Verkamaðurinn - 11.12.1964, Síða 1
AMcgiir horfur í atvinnumálum
Stjórn EININGAR skrifar bæjarstjórn og síldarútvegsnefnd.
Horfur í atvinnumálum verka-
fólks á Akureyri eru mjög slæm
ar um þessar mundir, og þegar
orðið talsvert atv.innuleysi í
bænum, þrátt fyrir það, að veð-
urfar hefur verið óvenj uhagstætt
og því hægt að vinna flesta úti-
vinnu. Ein af orsökum þessa er
sú, að nú er ekkert unnið í
Tunnuverksmiðjunni, ekkert
efni hefur borizt til verksmiðj-
unnar til að vinna úr og engin
vitneskja hefur fengizt um, hve-
nær það komi eða hvort Tunnu-
verksmiðjur ríkisins verði yfir-
leitt nokkuð starfræktar í vetur.
Væri þó meira en undarlegt, ef
starfrækslu þeirra væri hætt á
sama tíma og meiri síld er sölt-
uð í landinu en áður hefur
þekkst. Auk þess er svo lítil
vinna hjá Útgerðarfélaginu á
meðan togararnir, sem gerðir
eru út, sigla með allan afla sinn
á erlendan markað.
BÆJARSTJÓRN SKRIFAÐ
Stjórn Verkalýðsfélagsins Ein
ingar kom saman á fund um
síðustu helgi og samþykkti þar
að skr.ifa bæjarstjórn eftirfar-
andi hréf:
„Stjórn Verkolýðsfélagsins Ein-
ingar vill vekja athygli bæjarstjórn-
ar Akureyrar ó hinu alvarlega at-
vinnuóstandi hjó verkafólki hér í
bænum, en fulivíst er, oð allmargir
tugir vcrkomonno og verkakvenna
eru nú atvinnulitlir eða atvinnulaus-
ir með öllu.
Stjórn Einingar telur óhjókvæmi-
legt að nú um sinn a. m. k. verði
fjölgað stórlega í bæjarvinnunni eða
þar til úr rætist um vinnu verka-
monna. Telur stjórnin lógmark að
fjölgað verði um 25—30 verka-
menn nú þegar."
Blaðið hefur fregnað, að bréf
þetta hafi haft þau áhrif, að
eitthvað verði fjölgað í bæjar-
vinnunni, a. m. k. þá daga, sem
eftir eru til jóla.
SKEYTI TIL SÍLDARÚTVEGS-
NEFNDAR
Þá sendi stjórn Einingar einn-
ig skeyti til síldarútvegsnefndar,
svohljóðandi:
„Stjórn Verkalýðsfélagsins Eining
ar skorar cindregið ó Sildarútvegs-
nefnd að hefja nú þegar starfrækslu
Tunnuverksmiðjunnar ó Akureyri,
m. o. með tilliti til alvarlegs at-
vinnuóstands hjó verkamönnum i
bænum."
FYRIRSPURN A
ALÞINGI
Vegna þess undarlega ráðslags
síldarútvegsnefndar að flytj a
ekki inn í tæka tíð efni til tunnu
verksmiðjanna og hefja rekstur
þeirra, báru þingmennirnir
Björn Jónsson og Ragnar Arn-
alds fram fyrirspurn um mál-
ið á Alþingi nú í vikunni. Er
hún á þessa leið og beint til
sj ávarútvegsmálaráðherra:
1. Hvað er fyrirhugað um tunnu-
smíði í Tunnuverksmiðjum rík-
isins nú í vetur.
a. i Akureyrarverksmiðjunni.
b. i Siglufjarðarverksmiðjunni?
2. Hvað liður undirbúningi að
byggingu tunnugeymslu við Ak-
ureyrarverksmiðjuna.
I síðasta blaði sögðum við lítillega fró bókinni Heiðurskarlar, sem er ein
myndarlegasta bókin ó jólamarkaðinum að þessu sinni. — Einn kafla
bókarinnar skrifaði Kristjón fró Djúpalæk eftir frósögn Egils Jóhannsson-
or, sem lengi vor skipstjóri ó Snæfellinu. — Myndin hér að ofan var tekin
of þeim félögum í sumar, er þeir unnu að samningu þóttarins.
fN#.
