Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.12.1969, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 12.12.1969, Qupperneq 2
kaups í stað greiðslna að geðþótta atvinnurek- enda. Hinn óhóflega langi vinnudagur, sem hér tíðkast er því engum til hags og er síður en svo til kominn vegna þarfa eða nauðsynja fram- feiðslunnar. Landsfundurinn lítur því svo á, að með skynsamlegri vinnuhagræðingu og góðum vilja beggja aðila sé hægt að ná 44 stunda vinnu- viku, án þess að afköst minnki frá því sem nú er. Þess sé þó jafnan gætt að slík vinnuhagræð- ing fari fram í samvinnu við vinnuhagræðingu yerkalýðssamtakanna og með samþykki viðkom- andi starfshóps og í samráði við hann. 5. í fiskiðnaði verði stefnt að því að koma á vaktavinnu í stað þeirrar gegndarlausu yfir- vinnu, sem þar hefur tíðkazt með köflum. Til þess þarf að koma skipula-gi á hráefnisöflun fiskiðnaðarins í heild, er miði að því að tryggja sem jafnasta miðlun hráefnis yfir allt árið, þ. e. 300 vinnudaga á ári líkt og í öðrum iðnaði, en á það hefur verið bent af sérfróðum mönnum, að slíkt væri stærsta hagrœðingin í þessari grein og mundi gerbreyta afkomumöguleikum hennar. Aðeins með því að allir meðlimir launþega- samtakanna séu einhuga og samtaka um að hafna öllum tekjuaukningartilboðum einstakra atvinnurekenda í formi lengds vinnutíma, leyni- legra yfirborgana og skattsvika, er árangurs að vænta í baráttunni fyrir hækkun tímakaupsins. Skrifstofur verkalýðsfélaganna eða foringjar þeirra munu aldrei ná meiri árangri en samein að afl félagsmanna að baki þeim á hverjum tíma segir til um. En forystan verður að sjá um að skipuleggja baráttuna og gera markmið- in og baráttuaðferðirnar öllum ljós, þegar í upphafi hvers baráttuáfanga. III A þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá stofn un lýðveldisins, hefur kaupmáttur tímakaups- ins nær staðið í stað á sama tíma og sjálf kaup- upphæðin hefur nær tífaldazt. Mestallan þennan tíma hefur einhvers konar vísitölu-„trygging“ verið í gildi. Sú vísitala hef- ur þó jafnan verið svo úr lagi færð, er fram í hefur sótt, af aðgerðum löggjafans og stjórn- valda, með niðurgreiðslum á einstökum liðum, takmörkunum á þeim verðhækkunum sem lnin mælir, eða með beinum gengislækkunum, að verðgilcfi launanna hefur stöðugt rýrnað. Á þeim tímabilum, sem vísitölubinding kaups hef- ur verið afnumin, hafa verkalýðssamtökin hins vegar verið neydd með stuttu millibili til lang- vinnrar og fórnfrekrar baráttu, sem þó hefur jafnan tekizt að leiða til lykta með nokkurri hækkun kaups að krónutölu. Þeir ávinningar hafa þó jafnan hjaðnað og orðið að engu á nokkrum mánuðum með því að allri hækkun kaups hefur jafnan verið velt út í verðlagið, oft fyrir beina forgöngu ríkisvalds og bæjarfélaga með hækkun skatta og opinberr- ar þjónustu. Þannig hefur verkafólk endanlega verið lát- ið borga allar kauphækkanir úr eigin vasa. Og þannig hefur í reynd verið í gildi „sjálfvirkt kauplœkkunarkerfi“ ekki aðeins hin síðustu ár, lieldur allt frá stríðslokum. Því hafa engar tryggingar reynzt gildar á þessu tímabili, hvorki samningar, þar eð verð- gildi þeirra hefur rýrnað sem krónuhækkunum nemur á skömmum tíma, né heldur vísitala, sem tengja hefur átt kaupgjaldið verðlaginu, fniá hefur aðeins dregið úr hraða þessarar þróunar, en ekki megnað að koma í veg fyrir Iiana. Landsfundurinn telur því, að í framtíðinni verði að leggja verðmæti kaupsins, kaupmáít tímakaupsins, til grundvallar samningum. Rýrni samningar að verðgildi með minnkun kaupmátt- ar, séu þeir samstundis úr gildi fallnir og verka- lýðssamtökin reiðubúin til átaka. Aðeins með þessum hætti sé unnt að kenna fjandsamlegu ríkisvaldi og atvinnurekendum að virða gerða samninga, og hefja raunverulega viðleitni til að koma á stöðugu verðlagi. Samtök frjálslyndra og vinstri manna leggja því til við launþegasamtökin, að í næstu samn- ingum verði ekki samið urn annað en aukinn kaupmátt, og séu samningar úr gildi fallnir með rýrnun hans. NÝ SENDING: Loftlampar Gólflampar Ryksugur Gundaofnar RAFORKA Glerórgötu 32 . Sími 1-22-57 EGILS- drykkir eru landskunn gæðavara. GLEÐILEG JÓL! ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON H.F. ORÐSENDING FRÁ ALMANNATRYGGINGAUMBOÐI AKUREYRAR OG EYJAFJARÐARSÝSLU, AKUREYRI Bótagreiðslum Almannatrygginga fyrir árið 1969 lýk- ur þriðjudaginn 30. þ. m. og er þess vænzt, að bótaþeg- ar hafi þá vitjað bóta sinna. Bótagreiðslur fyrir árið 1970 hefjast ekki fyrr en fimmtudaginn 15. janúar, og þá með greiðslu elli- og örorkulífeyris, liarnalífeyris og mæðralauna. Þriðjudaginn 20. janúar hefjast greiðslur fjölskyldu- bóta með 3 börnum og fleiri. Bótagreiðslur á árinu 1970 verða að öðru leyti sein hér segir: 10. til 15. hvers mánaðar, elli- og örorku- lífyrir, örorkustyrkur, ekkjubætur og lífeyrir, maka- bætur, barnalífeyrir og mæðralaun, 15. til 20. hvers mánaðar fjölskyldubætur með 3 börnum og fleiri. Fjölskyldubætur með 1 og 2 börnum frá 21. til 25. mánuðina marz, júní og september. Bótagreiðslur fyrir desember 1970 hefjast svo á öllum bótum í byrjun desember og verður það auglýst nánar hvenær þeim lýkur. Bótaþegar eru vinsamlegasL beðnir að virða auglýstan greiðslutíma og auðvelda þannig af- greiðsluna. Umboðið þakkar bótaþegum og öðrum við- skiptavinum sínum fyrir góða samvinnu ó þessu óri og óskor þeim öllum GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS UMBOÐSMAÐUR. Aiig:l,vsi<) í V«krkamsiiniin«im FRÁ PÓSTSTOFUNNI Póststofan á Akureyri, verður opin þriðjudaginn 16. og laug- ardaginn 20. desember til kl. 22. Jólapóstur sem berast á út fyr- ir jól, verður að hafa borizt til Reykjavíkur 16. desember og jólapósti innanbæjar, verður að skila í póstkassana fyrir kl. 24 20. desember. Leiðin heim MIÐILSFUNDIR Guðrúnar Sigurðard. Óskabúðin Sími 2-11-15. Nýkomið: * ’ ■ i ARABIA- | mat-ardiskar \ 1 grunnir og djúpir kr. 62,00 stk. Jórn- og glervörudeild 2) Verkamoðurinn Föstudagur 12. desember 1969

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.