Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.10.1967, Blaðsíða 3

Verkamaðurinn - 20.10.1967, Blaðsíða 3
BLAtí ALÞÝÐUBANDALAGSINS 1 NORtíURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA KITSTJÓRI OG ABYRGÐARM. ÞORSTEINN J0NATANSSON PRENTAÐ 1 PRENTSMIÐJU BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. Hin frjálsa samkeppni Frjáls samkeppni og aftur frjáls samkeppni hefur alla tíð verið kenning og boðorð númer eitt hjá Sjáif- stæðisflokknum, og í núverandi ríkisstjórn hafa Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn fallizt í faðma með þenna boðskap að leiðarljósi. Afnám hafta og frjáls verðmyndun var hoðuð í upphafi viðreisnar. Verðlagsákvæði og verðlagseftirlit var að mestu af- numið, en frjáls samkeppni átti að lækka vöruverðið og verða öllum til hagshóta. Kaupmaður einn í Reykjavík, Pálmi Jónsson, eig- andi Hagkaups, liefur um nokkur ár rekið vefnaðar- vöruverzlun, sem ástundað hefur að lækka álagningu og selja sem ódýrast. Verzlun þessi hefur verið illa þokkuð af kaupmönnum og þeir óspart talið Pálma setja blett á stéttina með verzlunarháttum sínum. Svo gerðist það fyrir rúmri viku, að Pálmi þessi opnaði matvöruverzlun í Reykjavík og hélt sömu verzl- unarháttum og með vefnaðarvöruna. Hann keypti vör- ur sínar af sömu heildsölum og aðrir kaupmenn, en lagði minna á og seldi ódýrar en aðrir. Þarna var loks- ins að sjást einhver ávöxtur hinnar frjálsu samkeppni í matvöruverzluninni, loksins leit út fyrir, að samkeppn- inni mætti þakka einhverja verðlækkun. Og sá árangur hirtist á heppilegum tíma, einmitt sömu dagana og rík- isvaldið lét hækka fjölda matvörutegunda í verði. Gott, að eitthvað kom á móti til lækkunar. En hver urðu viðhrögð kaupmannanna í Reykjavík, mannanna, sem alltaf hafa verið fremstir í flokki að hoða ágæti þessarar frjálsu samkeppni? Þeir flykktust á fund heildsalanna og tilkynntu þeim, að ef þeir héldu áfram að selja Pálma vörur, þá væri viðskiptum þeirra við þá lokið. Og heildsalarnir bogn- uðu, létu þvinga sig lil að taka fyrir viðskipti við Pálma. Þannig er frjálsa samkeppnin í framkvæmd. Ef ein- hver vogar sér að selja vörur ódýrar en aðrir, þá eru mynduð samtök til að knésetja hann. Kostir frjálsrar verzlunar og frjálsrar samkeppni skulu aðeins vera í orði en ekki á borði. Og þetta er ekki eina dæmið um slíkt. Svona er þetta um allar jarðir. Eða sjá menn ekki skyldleikann með þessu og þeim þvingunum, sem ílugfélög á Norðurlöndum og víðar reyna að heita flugfélagið Loítleiðir vegna þess, að félagið selur sína þjqíiustu ódýrar en önnur flugfélög? I frásögn daghlaðsins Vísis af viðskiptum kaup- manna og Pálrna Jónssónar segir, að viðskiptamála- Tónlistarfélflgið eykur starfsemi síno i tónleihor í vetur Trio of London, Magnús Jónsson, Askenazy, Vaiman, Hafliði Haligrímsson, Sinfóniuhljómsveit Islands. Hið 25. starfsár Tónlistarfé- lags Akureyrar er nú að hefjast og mun félagið af því tilefni auka starfsemi sína í 6 tónleika í vetur og verða þeir þessir að öllu forfallalausu: 1. Trio of London, fimmtu- daginn 26. okt. En tríóið skipa ungfrú Carmel Kaine frá Astralíu, fiðluleikari, Peter Willison, celloleikari og píanó- leikarinn Philip Jenkins. — Þótt þau séu öll ung að árum hafa þau hlotið ótal verðlaun fyrir frábæran árangur í tónlistar- námi og ágæta dóma hvarvetna fyrir hljómleika sína, bæði í Englandi, Frakklandi og Belgíu. 2. Magnús Jónsson, óperu- söngvari, fimmtudaginn 23. nóv. Hann er svo sem alþjóð er kunn- ugt einn af allra fremstu söngv- urum þjóðarinnar og hefur skil- að með prýði mörgum óperuhlut verkuin bæði í Kaupinannahöfn og í Reykjavík. 