Verkamaðurinn - 24.11.1967, Blaðsíða 1
llllllllllllllllllllll!HIIIIIIIIHIIIIIIIHIIIIIIIHIIIIIIIHIIIIHIIIIIIII!Hiiilllllllllll!illiilllH!llllillHI!lllllllilllllliillHHi!liliiillll
¥innn§töðvnn 1. de§emher
XLIX. ÁRG. 40. TBL.
Föstudagur 24. nóv. 1967
Meginþorri verkalýðsféloga um
land allf hefur boðað vinnustöðvun
fró og með 1. des. hafi ekki fyr.r
þann tíma nóðst samkomulag um
grundvallaratriði nýrra kjarasamn-
scm boðað hafa vinnustöðvun, eru:
Verkalýðsfélagið Eining, Iðja, fé-
lag verksmiðjufólks, Bílstjórafélag
Akureyrar (vegna launþega innan
þess). Ennfremur verður vinnustöðv-
un hjé prenturum, ef til kemur, þor
sem Hið íslenzko prentarafélag hef-
ur boðað vinnustöðvun. Loks hefur
Sveinafélag járniðnaðarmanna sam-
þykkt heimild til vinnustöðvunar.
Indurnjjeii tngnradotnns imi
thki dragast
Togarafloti Islcndinga minnkor
með hverju ári og verður von bráð-
ar horfinn úr sögunni, ef ekki verð-
ur skjótlega hafizt handa um end-
urnýjun hans. Enda þótt allskonar
fjármálabrellur og kúnstir i við-
skiptalífinu hafi oftlega sýnt lélega
útkomu við rcikningsuppg jör hjá
togaraeigendum, þá hafa engin skip
fært viðlíka auð i bú okkar og ein-
mitt togararnir, og útgerð þeirra
hefur oft og víða bjargað frá stór-
felldu atvinnuleysi. Hér í bæ heyr-
ist oft kvartað undan illri útkomu
hjá togurunum, og raddir heyrast
jafnvel, sem segja að betra væri að
sökkva þessum skipum en að halda
útgerð þeirra gangandi ár eftir r,r
með bæjarstyrk. — En hver hefur
talið saman þær milljónir, sem
vegna þessarra skipa hafa komið
inn í bæinn og skipzt milli vel-
flestra bæjarbúa og bæjarkassinn oð
sjálfsögðu einnig fcngið sitt. Það
er fullvíst, að hefði togaranna ekki
notið við, væri Akureyri i dag fá-
mennari en raunin er og íbúarnir
auk þess fátækari, bæjarkassinn
enn verr settur. Atvinnuástandið er
ekki gott í dag, en hvernig væri
það, ef togararnir hefðu allir verið
seldir eða grafnir i sand? — En
togararnir eru komnir á gamals
aldur. Sá tími er skammt undan, að
þessi skip, sem við eigum nú, verða
ekki lengur gerð út. En ný verða að
koma í staðinn, ef ekki á illa að
fara fyrir Akureyringum og fyrir
þjóðinni.
Þrir þingmenn Alþýðubandolags-
ins, Björn Jónsson, Karl Guðjónsson
og Gils Guðmundsson, hafa flutt á
Alþingi frumvarp um togarakaup
ríkisins. Gera þeir þar ráð fyrir, að
rikið láti smíða eða kaupi ailt að
sex skuttogara með það fyrir aug-
um, að þeir verði siðan seldir bæj-
arútgerðum, félögum eða einstakl-
ingum. — Þingmennirnir telja, að
æskilegt væri, að togarar þessir
væru af tveim stærðum, allmismun-
andi, en stærri skipin væru búin
I GÆR ákváðu ríkisstjórnin og banka-
ráð Seðlabanka Islands að fella gengi
íslenzku krónunnar í dag. Opinber til-
kynning um gengisfellinguna var ekki
komin fram, þegar Verkamaðurinn
fór í prentun. Stafar það af því, að
beðið var staðfestingar alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Bandaríkjunum á
gengisbreytingunni. Starfsmenn þar
voru í fríi í gær og stóð því á af-
greiðslu.
En blaðið hefur það fyrir satt, að
gengið verði fellt um 26 prósent, sem
í framkvæmd þýðir, að innkaupsverð
á erlendum vörum hækkar um ca. 35
prósent.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa að
undanförnu átt marga fundi með ýms-
um aðilum vegna gengisfellingarinnar
og hliðarráðstafana í sambandi við
hana. Meðal annars hefur verið rætt
við fulltrúa Alþýðusambands íslands,
sem lagt hafa á það megináherzlu, að
laun taki breytingum eftir kaupgjalds-
vísitölu á sama hátt og verið hefur. En
ekkert loforð hefur fengizt um að svo
verði, og hafa verkalýðsfélögin því
gripið til þess ráðs að boða vinnu-
stöðvun frá og með fyrsta næsta mán-
aðar.
