Verkamaðurinn - 20.10.1967, Qupperneq 5
Húsavík !Taxtana verður að
viðurkenna
Skipulagið rætt.
I símtali við Albert Jóhannes-
son, formann Verkalýðsfélags
Húsavíkur, fregnuðum við að
þar hefði verið haldinn fundur
fimmtudaginn 13. október.
Fundurinn fjallaði um tillög-
ur til breytinga á lögum og
skipulagi Alþýðusambands Is-
lands. Snorri Jónsson fram-
kvæmdastjóri sambandsins sat
fundinn og útskýrði í hverju
breytingarnar væru fólgnar.
Fundurinn frestaði að taka af-
stöðu til málsins þar til eftir
þing Alþýðusambands Norður-
lands, sem haldið verður á
Siglufirði dagana 21.—22. okt.
Verzlunarhættir
Húsavík 16. okt.
í morgun flutti Fiskiðjuver
Húsavíkur fiskverzlun sína í nýtt
húsnæði, á götuhæð hússins. Er
þar um að ræða verzlun, sem
beðið hefur verið með óþreyju,
og er einn liður í stórfelldri upp-
byggingu Fiskiðjuversins, sem
Vernharður Bjarnason stóð fyr-
ir. — Með tilflutningi þessum
skapast gjörbreytt viðhorf til
matarkaupa, einkum yfir vetrar-
mánuðina, en þá er oft á tíðum
snjóþungt Búðarárgil og flug-
háll Kaupfélagssneiðingur erfið
leið að gömlu fiskbúðinni.
í hina nýju fiskbúð er gengið
af að götunni, og er hún jafn
nærtæk sem apótekið og brauð-
erðin. Þá mun og hafa verið
við vöruúrval búðarinnar
ýmsum sósum og baukamat,
sennilega til bragðbætis saltfisk-
inum, sem oft á tíðum hefur þótt
í bágbornara lagi.
Vonandi kappkostar fiskbúð-
in aukin vörugæði í hlutfalli við
bættan húsakost.
Málsháttur vikunnar:
Bílífið gerir búkinn
sjúkan.
O
bætt
Snær Karlsson, formaður.
Áðalfundur Árvakurs.
Þriðjudaginn 10. okt. ’67 hélt
Byggingamannafélagið Arvakur
aðalfund sinn í fundarsal Sjálfs-
bjargar í Húsavík. I upphafi
fundar voru samþykktir 8 nýir
félagar, en síðan flutti formað-
ur,Kristján Jónasson,skýrslu um
starfsemi félagsins síðastliðið ár.
Freyr Bjarnason, gjaldkeri, las
upp reikninga félagsins og voru
niðurstöðutölur þeirra 42.961.80
Síldai'NÖlí ii ii á II iikavílí
Sunnudaginn 15. október er
allmikið frost og grámi á jörðu.
Við höfum tal af Ásmundi
Bjarnasyni í húsakynnum út-
gerðarfélagsins Flóka h.f. Ás-
mundur er fyrrverandi sprett-
hlaupari og íþróttaunnendum
að góðu kunnur, en helgar nú
útgerð og fiskverkun krafta sína.
Flóki h.f. rekur söltunarstöðina
Saltvík h. f. ásamt Kaupfélagi
Þingeyinga, og í tilefni af því
að söltun er fyrir skömmu hafin
ræðum við aðallega um síldina.
— Hvað er búið að salta mik-
ið hjú ykkur?
— Hjá Saltvík er búið að salta
rétt um 1300 tunnur.
— Gengur mikið úr síldinni?
— Það læt ég vera, hún er
bara nokkuð góð síldin, ef bát-
arnir koma með hana ísaða og
kælda. Fyrir skömmu fórum við
i gegnum 1800 tunnur og feng-
um úr þeim á sjöunda hundrað
uppsaltaðar. Ég tel það hreint
ek'ki svo slæmt eftir atvikum.
— Hvernig er aðstaðan hjá
ykkur, og hvernig gengur með
vinnuajl?
— Það er búið að byggja yfir
planið hjá okkur, svo nú fer
vinnan fram innanhúss. Við
höfutn flokkunarvél, og er mikil
bót að henni. Það hefur gengið
furðu vel að fá fólk í söltunina.
Söltunarstöðin „Saltvík h.f." —
Myndin tekin í sumar. Nú hefur
verið byggt yfir þcssa aðstöðu fyrir
veturinn, og framtíðina. Fremst á
myndinni er sildarflokkunarvélin fró
Steini Steinsen. — Ljósm.: Pétur.
