Voröld - 11.02.1919, Page 6

Voröld - 11.02.1919, Page 6
Bls. 6 VORÖLD. Winnipeg, 11. febrúar, 1919 Úr bréfum til Voraldar ALTAF FER pEIM FRAMM Síðasta Voröld segir okkur þau tíðindi að J. J. Bildfell hafi stefnt Voraldar útgáfufélaginu og rit- stjóra hennar fyrir það stóra brot að einhver hafi brosað að Bild- fell. pað fer nú að verða nokkuð vandlifað í henni veröld ef maður má ekki brosa. Auðvitað er þetta alveg samhljóða öllu sem kemur frá auðfélags klíkum og þeirra tól- um. Alþýðunni er skipað að vinna baki brotnu til þess að þeir hafi nóg til að fita sjálfa sig á, svo er henni skipað í stríð svo að auð- kífingarnir séu óhultir í sínum rík mannlegu höllum; svo skamta þeir henni það sem hún þarf að borða; hún má sem sé ekki borða nema það sem auðvaldinu sýnist, þó að alþýðan sjálf framleiði alt og ef rétt er skoðað eigi alt sem í land- inu lifir og hrærist. En svo segja þeir henni að steinþegja, annars skuli þeir setja hvert mannsbarn í tugthúsið og svo kemur nú það sæla og það eina sem gat borið vitni um að alþýðan væri skynber- andi skepnur, nú kemur eitt áhald auðkýfinga með þá meistaralegu uppástungu að sekta fáeina al- þýðumenn um tíu þúsund dali fyr- ir það að hann hafði grun um að þeir hefðu brosað að sér. Jón Bild- fell er nú búinn að gera sig að svo bjálfalegu flóni að tæplega er hægt að hlæja að honum. En við skulum muna að hann er ritstjóri Lögbergs og að Lögberg hefir síðan hann tók við því verið sorphaugur Vestur Islenzkrar blaðamensku. Fyrir rúmu ári síðan sveik það frjálslynda flokk- inn og gekk í lið með fjandmönn- um alþýðunnar. Síðan hefir það farið með blekkingar og ósannindi í staðinn fyrir að uppfræða fólkið og gefa því vinsamlegar banding- ar. Við skulum muna hvað sárfc okkur þótti að eiga ekkert blað sem við gátum treyst um síðustu kosningar. Við skulum muna að það var Dr. S. J. Jóhannesson sem þá með hjálp ötulla og góðra manna brauzt í því að koma Vor- öld á fót. Ef við ekki munum þetta og styðjum nú fyrirtækið með ráði og dug, þá eigum við sannarlega skilið að verða leik- soppár þeirra sem reyndu af frem- sta megni að gera okkur jafna skynlausu skepnunum. En Voraldarbörn, við skulum hvorki láta taka frá okkur mál vort né bros. Við skulum hiklaust halda máli voru fram hver sem í hlut á og við skulum hlæja hjart- anlega og hátt að hinum pólitíska vindhana honum Bildfell; við er- um nógu margir og nógu ríkir til þess að stöðva þann vitleysislega málsóknagogg. Munum, að mörg hönd vinnur létt verk ef við leggj- um saman þá getur Voi'öld grætt stórfé og fylgi á þessu uppþoti Bildfells og svo skulum við hlæja hátt og lengi að honum vesalings spéhrædda Bildfell; svo hátt að undir taki í hinni dularfullu Col- umbia byggingu; svo hátt að það þrengi sér inn í sálu hinna þýzk- lyndu íbúa hennar, sérstaklega ritstjórann sem situr ogndofa yfir kaupenda lista Lögbergs sem styttist daglega hvernig sem rit- stjóri ilskast. Með vinsemd og virðingu til all- ra kaupenda Voraldar. Munið eftir honum spéhrædda Bildfell, ha, Ha, HA! Virðingarfylst, Gísli Einarson. Nes P. 0., Man. Kæri ritstjóri Voraldar: Hjartans þökk fyrir jólablaðið og Voröld í heild sinni. Jólablaðið var hreinasta afbragð pað bar af öllum jólablöðum sem út. hafa komið nú í 30 ár af íslenz- ku blöðunum eins og gull af eyri. Vinsamlegast, J. J. Húnberg Calgary, 20 jan. 1919 Kæru herrar: Fréttir verða fáar. Tíðin hefir verið ágæt hér það sem komið er af vetrinum svo elztu menn muna ekki annan eins vetur. Atvinna hefir verið nóg og góð alt að