Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 14.04.1967, Síða 1

Verkamaðurinn - 14.04.1967, Síða 1
Samþykkt var nýlega á fundi stjórnar Utgerðarfélags Akur- eyringa h.f. að óska eftir því, að einum af fjórum skuttogur- um, sem ráðgert er að kaupa á vegum ríkisins, verði ráðstafað til félagsins. Þetta eru gleðitíðindi og von- velli í keppni við Faxaflóann. Við Alþýðubandalagsmenn höfum aldrei tekið undir þann söng, að hætta ætti útgerð þess- arra fiskiskipa, fyrr en þá að önnur, ný og fullkomin, gætu fyllt þeirra skarð. Þvert á móti hafa fulltrúar Alþýðubandalags- annar af forstjórum Ú. A., Vil- helm Þorsteinsson, sem er reynd ur togaraskipstjóri. Sú nefnd hélt fyrstu fundi sína sl. mánu- dag og miðvikudag, og fyrirbug- að er, að nefndin starfi rösklega, en að sjálfsögðu mun það taka nokkurn tíma að ákveða stærð Skuttogari andi aðeins upphaf þess, að ný og glæsileg skip leysi gömlu tog- arana af hólmi. Sérstaklega hlýt- ur það að vera gleðilegt fyrir framkvæmdastjórana og starfs- fólk aflt, bæði í landi og á sjó, að nú skuli teningum hafa ver- ið kastað og ákveðið að hefjast handa um nýsköpun. Orvæntingin ’var farin að setja mark sitt á alla starfsemi félagsins, menn töldu lífdaga þess orðna fáa eftir, eða jafn- marga og það væri talið gerlegt að gera út þessi bráðum tuttugu ára gömlu skip. Flestir virtust vera farnir að sætta sig við, að þessi örlög biðu þess atvinnu- rekstrar, sem á hvað drýgstan þátt í, að Akureyri hefur haldið ins margsinnis flutt um það til- lögur, bæði á Alþingi og í hæj- arstjórn, að hafizt yrði handa um endurnýjun. Þessar tillögur hafa ekki verið samþykktar, en engu að síður hafa þær gert sitt gagn og verið sá neisti, sem von- ir hefur gefið. En þó að þessi samþykkt hafi verið gerð í stjórn Útgerðarfé- lagsins, er ekki þar með sagt, að nýr skuttogari sigli hér til hafnar á næstu mánuðum, heldur er rétt að reikna með því, að ár- in 67, 68 og 69 verði runnin í aldanna skaut áður en það skeð- ur, ef ekki verður á eftir ýtt. Nefnd hefur verið skipuð til að leggja á ráðin með hvers kon- ar skip verði valin, þ. e. stærð og gerð. I þessarri nefnd á sæti og gerð þessarra tilraunaskipa. Vilhelm telur, að okkur hér henti bezt 5—700 tonna skip, sem stundi veiðar á heimamið- um og þeim miðum öðrum, sem næst okkur eru, svo sem við Austur-Grænland, aflinn verði ís varinn og unninn í landi í fisk- verkunarstöðvum félagsins. Einnig telur Vilhelm, að rétt sé að gera skipin þannig úr garði að möguleikar séu til að stunda aðrar veiðar en togveiðar. Verkamaðurinn vill nota þetta tækifæri til að óska Útgerðarfé- laginu, starfsmönnum þess og bæjarbúum almennt til hamingju með framangreinda ákvörðun, og efast ekki um, að í hlut Ú. A. komi a. m. k. eitt af þessum nýju skipum. — /. Aðeins Alpýðubandal. getur fellt ríkisstjórnma Nú er að líða að þinglokum og reiknað er með, að kosningar verði II. júní n.k. Alþingismenn hafa haft eldhúsdogsumræður í þessarri viku tvö kvöld. Var fyrri hluti þeirra á þriðjudagskvöldið, en síðari hlut- inn í gærkvöld. Meðal þeirra, sem töluðu á þriðju daginn, var Björn Jónsson, og ræddi hann einkum kjaramól launþega og skarðan hlut þeirra af vaxandi þjóð- artekjum, og lagði óherzlu ó, að eina vonin til að knýja fram breyt- ingu i þessum efnum og breytta stjórnarstcfnu í landinu, væri sigur Alþýðubandalagsins i komandi kosn ingum. Björn komst m. a. svo að orði: Samfellt góðæri hefur ríkt til lands og sjávar, og hvert met- aflaárið rekið annað. 