í dag munu verða lögð fyrir Alþingi
frumvörp um ýmsar hliðarráðstafanir
vegna gengisfellingarinnar, og mun
ætlun stjórnarinnar að reka frumvörp
þessi eða a. m. k. eitthvað af þeim í
gegnum þingið í dag og á morgun,
þannig að þau verði að lögum orðin á
mánudagsmorgun. Það er sama að-
ferðin og venjulega með þau mál, sem
mestu varða, þá er þingmönnum eng-
inn frestur gefinn til athugunar og
umhugsunar. Þá er stjórnarliðinu l)ara
heitt sem atkvæðavél.
Litlar fregnir liafa borizt ef efna-
hagsaðgerðafrumvarpinu, sem lagt
var fram í þingbyrjun. Er því líkast
sem það hafi nú alveg gleymzt. Er al-
mennt reiknað með, að því verði ekki
hreyft meira í þeirri mynd, sem það
var, en eftir helgi muni koma fram
frumvarp, sem m. a. fjalli um útreikn-
ing vísitölu og áhrif hennar á kaup-
gjald. Er þess frumvarps beðið með
mikilli eftirvæntingu, þar sem lyktir
þess máls munu hafa úrslitaáhrif um
það, hvort vinnufriður helzt í landinu.
Allir vona, að til verkfalla þurfi
ekki að koma. Slíkt væri algert neyð-
arhrauð. Ríkisstjórnin hefnr í hendi
sérað koma í veg fyrir að til vand-
ræðaástands komi. Eti til þess verður
hún að sýna þá sómatilfinningu og al-
mennu skynsemi að viðurkenna, að af
þeim, sem minnstan hlut hafa af tekj-
um þjóðarbúsins, má ekkert taka. Það
eru þeir, sem við gullkatlana liafa
setið, sem byrðarnar verða að taka á
sig.
Gengið fellt 36°lo
inga.
Ekkert launungarmál er, að vinnu-
stöðvun þessi er fyrst og fremst boð-
uð til að tryggja það, að ekki verði
af verkafólki tekinn rétturinn til
Glœsileg verzlun Valbjarkar
tækjum til hcilfrystingar um borð,
svo að þau gætu fiskað á fjarlægum
miðum og haft alllanga útivist, en
aflinn yrði samt að veiðiferð lokinni
unninn í hraðfrystihúsum í landi. -
fullra vísitöluuppbóta á laun þess.
Eftir að gengi krónunnar hefur ver-
ið fellt er nauðsyn að leggja höfuð-
áhcrzlu á þctta atriði, þvi að vist
cr, að miklar verðhækkanir verða á
næstunni á flestum nauðsynjum, og
eina tryggingin fyrir að fá þær
bætt að nokkru er, að laun hækki til
samræmis vísitölu á hverjum tíma.
Kjaradeilan nú, sem er varnar-
barátta verkalýðssamtakanna,
stendur því ekki beint við atvinnu-
rekendur hcldur við ríkisvaldið.
Þau verkalýðsfélög á Akureyri,
Að undanförnu hefur verið
unnið að mikilli nýbyggingu við
verksmiðju- og verzlunarhús
Valbjarkar h.f. við Glerárgötu
28 á Akureyri. Er framkvæmd-
um langt komið, og á laugardag-
inn var opnaði fyrirtækið verzl-
un sína í mjög rúmgóðum og
glæsilegum húsakynnum. Er nú
unnt að hafa til sýnis og að-
gengilegt mjög mikið af hinum
margvíslegustu húsgögnum. E*
verzlunin eftir stækkunina mjög
myndarleg og skemmtileg, og
ekki spillir útlit verzlunarvarn-
ingsins. Er það ánægjulegt, að
á þessum niðurlægingartímum í
iðnaðinum skuli þó eitt og eitt
fyrirtæki standa upp úr og stöð-
ugt færa út kvíarnar.
Valbjörk er ekki gamalt fyrir-
tæki orðið, en er þó eitt hið
stærsta sinnar tegundar í land-
inu, og framleiðsluvörurnar
njóta hvarvetna vinsælda.
Aðaleigendur Valhjarkar eru
Jóhann Ingimarsson, sem er
framkvæmdastjóri þess, Benja-
mín Jósefsson, sem er sölustjóri,
og Torfi Leósson, sem er fram-
leiðslustj óri. — Verkamaðurinn
óskar þeim til hamingju með
þann áfanga í uppbyggingu fyrir
tækisins, sem þeir nú hafa náð,
og vonar að enn megi vel ganga
og þeim takist að standa af sér
allar kreppur viðskiptalífsins.
Greinargerð sinni Ijúka flutnings-.
menn frumvarpsins með þessum
orðum:
„Jafnskjótt og einhver reynsla
væri komin á hin nýju skip og tal-
ið, að hún lofaði góðu, yrði að gera
nokkurra ára áætlun um endurnýj-
un íslcnzka togaraflotans, t. d.
þannig, að honum bættust a. m. k.
4—6 skip á ári. En eins og nú
standa sakir, ber brýna nauðsyn til,
að sem allra fyrst sé hafizt handa
um öflun skuttogara í tilraunaskyni.
Þess. vegna er frumvarp þetta flutt."