þessu og kaupgald hátt; en svo eru allar nauðsynja vörur sem verkamaður- inn þarfnast fyrir í afarháu verði, svo góða kaupsins gætir minna. Nú er samt farið að minka um vinnu og atvinnulausum mönnum að fjölga að mun. íslendingar eru fáir hér i borg- inni; einar átta fjölskyidur ak íslenzkar, fáeinir einhleypir menn og nokkrar konur giftar annara þjóða mönnum. Allir hafa land- ar vinnu að því eg frekast veit. Spanska veikin hefir gengið hér sem annarstaðar og orðið býsna mannskæð; en enginn landi hér hefir dáið úr henni, en flestir hafa þeir fengið hana að meira eða minna leyti. Vegna fólksfræðar höfum við landar engan íslenzkan félagskap meðal okkar og engir af ykkar leiðandi mönnum að austan lieimsækja okkur eða hafa nokkra við dvöl hér þó þeir fari hér um vestur og að vestan; vita máske tæplega að Islendingar séu búsettir hér. Vestur-íslenzku viku blöðin eru öll keypt og lesin hér og hefir Voröld flesta kaupendur. Landar fylgjast vel með í almenn- um málum, en skiftir eru þeir í skoðunum. Liberals sem fylgja Laurier stefnunni í pólítík héldu hér fjöl- ment þing undanfarna viku og voru viðstaddir flestir ráðherrar fylkisins og mörg önnur stórmenr.i Helztu gjörðir þingsins sérðu að sjálfsögðu í blöðum hér að vestan. Geta má þess að glímukappinn íslenzki Jóhonnes Jósefsson sýnir afrek sín í einu leikhúsi borgar- innar í dag og tvo næstu daga. Fieira hefi eg ekki til að tína upp að sinni. Eg legg hér með 2 dali sem borgun fyrir næsta ár- gang Voraldar og óska henni og Hecla Press Ltdí góðs gengis og vaxandi vinsælda. þinn einlægur, D. Johnson. góðir og göfugir íslendingar þessu, en þegar neyðin er mest er hjá.pin næst, og nú hafa margir hrundið af stokkunum blaði sem nú með einstakri einurð berst fyrir oss fyrir frelsinu okkar fræga og forna, sem sumir sýnast nú vera búnir að gleyma og glata. Já, þúsundfaldar þakkir vil eg gjalda og þúsund óskir mínar fylgi ykkur og blaðinu ykkar og okkar að það verði sönn leiðar- stjarna til réttlætis og umbóta. pinn einlægur, J. M. Elfros, Sask., 2. feb. 1919 Dr. Sig. Júl. Jóhannesson: Kæri ritstjóri: Eg sendi þér með þessum línum I greinarstúf sem eg ætla að biðja þig að ljá rúm í blaði þínu Voröld ef þú álítur hann þess virði að bvrta hann. Voröld er eina blað- ið sem eg kaupi og sem eg mun kaupa og styðja þegar eg hefi hentugleika til þess. Mér líkar stefna hennar sem flokksblað vel, og finn að hún er okkur nauðsynleg, svo lengi sem við viðhöldum blöðum á þeim grundvelli. Héðan úr þessu bygðarlagi er mjög fátt fregnbært, nema ein- muna vetrarblíða það sem af er, ög mjög lítið um “Flú” Stór partur hér í kring sem hún hefir enli látið afskiftalausan, og eg vona að svo verði í framtíð. Félagslíf hér er yfirleitt í kalda koli og býst eg við að slíkt eigi rætur sínar að rekja til veikinnar sem er enn siðloða fyrir vestan okkur og austan, þó í litlum stíl, sem betur fer. Fleira ekki markvert að þessu sinni. Virðingarfylst. Halli ÚR NÝJA ÍSLANDI Dr. Sig. Júl. Jóhannesson Kæri vin: Beztu þakkir fyrir Voröld og öll gullkornin sem hún færir okkur það væri sannarlega ! dimt yfir Vestur-íslenzka blaða heiminum núna ef að Voröld hefði ekki kom- ið til skjalanna, enda er hún keypt og lesin á hverju einasta heimili hér um slóðir og sumstaðar fleiri en eitt eintak. Eg held mér sé ó- hætt að fullyrða að Voröld hafi næstum því eins mikla útbreiðslu j hér í kring eins og bæði gömlu blöðin, Lögberg og Heimskringla til samans; þó býst eg við að kaup endum þeirra muni fremur fara fækkandi framvegis