011 ytri efnahagsleg skilyrði til stórfelldr ar uppbyggingar í landinu hafa þannig verið fyrir hendi. Undir- staða afkomuöryggis ætti að vera traustari en nokkru sinni fyrr, þótt á móti blási nú um stundar- sakir. Arður góðæranna hefur ekki runnið til undjirstöðuat- vinnuveganna heldur hafa þeir verið mergsognir af milliliðum og verzlunarvaldi, sem nú hirðir til sín fjórfaldan eða fimmfald- Framhald á bls. 8. Ungir Húsvíkingar búast til skíðak eppni Völsungur 40 óra Húsavík, 12. apríl. íþróttafélagið Völsungur á Húsavík er 40 ára í dag. — Það var stofnað af 28 drengjum á aldrinum 11 til 14 ára 12. apríl 1927. Fyrsti formaður þess var Jakob Hafstein, en Jóhann Haf- stein tók fljótlega við af honum og var formaður félagsins í all- mörg ár. Fyrstu stjórnina skipuðu auk Jaköbs þeir Jón Bjarklind, Jó- hann Hafstein, Helgi Kristjáns- son, Ásbjörn Benediktsson og Benedikt Bj arklind. Nú eru í félaginu á þriðja hundrað manns og starfandi fé- lagar eru rúmlega tvö hundruð. V ölsungur hefur íþróttasal skólanna til frjálsra afnota á kvöldin, en félagið hóf starfsemi sína þar síðari hluta vetrar árið 1959. Alla vetrarmánuðina frá því um miðjan október til apríl- loka hafa síðan æft þar á veg- um félagsins á annað hundrað manns vetur hvern. í vetur eru þátttakendur 106, og þjálfarar 8. Áhugi á skíðaíþróttinni hef- ur farið mjög vaxandi hin síð- ari ár, og félagið á nú mjög efnilegt ungt skíðafólk, sem get- ið hefur sér gott orð á landsmót- um. — Á sumrin er mest stund- uð knattspyrna í hinum ýmsu aldursflokkum og handknattleik ur. Lokið var byggingu útisund- laugar á Húsavík árið 1961. Síð- an hefur verið æft sund á Húsa- vík á vetrum sem sumrum, og nokkrir efnilegir ungir sund- menn hafa komið fram. Völsungur hefur átt félaga, sem orðið hafa landskunnir í- þróttamenn, svo sem Stefán Sör- ensson, Ásmundur Bjarnason og Ingvar Þorvaldsson. íþróttááhugi og íþróttastarf hefur aldrei verið jafnmikið á Húsavík og nú. Félagið minnist afmælisins með ýmsum hætti. í kvöld verður hátíðafundur í Samkomuhúsi Húsavíkur, og næsta kvöld hátíðasýning í í- þróttasalnum. Ýms íþróttamót, sem félagið mun halda síðar á árinu, verða tileinkuð afmælisárinu, og Skíða mót Norðurlands, sem háð verð- ur á Húsavík dagana 15. til 16. apríl n.k., verður helgað því. Stjórn Völsungs skipa nú: Þormóður Jónsson formaður, Freyr Bjarnason, Halldór Ing- ólfsson, Vilhjálmur Pálsson og Stefán Benediktsson. — F. Bj. frd hflppdrsttino Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðúbandalagsins þakkar þeim mörgu, sem sýnt hafa happdrættinu velvild og skilning og gert skil fyrir miða, sem þeim hafa verið sendir. En jafnframt vill stjórnin minna þá, sem enn eiga eftir að gera upp, á að draga nú ekki uppgjör lengur, þar sem óhjá- kvæmilegt er að fara að birta vinningsnúmerin. Skrifstofan í Brekkugötu 5 verður auk venjulegs skrifstofu- tíma opin næstu kvöld til klukkan 19 og frá 20 til 22 til mót- töku á uppgjörum. Útdráttur Vinningsnúmera fór fram á tilsettum tíma, en númerin eru ennþá innsigluð í vörslu bæjarfógetaembættis- ins. Það er von stjórnarinnar, að unnt verði að birta þau í Verkamanninum í næstu viku, en fyrir þann tíma þurfa helzt allir að vera búnir að gera upp. Kjördœmisráð Alþýðubandalagsins.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar: 14. tölublað (14.04.1967)
https://timarit.is/issue/178131

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

14. tölublað (14.04.1967)

Gongd: