Verkamaðurinn - 07.08.1964, Blaðsíða 7
í STUTTII MALI
1/7. — Kom til Akureyrar
maður drottningarinnar í Eng-
landi, nefndur Phiiip prins. Var
honum vel fagnað af miklum
mannfjölda, er beið hans í Lysti
garðinum þrátt fyrir úrhellisrign
ingu. Daginn eftir ferðaðist Fil-
ippus þessi um Mývatnssveit og
flaug þaðan til Reykjavíkur.
* * *
3/7. — Undirritaður samning
ur milli Flugfélags íslands h.f.
og flugvélaverksmiðju í Hollandi
um smíði á Fokker Friendship
skrúfuþotu fyrir Flugfélagið. —
Gert er ráð fyrir, að hin nýja
flugvél verði afhent félaginu í
apríl næsta ár. I henni verða sæti
fyrir 48 farþega, og er vélin ætl-
uð til notkunar í innanlandsflug-
inu.
* * *
26/7. — Akureyrartogarinn
Harðbakur tekinn að veiðum í
landhelgi suður af Kolbeinsey.
Skipstjórinn, sem í þessarri
veiðiför var Jón Sigurðsson, var
dæmdur í 200 þúsund króna
sekt. Afli, sem var 20 tonn, og
veiðarfæri gert upptækt.
* * *
26/7. — Flugdagur á Mel-
gerðismelum, og þótti vel heppn-
ast. Að honum stóðu Sviffiugfé-
lag Akureyrar, Flugbjörgunar-
sveit Akureyrar og Flugskóli
Tryggva Helgasonar.
* * *
4/7. — Hákon Guðmundsson,
áður ritari hæstaréttar, skipaður
yfirborgardómari í Reykjavík,
og Þórður Björnsson skipaður
yfirsakadómari.
* * *
15/7. — Anastas Mikojan
kjörinn forseti Sovétríkjanna.
* * *
16/7. — Flokksþing Republik
anaflokksins í Bandaríkjunum
velur Barry Goldwater fyrir for-
setaefni með yfirgnæfandi meiri
hluta atkvæða. Barry þessi er
fulltrúi ofstækisfyllstu hægriafl-
anna í Bandaríkjunum.
* * *
25/7. — Kláfferja fyrir bif-
reiðir tekin í notkun á Tungnaá
hjá Haldi. Þar með er akfær leið
orðin milli norður- og suður-
lands um Sprengisand. Leið
þessi verður þó tæpast farin
nema á bifreiðum með drif á
öllum hjólum.
* * *
29/7. — Lögð fram útsvars-
skrá Reykjavíkur. Langhæsta út-
svarið greiðir flugfélagið Loft-
Föstudagur 7. ógúst 1964.
leiðir, eða 16.5 millj. kr. Alls
eru opinber gjöld Loftleiða nær
30 milljónir króna. Hefur svo
drjúgur skattgreiðandi ekki áð-
ur þekkzt hér á landi. Heildar-
upphæð útsvara í Reykjavík er
436.5 millj. kr., var í fyrra 313.5
millj.
» « *
Samvinnotryððinðflr hafo
endorðreitt JI.Í millj. kr.
30/7. — Loftleiðir h.f. flytja
afgreiðslu flugvéla sinna frá
Reykjavíkurflugvelli til Kefla-
víkurflugvallar.
* « *
1/8. — Ásgeir Asgeirsson sett
ur inn í embætti forseta íslands
í fjórða sinn, en hann varð nú í
þriðja skipti sjálfkjörinn forseti
landsins.
* » *
31/7. — Bandarískt geimfar
lenti á tunglinu. Myndavélar um
borð tóku þúsundir nærmynda
af tunglinu og sjónvörpuðu til
jarðar. Kostnaður við vísindatil-
raun þessa talinn nema svo sem
9 milljörðum íslenzkra króna.
* * *
1/8. — Fyrsta eldflaugarskot
frá íslandi. Franskir vísinda-
menn, er starfa að rannsóknum
á öreindum í efri lögum gufu-
hvolfsins, skutu á loft eldflaug
frá Mýrdalssandi. Skotið tókst
vel og tilætlaður árangur náðist.