eða að minsta kosti heyri eg nokkuð marga ráð- gera að hætta að kaupa þau, finst það tæplega borga sig, enda býst eg við að Lögberg reki nú smíða- höggið á það núna. Allir kaup- endur Voraldar halda áfram að kauþa hana; okkur finst við ekki mega missa hana, ekki svo að skilja að eg álíti -Voröld alfull- komna fremur en annað í heimí þessum, en hún er þþ lang bezta og skemtilegasta íslenzka blaðið hér vestan hafs. Sumum finst hún nokkuð hvefsin með köflum og vil eg ekkert fara að forsvara hana fyrir því. Aldrei heyrði eg menn hlæja neitt að ádeilu greinunum til ritstjóra Lögbergs, kannske ekki alveg örgrant að einstöku maður hafi aðeins brosað í kampinn, en nú hlæja allir hátt síðan kæruat- riðin í máþihöfðun J. J. Bildfell’s komu fram í dagsljósið. Nú langar mig að spyrja einnar spumingar: Máske þú getir frætt mig um það ritstjóri góður, ef t.d. meinlaust bros getur verið tíu þús- und dala virði. Hvað mörg þús- und dala virði mundi þá þessi hlátur geta verið, og á hvers kost- nað verður það dæmt? Karl Forvitni. I Framnes, Man. 2. feb, 1919 Heiðraði herra: Beztu þakkir fyrir síðastliðinn árgang blaðsins, og eg vona að blaðið haldi áfram stefnu sinni, hvað sem á móti llæs, þó óvinir liennar, sem tyjgja auðvaldi os, kúgun vilji hana ur sögunni s m fyrst. Fasteignasaíinn og hans fylgi- fiskar munu finna það út, að dýr- keypt verður þeim að eyðileggja blað þeirra, sem vilja hrinda af sér þrældómsokinu þó þeir séu fátækir og smáir. Með beztu óskum. B. Johnson Hornfjöið Ebor, Man. 8. jan. 1919 Herra ritstjóri Voraldar: Hér með sendi eg þér $2.00 borg un fyrir næsta árgang Voraldar. það er með sannri ánægju að eg votta þér mitt innilegasta þakk- læti fyrir það sem út er komið af Voröld, því nú er þörfin brýn að vinna af öllum mætti að lagfæra alt það ódæma, já, alt það himin- hrópandi ranglæti sem við erum umkringdir af, og hefir verið skapað í skjóli við stríðið undir vemdarvæng þessara. ódyggu stjórhar, og brenn af sorg og gromj’i að ti! þes-v;, ódæðis hafi hjálpað blöð sem eru á íslen'd.u máli eg sem vér höfum hjálpað ti' að Jnoskast. Ókjör okkar hér í Canada nú eru svo átakanleg að engimi maður sem fæddur er af frjálsri móður getur lifað un.iir KAUPIÐ S0LÖLD! Stórþing Norðmanna hefir sent Alþingi Islandi svo hljóðandi skeyti: ‘ ‘ Stórþing Norðmanna flytur íslenzku þjóðinni samfagn- aðar kveðju og sínar innilegustu hamingjuóskir í tilefni af fengnu fullveldi. ’ ’ Rannsókn hefir staðið yfir um það hver sé fæðingardagur Alb- erts Thorvaldsens; er kbmist að þeirri niðurstöðu að hann sé fædd ur 17. nóv. 1770 og að 150 ára af- mæli hans verði því haldið haustið 1920. Vísir er nýkominn til 18. janúar. þar er frá því skýrt (eftir Fróni) að fnllveldi íslands kosti þjóðina um 80,000 kr. á ári. Efu í því tald- ar 50,000 á borð með konungi; 12- 000 til utanríkisstjórnarinnar, og viðlíka upphæð til íslenzkra skrif- stofunnar í Kaupmánnah. Látin er í Reykjavík Jónína þórðardóttir, kona Eymundar Steinssonar. Einmunatíð og hlaðafli á íslandi Taugaveiki hefir gert vart við sig á stöku stað í Reykjavík. Sagt að “Laitdið” “Fréttir” og “Norðurland” séu að hætta að koma út. Verkamannakaup er ákveðið í Reykjavík 90 aurar um klukku- tímann fyrir dagvinnu og 1,15 fyr- ir næturvinnu. Blaðið “Vestri” á ísafirði er hætt að koma út, og sömuleiðis “þjóðólfur” Ástkæra, ylhýra málið, allri rödd fegra. ^ —Jónas Hallgrímsson. Mæður og feður eru börnin ykkar að glata föðurarfinum—móð- urmálinu? Er þeim að deyja á vörum ástkæra, ylhýra málið, allri