Verkamaðurinn - 20.10.1967, Qupperneq 8
Rœða Lúðvíks..
Framh. af 1. síðu.
fólksins í landinu minnkar til
mikilla muna frá því, sem áffur
var. Þetta hefur verið að gerast
á þessu ári, og ríkissjóður hefur
ekki lagt fram einn einasta eyri
til að létta byrðar þeirra aðila,
sem fyrir þessum áföllum hafa
orðið.
Auglýst
eftir ráðum.
Ríkisstjómin og stuðnings-
blöð hennar spyrja okkur í
stjórnarandstöðunni af miklu
steigurlæti, hverjar séu okkar til-
lögur til lausnar á þeim vanda,
sem við er að glíma. Og þegar
þeir spyrja, eiga þeir einvörð-
ungu við það, hvaða tillögur við
höfum um það að auka við tekj-
ur ríkissjóðs.
Við Alþýðubandalagsmenn
teljum, að vandi íslenzkra efna-
hagsmála í dag snúist ekki um
fj árhagsafkomu ríkissjóðs, held-
ur um það, hvernig bezt megi
tryggja fullan rekstur íslenzkra
atvinnufyrirtækja og þá sérstak-
lega útflutningsatvinnuveganna,
sem nú eru að komast í þrot. Til-
Dónarfregn.
Sjöunda þessa mónaðar and-
aðist, hóaldraður, á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, Þórður
Markússon fró Hraunkoti ó
Húsavik. Þórður var fæddur 19.
maí órið 1879 i Lönguhlið ■
Kræklingahlíð, sonur Morkúsar
ívarssonor og Margrétar Jónas-
dóttur. Þórður ólst upp hjó föð-
urbróður sinum til sextón óra
aldurs. — Að Fornastöðum i
Fnjóskadal kynntist Þórður konu
sinni Björgu Pétursdóttur. Byrj-
uðu þau sinn búskap við Eyja-
fjörð, og bjuggu þor unz þau
fluttu til Húsavíkur 1906. Lengst
af bjuggu þau i Hraunkoti, Húso
vik. Þeim hjónum varð 8 barna
auðið, og eru oðeins tvær dætur
ó lifi, Þorgerður og Sigríður,
bóðar búsettar ó Húsavík. Konu
sína missti Þórður 27. nóvember
1953. Þórður stundaði fyrst og
fremst sjómennsku, en landvinnu
jafnframt, og þótti alls staðar
mjög vel liðtækur. Þórður var
jarðsettur ■ Húsavík 14. þ. m.
Mikið fjölmenni var við útförina.
Séra Björn H. Jónsson jarðsöng.
Þórðar verður nónar minnst
hér i blaðinu síðar.
IIGRRA'
snyrtjvörur
lögur í efnahagsmálum eiga að
snúast um það, hvernig skuli
leysa þann vanda, svo að hægt
verði að halda uppi fullum fram-
leiðsluafköstum í landinu.
Fjármál
ríkisins.
Við Alþýðubandalagsmenn
teljum, að það sé einkum þrennt,
sem að gera eigi í fjármálum
ríkisins. í fyrsta lagi þá teljum
við, að draga megi úr margvís-
legum óþarfaútgjöldum, sem nú
eiga sér stað hjá ríkinu. Þannig
á að hætta að hafa mörg sendi-
ráð á Norðurlöndum, hætta að
eyða mörgum milljónum í
sendiráð hjá NATO, hætta að
eyða tug milljóna í lögregluhald
á Keflavíkurflugvelli, og það á
að draga stórlega úr veizluhöld-
um, hætta að kaupa á okurverði
hús af pólitískum vildarvinum
ríkisstjórnarinnar, eins og fyrr-
verandi ráðherrum, hætta að
kaupa lóðir og lendur í Reykja-
vík og næsta nágrenni fyrir
marga tugi milljóna og draga
stórlega úr hóflausri þenslu í
ýmsum stofnunum ríkisins.
í öðru lagi, þá teljum við Al-
þýðubandalagsmenn, að nýta
eigi betur en nú er gert þá tekju-
stofna, sem ríkið hefur samkv.
lögum. Það er opinbert leyndar-
mál, sem allir þekkja, að stór
hluti þess söluskatts, sem lagður
hefur verið á og þegar hefur
verið greiddur af landsmönnum,
lendir annað en í ríkissjóðinn.
Nýlega hefur t. d. eitt fyrirtæki
í Reykjavík hlotið dóm fyrir að
hafa skotið undan söluskatt-
skyldi vörusölu, sem nam 10,2
millj. króna. Annað fyrirtæki í
Reykjavík býður nú dóms, en er
kært fyrir að hafa stolið, bein-
línis stolið, 7 milljónum króna
af söluskatti, sem renna átti í
ríkissjóð.
Þessi fyrirtæki eru ekki þau
einu, sem undan hafa skotið
söluskatti. Ef ríkisstjórnin vildi
taka á þessum skattsvikum með
sömu hörkunni og hún nú ætlar
að ganga að launafólki með níð-
þungum álögum, þá er enginn
vafi á, að hún gæti stóraukið við
tekjur ríkissjóðs. Og hvað halda
menn að væri hægt að ná inn
miklu meiri tekjuskatti en nú er
gert, ef fyrirtæki, milliliðir og
braskarar væru látnir greiða
skatt af öllum sínum tekjum.
