Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 14.04.1967, Side 3

Verkamaðurinn - 14.04.1967, Side 3
BLAÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS 1 NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA SKRIFSTOFA í BREKKUGÖTU 5 - SÍMI 11516 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM. ÞORSTEINN JÓNATANSSON AUGLÝSINGASTJ. OG AFGR.M. RÖGNV. RÖGNVALDSSON PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. FRAMBOÐIN Nú hafa allir flokkar tilkynnt iramboð sín við vænt- anlegar alþingiskosningar í júní næstkomandi, ef frá er talið, að neðri hlutann vantar enn á lista íhaldsins á Vestfjörðum. Síðasta framboð Alþýðubandalagsins, framboðið í Reykjavík, var tilkynnt á þriðjudagsmorguninn. Miklar sögusagnir hafa verið manna á meðal og í andstæðingablöðunum um það, að mikil óeining hafi ríkt innan Alþýðubandalagsins um ákvörðun framboða og harðar deilur staðið. Sannleikurinn mun sagna beztur í þessu máli sem öðrum, enda þótt íhaldsblöðin telji ekki hagkvæmt fyr- ir sig að hafa hann að leiðarljósi. I öllum kjördæmum utan Reykjavíkur gekk mjög auðveldlega og árekstralítið að koma saman framboðs- listum Alþýðubandalagsins og mjög góð eining um þá strax í upphafi. í Reykjavík var aftíir á móti allhart deilt um það, hverjir skipa skyldu efstu sætin, og var að lokum kosið milli tveggja tillagna, en margar fleiri höfðu komið fram, þó að þær vsftru ekki lagðar fram á fundi, þegar endanleg ákvörðun um listann var tekin. Að sjálfsögðu reyna andstæðingar Alþýðubanda- lagsins að gera meira úr þeim ágreiningi, sem þarna var til staðar, en raunverulega er ástæða tiL Skal því þó alls ekki neitað, að um allskörp átök var að ræða. En er nokkuð undarlegt við það? Tveir helztu for- yztumenn Alþýðubandalagsins og þingskörungar um árabil eru að láta af störfum, Einar Olgeirsson og Al- freð Gíslason, og ætti það ekki að vera neitt undrun- arefni, þó að vefjist fyrir mönnum, hverja beri að setja í þeirra sæti. Það var ennþá erfiðara að ákveða slíkt vegna þess, að Alþýðubandalagið var fyrst á síðasta ári byggt upp sem stjórnmálaflokkur. Að því stóðu menn úr ýmsum flokkum og á ýmsan hátt með dálítið mismunandi skoðanir, þó að þeir eigi samleið í þeim málum, sem mestu skipta. En þeir flokkar og flokks- brot, sem tóku höndum saman í Alþýðubandalaginu, eru enn ekki runnir svo saman í eina fylkingu, að ekki sé ástæða til að búast við, að mat einstaklinganna á mönnum og málefnum sé dálítið mismunandi. Enda er ekkert athugavert við að svo sé og hlýtur raunar alltaf að verða í nokkrum mæli innan allra flokka. A það er líka vert að benda, að ekki virðist með öllu laust við, að átök séu einnig innan annarra flokka um framboðin. Þannig hefur íhaldinu ekki enn tekizt að koma saman heilum lista á Vestfjörðum, og illa var búið að ganga fyrir Framsókn í þ\í sama kjördæmi, einnig hér i Norðurlandskjördæmi eystra. Það heyrir áreiðanlega fremur til undantekninga en reglu, að allir séu á einu máli um það, hverjir skipa skuli efstu sæti á framboðslista í þessu eða hinu kjör- frd oðflliundi Ferðníélogs Ahureyror Ferðafélag Akureyrar hélt að- alfund sinn þann 20. marz 1967. Meðal annars kom þetta fram á fundinum: Félagið niinntist 30 ára áfmælis síns með hófi, sem fram fór í Alþýðu'húsinu þann 16. apríl 1966. Þar var saga félagsins rifjuð upp í stór- um dráttum, en það hefur frá upþhafi heitt sér fyrir ferðamál- um, kannað og lagt leiðir um ör- æfaslóðir, byggt sæluhús í Herðubreiðarlindum og við Laugafell, gefið út ritið Ferðir fíá og méð 1940, staðið fyrir samkomum, sem ha'fa haft land- kynningu að aðalmarkmiði og skipulagt ferðalög um byggðir og óbyggðir. Á síðastliðnu ári fjölluðu Ferðir aða’llega um Flat eyjardal, en í ár munu þær flytja leiðarlýsingu um Múlaveg og einnig mun þar verða ágrip af sögu vegarins frá upphafi. Er þá m. a. ritið hugsað sem -handhæg ferðahandbók fyrir þá, sem leggja leið sína um þennan merkilega veg, sem gjörbreyta mun samgöngum við Eyjafjörð. Farnar Voru á síðastliðnu sumri 13 ferðir á vegum félags- ins, með 207 þátttakendum. Sú nýbreytni befur verið tekin upp í sambandi