rödd fegra. Og hverjum er um að kenna ? Er það ekki náttúrunnar eðli að barnið mæli það mál sem það nau’ist við af vörum foreldra sinna—sem því þykir fagurt-? Og hvað er fegurra en sumar gömlu, góðu vísumar íslenzku sem þú sjálf- ur iærðir á móðurknjám----? Sólöld mun leytast við að vekja ein- mitt þetta, löngun og fegurðar tilfinningu bama og unglinga gagn- vart helgidómi þeirra—móður málinil, föður arfinurm Sólöld mun koma eins og bjartur geisli inn í heimilið—tvisvar í mánuði. Skrifa þig fyrir Sóiöld í dag. Aðeins $1.00 á ári. þar sem síðustu verzlunarskýrsl ur vorar, sem nú eru í þann veginn að koma út, eru fyrir árið 1915, getum vér eigi af þeim séð hversu viðskiftunum við önnur lönd liefir verið háttað síðustu árin. En hingað hefir borist útdráttur úr verzlunarskýrslum Bandaríkjanna cr sýnir verzlun þeirra við íslend’ inga fram að miðju þessu ári 1918. Tölur þær er hér fara á eftir sýna hve mikið héfir verið flutt héðan til Bandaríkjanna (innflutningur) og hve mikið hefir verið flutt það- an hingað til lands (útflutningur) Að því er ártölur snertir skal það tekið fram, að lúiðað er við fjár- hags árið, sem er frá .. júlí til 30. júní (t.d. 1918 er 1. 1917—30 júní 1918) Innfl. $ Útfl. $ 1908 56,774 22,908 1909 63,210 28,982 1910 140,231 3,106 1911 53 5,999 1912' 30,077 18,968 1913 99,125 33,977 1914 86,813 15,855 1915 83,866 183,140 1916 56,273 151,447 1917 443,359 1,003,564 1918 930,000 1,807,000 Fyrir ófriðinn voru viðskifti vor við Bandaríkin mjög lítil og óstöðug. Hélzt það ástand einnig fyrstu ófriðárárin, en svo verðui’ gagngerð breyting tvö síðustu ár- in, er bæði inn- og útflutningur vex afskaplega mikið. Við sam- anburð á tölum þeim, sem hér eru tilgreindar, verður þó að gæta þess að verðmagnið hefir aukist mikið meii en vörumagnið. Árið 1918 (þ.e. 1. júlí 1917—30. júní 1918) hafa Bandaríliin flutt inn vörur héðan fyrir 0.9 milj. dollara eða um 3.2 milj. kr.—það er verð var- anna þar í höfn. Sama ár hafa Bandaríkin flutt út vörur hingað til lands fyrir 1.8 mi!j. dollara eða um 6.3 milj. kr. Er það verð var- anna í Bandaríkjunum, en heim- fluttar má áætla að þær kosti um 8 milj. kr. Vörur þær sem fluttar vorn út frá Bandaríkjunum til ís- lands, voru árið 1917 (um vöru- tegundir er ekki fyrir hendi skýrs- la fyrir árið 1918). Maísmjöl...............$ 42,379 Völsuð hafragrjón.........120,019 Haframjöl .............:.... 275 Hveiti....................293,975 Bifreiðar...................5,134 Kol....................... 11,812 jKoparþráður............... 23,723 I Vefnaðarvörur...........154,850 iSaumavéiar.................6,637 Járn- og stálvörur ........40,274 l'Leður....................36,677 . Skófatnaður..............68,864 | Kjöt og önnur matvæli (aðall. úr dj'raríkinu).132,184 iSteinolía................ 48,825 Srnumingsolía .............21,080 i Bensín ...................6,633 Pappír og pappírsvörur .....4,563 Sápa...........:............3,167 i Sykur...................196,161 í Tóbak.....................6,157 (Versl. tíð) Norðurlönd Danmörk: Nefnd hefi verið skip- uð í sameiníngu frá Danmörk, Svíþjóð og Noregi til þess að koma fram með tillögur viðvíkjandi hlutlausum löndum, er lagðar verði fyrir friðarþingið í París. 