3. Vladimir Askenazy, einn þekktasti píanóleikari heimsins, mun að öllum líkindum halda hér tónleika um áramótin, en ekki er endanlega gengið frá samningum við hann. ari og hlaut hann mikla viður- kenningu og lofsverð uinmæli við lokapróf frá Royal Academy of Music í London. 6. Sinfóníuhljómsveit Islands mun koma norður um mánaða- mótin maí—júní, og verða það 25 ára afmælistónleikar félags- ins. Hljómsveitina er óþarft að kynna, en hún vakti afar mikla hrifningu tónlistarunnenda hér í vor og bárust félginu þá ótal á- skoranir að vinna að því að fá Sinfóníuhljómsveitina árlega hingað til Akureyrar. Endurnýjun jélagsskírteina styrktarfélaga fer fram í Bóka- verzluninni Huld, vikuna, mið- vikudaginn 18. til iniðvikudags- inS 25. okt. á hádegi. Mjög er áríðandi að félagsmenn endur- nýi skírteini sín í tæka tíð, ella eiga þeir á hættu að þau verði seld öðrum. Félagið er nú full- skipað miðað við rými í tón- leikasal, eða 290 manns. Þeir sem eru á biðlista félagsins at- hugi miðvikudaginn 25. okt. eft- ir hádegi, hvort nokkrir að- göngumiðar hafi losnað. — Askriftargjald má greiða í einu eða tvennu lagi, fyrri hluta starfs árs eða árið allt og nemur verð hvers miða sem svarar kr. 100. Hverj um styrktarfélaga eru ætlaðir 2 miðar á hverja tón- leika. — Félagsgjald er ekkert. Styrkur Tónlistarfélagsins ligg- ur í því að allir félagsmenn sæki sína miða og þá hefur félagið bolmagn til að efla starfsemi sína enn meir og stuðla að fjöl- breyttu tónlistarlífi í bænum. — Tónlistarfélagið býður alla sína velunnara velkomna til nýs starfsárs, sem vonandi verður ánægjulegt tónlistarár. Tónlistarfélag Akureyrar. 4. Mikhail Vaitnan, rússnesk- ur fiðluleikari, sem getið hefur sér mikið frægðarorð undan- farin ár, mun væntanlega leika hér á vegum félagsins snemrna í inarzmánuði. Hann leikur ein- leik með Sinfóniuhljómsveit Is- lands þ. 7. marz. 5. Hafliði Hallgrímsson, eelló- tónleikar þriðjudaginn 9. apríl. Þessi ungi og efnilegi listamaður heldur fyrstu sjálfstæðu tónleika hér í sínum heimabæ, Akureyri. Hann hefur vakið athygli í Lon- don sem mjög efnilegur celloleik- Á þessarri mynd sjóum við þó ræðast við Eyþór H. Tómasson, formann stjórnar Fjórðungssjúkrahússins ó Akureyri og Olaf Sigurðson, yfirlækni lyflækningadeildar. — Myndin var tckin ó dögunum, þcgar blaðamönnum voru kynnt ný og fullkomin tæki röntgendeildar sjúkrahússins. landbúnaðflrsýninð Ákveðið hefur verið, að á næsta sumri verði haldin mynd- ráðuneytið líti mál þetta alvarlegum augum, og að reynt muni eftir samningaleiðum að fá matvörukaup- menn til að láta af þvingunum sínum. Og svo hætir blaðið við, að „einnig er í uppsiglingu löggjöf um verðgæzlu og samkeppnishömlur.“ Slík virðast þá eiga að verða viðhrögðin, ef einhver jákvæður árangur ætlar að sjást aí frjálsu samkeppn- inni. Þá á að setja lög um samkeppnishömlur. Kannski lög um hann við verðlækkunum og frjálsri samkeppni verði að lokum eitt af minnismerkjum eftir núverandi ríkisstjórn. við hlið allra lagabálkanna urn verðhækk- anir og nýja skatta. Föstudagur 20. október 1967 arleg landbúnaðarsýning í Laug- ardalnum í Reykjavík. Eru það Búnaðarfélag íslands og Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, sem gangast fyrir sýningunni, sem sennilega verður opnuð um miðj an ágúst. Aðalframkvæmdastjóri sýn- ingarinnar verður Agnar Guðna- son ráðunautur, en Kristján Karlsson erindreki aðstoðar- maður hans. — Sýningarráð skipa 21 fulltrúi frá samtökum og stofnunum, sem á einn eða annan hátt eru viðkomandi land- búnaði. Auglýst hefur verið eftir þátt- töku í sýningunni, og skulu þeir, sem áhuga hafa gefa sig fram við Agnar Guðnason á skrifstofu Búnðarfélags íslands. Verkamaðurinn (3

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.