Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 14.04.1967, Síða 8

Verkamaðurinn - 14.04.1967, Síða 8
VIÐ HEYGARÐSHORNIÐ í skýrslu frá O. E. C. D er tal- ið, að kjötskortur sé yfirvofandi í Vestur-Evrópu árið 1970 Hins vegar hefur eftirspurn eftir nauta- kjöti aukist þar jafnt og þétt, eða um 3.6 milljónir tonna á árunum frá 1955—1964. Fram til 1970 gera öll lönd innan O. E. C. D. ráð fyrir auk- inni neyzlu á kjöti, sum um helm- ings aukningu, eins og t. d. Italía. Þetta þýðir, að skorta mun á markaðinn um 1.7 milljón tonn. Gert er ráð fyrir, að Argentína, Nýja-Sjáland, Astralía og Urugu- ay geti aukið framleiðslu sína um 1.3 milljónir tonna. Til þess að seðja Evrópumark- aðinn vantar þá um 400 þús. tonn. Ymsar ráðagerðir eru uppi um það, hvernig mæta skuli þessum vanda. Og er þá helzt talað um: I fyrsta lagi, að hækka kjöt- verðið til þess að venja fólkið af kjötneyzlu. í öðru lagi að styrkja kálfaeldi með opinberum framlögum. I þriðja lagi .með því að banna að slátra nokkrum kvígukálfi fyrr en hann hefur eignast að minnsta kosti eitt afkvæmi. Þegar aðrar þjóðir búa sig und- ir að nýta þessa markaði, er okk- ur, íslenzkum bændum, sagt, að fara okkur rólega, draga saman seglin. Þar ganga foryztumenn í landbúnaðinum fram fyrir skjöldu ásamt valdhöfunum, sem telja landbúnaðinn dragbít á eðlilega efnahagsþróun. Hins vegar hníga öll rök að því, að einmitt í land- inu sjálfu og ræktun þess eigi þjóðin sína mestu möguleika, að- eins ef hún hefur vit og kunnáttu til að nýta þá. Til þess að snúa inn á þá braut þarf kjark og áræði. Það eiga bændur t ríkum mæli. Fyrst þurfa þeir að reka af höndum sér úrtölu- mennina og þá sem umsnúið hafa svo öllu okkar efnahagslífi, að við komum ekki út fyrir landsteinana eftirsóttum vörum öðru vísi en greiða með þeim stórar fjárfúlgur. Þetta tvennt kostar bændur ekk- ert og það geta þeir auðveldlega. Síðan verða þeir að hefja und- irbúning að stórfelldri framleiðslu aukningu, sem byggist á aukinni ræktun jarðar og búfjárkynja, leita eftir mörkuðum, kynna sér þá og vinna þá. Með þetta í huga verða þeir að mennta unga fólkið sitt, sem bíður eftir stórum verkefnum. Djarfmannleg sókn á þessum vettvangi ásamt ræktun og skyn- somlegri hagnýtingu fiskimiðanna umhverfis landið, er forsendan fyr ir að við höldum þvl, og höldum þanng áfram að vera frjálsir menn. H. YBBSAunn Cókr drangur Nú þegar hafa ýmsir staðir náð góðum árangri í sölu happ- drœttismiða. Þórshöfn er enn í fyrsta sæti en Fnjóskadalur er kominn í annað sæti og Svarfað- ardalur í fjórða sæti. Árangurinn á einstökum stöð um er nú þessi: 1. Þórshöfn 310% 2. Fnjóskadalur 187% 3. Hrísey 180% 4. Svarfaðardalur 170% 5. Raufarhöfn 168% 6. Ólafsfjörður 150% 7. Eyjafj. norðan A. 90% — Aðeins Alþýðubandal. i happdrcttinn 8. Akureyri 89% 9. Eyjafj. sunnan A. 83% 10. Ýmsar sveitir S.Þing. 50% 11. Dalvík 36% Skil frá Húsavík og Dalvík eru vœntanleg nœstu daga. Nú þegar er sýnt, að árangur af þessu happdrœtti verður góð- ur, og allmikið fé verður til ráð- stöjunar til að hefja kosninga- baráttuna og til erindreksturs í kjördœminu, en mikil nauðsyn er að skipuleggja sem bezt starf- ið á einstökum stöðum og í kjör dæminu sem heild. hún beitir til þess jöfnum hönd- Leikfélag Húsavíkur sýnir um þessar mundir sj ónleikinn Lukku riddarann eftir J. M. Synge í þýðingu Jónasar Árnasonar. — Frumsýning var miðvikudaginn 29. marz við húsfylli og mjög góðar undirtektir áhorfenda. — Var leikendum og leikstjóra þakkað með dynjandi lófataki Leikstjóri er Magnús Jónsson frá Reykjavík, en með aðalhlut- verk fara: Páli