í þriðja lagi bendum við Al-
þýðubandalagsmenn á, að þurfi
óhj ákvæmilega að afla ríkissjóði
nýrra tekna, þá beri að gera það
fremur með því að skattleggja
óþarfavarning og lúxuseyðslu
en með því að hækka brýnustu
matvæli, sjúkrasamlagsgjöld og
tryggingariðgjöld.
Ég endurtek það, sem ég hefi
sagt, að það er skoðun okkar
Alþýðubandalagsmanna, að
vandamálið, sem við er að fást
í efnahagsmálum þjóðarinnar,
er ekki fjárhagsafkoma ríkis-
sjóðs, heldur afkoma og ástand
þýðingarmestu atvinnuvega
landsins.
Hvað er til ráða?
Og hvað er nú hægt að gera
útflutningsatvinnuvegunum til
aðstoðar?
Það er álit okkar Alþýðu-
bandalagsmanna, að óhjákvæmi-
leg forsenda þess, að takast megi
að rétta við hag atvinnuveganna
sé að breyta um stefnu í efna-
hagsmálum í grundvallaratrið-
um. Þannig teljum við, að óhjá
kvæmilegt sé að taka upp strangt
og öflugt verðlagseftirlit í land-
inu í þeim tilgangi, að koma í
veg fyrir meiri verðlagshækkun
innanlands en þá, sem útflutn-
ingsatvinnuvegimir þola og sem
innlend starfsemi þolir í sam-
keppni við erlenda. Og á sama
DANSSKÓLI
ASTVALDSSONAR
DANSKEN NSLA fyrir
fullorðna (einstaklinga
og hjón) hefst í Lands-
bankasalnum föstudaginn
27. okt. Einnig kennsla í
barnadönsum fyrir 4—6
óra.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 1-15-26 kl. 4—7 e. h. á
laugardag og sunnudag og kl.8—lOmánudagtil fimmtudags.
Framhaldsnemendur athugið að panta sem fyrst.
hátt teljum við, að algerlega sé
óhj ákvæmilegt, að koma þeirri
stjórn á innflutnings- og fjár-
festingarmál, að hætt sé að eyða
og sóa gjaldeyri í óþarfa eða
festa fjármuni þjóðarinnar í ó-
æskilegum eða ónothæfum fram-
kvæmdum. I þessum grundvall-
aratriðum verður að breyta um
stefnu.
Þá bendum við á, að þegar
í stað ætti að gera eftirtaldar
ráðstafanir meðal annarra til
stuðnings útflutningsframleiðsl-
unni.
/ fyrsta lagi: Að lækka vexti
verulega frá því, sem nú er, eink-
um til fyrirtækja, sem keppa við
erlendan rekstur. Vextir af lán-
um útflutningsframleiðslunnar
eru nú yfirleitt 9—10%, í mörg-
um tilfellum 12% vegna mikilla
vanskila, sem hrúgast hafa upp
hjá framleiðslufyrirtækjum. —
Vextir í samkeppnislöndum okk-
ar, eins og t. d. Noregi, eru yfir-
leitt, varðandi lán til útflutnings-
ins, 3—4%.
/ öðru lagi: Tryggja yerður
útflutningsatvinnuvegunum eðli-
leg stofnlán, en þau skortir í
mörgum tilfellum tilfinnanlega
enn, hvað háir eðlilegum rekstri
fyrirtækjanna.
/ þriðja lagi: Lengja á tafar-
laust stofnlán a. m. k. í það, sem
þau voru fyrir viðreisn.
/ fjórða lagi: Rekstrarlán
verður að auka verulega frá því,
sem nú er.
/ fimmta lagi: Létta á af út-
flutningsgjöldum á öllum þeim
útflutningsvörum, sem fallið
hafa verulega í verði. Um leið á
að gjörbreyta því óhæfa vátrygg
ingafyrirkomulagi, sem nú við-
gengst og tryggja síðan tekjur í
stað útflutningsgjaldsins með
öðrum hætti.
/ sjötta lagi: Ráðast þarf þeg-
ar í stað í endurnýjun togara-
flotans með forgöngu rikisins.
/ sjöunda lagi: Ríkið taki í
sínar hendur olíusöluna í land-
inu og leggi niður hið þrefelda
dreifingarkerfi, og ætti þannig
að mega spara atvinnuvegunum
umtalsverða fjárhæð.
í áttunda lagi: Gerðar verði
sérstakar ráðstafanir til að
tryggja útgerðinni nauðsynleg-
ar rekstrarvörur, eins og veiðar-
færi, varahluti, vélar, ýmis út-
geðartæki o. fl. á réttu verði án
óeðlilegs milliliðakostnaðar.
oo
Trúlofunar
hringnr
Gullsmiðir
Sigtryggur og Pótur
Brekkugötu 5 . Sími 1 -15-24