Aðalfundir Samvinnutrygg-
inga og Líftryggingafélagsins
Andvöku voru haldnir á Hall-
ormsstað 30. júní. Fundinn sóttu
21 fulltrúi víðsvegar að af land-
inu, auk stjórnar og starfsmanna
félaganna.
í upphafi fundarins minntist
formaður félagsstj órnar, Erlend-
ur Einarsson, forstjóri, tveggja
forvígismanna félaganna, sem
látizt höfðu frá síðasta aðal-
fundi, þeirra Sigurður Kristins-
sonar forstjóra og Jóns Eiríks-
sonar frá Volaseli.
Fundarstjóri var kjörinn
Bj örn Stefánsson, kaupfélags-
stjóri, Egilsstöðum, en fundar-
ritarar þeir Jón S. Baldurs, fyrrv.
kaupfélagsstjóri, Blönduósi, Ósk-
ar Jónsson, fulltrúi, Selfossi, og
Steinþór Guðmundsson, kennari,
Reykjavík.
Stj órnarformaður, Erlendur
Einarsson, forstjóri, flutti
skýrslu stjórna félaganna og
HAPPDRÆTTI
Þjóðviljans
VINNINGSNÚMER í 2. FLOKKI 1964:
Dregið var í 2. flokki happdrættis Þjóðviljans mánudaginn
6. júlí. — Upp komu eftirtalin númer:
1. TRABANT (station) bifreið 14711
2. 18 daga ferðalag 10. ágúst með flugvél og skipi, Reykja-
vík — London — Vín, eftir Dóná til Yalta og til baka 13134
3. 18 daga ferðalag 21. ágúst með flugvél Reykjavík — Kaup-
mannahöfn — Constanza (Mamaia) og til baka 1335
4. 18 daga ferðalag 17. júlí með flugvélum Reykjavík —
Kaupmannafi. — Búdapest — Balatonvatn og til baka 8063
5. 21 dags ferðalag 5. september með flugvélum Rvík —
Luxemburg — Munchen — Júgóslavía og til baka 2279
6. Ferðaútbúnaður: Tjald, svefnpoki, bakpoki, ferðaprímus
og fleira að verðmæti 15.000.00 krónur 24098
Vinninganna má vitja í skrifstofu
Happdrœttis Þjóðviljans, Týsgötu 3,
Reykjavík. — Sími 17514, opið frá
kl. 9—12 f. h. og 1—6 e. h.
Verkamadurinn
götu 5, Aknreyri, sfmi 1516. —
Kristján Einarsson frá Djúpalæk.
Lausasöluverð kr. 2.00 eintakið. —
Vikublað. — Útgefendur: Sósialista-
félag Akureyrar og Fulltrúaráð Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Skrifstofa blaðsins er í Brekku-
Ritstjórar: Þorsteinn Jónatansson (áb.) og
— Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. —
Blaðið kemur að jafnaði út á föstudögum. —
Prentað í Prentsmiðju Bjöms Jónssonar h.f., Akureyri.
framkvæmdastjórinn, Ásgeir
Magnússon, skýrði reikninga
þeirra.
Heildariðgjaldatekjur Sam-
vinnutrygginga á árinu 1963,
sem var 17. reikningsár þeirra,
námu kr. 130.068.699.00, í
brunadeild kr. 24.809.718.00, í
sjódeild kr. 48.322.524.00, í bif-
reiðadeild kr. 35.714.548.00 og
í endurtryggingadeild kr. 21.221-
.909.00. Höfðu iðgjöldin aukizt
um kr. 27.668.222.00 frá árinu
áður og hefur iðgjaldaaukningin
aldrei verið jafn mikil að krónu-
tölu.
Tjónabætur námu 90.6 millj-
ónum króna eða 16.1 milljón
meira en árið áður.
Verulegt tap varð á bifreiða-
tryggingum á árinu, en unnt var
að endurgreiða í tekjuafgang
svipaða upphæð og áður af
bruna-, dráttarvéla-, slysa-, farm-
og skipatryggingum eða kr.
7.050.000.00 auk bónusgreiðslna
til bifreiðaeigenda fyrir tjón-
lausar tryggingar, sem námu
kr. 6.124.000.00.
Frá því Samvinnutryggingar
hófu að endurgreiða tekjuaf-
gang árið 1949 hafa þær samtals
endurgreitt hinum tryggðu
tekjuafgang, sem nemur 51.7
milljónum króna, auk bónus-
greiðslna til bifreiðaeigenda.