1 nefndinni eru þessir: Frá Danmörk: Herluf Zahle utan- ríkismála ráðherra; I. Elan ráð- herra og T. Neergaard, þjóðþing- maður. Fyrir Noreg: Hagerup ráðherra; Joachim Greig útgerðar maður og B. Lange aðal skrifstofu stjóri. Fyrir Svíþjóð: Marks von Ewerlöf, sendiherra í Vínarborg Nefndimar hafa haldið fundi svo að seðja daglega frá því í nóvemb- er og hafa komið sér saman um öll | aðal atriðin sem ætlast er til að hlutlausu þjóðirnar leggi fram fyr ir friðarþingið. Aðallega er þar fjallað um hið fyrirhugaða al- þjóða samband. þar er það lagt til að allsherjar sættanefnd eða gerðardómur skeri úr -öllum mál- um milli þjóða á sama hátt og nú er gert milli einstaklinga, að stofnað sé alþjóða þing þar sem fulltrúar mæti frá öllum þjóðum til þess kjömir af fólkinu og ræði þar alþjóða mál og ráði þeim til lykta; sömuleiðis á þetta alþjóða þing að beita sér á móti öllu því! er miðað geti til þess að ala upp stríðslanda eða mæla honum bót. Seglskipið “Kasper” fórst í nóv | ember mánuði nálægt Færeyjum.' Sex af skipsverjum komust upp á litla eyju og voru þar í 15 daga þangað til þeim var bjargað af skipi sem fram hjá sigldi. þrjá fyrstu dagana höfðu þeir ekkert | til viðurværis nema þrjá fugla;! eftir það náðu þeir í þrjár kindur og slátruðu þeim sér til matar. Mennirnir voru mjög aðfram komnir af vosbúð og kulda. Pólitiken skýrir frá því að jarð- ir í Danmörku séu mjög að lækka í verði. Nýlega hafði einhver brotist inn í dómkirkjuna í Randers og stolið þaðan ljósahjálmunum. Danir hafa ákveðið að byggja þakklætis og minnismerki í tilefni af því að þeir komust hjá þeim hörmungum að lenda í stríðinu. A það að verða kirkja sem ákveið er að rejsa. Á Sjálandi voru hjón sem áttu ellefu börn; bóndinn veiktist af spönsku sýkinni og dó; konan var veik en hafði fótavist; bömin veiktust öll og móðinin var alein að gæta þeirra. Loksins varð hún sjálf svo veik að hún lagðist einn- ig og var um enga hjálp að ræða svo dögum skifti þangað til ná- granna kona kom þar af hendingu annars hefði öll fjölskyldan dáið. Stórkostlegt fyrirtæki hafa Dan ir á prjónunum. það er hvorki meira né minna en ag breyta Jót- lándsheiðunum í ræktað og arð- berandi land. þriggja manna nefnd starfar að því og virðist út- lit gott og fyrirtækið framkvæm- anlegt. II. Oftenfeld, Sjálands biskup, hefir sent hirðisbréf til presta og annara leiðandi manna, þar sem hann minnist stríðsins og flytur Guði þakkir fyrir það að hafa verndað Dani frá bölvun þess og eyðilegging. Biskupinn óskar þess að framtíðin beri í skauti sínu betri og bróðurlegri samvinnu milli Dana og Islendinga en verið hafi. Jafnaðarmenn í Danmörku eru í undirbúningi með það að koma á stjórn þar í landi með því fyrir- komulagi sem þeir prédika. í Hjörring héraði hefir bóndi sem Lauritz Christensen heitir fundið steinhvelfingu í jörð; eru þar í margir fagrir munir, sérstak- lega allskonar ker. Er álitið að þetta sé frá steinöldinni. Svíþjóð. I svenskum blöðum er mikið rætt um friðarþingið og framtíðar fyrirkomulag heimsins. Svíar fara mjög hörðum orðum um þær tiltektir að Norðurlönd skyldu vera útilokuð frá því heimsþingi, sem á rökstólúm sitji til þess að semja nýja stefnu er heiminum í heild sinni skuli stjórnað eftir. Telja blöðin það gjörræði að viss- ar þjóðir taki sér það vald sakir þess að þær séu nógu sterkar til þess að þær einar skuli ráða al- þjóða fyrirkomulaginu eða semja nokkurskonar alþjóða grundvall- arlög, í stað þess að kalla þar all- ar þjóðir. “Að bjóða Norður- landa þjóðunum á þetta þing var sjálfsögð skylda,” segir Svenska Dagbladet. “En að neita þeim um það þegar þess var krafist, það er óafsakanlegt. ” Og sama blað segir enn fremur: “það er ekki laust við að gamlar menningar- þjóðir, eins og Norðurlandaþjóð- irnar, ypti öxlum við því að t. d. Panama, Honduras