Verslunarblað Íslands - 01.09.1908, Qupperneq 7
VERZLUNAJKHLáÐ íslands
41
Bretland með yfir 5 mill. smál., Spánn með 43A
mill. smál., og Svíþjóð með 41/2 mill. smál.
lnnlendar íróttir.
Aðalfnndur Gránufélagsins var haldinn 28.
og 29. ágúst á Oddeyri við Eyjafjörð. Fundinn
sótti stjórnarnefndin, kaupstjóri og 8 fulltrúar:
1 úr Papósdeild, 3 úr Yestdalseyrardeild og 4 úr
Oddeyrardeild.
1. Lagði stjórnarnefndin fram gjörðabók
og skýrði frá störfum sínum frá síðasta aðal-
fundi og var það alt samþykt.
2. Lagðir voru fram reikningar frá öllum
reikningshöldurum félagsins 8 að tölu, með at-
hugasemdum, svörum og úrskurðum stjórnar-
nefndarinnar. Sex af reikningum þessum úr-
skurðaði stjórnarnefndin að fullu, en 2 voru látn-
ir bíða sökum vantandi skýringa.
3. i’á var lögð fram hagskýrsla félagsins,
sem sýndi, að félagið hafði tapað stór-miklu fé
1907, sem aðallega stafaði af tapi á íslenzkri vöru,
sem orsakaðist að miklu leyti af pcningaþröng í
útlöndum.
4. Þá var tekið til umræðu, hvort greiða
skyldi rentu af hlutabréfum þetta ár, og bókað
um það á þessa leið: í tilefni af því, að félag-
ið hefir orðið fyrir stórskaða árið sem leið, þar
sem alt verzlunarástand bæði fyrir félagið og
aðra, var næstliðið ár liið lang-versta, sem kom-
ið hefir í mörg ár og lánveitandi félagsins, stór-
kaupmaður Holme, hefir af eigin hvötum bætt
upp skaðann að nokkru með 16 þús. kr. gjöf
og farið jafnframt l'ram á, að hluthafar sýndu
þá tilhliðrunarsemi, að taka eigi vexti al' liluta-
hréfum sínum þ. á., þá komst fundurinn að
þeirri niðurstöðu, með meiri hluta atkvæða, að
ekki skyldi greiða vexti af hlutabréfum Gránn-
félagsins 1908.
5. Nokkur mál voru rædd, sem varðaði fé-
lagið inn á við, svo sem um sölu og leigu á
lóðum.
6. Kosning starfsmanna íór þannig: að lyf-
sali 0. C. Thorarensen var endurkosinn í stjórn-
arnefndina og varamaður í nefndina Ragnar Ól-
afsson. Endurskoðunarmenn voru endurkosnir
prófastur Geir Sæmundsson og þankastjóri Júlí-
us Sigurðsson, og til vara Kristján bóksali Guð-
mundsson. (Austri).
Bergenska félagið. Eins og kunnugt er,
hefir Bergenska gufuskipafélagið haldið uppi
ferðum hér við land í sumar. Frá Björgvin um
Færeyjar og austur og norður um land til Reykja-
víkur. Ferðir þessar, sem einungis eru tilraunir,
hafa geng'ið enn betur en félagið bjóst við, enda
ráðgerir félagið að senda næsta ár stórt og hag-
kvæmt nútíðar farþegaskip.
Yerzlunin Edinborg hefir nýlega keypt verzl-
un Agústs kaupmanns Flygenrings í Hafnarfirði
og hefir þar þvi útibú framvegis.
Sama verzlun hefir einnig keypt skipastól
Geirs kaupmanns Zoéga.
Fiskileysið á Austfjörðum. Mjög víða á
Austur- og Norðurlandi hefir verið fiskilítið í
sumar. Ástandið þar af leiðandi alls ekki glæsi-
legt. — Á þeim fjörðum þar sem róðrarbátar
hafa verið notaðir til veiðanna, verður þó tjónið
af fiskileysinu ekki mjög tilfinnanlegt. Til dæmis
á Bakkafirði, þar eru einungis róðrarbátar —
enda munu flestir þar hafa fiskað fyrir kostnaði
og sumir meira. Aftur á móti þar sem vélar-
hátar eru nolaðir til veiðanna er öðru máli að
gegna og þeir eru nú orðið mjög mikið tíðkaðir
á Austfjörðum og yfirleitt kring um alt land.
Vélabátaútgerðin er mjög dýr, svo að á llest-
um þeim vélabátum, sem til fiskjar ganga mun
kostnaðurinn við hvern róður nema frá 50—80
kr. og verður að fiskast mjög mikið til þess, að
slik útgerð geti svarað tilkostnaði. Á Seyðisfirði
einum var mér sagt að væru milli 40—50 véla-
bátar og að mörg þúsund króna skaði mundi
verða á þeim flestum. Er slíkt all-ískyggilegt á-
stand, einkum nú á þessum tímum, þegar ó-
mögulegt er að fá lán í bönkunum.
Á Siglufirði hefir eins og undanfarin sumur
verið feiki-mikill síldarafli. Mörg hundruð út-
lendra fiskiskipa sópaði sildinni þar á land. Yar
þar all-lífvænlegt um að litast, hefði ekki sá
hængur verið á að síldin er nú svo að segja í
engu verði. Þó ilt sé til þess að vita, hefir lög-
regluvaldið þar í sýslunni að því er menn segja
greitt þannig fyrir hinum útlendu fiskiskipum,
að þau geta óátalið veitt i landhelgi. Er slíkt
athæfi lítt afsakanlegt ef satt er.