Verkamaðurinn - 24.11.1967, Side 2
Margt bóka kemur út þessa
dagana, sumar góðar aðrar lé-
legar. En meginhluti allra bóka,
sem út koma hvert ár, koma á
markaöinn í nóvember og des-
ember og bókaútgáfa lands-
manna byggist á jólagjafa-tízk-
unni. Væru bækur ekki svo mik-
ið notaðar til jólagjafa, sem
raunin er, myndi útgáfustarf-
semi fljótt dragast saman. En
svo er þó þessarri tízku fyrir að
þakka, að gerlegt er að gefa út
ýmsar góðar bækur, sem ella
myndu aldrei sjá dagsins Ijós.
Ekki mun margt bóka eftir
Akureyringa koma út að þessu
sinni. En fyrir nokkru síðan bár-
ust blaðinu þó tvær bækur eftir
Akureyringa. Hefur dregizt að
geta þeirra svo sem vert væri, en
dómar um þær eru væntanlegir
mjög fljótlega.
Þessar bækur eru smásagna-
safnið Rautt sortulyng eftir Guð-
mund Frímann og ljóðabókin
Þankar eftir Katrínu Jósefsdótt-
ur. Hvort tveggja hinar eiguleg-
ustu bækur.
Bókaútqáfa Æskunnar
BarnablaðiS Æskan stendur
árlega fyrir allmyndarlegri
bókaútgáfu, einkum barna- og
unglingabóka. Að þessu sinni
koma sjö bækur fyrir börn og
unglinga frá útgáfu Æskunnar
og tvær bækur ætlaðar fullorðn-
um. Það eru dæmisögur Esóps i
ljóöum eftir séra Guðmund Er-
lendsson á Felli í Sléttuhlíð, og
Skaðaveður 1891—1896, í sam-
.-K-H-K-tc-K-H-K-X-K-K-K-K-K-tc-K-íí-X-K-K-tc-X-><•*<
Strandflato 5 hverfur
í haust auglýsti Akureyrarbær
eftir tilboðum í húsið Strand-
götu 5 til niöurrifs. Atti húsið
að fjarlægjast fyrir áramót, sn
ekkert tilboÖ barst.
Nú hefur fyrirtækið Leður-
vörur h.f. sem rekur skóverzlun
í téðu húsi,boðizt til að fjarlægja
húsið fyrir lok maímánaðar
næsta vor, bænum að kostnaðar-
lausu, gegn því, að fyrirtækið
fái að reka verzlun sína í húsinu
í vetur. ^
Tilboði þessu var tekið, og
mun því þetta gainia og góða
hús hverfa að vori.
Vikublað. — Útgefandi: Alþýðu-
bandalagið í Norðurlandskjördæmi
eystra. — Ritstjóri: Þorsteinn Jóna-
tansson. — Afgreiðsla og auglýsing-
ar: Brekkugötu 5, sími 1-15-16.
Prentsm. Björns Jónssonar h.f., Ak.
antekt Halldór Pálssonar.
Barnabækurnar eru: Ævintýri
Æskunnar, Ævintýri Ottars (eft-
ir Hannes J. Magnússon, Kubbur
og Stubbur, Kibbi kiðlingur,
Gusi grísakóngur, Orkin hans
Nóa og Laufsögun I, sem er
þriðja bókin í föndurbókaflokki
Æskunnar.
Ævintýri Æskunnar
Ævintýri Æskunnar er þess-
arra bóka mest, stór bók og sér-
lega fagurgerð. Þýðing er einnig
með ágætum, þannig að flest má
bókinni til gildis telja.
I þessari nýju ævintýrabók
eru 30 heimsfræg ævintýri frá
17 löndum. Bókin er 140 blað-
síður að stærð í stóru broti og
með 150 litmyndum, sem gerðar
eru af einum fægasta listamanni
heims, V. Kubasta, en allar
myndir eru prentaðar í einni
fullkomnustu myndaprentsmiðju
Evrópu.
Ævintýrin í bókinni eru: —
Frá Þýzkalandi: Mjallhvít, Læ-
virkinn syngjandi, Gjafirnar
fldvana-
rdtherra
Gunnar er maður nefndur
Steindórsson, fastráðinn bruna-
vörður hjá Akureyrarbæ en hef-
ur haft leyfi frá störfum um árs-
skeið. Ekki mun á margra vit-
orði hvað Gunnar hefur haft fyr-
ir stafni þetta ár, en heyrzt hef-
ur, að honum hafi af ráðherra
verið falið að semja heildarlög-
gjöf um brunavarnir á Islandi.