og Haiti skipi friðarþingið og semji framtíðar alþjóða stefnuskrá, en þær séu úti- lokaðar. Að þetta eigi að vera í þóknunarskyni fyrir það að hinar þjóðirnar hafi veitt þjónustu sína í stríðinu eins og komist hefir ver- ið að orði. pað er engin virðing málspörtum og engin afsökun. Blaðið “Social Demokraten” segir: “Útlit er fyrir að frið- arþingið hagi þannig til að stór- þjóðirnar ráði þar öllu, en hinar smærri verði með þögn og þolin- mæði að beygja sig úndir ákvarð- anir þeirra. ‘ Svenska Dagbladet ’ segir síðar frá því að Norðurlanda þjóðirnar hafi gert ákveðnar kröf- ur um það að fá að senda fulltrúa á friðarþingið, en því hafi ekki verið svo mikið sem svarað. Legg- ur blaðið það till að nefnd sem Norðurlanda þjóðirnar höfðu skip að til þess að gera tillögur um ak þjóðasambandið geri niðurstöðu sína opinbera til þess að heimurinn viti um afstöðu þeirra og stefnu í þessu máli sem jafnt snerti allar heimsins þjóðir. Frjálslynda blaðið í Svíþjóö “Dagens Nyheter” birtir grein 11 janúar sem segir meðal annars: “Hásætisræða Gustafs konungs í dag skýrði frá því að Svíþjóð óski eftir að taka þátt í tilbúningi þeirrar alþjóðastjórnarskrár sem nú verði samin og hafa tillögurétt í því nýja fyrirkomulagi sem verið er að mynda. Hingað til hafi ekk- ert svar fengist við þeirri ósk og sama sé að segja um systurríki Svíþjóðar. “Svo lítur út,” segir konungurinn, “að hlutlausu Ipnd- in séu flokkuð út af fyrir sig af sigurvegurum á heimsþinginu, þó þeir setji þau að vísu skör hærra en hina yfirunnu óvini sína.” Voröld og Sólöld Hérmeð birtist listi af útsölumönnum “Yoraldar” í ýmsum bygð- um íslendinga, og eru áskrifendur bfaðanna “Sólöld” og “Yoröld.' vinsamlega beðnir að snúa sér til þeirra. Vér munum bæta við þennan lista nöfnum fleiri góðra stuðniug manna vorra, áður en langt líður til-að gera áskrifendum sem hægast fyrir. Gestur Oddleifsson.......................Arborg, Man. Hrólfur Sigurðsson................. Arnes, Man. G. O. Einarson.....................Bifrost, Man. J. P. ísdal........................Blaine, Wash S. Loptson...................Churehbridge, Sask. S. G. Johnson...............Cypress River, Man. Jón Jónsson, frá Mýri.....................Dafoe, Sask. O. Thorlacius...................Dolly Bay, Man. Ungfrú prúða Jackson.....................Elfros, Sask. Jón Einarson................:..Foam Lake, Sask. Tryggvi Ingjaldson......................Framnes, Man. Sveinn Bjömsson......................... Gimli, Man. J. J. Anderson........................ Glenboro, Man. M. M. Magnusson................'....Hnausa, Man. Jón Jónsson frá Mýii ............Kandahar, Sask. T. F. Björnsson........................Kristnes, Sask. J. Olafson...............................Leslie, Sask. Sveinn Johnson ................ Lundar, Man. Jónas J. Ilunford..............Markerville, Alta. Grímur Laxdal .................. Mozart, Sask. Ingvar Goodman ............roint Roberts, Wash. Gísli EinarSson........................Riverton, Man. Clemens Jónason ............... Selkirk, Man. Th. Anderson..............So. Bellingham, Wash. Snorri Jónsson.........................Tantallbn, Sask. - Gisli Johnson.................The Narrows, Man. Wm. Anderson, 1456 Argyle Place, Vancouver, B. C. J. Ásg. J. Lindal, 3412 “S” St...Victoria, P>. C. .Björn I. Sigvaldason......................Vidir, Man. Finnbogi Hjalmarson..........Winnipegosis, Man Asgeir I. Blöndal.................Wynyard, Sask

x

Voröld

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.