétt, heldur aðeins
í áföngum og þá að nærtæku
marki. Alþingi götunnar getur
ekki setið á rökstólum allan árs-
ins hring; þá væri hitt alþingið
óþarft. — Samt hefur þetta tek-
ist stundum, að gera vilja fólks-
að valdi, en það hefur aðeins
tekizt milli kosninga, ekki á
kosningadaginn, sem skiptir
sköpum.
Er furða þótt fólk þreytist og
sumir heltist úr lestinni? Fimmt
án ár eru langur tími, og hvar
er árangurinn? Að vísu er betra
að hafa barizt og tapað, en að
hafa ekki barizt; en til þess er
barizt að sigra.
Keppendur með verðlaun sín, nokkra vantar þó á myndina.
Iþróttakeppni Lauga§kóla og:
Ciagnfræða§kólan§ á Akureyri
37 nemendur Laugaskóla á-
samt þrem kennurum heimsóttu
Gagnfræðaskólann á Akureyri
sl. laugardag. Leiddu nemendur
skólanna saman hesta sína í
sundi, frjálsum íþróttum, knatt-
spyrnu og skák.
Um kvöldið var Laugamönn-
um boðið á dansleik í Gagn-
fræðaskólanum, þar sem verð-
laun voru afhent fyrir afrek dags
ins. Laugamenn héldu síðan
heimleiðis um miðnætti.
Þetta er í fimmta sinn, sem
nemendur skólanna heyja slíka
keppni. Veitt voru bókaverðlaun
þremur beztu mönnum í hverri
Viljum við láta baráttu okk-
ar bera árangur, viljum við láta
kjörorð okkar rætast, Island ó-
háð eftir fimm ár, þegar samn-
ingur okkar við Nato verður
tekinn til endurskoðunar, þá er
eitt víst: Betur má, ef duga skal.
Við megum ekki gleyma því,
að baráttan fyrir heilbrigðri
stefnu í utanríkismálum verður
ekki skilin frá heilbrigðri stefnu
í innanlandsmálum. Við getum
ekki höggvið á þann þráð. Bar-
áttan fyrir sjálfstæði voru, fyrir
óháðri utanríkisstefnu, er óhjá-
kvæmilega barátta gegn þeim öfl
um í okkar þjóðfélagi, sem skap-
að hafa núverandi þjóðfélagsá-
stand: Gegn pólitískum yfir-
gangi fésýsluauðvalds, gegn
takmarkalausri erlendri fjárfest
ingu, gegn innlimun í viðskipta
blokkir stórvelda; fyrir vitrænni
stjórn hagkerfisins, fyrir örum
og heilbrigðum efnahagsvexti,
fyrir réttlátri tekjuskiptingu, fyr
ir mannsæmandi vinnudegi. Fyr
ir velferðarríki hins vinnandi
manns. Okkar eðlilegi banda-
maður eru hin skipulögðu sam-
tök íslenzks verkalýðs. Það er
beggja hagur: Verkalýðshreyf-
ingin fær aldrei til fulls beitt
grein, og gaf Bókaíorlag Odds
Björnssonar allar verðlaunabæk-
urnar eins og alltaf áður. Kunna
skólarnir forstjóranum, Sigurði
0. Björnssyni, beztu þakkir fyr-
ir þá rausn.
Urslit í einstökum greinum
keppninnar urðu sem hér segir:
50 m bringusund kvenna:
1. Sigrún Vignisdóttir GA 44.2
2. Karen Eiríksd. GA 46.3
3. Eirún Eyþórsd. GA 46.5
25 m skriðsund kvenna:
1. Eyrún Eyþórsd. GA 17.5
2. -3. Hildur Kárad. GA 18.4
2.-3. Soffía Sævarsd. GA 18.4
samtakamætti sínum, nema hún
eigi að bandamanni á stjórn-
málasviðinu flokk, sem getur
virkjað krafta hennar. Og flokk
alþýðunnar brestur afl til þess,
sem gera skal, ef hann á ekki
hróður að baki, þar sem verka-
lýðshreyfingin er.
Þetta verður tvísýnt stríð;
það vinnst ekki á vorum dög-
um með einum saman mótmæl-
um og bænaskrám. Við, sem
höfum snúið bökum saman í
baráttunni gegn hersetunni, þurf
um að láta okkur lærast að
fylgja því eftir með pólitískri
samstöðu. Ekki aðeins milli
kosninga, heldur líka í kosning-
um. Við verðum að hasla okk-
ur völl í nýjum stjórnmálaflokki,
sem er þess megnugur að sam-
eina og virkja alla okkar krafta
í einn farveg: inn á löggjafar-
þing þjóðarinnar, þar sem úr-
slitum er ráðið. Ef við berum
gæfu til þess á næstu fimm árum,
trúi ég því, að endir verði bund-
inn á veizlugleði hernámssinna
og að kjörorð okkar rætist.
(RœSa flutt á fundi Samtaka her-
námsandstœSinga í Stjörnubíói,
sunnudaginn 5. apríl 1964. — RœSan
var stytt í flutningi).
100 m bringusund karla:
1. Jón Árnason GA 1.25.6
2. Ágúst Óskarss. L 1.31.3
3. Tryggvi Aðalst.s. GA 1.35.6
50 m skriðsund karla:
1. Jón Árnason GA 30.9
2. Örvar Ingólfsson GA 33.2
3. Sverrir Þórisson GA 33.5
10x25 m boðsund kvenna:
1. Sveit GA 3.23.5
2. Sveit Laugaskóla 3.49.5
10x25 m boðsund karla:
1. Sveit GA 2.29.4
2. Sveit Laugaskóla 3.11.9
Þrístökk án atrennu:
1. Bergsveinn Jónsson L 8.36
2. Ingvar Jónsson L 8.25
3, Guðm. G. Arthúrss. GA 8.04
Langstökk án atrennu:
1. Guðm. G. Arthúrss. GA 2.92
2. Bergsveinn Jónsson L 2.90
3. Sigurður Sigmannss. L 2.81
Hástökk með atrennu:
1. Páll Dagbjartsson L 1.55
2. Jón Benónýsson L 1.50
3. Ilalldór Sigurðsson L 1.50
Hástökk án atrennu:
1. Bergsveinn Jónsson L 1.40
2. Halldór Sigurðsson L 1.35
3. Sigurður Helgason L 1.25
Sigurður Viðar Sigmarsson,
kennari, Laugum, Guðmundur
Pétursson og Kjartan Guðjóns-
son, nemendur í M.A., kepptu
sem gestir í frjálsum íþróttum.
Knattspyrnuleik lauk með
jafntefli, 2:2. Skákkeppnina
unnu Laugamenn, unnu á 6 borð
um, en töpuðu á 4.
Heildarúrslit urðu þau, að
Gagnfræðaskólinn sigraði í
keppninni með 62.5 stigum, en
' Laugaskóli hlaut 54.5 stig.
ÁbyrgðarmaSur: Þorsteinn Jónatansson
PrentsmiSja Björns Jónssonar hf.
Verkamaðurinn — (3
Föstudagur 17. apríl 1964