Þjóðhvellur - 21.09.1907, Side 1
ÞJÓÐHVELLUR
BLAÐ TIL SIvEMTUNAR, FRÓÐLEIKS OG ALVARLEGRA ATHUGANA
Nr. 14 REYKJAYÍK, 21. SEPT. 1907. I, J. íirsij.
Jóhann Ármann Jónasson, úrsmiður,
Laugaveg 12._______________________Telefón 112.
Kaupmenn og alþýða.
Dýrir tímar.
Um þessar mundir er mjög um pað
talað hér í Vik, hvernig á því standi
að hinar ýmsu nauðsynjar, er menn
þurfa sér til framfærslu, hækki nú svo
ótt i verði. Niðurstaðan hljóðar á
ýmsan veg, og verður hjá allflestum
sú, að eðlilegar orsakir liggi þó ekki
til grundvallar.
Á dögunum hækkuðu öll brauðgerð-
arhúsin hér vöru sína alt í einu svo
geypilega, að býsn þóttu. Menn höfðu
engan grun um ástæðuna, því mjöl og
annað verkefni bakara haíði ekki hækk-
að á markaðinum ytra. Hér gat því
varla verið um annað, en samtök ein
að ræða — gjörræði gagnvart alþýðu
manna.
Kolakaupmenn hér hafa hækkað svo
verð á kolum, að allur fjöldinn fær
þau ekki undir 5 kr. i smákaupum.
Pótt þessi hækkun sé sögð stafa af
hærra verði ytra, og aukinni eftirspurn
liér, — sem aðallega mun vera fólgin
í trollarastraumi þeim, sem hingað er
farinn að sækja kolaföng sín við og
við — þá er engin sönnun fyrir því,
að hér geti ekki lika verið um athuga-
verð samtök að ræða. — Að minsta
kosti er sjálfsagt að ganga út frá því.
Allir vita um steinoliuna. Hún hefir
hækkað svo úr hófi fram, að meðal
kaupmanna er hún ekki fáanleg fyrir
minna en 25 til 30 kr. tn. — 5—10 kr.
dýrari en í fyrra. — Eins og kunnugt
er, á þessi hækkun rót sín að rekja
til þess, að kaupmenn hér hafa látið
ameríska miljónamæringin Rockefeller,
hefta sig — fengið honum í hendur
alla olíuverslunina og þar með sett
eðlileg viöskifti i fjötra.
Sem vonlegt er, þykja þetta alt ann-
að en frjálslegir ijörkippir hjá reyk-
Jónatan Porsteinsson, kaupm.,
Húsgagnaverslun. Laugaveg 31. Telefón 64,
víkskum kaupmönnum, og anda þeir
þvi fúlt á ahnenning á þessum tímum.
Pykist hann sjá svarta skýslakka renna
upp á íslenskan viðskiftahiminn, sem
spái illu einu i framtíðinni. Menn eru
smeikir um það, og þykjast þess full-
vissir, að úr þvi að ísl. kaupm. í Reykja-
vik hafa á þessu sumri látið útlent
auðvald leggja hespu að hálsi sér, að
því er frjálsa og eðlilega verslun á olíu
snertir, þá muni þess mjög skamt að
bíða, að ýmsar fleiri vörutegundir fylgi
á eftir.
Petta er eðlileg hugsun. Pví hvar
sem auðkýflngnum hefir tekist að leggja
undir sig einhvern lið viðskiftalifsins
—- hefir tekist að bregða snörunni og
fengið endann í sínar hendur, heflr
hann ekki þurft annað en að kippa í
lítilsháttar til þess að koma að nýjum
einokunarbrellum, — og þar sem snar-
an heflr legið að hálsi kaupmanns eða
kaupmanna, þá þekkja þeir býsna vel
sársaukann undan átakinu, — kaup-
maðurinn hefir fallið til jarðar —sagt
já og amen og stunið undan ijötran-
um. — Pegar svo er komið er hann
ekki frjáls kaupmaður lengur, sem verð-
skuldar traust almennings, hann er
viljalaust verkfæri, er nauðugur viljug-
ur verður að hneyja sig og beyja und-
an okurvaldi auðvaldans. — Pessi
leikur er alkunnur i heiminum að vísu,
en óþektur á okkar landi fyr en nú að
tjaldið er dregið upp og fyrsti þáttur
leikinn. Rockefeller hinn ameríski er
fyrsta persónan, danskur umboðsmað-
ur hans önnur og ísl. kaupmenn nr. 3
á leiksviðinu. — Pannig eru nú skipin
gerð og þvi engin undur, þótt mörg-
um sé þungt í huga.
Almenningur verður því að hafa ó-
bilugt auga til þess nú strax að sjá, að
hér er verið aö reyna að hefja nýtt
einokunartímabil, — og að það er á
hansvaldi, almennings, hvort hann vill
sæta því eða ekki. —
Eina ráðið til þess, að verjast þess-
C. & L. Lárusson, Laugaveg, 1,
Reykjavík. Póstliólf A. 31. Telefón 10.
um ófögnuði eru samtökín — heppileg
samvinna, er til sé stofnað með ráði
vitrustu manna, er verkamanna- og
iðnaðarflokkarnir hér eiga til. — En
ef slík ráéli eiga að geta komið að not-
um, verða allir þátttakendur í slíkum
samtökum að standa sem einn maður,
með áreiðanleik í orði og verki, forð-
ast öll fals- eða l'agurgala-bráðabyrgða-
loforð frá hendi þess, er vaflnn er
tjóðurbandi þúsundanna.
Án þessa, er ekkert hægt að gera
fjöldanum til bjargar.
Nú undanfarið bafa menn ekki stað-
ið þegjandi um þetta mál; þeir hafa
rætt það sín á milli á ýmsan veg og
spurt hvern annan:
»Hvað á að gera?«
Verkamenn og iðnaðarmenn ýmsir
hafa haldið fundi og valið fulltrúa til
þess að ihuga hvað gera eigi. Sú full-
trúanefnd heflr nú látið uppi álit sitt
opinberlega og gert almenningi þar
með kunnugt, hvað hagkvæmast sé í
þetta sinn, eins og málið liorflr nú við.
Mikill fjöldi manna heflr fallist á til-
lögur nefndarinnar og haflð kaup á
kolum og steinoliu, án minsta fulltingis
kaupmanna hér, og er það þýðingar-
vert spor og mikils vísir, ef það tekst.
Og þótt þau viðskifti í þetta sinn verði
hvorki eins stórfeld né hagkvæm eins
og verið gætu, ef bráðari bugur hefði
verið undinn að málinu, þá er víst, að
alvarleg hreifing, sem hlýtur að lifa og
dafna, er lcomin á það, og samtök hafin
gegn því, að kaupmenn kúgi alþýðu
til þess að borga lífsnytjar sínar hærra
verði en sanngirni krefur.
Og sannarlega er kominn tími til
þess, að bæði kaupmenn og fleiri þreiíi
á því, að alþýða manna er ekki dauð
úr öllum æðum, þurfa að finna, að
hún hvorki vill né þarf eðborgaþeim
lífsnauðsynjar sinar með blóði ör-
byrgðar sinnar né fátæktar. — Sátími
er horfinn, og getur naumast runnið á
»Þjóðhvell« geta menn fengið keyptan í Söluturninum á Lækjartorgi. — Eintakið á 10 a,