Við höfum haft húsmæður og
skólastúlkur héðan, og stúlkur
úr sveitunum í kring. Þetta get-
ur gengið þegar aðeins er saltað
úr einum bát í senn og síðan
numið staðar. Ég geri ekki ráð
fyrir. að hægt væri að halda út
lengi í einu. Fólk virðist ekki
vera orðið eins ginkeypt fyrir
þessari atvinnugrein og áður
Framh. á bls. 7.
kr. Reikningarnir voru sam-
þykktir athugasemdalaust.
Við stjórnarkjör urðu úrslit
þau, að formaður var kjörinn
Snær Karlsson með öllum
greiddum atkvæðum. Aðrir í
stjórn voru kosnir Gunnar Ingi-
marsson og Aðalsteinn Skarp-
héðinsson. I varastjórn hlutu
kosningu Sigurjón Parmesson
og Freyr Bjarnason. Trúnaðar-
mannaráð skipa Sigurður Jóns-
son pípul.m., Helgi Vigfússon
húsgagnasm., Sigurjón Parmes-
son múrari, Sigtryggur Sigur-
jónsson húsasm., og til vara Har-
aldur Þórarinsson og Sigmar
Mikaelsson.
Endurskoðendur voru kosnir
Halldór Ingólfsson og Sigurður
Jónsson.
Rætí við Snæ Karlsson
Vegna fréttar um aðalfund
byggingamannafélagsins Arvaks
höfðu aðstandendur Húsavíkur-
síðunnar tal af hinum nýkjörna
formanni, Snæ Karlssyni.
— Hvað villu segja okkur um
[>au verkefni, sem bíða ykkar, til
úrlausnar?
— Það þarf nú fyrst og fremst
að fá þá kauptaxta, sem félagið
hefur gefið út, viðurkennda. —
Ákvæðistaxtar í múrverki og
mótasmíði má segja að séu
komnir hér á alls staðar, en mæl-
ing á verkstæðisvinnu hefur ver-
ið sniðgengin að mestu leyti.
Tvö stærstu verkstæðin hér telja
sig að vísu greiða sveinum kaup
samkvæmt mælingu, en hún er
heimabrugguð hjá viðkomandi
forstjórum, og þeir hafa ekki
leitað til mælingafulltrúa félags-
ins hennar vegna. Það má að
nokkru leggja þeim sveinum,
sem þarna vinna sök á herðar,
því með því að taka þessum hlut-
um möglunarlítið aðstoða þeir
vinnuveitendur sína við að
brjóta lög og samþykktir síns
eigin stéttarfélags, og styðja þá
í baráttunni gegn því að hér nái
að myndast sterkt og haldgott
launþegafélag byggingariðnaðar
manna.
— Reiknar (>ú með róttœkum
aðgerðum til úrbóta þessu á-
standi?
— Ég býst við, að hjá því
verði ekki komizt, enda er, ef
um samdrátt verður að ræða í
atvinnulífinu, enn brýnni þörf á
heilbrigðu og sterku stéttarfélagi
til verndar atvinnurétti okkar
iðnaðarmanna, ekki sízt meðan
ekki er að fullu kveðin niður
notkun ófaglærðra manna í ýms-
um iðngreinum.
Þannig fórust Stub Karlssyni
orð um þau verkefni, sem honum
og iðnaðarmönnum í heild er
brýn nauðsyn að fylkja sér um
og leiða til sigurs sem fyrst. Við-
talendur óska Snœ og félögum
góðs gengis í þeirri baráttu.
Vísnaþdttur
Þar sem bráðabirgðalög hafa átt
allmiklum vinsældum að fagna hér-
lendis undanfarið, má búast við að
nokkur bráðabirgðakeimur verði af
sumum vísunum, sem kunna að ber-
ast þætti þessum.
Hvatning.
Landsins þegnar, lepjum grút,
lútum stjórnar ráðum.
Sultar ólar hnýtum hnút,
hnífinn notum bráðum.
Sildin.
Sumri hallar. Söltun hafin.
Síldin er á kostum laus.
Unga stúlkan önnum kafin
oní tunnu stingur haus.
Utbæingur svarar Suðurbæing.
Þitt ég glaður þakka taut
og þína samúð hlýja.
Virðist hálfgerð vetrarbraut
vera þessi nýja.
Frá Þingeyingum.
Eyfirðingar ættu að senda
okkur snotran fyrripart.
Ég þekki til, og þori að benda
á Þingeyingsins góðu art.
Veðrið.
Harkan þráast, gerir gljá,
guggna strá í tómi.
Kuldablá og krepjuð á
kyrjar háum rómi.
HÚSVÍ KINGAR!
Síðasta blað af Verkamanninum seldist upp.
Tryggið ykkur blað og gerist áskrifendur í
síma 4-12-27.
Áskriftargjaldið er kr. 200.00.
Föstudagur 20. október 1967
Verkamaðurinn (5