Kristinsson, Sól- veig Karvelsdóttir, Sigurður Hall marsson, Einar Njálsson, Ingi- mundur Jónsson og Steinunn Valdimarsdóttir. Leikmynd gerði Björn Líndal. Undirleik annast Reynir Jónas- son. Ráðgert er, að síðustu sýning- ar verði nú um helgina. KJÓSENDUR í Noðurlandskjör dæmi eystra verða 743 fleiri í vor en við síðustu alþingiskosn- ingar. Á öllu landinu hefur kjós- endum fjölgað um 9514 sam- kvæmt upplýsingum Hagstofunn ar. LUKKURIDDARINN X o oo SKIPAKOMUR í Akureyrar- höfn: —.8/4 kom m/s Ragg frá Bergen með tunnuefni til Tunnu- verksmiðju ríkisins og niður- suðudósir til Niðursuðuverk- smiðju K. Jónsson & Co. — 9/4 kom Fjallfoss með alls konar kornvörur og stórvirkar vinnu- vélar fyrir Akureyrarbæ. — 10/4 kom Brúarfoss með stykkjavörur. — 13/4 kom b/v Kaldbakur með 100 tonn af fiski og landaði til vinnslu í hraðfrystihúsi Ú. A. — Mun þetta vera fyrsta togaralönd unin hér á þessu ári. * VfSA VIKUNNAR Sinni beggja af sömu rótum — svona er mannlífið. — Berast þó ó banaspjótum Bragi og ihaldið. * * * t * i * * * * * * ¥ * * ¥ ¥ ¥ ¥ ♦ .********************** GERIP §KIL Mnnið að grera mi þegrar skil við Happdrætti Alþýðnbandalag:sin§ Framhald af bls. 1. an hlut móts við það sem var fyrir valdatöku viðreisnarstjórn- arinnar. Þá minnti Björn á, að kaup- máttur tímakaups verkamanna væri því sem nasst hinn sami og 1959 og kjarabætur væru í engu samræmi við vöxt þjóðartekna. Iíefði verkafólk því orðið að sækja sína rauntekjuaukningu að öllu leyti í lengdan vinnutíma og tímabundna yfirborgun þar sem eftirspurn hefði verið eftir vinnu afli. Það eru þessar staðreyndir um þróun kjaramála verkafólks á- samt síversnandi afkomu undir- stöðuatvinnuveganna og láns- f j árkreppu sem 'þegar í dag hef- ur leitt af sér alvarlegan sam- drátt í ýmsum greinum atvinnu- lífsins og tilfinnanlegt atvinnu- leysi í heilum landshlutum, — það eru þessar staðreyndir sem nú um sinn hafa sett eðlilega og lífsnauðsynlega kjarabaráttu vinnandi fólks í sjálfheldu og ógna nú jafnvd þeim neyðar- möguleika sem verkafólk hefur haft til þess að framfleyta sér og sínum með gegndarlausri yf- irvinnu. Styttur vinnutími — svo knýj- andi sem hann er — hlýtur að leiða til neyðarástands ef kaup- gjald hækkar ekki að sama skapi. Úr þessarri sjálfheldu verður íslenzk verkalýðsihreyfing að brjótast og það getur hún, ef um samtakamætti sínum á sviði hinnar faglegu hagsmunabaráttu og á stjórnmálasviðinu, og tryggir sér þar sterk áhrif í sam- félagi við þau þjóðfélagsöfl, sem nú 'hafa sömu bagsmuna að gæta. Eins og flokkaskipan er nú í landinu, er það einungis fylgis- aukning Alþýðubandalagsins er getur hnekkt hinum nauma þingmeirihluta þeirrar stjórnar- samsteypu, sem hefur sýnt það, og sannað, að hún hvorki vill né getur stýrt þjóðarbúinu eftir þeim leiðum, sem nú eru einar færar. SKUGGA-SVEINN Á DALVÍK Annað kvöld frumsýna Leik- félag Daivíkur og Ungmennafé- lag Svarfdæla sjónleikinn Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson. Leikstjóri er Stein- grímur Þorsteinsson og fer hann jafnframt með hlutverk Skugga. Skugga-Sveinn er annað leik- ritið, sem Leikfélag Dalvíkur og UMFS setja á svið í vetur. Hitt var Ráðskona Bakkabræðra, og var frumsýnt laust fyrir áramót. BALLETTSKÓLI Eddu Schev- ing heldur námskeið á Akur- eyri, sem hefst 17. þ. mán. og fer fram í Landsbankasalnum. Kenndur verður ballett, einnig jassballett og loks fer fram kennsla í frúarflokkum. STEINHRINGAR til fermingargjafa Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur Brekkugötu 5 . Sími 1-15-24

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.