Ekki hefur frumvarp þetta enn-
þá séð dagsins ljós, en Gunnar
hefur fengið tveggja mánaða
leyfi til viðbótar, væntanlega til
að ljúka lagasmíöinni. — Hvort
hann verður síðan skipaður eld-
varnaráðherra, er önnur saga,
en Akureyrarbær veitti honum
frest til 5. des. til að segja ákveð-
ið til um, hvort hann komi aftur
til starfa hjá bænum.
Hdtíðomatur
ALIGÆSAUNGAR, tilbúnir til
matreiðsiu, lcr. 500 stykkið. —
Ófrógengnir kr. 300 stykkið. —
Sendi heim eftir 17. des.
Skriflegor pantanir merktar
hótíðamatur skilist fyrir 1 5.
des. ó ofgreiðslu Verko-
mannsins (fró kl. 2—6)
eða pósthólf 365.
þrjár, Kóngsdæturnar tólf og
Hnetu-Jón og gullgæsin. — Frá
Englandi: Sefsláin og Heimsk-
ingjarnir. — Frá Danmörku:
Sonur hafmeyjunnar og Töfra-
bókin. — Frá Skotlandi: Jakob
kóngsson og Brúna nautið frá
Morrova. —- Frá'Spáni: Kjúkl-
ingurinn klofni og Lífsvatnið. -
Frá Frakklandi: Þyrnirós og
Stígvéla-kötturinn. - Frá Wales:
Álfkonan í tjörninni. - Frá Ung-
verjalandi: Dýrin þakklátu. —
Frá írlandi: Svarti þjófurinn og
Irski dvergurinn. — Frá Ítalíu:
Froskakóngsdóttirin. — Frá
Noregi: Kvörnin á hafsbotni og
Höllin Soría Moría. — Frá Pól-
landi: Kóngsdóttirin á glerfjall-
inu. ■— Frá Portúgal: Kóngs-
sonurinn og dúfan. — Frá Sikil-
ey: Lævísi skósmiðurinn. — Frá
Svíþjóð: Kóngssonurinn og ref-
urinn. — Frá Sviss: Ævintýra-
fuglinn. — Frá Tékkóslóvakíu:
Langfeti, Jötunn og Arnarauga.
Þýðinguna hefur gert Rúna
Gísladóttir. Texti prentaður í
Odda h.f.
nœstu
búö.
.. hrema
erska
ávaxta
bragðið
Blandaður
ávaxtadrykkur
framleiddur
úr
fyr.sta flokks
liráefnum.
Akureyri . Sími 21400
L AXÁ R V I R K J U N
lítdrciin skildabréf
Hinn 15. nóvember 1967 framkvæmdi notarius
publicus í Akureyrarkaupstað útdrátt á 6% skulda-
bréfaláni Laxárvirkjunar, teknu 1951.
Þessi bréf voru dregin út:
Litra ‘A, nr.: 7, 10, 17, 37 , 40, 41, 51, 81, 83, 89, 104, 114,
118, 120, 129, 131. , 132 , 188, 196, 523.
Litra B, nr.: 22, 23, 24, 26 >, 38, 107, 143, 154, 160, 161, 165,
209, 239, 241, 252, 254, 261, 265, 270, 272, 290,
302, 304, 307, 309, 310, 312, 323, 325, 333, 359,
371, 373, 394, 395, 412, 453, 455, 459, 461, 464,
465, 466, 469, 479, 480, 481, 482, 493, 523, 542,
575, 577, 581, 583, 602, 606, 628, 631, 637, 641,
642, 652, 667, 670, 686, 687, 688, 689, 692, 702,
703, 731, 735, 766, 824, 843, 844.
Litra C, nr.: 14, 43, 44, 53, 63, 65, 73, 89, 96, 105, 106, 113,
114, 118, 121, 130, 140, 144, 162, 173, 177, 183,
188, 308, 322, 328, 332, 333, 344, 345, 357, 361,
363, 365, 366, 375, 376, 377, 394, 430, 446, 447,
448, 449, 522, 552, 554, 556, 561.
Hin útdregnu skuldabréf verða greidd í skrifstofu
bæjargjaldkerans á Akureyri hinn 1. febrúar 1968.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 16. nóvember 1967,
Bjarni Einarsson.
ÓDÝRT! ÓDÝRT!
Mæríöt
Stuf-far buxur og bolur
Verð kr. 68.00 pr. sett.
Síðar buxur og 1 /2 erma skyrtur
Verð kr. 100.00 pr. sett.
Ath.: Nærfötin eru úr 100%
bómull og aflagast ekki
HERRADEILD
Hreingerningiar i
Gerum breint með vélum íbúðir, skrifstofur, verzlanir
og stigaganga. — Fljót og góð vinna.
VALUR — Sími 2-15-17
Auglýsing 1
VERKAMANNIUNM
vekur athygli augans
2) Verkamaðurinn
Föstudagur 24. nóvember 1967