Voröld - 11.11.1918, Qupperneq 8
Bls. 8.
VOSOJLii
Winnipeg H. nSvember, 1918.
GIGTVEIKI
Vér læknum öll tilfelli, þar sem
lisirnir eru ekki allareiðu eydd
ir, með vorum sameinuðu að-
ferðum.
Taugaveiklun.
Vér höfum verið sérlega hepn-;
ir aS lækna ýmsa taugaveikl-
un; mörg tilfelli voru álitin
vonlaus, sem oss hepnaðist aS;
bæta og þar meS bæta mörg-
um árum viö æfi þeirra sem
þjáðust af gigtinni.
GylliniæS
Vér ábyrgjumst aS lækna til
fullnustu öll tilfelli af Gyllini-
æS, án hnífs eSa svæfingar.
Vér bjóSum öllum gestum,
sem til bæjarins koma, aS
heimsækja oss.
MineralSprings
Sanitarium
Winnipeg, Man.
Ef þú getur ekki komiS, þá
skrifa eftir myndabæklingi og
ölium upplýsingum.
Úv SBæimm
Síðasta Voröld getur þess að vínsöl-
um í Saskatchewan hafi verið leyft að
selja vín án læknis vottorðs á meðan
spánska veikin stæði yfir. En nú er
búið að afturkalla það leyfi. það
kom einnig til orða að leyfa slíkt hið
sama í Manitoba, en það mun ekki
verða gjört. par sem áður sást
gleðibros eftirvæntingarinnar heyrist
nú grátur og gnístran tanna.
Styrkið Sigurlánið!
Lt. Thordur G. Thordarson frá Gard
ar, N.D., útskrifaðist við skotfimis-
skóla I Fort Sill, Okla., í octóber, og
er nú í Camp Funston, Kansas.
Miss ólafsson, dóttir C. ólafssonar,
Winnipeg, hjúkrunarkona við Pöst
Field Aviation, Ft. Sill, fer bráðlega
til Frakklands til að vera hjúkrunar-
kona þar.
Great War Veterans félagið hefir
verið að reyna að undanfömu að koma
á lögum er útilokuðu menn úr óvina-
löndum frá ýmsri vinnu hér, en ekki
tekist það enn þá.
Maður sem hét J. Arosiewick er
vann á Royal Alexandra gistihúsinu,
datt niður lyftivélar-op á fimtudags
morgunmn og beið bana af.
A. Ingman Christopheison, Whon-
nock B.C., særður og týndur.
Réttið hjálpar hönd. Styrkið sigur
lánið!
Stúlku eða aldraða konu vantar á
lítið og gott heimili. Gæti sofið heima
hjá sér. Dag eða mánaðar kaup.
Upplýsingar á skrifstofu Voraldar.
LEIÐRÉTTING.
pessar villur höfðu slæðst inn í
kvæðið “Minningar” um Gísla sál. Ás-
mundsson frá Selkirk, eftir Kristjónu
Hafliðason. Eru lesendur blaðsins
beðnir að athuga þetta.
Annað erindi, önnur hending: “Að
hjálpa þér vinur;” átti að vera “að
jhlífa þér vinur. Fjórða erindi, þriðja
| lína, “Allir það syrgja er imt höfðu
þér;” átti að vera “Allir það syrga er
! eitthvað kyntust þér. Sjötta erindi,
; fyrstu línu, “Nú blæða að nýju mín
! sorganna sár; átti að vera, “mín fyrri
; sorga sár.”
I
Chas. Thorson, sem er alþektur með-
al íslendinga fyrir skopmyndir sínar,
j hlotnaðist sá heiður, að verða einn af
þeim sem minst var opinberlega i
| virðingarskyni fyrir mynd er hann dró
j í sambandi við sigurlánið.
FYR EN VANT ER.
Voröld hafði ávalt ætlað sér að gefa
út auka eintak undireins og vopnahlé
kæmist á, því vér gerum ekki rá.ð
fyrir að oss gefist kostur á að flvtja
betri fréttir til landa vorra í þaö
minsta næstu áratugina.
Blaðið var tilbúið til prentunar á
fimtudaginn var en vegna þess að
fréttirnar virtust ekki ábyggilegar,
eins og raun varð á var hætt við að
prenta það.
f stað aukablaðs kemur Voröld úl
degi fyr en vant er.
Aimennar fréttir
Spanska vcikin geisar í Nome Al-
aska. 300 hvítir menn liggja veikir
og Eskimóar hrynja niður.
