Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.12.1969, Side 7

Verkamaðurinn - 12.12.1969, Side 7
JOLIN OG LJÓSIÐ Kertaljósin eru fögur, en þau geta einnig verið hættuleg. — Foreldrar, leiðbeinið börnum yðar um meðferð ó óbirgðu Ijósi. Um leið og vér beinum þessum tilmælum til yðar, óskum vér yður öllum gleðilegra jóla. BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS LAUGAVEGI 103, SÍMI 24425 Umboðsskrifstofa á Akureyri að Geislagötu 5 Simi 1-18-12 TILKYNNING TIL VIÐSKIPTAMANNA í byrjun ársins tók sú regla gildi, að í viðskiptum skyldu kröfur og reikningar greiddir í heilum tug aura. Að liðnum reynslutíma er tímabært að reglan nái skilyrðislaust fram að ganga við peningastofnanir. Því hafa bankar og sparisjóðir nú ákveðið, að frá og með 1. janúar 1970 muni þeir, án undantekninga, afgreiða tékka og önnur greiðslufyrirmæli eftir reglunni, jafn- vel þótt greiðsluskjöl kunni að berast, þar sem fjárhæð- ir eru eigi greiddar í heilum tug aura. Reykjavík, 28. nóvember 1969. SAMVINNUNEFND BANKA OG SPARISJÓÐA. SOLNAPRENT Reynið viðskiptin. GLEÐILEG JÓL! SOLNAPRENT KIRKJUSANDI — REYKJAVÍK Nýjustu bækur Máls og menn- ingar og Heimskringlu REYKJAVÍK Verð íb. og í litprentaðri öskju, kr. 1200.00. LEIKRIT — IV. bindi William Shakespeare. Helgi Hálfdánarson þýddi. Verð ób. kr. 400.00, íb. kr. 500.00, skinnb. kr. 600.00. INNAN HRINGSINS Guðmundur Böðvarsson. Ljóðabók. Óbundin kr. 290.00, íb. kr. 370.00. ÞAÐ SEM ÉG HEF SKRIFAÐ Shúli Guðjónsson. Ritgerðaúrval 1931—1966. Verð ób. kr. 360.00, íb. kr. 450.00. MANNSÆVI — I og II Konstantín Pástovskí. Halldór Stefánsson þýddi. Verð hvors bindis ób. kr. 300.00, íb. kr. 360.00. UPPELDI UNGRA BARNA Matthías Jónasson sá um útgáfuna. Verð ób. kr. 320.00, íb. kr. 440.00. ÚRVALSRIT Karl Marx og Friedrich Engels. Tvö bindi. Verð íb. kr. 600.00. ÆVISAGA ÁRNA PRÓFASTS ÞÓRARINSSONAR Þórbergur Þórðarson. Fyrra bindi. Verð ób. kr. 540.00, íb. kr. 650.00, skinnb. kr. 760.00. GRIÐASTAÐUR William Faulkner. Skáldsaga. Guðrún Helgadótt- ir þýddi. Verð ób. kr. 270.00, íb. kr. 350.00. LJÓÐMÆLI Grímur Thomsen. Sigurður Nordal sá um útgáf- una. Verð ób. kr. 600.00, íb. í alskinn kr. 900.00. (Verðið er tilgreint án söluskatts). MÁL og MENNING LAUGAVEGI 18 REYKJAVÍK Atvinnuleysistryggingar Framhald af bls. 5. rekendur neitunarvald um þessi efni og hafa notað sér það, við- komandi byggðarlögum og verkafólki til stórtjóns. Loks er svo sú breyting, sem 2. gr. frv. gerir ráð fyrir og ætl- að er að tryggja þeim fjöbnörgu smáútvegsmönnum, sem að öðrum þræði eru verkamenn, bótarétt, sem þeir eru nú sviptir, ef þeir stunda ekki verkamannar vinnu að meiri hluta. Til þess að þetta megi verða, er nauðsynlegt að setja einnig í lögin ákvæði um gjaldskyldu þessara manna, þegar þeir sækja sjó á eigin fari, og gerir frumvarpsgreinin ráð fyrir því. Þegar lögin um atvinnuleysis- tryggingar voru sett 1956, var því heitið og raunar lögfest, að heildarendurskoðun laganna yrði látin fara fram innan tveggja ára frá setningu laganna. Sú heildarendurskoðun hefur enn 13 árum síðar ekki séð dags- ins ljós, þrátt fyrir fjölmarga vankanta, sem sannazt hafa við framkvæmd laganna. Þessir van kantar margir eru auðsærri og tilfiinnanlegri fyrir mikinn fjölda fólks í verkalýðsfélögun- um nú, þegar mjög hefur á fram kvæmd reynt vegna hins mikla atvinnuleysis síðustu 2 árin. Flm. telur að visu margar fleiri breytingar á lögunum nauðsynlegar, en vill nú freista þess með flutningi þessa frv. að fá fram framangreindar' breyt- ingar, sem hann telur meðal hinna brýnni og varða hags- muni fjölda fólks í verkalýðsfé- lcgunum. Allar eru þær þess eðlis, að samþykkt þeirra mundi skapa meira jafnrétti til atvinnu leysisbóta og binda endi á hróp- andi misrétti, án þess að nokkurt tjón hlytist af. Flm. vill því fulltreysta því, að hv. Alþingi samþykki án óþarfa tafa þær breytingar, sem frv. hefur að geyma. Húisður! Allt í jólabaksturinn ®studogur 12. desember 1969 Nendum lieim Sími 1-10-94 Verkamaðurinn (7

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.