Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 11.12.1964, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 11.12.1964, Qupperneq 1
AMcgiir horfur í atvinnumálum Stjórn EININGAR skrifar bæjarstjórn og síldarútvegsnefnd. Horfur í atvinnumálum verka- fólks á Akureyri eru mjög slæm ar um þessar mundir, og þegar orðið talsvert atv.innuleysi í bænum, þrátt fyrir það, að veð- urfar hefur verið óvenj uhagstætt og því hægt að vinna flesta úti- vinnu. Ein af orsökum þessa er sú, að nú er ekkert unnið í Tunnuverksmiðjunni, ekkert efni hefur borizt til verksmiðj- unnar til að vinna úr og engin vitneskja hefur fengizt um, hve- nær það komi eða hvort Tunnu- verksmiðjur ríkisins verði yfir- leitt nokkuð starfræktar í vetur. Væri þó meira en undarlegt, ef starfrækslu þeirra væri hætt á sama tíma og meiri síld er sölt- uð í landinu en áður hefur þekkst. Auk þess er svo lítil vinna hjá Útgerðarfélaginu á meðan togararnir, sem gerðir eru út, sigla með allan afla sinn á erlendan markað. BÆJARSTJÓRN SKRIFAÐ Stjórn Verkalýðsfélagsins Ein ingar kom saman á fund um síðustu helgi og samþykkti þar að skr.ifa bæjarstjórn eftirfar- andi hréf: „Stjórn Verkolýðsfélagsins Ein- ingar vill vekja athygli bæjarstjórn- ar Akureyrar ó hinu alvarlega at- vinnuóstandi hjó verkafólki hér í bænum, en fulivíst er, oð allmargir tugir vcrkomonno og verkakvenna eru nú atvinnulitlir eða atvinnulaus- ir með öllu. Stjórn Einingar telur óhjókvæmi- legt að nú um sinn a. m. k. verði fjölgað stórlega í bæjarvinnunni eða þar til úr rætist um vinnu verka- monna. Telur stjórnin lógmark að fjölgað verði um 25—30 verka- menn nú þegar." Blaðið hefur fregnað, að bréf þetta hafi haft þau áhrif, að eitthvað verði fjölgað í bæjar- vinnunni, a. m. k. þá daga, sem eftir eru til jóla. SKEYTI TIL SÍLDARÚTVEGS- NEFNDAR Þá sendi stjórn Einingar einn- ig skeyti til síldarútvegsnefndar, svohljóðandi: „Stjórn Verkalýðsfélagsins Eining ar skorar cindregið ó Sildarútvegs- nefnd að hefja nú þegar starfrækslu Tunnuverksmiðjunnar ó Akureyri, m. o. með tilliti til alvarlegs at- vinnuóstands hjó verkamönnum i bænum." FYRIRSPURN A ALÞINGI Vegna þess undarlega ráðslags síldarútvegsnefndar að flytj a ekki inn í tæka tíð efni til tunnu verksmiðjanna og hefja rekstur þeirra, báru þingmennirnir Björn Jónsson og Ragnar Arn- alds fram fyrirspurn um mál- ið á Alþingi nú í vikunni. Er hún á þessa leið og beint til sj ávarútvegsmálaráðherra: 1. Hvað er fyrirhugað um tunnu- smíði í Tunnuverksmiðjum rík- isins nú í vetur. a. i Akureyrarverksmiðjunni. b. i Siglufjarðarverksmiðjunni? 2. Hvað liður undirbúningi að byggingu tunnugeymslu við Ak- ureyrarverksmiðjuna. I síðasta blaði sögðum við lítillega fró bókinni Heiðurskarlar, sem er ein myndarlegasta bókin ó jólamarkaðinum að þessu sinni. — Einn kafla bókarinnar skrifaði Kristjón fró Djúpalæk eftir frósögn Egils Jóhannsson- or, sem lengi vor skipstjóri ó Snæfellinu. — Myndin hér að ofan var tekin of þeim félögum í sumar, er þeir unnu að samningu þóttarins. fN#. Miklar endurbœtur hjá K EA Þriðjudaginn 8. desember má telja að lokið hafi verið um- fangsmiklum breytingum á verzl- unum Kaupfélags Eyfirðinga í Hafnarstræli 91 og 93, þá opn- aði Herradeildin á fyrstu hæð í Hafnarstræti 93, og