G. P. Thórdarsn er nýkominn úr
í mánaðar ferðalagi niður í Nýja íslandi
þar sem hann var I erindum fyrir Vor-
öld. Honum var framúrskarandi vel
I tekið alstaðar.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson er enn
vestur í Wynyard og mjög vant við-
! látinn. Hefir spanska veikin verið
j þar mjög skæð eins og sjá má á and-
látsfregnum sem birtast hér í blað-
inu.
Séra J. Sólmundsson, frá Gimli, var
á ferð í bænum nýlega.
Crescent Creamery félagið hefir
þegar haft fjóra mjólkurlausa daga.
Mun það koma sér illa á mörgum heim-
ilunum.
All margir smábæir í Manitoba og
Saskatshewan hafa ' verið settir í
nokkurskonar sóttvörn. Og er eng-
um ferðamanni leyft að koma þar ná-
lægt.
Heyrst hefir að leikhús, kirkjur og
skólar muni opnaðir aftur 18 þ.m.
Lieut. Allan McLeod, frá Stone-
wall, er nýlega kom heim úr stríðinu,
andaðist á almennra sjúkrahúsinu úr
spönszku veikinni, í vikunni sem leið.
Lieut. McLeod var um 20 ára gamall;
hann var 3æmdur Victoria Cross fyrir
frammistöðu sína, er hann barðist við
þýzkar flugvélar og svo sjálfur marg-
særður, kom félaga sínum á óhultan
stað.
Slys vild-i til síðastliðinn Fimtudag
í gleðilátunum yfir stríðsfréttunum,
þó engin mjög hættuleg.
Canada er bráðum búin að fá
$300,000,000 til sigurlánsins. Eftir-
farandi skýrslur frá fylkjunum sýna
hvað hvert þeirra hefir lagt til:
Ontario ...................$150,323,400
British Columbia ........... 12,922,850
Alberta ..................... 8,279,600
Saskatchewan ................ 6,610,550
Manitoba............... 17,722,150
Quebec ..................... 72,611,100
New Brunswick.......... 6,850,000
Nova Scotia ................ 13,955,100
Prince Edward Island .... 739,650
UPPREIST A pÝZKALANDI
B. S. Benson, lögfræðingur, í Sel-
kirk, Man., andaðist úr spönsku veik
inni á fimtudagsnóttina var.
Herra Benson var mjög velþektur
maður á bezta aldurskeiði. Hann lét
sér ant um öll almenn málefni, og
hafði verið i skóla ráðinu og bæjar-
stjórn í Selkirk. Við lát hans er
höggvið djúpt skarð í hóp íslendinga
í Selkirk. Og munu margir sakna
hans og syrgja, og samhryggjast ekkj-
unni og tveim börnum hans. Voröld
mun geta hans nánar síðar.
Nýju skáldsögurnar “Bessi gamli,”
eftir Jón Trausta, og “Sambýli,” eftir
E. H. Kvaran, eru nú loksins komnar
hingað, eftir tveggja mánaða flæking
milli New York og Winnipeg. Allir
sem hafa pantað þær mega nú búast
við að fá þær innan fárra daga.
Voröld reyndi að fá mynd Foch’s
ýíTrhershöíðingja en gat ekki fengið
haiTS. fyr en of seint til að koma henni
, í þetfa' númer blaðsins.
YÍTr 10,000,000 hefir fallið í stríðinu.
Styrkið Sigurlánið!
Fólkið hvað alt vera í uppnámi á
noi-ður pýzkalandi, í Kiel, Hamburg,
Schleswig og Eremen, Meklenburg-
Schweren og austur Prússland. Keis-
arinn neitar að aegja af sér.
Konur í Calgary eru að senda beiðni
til Bordens þess efnis að Canada
verði veitt leifi að senda konu á frið-
arþing. Segja þær að eftir alt sem
þær liafi lagt í sölurnar sé ekki hema
réttlátt að þær taki þátt I friðar-
Samningunum.
405,000 fangar hafa verið teknir frá
1. janúar til 5. nóvember: Bretar
200,000 fanga á vestur vigvöllinum;
Frakkar, 140,000; Bandaríkjamenn,
50,000, g Belgir 15,000.
Hjálpið drengjunum með því að
styrkja sigur lánið.
í vikunni sem leið tóku Union Stock-
yards á móti 14,174 gripum, 5,324
svínum og 3,100 kindum og lömbum.
