Þjóðhvellur - 01.05.1909, Qupperneq 2
106
Þjóðhvellur
Klæðaverzlun Guðmundar Sigurðssonar.
Reykjavík.Telefón 77
um tekinn af alþingi, með fimtán
mannavali, og kjörinn af konungi
suðrí Iíhöfn sem ráðherra yfir Is-
landi 30. dag marzmánaðar 1909.
Er það því vegsauki mikill land-
varnarflokknum, að hann skyldi
úr honum valinn vera af Dana-
konungi. Og má sá flokkur mjög
þakka Dönum fyrir þann stór-
kross, er lionum hefir í raun og
veru hlotnast með þessu sögulega
og stórmerka ráðherravali.
Stjórnarráðið hefir, eins og kunn-
ugt er orðið, tekið þeim breyting-
um, sem vilji og vísdómsfull undir-
og yfirmeðvitund vors nýja yfir-
valds vildi vera láta, og er því
óhætt að fullyrða, að sú stofnun
megi úr þessu með rjettu nefnast
íslands nýja Hetleliem.
Leikmótið á Austurvelli
2. maí.
Eg var þar staddur — var narr-
aður þangað, eins og fleiri.
Eg skil ekkert í glímufélaginu
»Ármann« að bjóða almenningi
upp á annað eins »íþróttamót« og
það hélt hér þennan sunnudag á
Austurvelli. Það þarf kjark til
annars eins. — Að safna að sér
hundruðum áhorfenda, ekki ein-
ungis innlendum, heldur líka tug-
um útlendra, og sýna sama sem
ekki neitt, eða verra en ekki neitt
— það er svei mér ekki til að
auka álit íþróttafélaganna hér, ef
nokkur eru. — og allra síst bjóst
eg við þessu af »Ármanns«-fél., sem
bæði er fremur gamalt í hettunni
og hefir hingað til notið maklegs
álits hér hjá almenningi. — Jæja,
látum vera, þótt þeir gengu eftir
bumbuslætti og kæmu stundar-
fjórðungi of seint — óstundvísi er
einkenni flestra hér um slóðir, —
en úr þvíj þeir gengu hermanna-
gang til þessa móts, hefði þeim átt
að vera vorkunnarlaust að bera sig
Lífsábyrgðarfélagið »Standard«,
Klapparstig 1.Reykjavik.
Pétur Brynjólfsson, ljósmyndari,
Hverfisgötu. Reykjavík. Telefón 76
tilgerðarlaust og fallega til á göng-
unni; vel vaxnir menn njóta sín
alls ekki, ef hverri hreifingu fylgir
meiri og minni tilgerð. — Kapp-
hlaupið var fjörlaust og enginn
veigur í því og hið svonefnda
höfrnngahlaup var svo illa af hendi
leyst að leiðindi var á að sjá, og
alt var eftir því, og þó var það
sem sýnt var hvorki annað eða
meii’a en bai-naskólaæfingar í smá-
um stíl.
Þegar eg stóð þarna við girðing-
una og horfði á þetta stjórnlausa
lítilrœði, flaug mér í hug Fergusons-
félagið, sem sýndi tvívegis, svo eg
sá, ýmsar íþróttir á láréttri stöng
og fleiri tækjum, á þessum sama
stað, fyrir 12—13 árum. Það félag
var barnungt, en laut góðiá stjórn;
enda man eg, hvað fólk skemti
sér Vel við að horfa á fimleika
þess, það félag varð skammlíft, fór
í mola, er formaður þess, Fergu-
son, enskur prentari, fór af landi
burt. —Ármannsfélagið má spjara
sig, ef það vill ná listfengi Fergu-
sonsfélagsins; ennþá er það ekki
einusinni skuggi af því — að glím-
unni fráskildri, sem »Ármann« á
heiður fyrir að hafa hafið til vegs
og gengis, án þess að glíman, sem
þarna fór fram, væi'i nein dásemd.
Svo er það líka sára-leiðinlegt,
þótt aldrei nema um smáleikmót
sé að ræða, að sjá alt ganga á tré-
fótum, sjá enga reglu á neinu, en
svo var þarna, og því til sönnun-
ar má t. d. benda á, að þegar á
milli var, mátti sjá, hvar einn var
að sýna handahlaup, annar að
reyna til að standa á höfði, þriðji
að »hlaupa yfir sig« o. s. frv. —
Iþróttamenn, sem skilja sitt verk,
»slá ekki um sig« með slíkum út-
úrdúrum, er þeir halda hóp og
lúta stjórn.
Há-Bendix.
Úrsmíðavinnustofa Carls Bartels,
Laugaveg 5.Telefón 137.
Náttúrufrœdin grœðir!!
Allir vita það, bæði hér í Vík-
inni og víðar, að á Grænlandi og
öðrum Norðurheimskautslöndum,
hefir mönnum undanfarið aðeins
verið kunnugt um eina tegund
bjarndýra, sem í daglegu máli er
oftast nefnd Isbjörninn. En mönn-
um til mikillar undrunar kvað nú
fyrir skömmu hafa fundist hér í
landhelgi spendýr, af nákvæmlega
sama kynstofni og sem náttúrufræð-
ingar nefna Skrið-IIjörn; kvað
hann mest lifa á tevatni og tvíbök-
um annara dýra. — í heimi nátt-
úruvísindanna iðar nú, eins og
eðlilegt er, alt af fögnuði yfir þess-
ari stórmerku uppgötvun.
Geníus.
Tilmæli fjögra meyja.
Eftirfarandi bréf var ritstj. þessa blaðs
fært með morgunkaffinu á annan í pásk-
um:
„Herra ritstj.!
Af pví við gerum ráð fyrir, að ritstjórar
hinna blaðanna þykist upp úr því vaxnir,
að gefa okkur upplýsingar um ofurlítið
spursmál, er við vorum að þrætast um í
gær, vildum við snúa oss að yður og biðja
yður um, að leysa úr því, eins áreiðan-
lega og yður er mögulegt, og færa okkur
svarið í blaði yðar næst.
Spurningin er:
Hvernig farið sé að, eða hver sé hin
bezta og áreiðanlegasta aðferð til þess að
spá í bolla eða kaffikorg.
Virðingarfylst.
Fjórar yngisvieyjar.
Enda þótt oss væri miklu geðfeldara,
að komast í kynni við þessar yndismeyjar,
sem hljóta að vera mjög hugsandi, og
skynsamar verur með afbrigðum, og rabba
við þær um ofanritað spursmál, heldur en
að gera það að blaðamáli, viljum vér þó
með ánægju láta þeim í té eftirfarandi
leiðarvísi:
Kaffikorginum er langbezt að hella á