Miklar endurbœtur hjá K EA
Þriðjudaginn 8. desember má
telja að lokið hafi verið um-
fangsmiklum breytingum á verzl-
unum Kaupfélags Eyfirðinga í
Hafnarstræli 91 og 93, þá opn-
aði Herradeildin á fyrstu hæð
í Hafnarstræti 93, og Vefnaðar-
vörudeildin tók alla aðra hæð
fyrir sínar vörur. Áuk þess er
teppasala í kjallara hússins, svo
að nú er verzlað á þrem hæðum
þess í björtum og mjög rúm-
góðum húsakynnum. Verzlunar-
plássið í kjallara er um 80 m2, á
fyrstu hæð um 250 m2 og á ann-
arri liæð um 270 m2.
Flest öllum varningi deild-
anna er fyrir komið á lausum
horðum eða „eyjum“ þannig að
viðskiptavinirnir eiga mjög auð-
velt með að skoða hann.
Teikningar af breytingunum
annaðist Teiknistofa S.I.S. en
verkstjórn Stefán Halldórsson,
byggingameistari, Sameinuðu
verkstæðin Marz og Vélsmiðjan
Oddi, sáu um hitalagnir, en Raf-
lagnadeild K.E.A. um raflagnir,
Jón A. Jónsson sá um málningu,
en Húsgagnavinnustofa Ólafs
Agústssonar sá um smíði og
uppsetningu verzlunarinnrétt-
ingarinnar.
Til algerrar nýjungar í útbún-
aði verzlunar hér í bæ, er hinn
svonefndi hverfistigi, sem er
hinn fyrsti, sem settur er upp hér
á landi utan Reykjavíkur. Stig-
inn er smíðaður hjá OTIS-
Elevator Company í Þýzkalandi,
sem er eitt elzta og reyndasta
fyrirtæki heims í smíði hverfi-
stiga og lyftna. Stiginn er af
sömu gerð og er í mörgurn
stærstu verzlunarhúsum megin-
landsins. Hann er með fullkomn-
um öryggisútbúnað.i svo að eng-
in slysahætta er talin stafa af
honum. Uppsetningu stigans ann
aðist Mr. W. J. Davis frá Otis-
fyrirtækinu í Englandi, en hann
hefur farið víða um heim í slík-
um erindum.
Hverfistiginn flytur viðskipta-
v.inina úr Herradeildinni upp í
Vefnaðarvörudeildina, og er stað
settur nálægt miðju þessara
deilda, en að sj álfsögðu er einnig
venjulegur stigi milli þeirra, sem
nota verður við útgöngu úr
V ef naðarvörudeild.
Deildarstjóri Herradeildar er
Björn Baldursson, en Vefnaðar-
vörudeildar Kári Johansen.
Myndin hér að ofan er úr
Herradeildinni nýju og sést þar
m. a. hverfistiginn ágæti. Hann
hefur orðið mikið barnagaman
síðan opnað var, en hjá sumum
fullorðnum hefur orðið vart
nokkurrar feimni gagnvart þessu
nýstárlega fyrirbæri.
lucin-hiítíi
Karlakór Akureyrar efndi til
samsöngs og Luciu-hátíðar í Sam
komuhúsinu á Akureyri í gær-
kvöld. Var þar húsfylli af áheyr-
endum og undirtektir þeirra hin-
ar beztu.
Einsöngvarar með kórnum
voru Elrikur Stefánsson, Jóhann
Daníelsson og Jóhann Konráðs-
son, auk Lueiunnar, Höllu Arna-
dóttur, er söng Maríuvers eftir
söngstjórann, Askel Jónsson.
Kvartettsöng önnuðust þeir
Gísli Bjarnason, Jóhann Daníels-
son, Hreiðar Pálmason og Ei-
ríkur Stefánsson.
Söngskemmtun þessi verður
endurtekin í kvöld í Samkomu-
húsinu og kl. 5 á sunnudaginn
í Akureyrarkirkju, og verður þá
öllum frjáls aðgangur, en söng-
skemmtanirnar í Samkomuhús-
inu eru aðallega fyrir styrktarfé-
laga.
Söngstjóri Karlakórs Akureyr
ar er Áskell Jónsson, en söng-
menn eru um 40. Undirleikari
er Guðmundur Jóhannsson.
HEYRIA GÖTUNHI
AÐ framkvæmdastjórum síldar-
útvegsnefndar þyki fyrirhafn
arminna að kaupa fullsmið-
aSar sildartunnur fró útlönd-
um en aS nota innlent vinnu
afl til aS smiSa þær hér
heima.
AÐ komiS hafi til tals, aS Al-
þýSuflokkurinn efndi til
happdrættis, þar sem vinn-
ingarnir væru þægileg em-
bætti og vænir bitlingar.
AD SlippstöSin vinni í kyrrþey
aS undirbúningi stólskipa-
smíSa, enda þótt forstjórinn
neiti aS vita nokkuS um
slikt.
Verkamaðurinn