Ætlast er til að Winnipeg leggi til
40,000,000 til sigurlánsins. Er nú
komið um 22,000000.
er fæddur 20. marz, 1898, að Hallson, N.D. ITann fluttist
til Winnipeg með foreldrum sínum, Jóni J. Samsjmi, lög-
regluþjóni, og konu hans, sem heima eiga að 273 Simcoe
stræti, hér í hænum, árið 1903.
Jónas var þrjú ár á Kelvin High school, eftir að hánn
útskrifaðist af barnaskólanum. Tvo síðustu vetuma var
hann á Manitoba university og stundaði þar verkfræði.
Sumarið er leið hafði hann yfirumsjón á accorðs verki
fyrir C.N.R. jámbrautarfélagið. Og hætti hann við það
verk til að ganga í herþjónustu.
Hann innritaðist í herinn í vor síðastliðið, og hefir til-
heyrt flugdeildinn síðan, fór til Toronto þann 4. þ- m.
• ' I
Um helmingur af kolum sem bærinn
að. W. A. Brereton, kolaumsjónar-
maður segir að nóg kol muni fást í
vetur.
3á talsíma stúlkur liggja veikar af
spönsku veikinni.
Dr. J. M. Roger, er frjálslyndi flokk-
urinn útnefndi fyrir leiðtoga sinn i
Suður Oxford, Ont., hefir sagt af sér.
Segir hann að þar eð konur þar hafi
fengið atkvæðisrétt eigi þær að ráða
að nokkru leiti útvalningu á þing-
mannsefni.
Kona að nafni Mrs. James W.
O’Brien (áður Miss Mary A. McKinn-
on, frá Elmsdale, P. E. Island, var
sæmd Carnegie brons medalíu fyrir að
bjarga stúlku, Florence McKendrick
frá drukknun.
Frank L. Clark, öðru nafni A. Mor-
an, var tekinn fastur í Chicago fyrir
að skjóta Miss Lola Almon, hjúkrun-
arkonu, og særa tvær aðrar á sjúkra-
húsinu þar.
ManitobaStores
346 Cumberland Ave,
(60 faðma fyrir austan Central
Park).
GUNNL. J6HANNSON, Verzlun-
arstjóri.
KJÖRKAUP í pESSARI VIKU
Epli til sælgætis,
Epli til bökunar, rt
Epli til geimslu,
úrvals kassar á..t w
Robin Hood Ilaframjöl,
hreint, mjúkt og hvítt,
20 punda sekkur.... 1.45
MANITOBA STORIS
2 Talsímar: Garry 3063 og 3062
1 deilu er kom upp á milli Texas
skógarvarða og Mexikana, þann 8.
nóvember var einn Mexikanskur her-
maður drepin og einn skógarvörður
hvarf.
Talsíma verkfallið í Saskatchewan
endaði 9. nóvember. Lofar stjórnin
að íhuga kauphækkun.
Flug Lieut.W. G. Claxton, frá Tor-
onto, hefir verið sæmdur heiðurs með-
alíu fyrir frammistöðu sína. Hefir
hann skotið niður þrjátíu og þrjá loft-
skip á ininna en fjórum mánuðum.
Plága af ormum (caterpillars) hvað
vera á Englandi. Ástæðan fyrir þeim
er talin sú, þegar matarskortur fór að
verða átakanlegur var skotið mikið af
fuglum til matar. Margir af þessum
fuglum höfðu lifað á ormum og pödd-
um.
preskingar leyfi hermanna í M. D.
12 hefir verið frainlengt frá 15. nóv.
til 1. des. vegna spönsku veikirinar.
Upp til 30. sept. hafa verið búin til
i Canada 68,000,000 sprengikúlur.
sem hann hafði verið sér til lækninga.
Með honum var dóttir hans, Guðfinna
(Mrs. J. J. Stefánsson).
Sigfinnur vár með fyrstu landnem-
uir: í Norður Dakóta. Bjó hann þar
frá því hann kom frá íslandi þar til
fyrir fáum árum að hann flutti til
Wynyard. Hann skylur eftir konu og
tvo syni og dóttir (nú látin).
Islenzkar bækur
LJÓÐABÆKUR.
Ætlast var til að Brandon legði
fram 750,000 til sigurlánsins. Er nú
komið fram, yfir þá upphæð. Hvert
það pláss er fær upphæð þá eða meira
en ætlast hefir verið til fær heiðurs-
flagg frá landstjóranum. Brandon er
fyrsti bær í vestur Canada er fær
heiðursflággið.