Iðgjaldatekjur Líftrygginga-
félagsins Andvöku námu kr.
2.326.000.00 árið 1963, sem var
14. reikningsár þess. Trygginga-
stofn nýrra líftrygginga á árinu
nam kr. 6.642.000.00 og trygg-
ingastofninn í árslok kr. 103.902.
000.00. Trygginga- og bónus-
sjóðir námu í árslok tæpum 25
milljónum króna.
Á árinu var opnuð ný um-
boðsskrifstofa á Akranesi, og
veitir Sveinn Guðmundsson
fyrrv. kaupfélagsstjóri henni
forstöðu.
í lok ársins festu Samvinnu-
tryggingar kaup á tveimur hæð-
um í nýju skrifstofuhúsi að Ár-
múla 3 í Reykjavík, og munu
félögin flytja aðalskrifstofur sín-
ar þangað á þessu ári.
Ur stjóm áttu að ganga ísleif-
ur Högnason og Kjartan Ólafs-
son frá Hafnarfirði, sem baðst
eindregið undan endurkjöri.
Kjartan hefur verið í stjórn fé-
laganna frá upphafi, og færði
stjórnarformaður honum sér-
stakar þakkir fyrir störf hans í
þágu félaganna.
ísleifur Högnason var endur-
kjörinn og í stað Kjartans var
Kringsjó
yikunnor
Messað verður í Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 10,30 f. h. —
Sólmar nr. 536, 327, 56, 139 og
29. — B. S.
Hlífarkonur. Fundur verður hald-
inn í Pólmholti föstudaginn 7. ógúst
kl. 9 síðdegis. Mætið vel og stund-
víslega. — Stjórnin.
Hjúskapur. Laugardaginn 1. ág-
úst voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju María Hólm Jóels
dóttir saumakona og Eiður Aðal-
steinsson verkamaður. — Heimili
þeirra verður að Grenivöllum 16
Akureyri. — Sunnudaginn 2. ágúst
voru gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju Arína Jóna Guð-
mundsdóttir og Ralph Hinrik Chad-
wick vefari. Heimili þeirra verður
að Norðurgötu 4 Akureyri.
Arni Böðvarsson Norðurgötu 49
á Akureyri, starfsmaður hjá Vega-
gerð ríkisins, varð fimmtugur 5.
ágúst.
Ferðaskrifstofan Lönd Cr Leiðir
efnir til ferðar til Danmerkur og
Bretlands 7. september. — 1 þessu
sambandi skal á það bent, að ef
næg þátttaka fæst héðan frá Ak-
ureyri, verður séð fyrir sérstaklega
ódýru fari suður eða jafnvel, ef þátt
taka verður mikil, að skipulögð verði
héðan ferð sérstaklega.
Munið minningarspjöld Kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða varið
til fegrunar við Barnaheimilið Pálm-
holt. Minningarspjöldin fást I Bóka-
búð Jóhanns Valdemarssonar og hjá
Laufeyju Sigurðardóttur, Hlíðarg. 3.
Náttúrugripasafnið er opið al-
menningi á sunnudögum ' kl. 2—4
e. h. Sími safnvarðar er 2983.
Skiðahótelið Hlíðarfjalli. Opið
daglega fyrir gistingu og greiðasölu.
Borð og matpantanir í síma um 02.
— Hótelstjóri.
kjörinn Ragnar Guðleifsson,
Keflavík.
Á aðalfundinum flutti Baldvin
Þ. Kristjánsson, útbreiðslustjóri,
erindi um félagsmál.
Að loknum aðalfundinum hélt
stjórnin fulltrúum og allmörg-
um gestum úr Austfirðingafjórð-
ungi hóf að Hallormsstað.
Stjórn félaganna skipa: Er-
lendur Einarsson, formaður,
ísleifur Högnason, Jakob Frí-
mannsson, Karvel Ogmundsson
og Ragnar Guðleifsson.
Framkvæmdastjóri félaganna
er Ásgeir Magnússon, en auk
hans eru í framkvæmdastjórn
Jón Rafn Guðmundsson og
Björn Vilmundarson.
VerkamoSurinn (7