Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 11.12.1964, Qupperneq 4

Verkamaðurinn - 11.12.1964, Qupperneq 4
ÞVÆTTINGUR ERLINGS Ritstjóri Dags, Erlingur Davíðsson, skrifar í síSasta blað sitt undarlegan samsetning um Alþýðubandalagið og þing Sósíalistaflokksins. Er þar haldið fram slíkum firrum, að ekki veröur látið ómótmælt. Erlingur segir m. a.: „I haust fóru af því miklar sögur og komust jafnvel inn í ríkis- útvarpið, að Björn Jónsson og fleiri vœru að vinna að því hér fyrir norðan, að gera Alþýðu- bandalagið að sjálfstœðum vinstri flokki og sækja til þess efnivið í Sósíalistaflokk Brynj- ólfs og EinarsJ' Þetta er rétt með fariÖ, að öðru leyti en því, að víðar voru efniviðir sóttir en til Sósíal- istaflokksins og Sósíalistaflokkurinn hefur aldrei verið nein einkaeign ákveðinna manna. Eða er t. d. Framsóknarflokkurinn einkaeign Eysteins og Björns á Löngumýri? Vafasamt verður það og að teljast, þótt undirritaður kunni ekki skil á því, að Ríkisútvarpið hafi haft orð á því, hvert sækja ætti elnivið í Al- þýðubandaiagið. Hið rétta er, og vita víst flestir, að verið er að byggja Alþýöubanda- lagið upp sem sjálfstæðan vinstri flokk með eigin stjórn og óháðan öðrum flokkum. Efni- viðurinn til þess kemur víða að, m. a. frá mönnum, sem starfað hafa í Sósíalistaflokkn- um, Þjóðvarnarflokknum, Alþýðuflokknum og Framsóknarflokknum. Jafnvel eru spurnir af því, að einstöku menn, sem fylgt hafa Sjálf- stæSisflokkhum að málum, hyggist ganga til liðs við Alþýðubandalagið. í framhaldi af því, sem hér að framan er birt eftir Erlingi heldur hann áfram: „Látið var í veðri vaka, að á flokksþinginu myndi draga til mikilla tíðinda. Þar skyldu þeir eldar tendrað- ir, er eytt gœti vé Moskvumanna og steypt skurðgoðum af stalli. Upp úr öskunni átti svo Alþýðubandalagið að rísa, endurborið eins og fuglinn Fönix. En hljótt er nú um fugl þann.“ Gaman væri, að Erlingur upplýsti, hvar eða hvenær Alþýðubandalagið eða einhverjir tals- menn þess, t. d. hér í kjördæminu, hafa haldið því fram, að til einhverra sérstakra tíðinda myndi draga á þingi Sósíalistaflokksins, því sem haldið var í síðasta mánuði, að þar yrðu einhverjir sérstakir eldar tendraðir, eytt ein- hverjum véum „Moskvumanna“ eða skurð- goÖum steypt af stalli. Ég hef ekki heyrt þetta, en kannski fylgist Erlingur betur með því, sem gerist hjá Alþýðubandalaginu. Þá tel ég rétt að benda Erlingi á það, að Alþýðubandalag.ið er ekki, og því er ekki ætlað að rísa upp úr neinni ösku. Það er vissulega í uppbyggingu, en það er ekki reist á rústum, heldur á sjálfstæðum og traustum grunni. Hvað því viÖvíkur, að hljótt sé nú um Al- þýðubandalagið, þá er ég þeirrar skoðunar, að síður en svo sé hljóöara um það, en áður hefur verið. Fremur hið gagnstæða. Yera má þó, að síðar heyrist meira til þess, hvort sem Erlingi líkar betur eða verr. En vitað er, að afstaða Framsóknarmanna til Alþýöubanda- lagsins er mjög tvískipt, eins og raunar af- staða þeirra til flestra hluta og dagskrármála. Orðagjálfur Erlings, þegar hann bregður sér í skáldagervi og hefur Grýlu og belgi henn- ar fyrir aðalpersónur, er ekki svaravert. En Alþýðubandalagið er eftir sem áður til sem sjálfstæður flokkur og er sem stendur í örari vexti en nokkur hinna stj órnmálaflokkanna á íslandi. Þegar Erlingur telur, að þangað fýsi fáa, þá er það óskhyggjan, sem stýrir penna hans, en hún megnar oft lítið, ef rökvísa hugs- un skortir að baki. Og hvers sem Erlingur ósk- ar og hvað sem hann reynir að skálda, þá getur hann verið viss um það, að innan fárra mán- aða veröur hann að horfast í augu við þá staðreynd, að Alþýðubandalagið hefur hlotið félagslega uppbyggingu um allt land og verður orðið vel uppbyggður stjórnmálaflokkur. Gegn þeirri þróun dugir enginn vaðall um Grýlu eða óskhyggjuþvættingur hræddra andstæð- inga. Þorsteinn Jónatansson. IIAPPDRÆTTIÐ Eitt af því, sem Alþýðubandalagið hefur nú með höndum er v.iðamikið o>g víðtækt happ- drætti, sem til þess er ætlað að létta fjárhags- lega undir með uppbyggingu þess og útgáfu- starfsemi. Því betur sem happdrættið gengur, því fyrr tekst að koma öllum rekstri og starfsemi Al- þýðubandalagsins á æskilegan grundvöll. Rétt svar við Grýlusögum og hrakspám and- stæðinganna er að sameinazt um að gera ár- angurinn af happdrættinu sem allra mestan og beztan. Það meðal annars getur tryggt það, að aldrei verði hljótt um Alþýðubandalagið og að það verði sá skelfir í augum andstæðing- anna, sem það getur verið og á að vera. Raunverulegt bandalag allrar alþýðu, óháð öðrum stj órnmálaflokkum, en andstæðingur íhalds- og afturhaldsafla, hvað sem þau nefna sig, er það, sem stefnt er að. Sameinumst um, að gera bandalag alþýð- unnar sterkt og mikilsmegandi í íslenzku þjóð- AKUREYRINGAR! í kjörbúðum vorum fáið þér ollor mfltmur ri semo stni Þér veljið vöruna sjálf. ¥erzlið I eigrin búðum Aherzla lögð á góða þjónustu, Sendum um allan bæinn Kjörbúdír BARNAKÁPUR Sfærð 4—12. — Gott úrval. Verð frú kr. 420.00. NÝ SENDING DÖMUKÁPUR Höfum fengið follega JAPANSKA GJAFAVÖRU. VERZLUNIN HEBA Sími 1 2772. 4) — Verkamaðurinn Föstudagur 11. desember 1964

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.