Verkamenn og hermenn hafa lokað
Kiel skurðinum með því að setja her-
skip þversum í hann. Sagt er að
uppreistarmenn hafi algjörð yfirráð I
Hamburg, Cuxhaven og Lubeck.
Algjört vopnahlé hefir staðið yfir að
undanfömu á ítölsku vígstöðvunum.
Stjórnin í Rússlandi ætlar sjálf að
fara að hafa um hönd tilbúning og
sölu á Vodka (brennivlni). Kvað
hún fólkið hafa nóg af hveiti þó
nokkrum búshelum sé eitt í brenni-
vin.
Gufuskipið Chester Condeu, sem
liggur við Passage Island, hefir verið
yfirgefið af skipshöfninni vegna stór-
sjó. Búist er við að skipið og skips
farmurinn, 390,154 bushels af hveiti,
muni eyðileggjast.
Einn verkamaður dó og fimtán
manns særðust sumt konur og börn
í sprengingum er vildu til í sprengi-
kúlna verkstæði, á föstudaginn var, í
Port Ewen, N.Y. Fimtíu verkamenn
í alt, er voru í byggingunni, þá slysið
vildi til, meiddust allir meira og
minna.
Viðgjörð á “Hvíta Biminum,” heim-
skauta skipi Vilhjálms Stefánssonar,
mun kosta milli $5,000 til $6,000.
Skipið er nú í St.Micheah, Alaska.
Skemdist það við Barter Island, síð-
astliðinn júní.
Fyrir fimm til sex þúsund árum
síðan bygðu Kínverjar háa múr
veggi kringum boigir sínar til að úti-
loka siði annara landa. Nú rífa þeir
þessa garða niður og milja þá til að
búa úr þeim brautir fyrir sjálfhreifi-
vagna frá Ameríku, til þess að nýjir
siðir geti sem hraðast verið fluttir
inn í landið.
/----------------------------------N
Hvernig ertu tentur ?
Eg vona þín vegna að þú hafir
heilbrigðar tennur. En sé það
ekki, þá ættir þú að láta gera við
þær tafarlaust. pú verður að
láta þér skiljast hve áríðandi er að
draga það ekki. pað ætti ekki að
þurfa að gera þér aðvart oftar en
einu sinni. Vinnustofurnar mínar
eru á hentugustum stað fyrir þig.
Dr. C. C. Jeffrey
Varfæri tannlæknirinn, upp yfir
Liggets lyfjabúðinnl.
Talsími G. 3030. Skrifstofutími 9
árd. til 8.30 síðd.
r
Halldor
Methusalems
Er eini Islendingur í Winnipeg
sem selur Columbia hljómvél-
ar og hljómplötur (records),
hefur nú til sölu íslenska,
Enska, Danska, Norska og
Svenska söngva. Skrifið eftir
verðlistum.
Swan Mfg. Co.
676 Sargent Ave.
Sími Sh. 971. Winnipeg.
Stjórnamefndar ákvæði þann 10.
ágúst gjörði það að lögum að bændur
mættu ekki brenna strá sitt. Hefir
það nú verið tekið til baka.
pÚSUND DOLLARA SIGURLAN MUN
KAUPA
200 gas hlífar, ea 200 pör af her-
manna skóm, eða 450 búshel af hveiti,
eða 500 stál hjálma, eða 1,000 pör af
hermanna sokkum, eða 2,000 pund af
sprengiefni eða 4,200 pund af osti, eða
28,000 riffil slcot, eða 56,000 skamm-
byssu skot.
Republican flokkurinn vann kosn-
ingarnar í Bandaríkjunum.
Andlátsfregnir
Arthur Scheving, Mountain, N.D.,
andaðist nýlega úr spönsku veikinni.
Var hann að ganga á hermannaskóla í
North Dakota. Hann var vel þektur
bæði I Mountain og Edinburgh. Hann
eftirskilur konu og eitt barn.
Annan nóvember andaðist Guðfinna
Sigurlína, kona J. J. Stefánssonar, að
heimili sínu í Wynyard. Var hún
39 ára að aldri. Er hennar sárt sakn-
að af aldraði móður, tveimur bræðrum
og eiginmanni.