við ferðirnar, að hafa sameiginlegt mötuneyti og er það til mikilla þæginda fyrir þá, er taka þátt í ferðunum. Fé- lagsmenn eru 542. Fjárhagur m-á teljast bærilegur. Ráðgert er að reisa lítið hús í Oskju næsta sumar. Ný ferðaáætlun mun birt ast innan skamms í Ferðum, sem nú eru að fara í prentun. Skrifstofa félagsins í Skipagötu 12 mun verða opin á vissum tím- um, eftir að ferðir hefjast, og veita upplýsingar um starfsem- ina. Stjórn félagsins skipa: Tryggvi Þorsteinsson, Björn Þórðarson, Karl Hjaltason, Jón D. Ármanns son, Valgarður Baldvinsson. — Ferðanefnd: Jón D. Ármanns- son, Anna Jónsdóttir, Svala Jó- hannsdóttir, Guðfinna Thorla- cius, Ásgrímur Ágústsson. — Ritnefnd . Ferða: Björn Bessa- son, Björn Þórðarson, Þormóð- ur Sveinsson. Tryggvi Þorsfeinsson Ntríð og; frlðiir MILLI HAFNARNEFNDAR OG VITAMÁLASTJÓRA í síðustu viku skarst í odda milli vitamálastjóra og hafnar- nefndar Akureyrar í deilu þeirra um hvor aðilinn ætti að ráða ýfirverkstjóra við (hafnar- og dráttarbrautarframkvæmdirnar, sem eru að h-efjast. Hafnarnefnd hafði alltaf lagt áherzlu á, að hún réði yfirverk- stjóra, o-g áleit, að vitamálastjóri hefði fallizt á þá tilhögun, að Pétur Bjarnason verkfræðingur yrði yfirverkstjóri. En í síðustu viku gerðist það óvænta, að vita málastjóri ti’lkynnir formanni hafnarnefndar, að hann hafi ráð ið yfirverkstjóra og sé hann væntanlegur norður þann sama dag og taki þá þegar við yfir- verkstjórn. Þessu mótmælti for- maður hafnarnefndar og taldi brot á áður gerðu samkomulagi. Þegar svo var komið málum, að tveir yf irverkstj órar voru ráðnir til að stjórna sama verk- inu, sáu allir, að stríð var hafið og vegna liðsmunar ákvað vita- málastjóri að kalia sína liðsmenn suður og lagði sínum vígvélum við fast. Hitnað hafði í hafnarnefndar- mönnum og urðu þeir vígreifir mj ög. Þeir gengu á ’fund foringj a ráðsins og spurðu hvað gera skyldi. Ráðið taldi einsýnt, að reka ætti flóttann suður yfir heiðar o-g skyldu þeir Stefán og Árni veita eftirförinni forustu. Sú eftirför gekk að óskum, og var frægur sigur unninn. Ekki var samt talið ráðlegt að heirnta skilyrðislausa uppgjöf, 'heldur var saminn friður, sem báðir aðilar gátu sætt sig við. Hér á eftir fara þeir friðar- samningar, sem undirritaðir voru með viðhöfn í höfuðborg- inni laugardaginn 8, apríl 1967: „Fyrir tilstilli samgöngumála- ráðuneytisins var laugardaginn 8. apríl haldinn fundur í Reykja- vík til þess að ræða ágreining, sem upp hafði komið um tilhög- un framkvœmda og verkstjórn við byggingu dráttarbrautar á Akureyri. Fundinn sátu: Frá samgöngumálaráðuneyt- inu: Brynjólfur Ingóljsson, ráðu neytisstjóri. Frá hafnarnefnd Akureyrar: Stefán Reykjalín, Árni Jónsson, Bjarni Einarsson, Magnús E. Guðjónsson. Frá vita- og hafnármálastjóra: Aðalsteinn Júlíusson, Daníel Gestsson, Sveinn Sveinsson, Sverrir Bjarnason. Fullt samkomulag varð um eft irgreinda tilhögun: l.Sveinn Sveinsson, verkfrœð- ingur, starfsmaður vita- og hafnamálastjóra, sér fyrir Framhald á bls. 6. dæminu. Þær undantekningar eru að vísu nokkrar. Þannig mun það ekki hafa flögrað að neinum hér í kjördæmi, að annar en Björn Jónsson kæmi til greina í efsta sæti á lista Alþýðubandalagsins, á Vestfjörðum mun heldur engum hafa dottið annar í hug en Hanni- bal Valdimarsson. Og svo litið sé til annarra flokka, þá mun öllum ljóst, að enginn annar en Eysteinn Jóns- son gat verið tilnefndur til að skipa efsta sætið á Aust- fjörðum, og hjá Sjálfstæðisflökknum í Reykjavík kom auðvitað enginn til greina í fyrsta sætið annar en Bjarni Benediktsson. En þetta eru undantekningarnar. Það eðlilega er, að í einstökum félögum og kjör- dæmum sé vandlega um það fjallað, hvfernig framboðs- listi skuli skipaður og ræddar séu allar þær hugmynd- ir, sem í því sambandi koma frgm. Að síðustu hlýtur afl atkvæða að ráða, ef ekki verða allir á eitt sáttir. En þegar niðurstaðan er fengin stendur hver flokkur fast að baki sínum lista. Þetta er gangur mála hvarvetna, þar sem lýðræði ríkir og óheft flokkamyndun. — Þ. Föstudagur 14. apríl 1967. Verkamaðurinn (3

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.