Vefnaðar- vörudeildin tók alla aðra hæð fyrir sínar vörur. Áuk þess er teppasala í kjallara hússins, svo að nú er verzlað á þrem hæðum þess í björtum og mjög rúm- góðum húsakynnum. Verzlunar- plássið í kjallara er um 80 m2, á fyrstu hæð um 250 m2 og á ann- arri liæð um 270 m2. Flest öllum varningi deild- anna er fyrir komið á lausum horðum eða „eyjum“ þannig að viðskiptavinirnir eiga mjög auð- velt með að skoða hann. Teikningar af breytingunum annaðist Teiknistofa S.I.S. en verkstjórn Stefán Halldórsson, byggingameistari, Sameinuðu verkstæðin Marz og Vélsmiðjan Oddi, sáu um hitalagnir, en Raf- lagnadeild K.E.A. um raflagnir, Jón A. Jónsson sá um málningu, en Húsgagnavinnustofa Ólafs Agústssonar sá um smíði og uppsetningu verzlunarinnrétt- ingarinnar. Til algerrar nýjungar í útbún- aði verzlunar hér í bæ, er hinn svonefndi hverfistigi, sem er hinn fyrsti, sem settur er upp hér á landi utan Reykjavíkur. Stig- inn er smíðaður hjá OTIS- Elevator Company í Þýzkalandi, sem er eitt elzta og reyndasta fyrirtæki heims í smíði hverfi- stiga og lyftna. Stiginn er af sömu gerð og er í mörgurn stærstu verzlunarhúsum megin- landsins. Hann er með fullkomn- um öryggisútbúnað.i svo að eng- in slysahætta er talin stafa af honum. Uppsetningu stigans ann aðist Mr. W. J. Davis frá Otis- fyrirtækinu í Englandi, en hann hefur farið víða um heim í slík- um erindum. Hverfistiginn flytur viðskipta- v.inina úr Herradeildinni upp í Vefnaðarvörudeildina, og er stað settur nálægt miðju þessara deilda, en að sj álfsögðu er einnig venjulegur stigi milli þeirra, sem nota verður við útgöngu úr V ef naðarvörudeild. Deildarstjóri Herradeildar er Björn Baldursson, en Vefnaðar- vörudeildar Kári Johansen. Myndin hér að ofan er úr Herradeildinni nýju og sést þar m. a. hverfistiginn ágæti. Hann hefur orðið mikið barnagaman síðan opnað var, en hjá sumum fullorðnum hefur orðið vart nokkurrar feimni gagnvart þessu nýstárlega fyrirbæri. lucin-hiítíi Karlakór Akureyrar efndi til samsöngs og Luciu-hátíðar í Sam komuhúsinu á Akureyri í gær- kvöld. Var þar húsfylli af áheyr- endum og undirtektir þeirra hin- ar beztu. Einsöngvarar með kórnum voru Elrikur Stefánsson, Jóhann Daníelsson og Jóhann Konráðs- son, auk Lueiunnar, Höllu Arna- dóttur, er söng Maríuvers eftir söngstjórann, Askel Jónsson. Kvartettsöng önnuðust þeir Gísli Bjarnason, Jóhann Daníels- son, Hreiðar Pálmason og Ei- ríkur Stefánsson. Söngskemmtun þessi verður endurtekin í kvöld í Samkomu- húsinu og kl. 5 á sunnudaginn í Akureyrarkirkju, og verður þá öllum frjáls aðgangur, en söng- skemmtanirnar í Samkomuhús- inu eru aðallega fyrir styrktarfé- laga. Söngstjóri Karlakórs Akureyr ar er Áskell Jónsson, en söng- menn eru um 40. Undirleikari er Guðmundur Jóhannsson. HEYRIA GÖTUNHI AÐ framkvæmdastjórum síldar- útvegsnefndar þyki fyrirhafn arminna að kaupa fullsmið- aSar sildartunnur fró útlönd- um en aS nota innlent vinnu afl til aS smiSa þær hér heima. AÐ komiS hafi til tals, aS Al- þýSuflokkurinn efndi til happdrættis, þar sem vinn- ingarnir væru þægileg em- bætti og vænir bitlingar. AD SlippstöSin vinni í kyrrþey aS undirbúningi stólskipa- smíSa, enda þótt forstjórinn neiti aS vita nokkuS um slikt. Verkamaðurinn

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.