Kristín, kona Nels J. Wíum, andað-
ist að heimili sínu í Wynyard, þann
3. nóvember, úr spönsku veikinni. Eft-
irskilur hún son og dóttir,; aldraða
móðir og eiginmann.
pann 31. octóber, andaðist að heim-
ili sínu í Wynyard Húsfrú Guðrún
Jónsson, kona Brynjólfs Jónssonar.
Syrgja hana fjórir synir tvær dætur
og eiginmaður.
Björn Björnson bróðir Dr. Sveins
Bjötnssonar 1 Gimli, er sagður látinn
úr spönsku veikinni.
Pann 20. octóber andaðist liér í
bænum Sigfinnur Jónsson, 68 ára að
aldri Hann var á leið frá Mayo
hcilsuhælinu í Rochester, Minn., þar
Kvistir, eftir Sig. Júl. Jó-
hannesson, í skrautbandi....$1.50
Óbundnir............... 1.00
Drottningin í Álgeirsborg—-
Sigfús Blöndahl. Bundin. 1.80
Óbundin................ 1.40
Út um Völl og Velli—Krist-
inn Stefánsson. Bundin . 1.75
Sjöfn—Ágúst H. Bjarnason.
Bundm ....................55
Óbundin...................3f
SKÁLDSÖCUR.
Sálin Vaknar—Einar Iljör-
leifsson Kvaran. Bundin. 1.5t
Sambýli—Einar Hjörleifsson
Kvaran. Bundin ... .... 2.5®
Óbundin ........... 2.0»
Tvær Gamlar Sögur (Sýður
á Keypum og Krossinn
Helgi á Kaldaðarnesi) Jón
Trausti. Óbundin....... 1.2#
Bessi Gamli — Jón Trausti.
Óbundið......*......... 1.50
Ströndin—Gunnar Gunnars-
son. Bundin.......... 2.15
Óbundin................ 1.75
Vargur í Vjeum—Gunnar
Gunnarsson. Bundin...... 1.80
Morðið—Conan Doyle .........85
Dularfulla Eyjan — Jules
Verne.....................30
ÝMISLEGT.
Um Berklaveiki og Meðferð
Hennar—Sig. Magnússon .40
Líf og Dauði—Einar Hjör-
leifsson (fyrirlestrar) ....75
Fíflar—p. ]). porsteinsson....85
Austur í Blámóðu Fjalla
(ferðasaga)—A. Kristjáns-
son. Bundin.............. 1.75
Ritsafn Lögréttu, 1. hefti....40
“Óðinn,” 12-13 og 14 árgang,
árgangurinn kostar ...... 1.00
“Lögrétta. ” Argangurinn... 2.50
BÓKAVERZLUN HJÁLMARS
GÍSLASONAR
Telephone St. John 724.
506 Newton Avenue, Winnipeg.
Fleiri bækur væntanlegar að
heiman.
“ COMMONWEALTH ” HLOÐU
RAUDl
Mál fyrir hlöður, þök, girðingar, o.s.f.
S-W Commonwealth hlöðu rauði er bjartur, vel rauð-
ur litur sem auðvelt er að nota, nær yfir mikið flatar-
mál, og þornar þannig að málið verður fínlegt, slétt og
varanlegt. Selt í mátulega stórum könnum, allar ná
þær fullu (Imperial) máli. Hví skylduð þér ekki
reyna þetta mál í ár til þess að vernda hlöðurnar yðar
gegn veðri og lofti. ?
pér eigið mikla peninga í akuryrkju verkfærum, á-
höldum, vögnum ofl. Aukið nytsemd þeirra og starfs-
tíma með því að verja þau gegn ryði og eyðileggingu;
gjörið það með því að nota Sherwin-Williams vagna og
áhalda mál. pví lengur sem áhöldin endast, því minna
kosta þau.
pað er sparnaður að nota S-W kerru mál á kerrurnar
og vagnana yðar og S-W bifreiðar mál á bifreiðina
yðar. pað er ágætt til þess, og þér verðið ánægðir
með það og auðvelt er að nota það.
Litbreytingar og uppástungur um
aðrar breytingar til skrauts fyrir hvaða
hluta húsa yðar sem er getið þér feng-
ið frá sérfræðingum vorum í þeirri
grein; það kostar ekkert nema að biðja
, um það.
Vér höfum allar tegmndir af Sherwin
Williams máli og gljákvoða. Biöjið
oss um litaprufu spjald, verð og aðrar
upplýsingar sem þér þurfið.
Sveinn Björnsson,
Gimli, Man.