Þjóðhvellur - 01.07.1909, Side 2
110
Þjóðhvellur
Klæðaverzlun Guðmundar Sigurðssonar.
Reykjavík. Telefón 77
og innstæðufé landsbankans beri nokkr-
ar menjar Björns eitthvað fram eftir ári.
— Ja, hvílíkt ráðlag! Eg féll í stafi í
vor um lokin, þegar eg „kom inn“, er
maður sá, er geymdi skilríkin fyrir inn-
stæðu minni 1 bankanum tjáði mér frá,
að hann hefði ekki þorað annað en rífa
hana út, vegna ráðstafana Björns gamla.
— Þá bölvaði eg Birni í fyrsta sinni.
Eg má ekki vera að skrifá meira;
skipið kveður mig til farar — og þó er
svo margt fleira, sem eg vildi þér sagt
hafa um ráðherrabrallið frá mínu sjón-
armiði, en eg verð að sleppa því nú. Eg
hefi í hug, að semja ofurlítið yfirlit eða
skrá yfir það, þegar eg er seztur um
kyrt í haust. Ef þú tórir, þá birtirðu
það fyrir mig með feitu letri. Það er
ágætt að eiga það til fróðleiks, viðvör-
unar og athugunar komandi kynslóð-
um. Eg vil heldur að þú birtir það;
það gerir pappírinn; hann er betri í þér
Og varir lengur en pappírinn í hinum
blöðunum, sem molnar upp og verður
að ösku eftir nokkra tugi ára. Og svo
eru hin blöðin ekki svo frjálslynd, að eg
geti búist við að fá þar rúm, nema ef
eg hefði auglýsingu.
Þjóðólfur hefir reyndar verið uppáhald-
ið mitt alla daga, og er það enn að einu
leyti, en meðan hann heldur á blævæng
ráðherrans, og er háður þeim dróma,
sem forsetaförin, og heigulsháttur henn-
ar, virðist hafa varpað yfir tilveru hans,
hugsa eg ekki um rúm í honum. En
bið guð, eins og herkerling, að styrkja
hann í hinu pólitiska svartnætti.--------
Um Isu er ekki að tala; hún er söm æ
og jafnan.
Vertu sæll og reyndu að hjara.
Þinn H é ð inn.
Englands banki.
Hin lang-frægasta og voldugasta pen-
ingastofnun heimsins er Englands banki.
Hann gegnir öllum vanalegum bankastörf-
um, en hefir auk þess sérstakt umboð á
hendi af hálfu stjórnarinnar. Hann er
hvorki stjórnareign eða stjórnarstofnun, en
hefir samt sérstök réttindi og einokunar-
Lífsábyrgðarfélagið »Standard«,
Klapparstíg 1. Reykjavík.
vald í fjárhagsmálum Bretastjórnar, og er
í raun réttri fjárhirzla Bretaveldis að öllu
nema nafninu. Hann geymir alla peninga
stjórnarinnar, tekur við öllum tekjum rík-
isins og borgar öll útgjöld þess, smá og
stór. Hann annast allar skuldir Breta-
veldis og borgar alla vexti af skuldabréf-
um stjórnarinnar. Þing Breta hefir veitt
honum umboðsvald til alls þessa, og fær
fyrir það í ómakslaun hjá stjórninni um 4
miljónir króna á ári.
Saga bankans og öll starfræksla hans
er stórmerkileg, eins og geta má nærri,
þar sem er aðalpeningastofnun Breta og
mestu fjárhagsfræðingar þeirra hafa flestir
átt þar einhvern hlut að máli. Flestar
aðrar þjóðir öfunda Breta af banka þess
um, því engin önnttr þjóð á jafnöruggan
banka í eigu sinni; og ofl hefir það verið
viðkvæði í Bandaríkjunum, þegar bankar
hafa orðið þar gjaldþrota, hvað því muni
valda, að Bandaríkin skuli ekki geta átt
einn einasta banka eins áreiðanlegan og
Bretar.
Englands banki var stofnaður 1694 af
skozkum manni, William Paterson að
nafni, og fékk stjórnina til þess að veita
bankanum þau einkaréttindi, er hann hefir
jafnan haft síðan. Paterson var hetja að
dugnaði og stóð oftast í stórræðum um
dagana. En það fór fyrir honum, eins og
svo mörgum afreksmönnum sögunnar bæði
fyr og nú, að hann var tortrygður afþjóð
sinni og grunaði hann um svik og pretti,
svo hún sneri við honum bakinu; var
hann flestum framsýnni í öllum fyrirtækj-
um, en mishepnaðist svo hrapalega fyrir-
ætlanir sínar, að þau óhöpp hans hafa
irtest haldið nafni hans á lofti. —
I það mund er bankinn var stofnaður
voru Bretar í fjárkröggum og upphaf hans
var það, að nokkrir auðmenn hétu að
lána stjórninni 1,200,000 pd. sterling gegn
8°/o vöxtum og 2 milj. kr. afborgun á ári.
Auðmenn þessir mynduðu félag, þingið
samdi bankalög fyrir fél. og veitti heim-
ild til að gefa út seðla fyrir lánsupphæð-
inni. Hefir lögunum verið breytt eftir
kröfum tímans, en stjórn bankans og fyrir-
komulag er svipað því, sem það var í
fyrstu. Engir hafa verið í stjórn hans, er
afskifti hafa haft af stjórnmálum ríkisins,
og skorður reistar við því, að pólitisk á-
Úrsmiðavinnustofa Carls Bartels,
Laugaveg 5.Telefón 137.
hrif ráði nokkru um það, hverjir fái æstu
embættin í stjórn bankans.
Upphaflega var höfuðstóll bankans
1,200,000 sterlingspund, en hefir oft verið
aukinn og er nú orðinn um 15 miljónrr
punda. Allir seðlar bankans eru nfentaðir
og gefnir út í bankahúsinu sjálfu og 25,000
seðlar prentaðir á hverjum einasta virk-
um degi. Öll seðlafúlga bankans, =em nú
er útistandandi, nemur 864 milj. króna;
lægsta ákvæðisverð seðla, sem hann gefur
út, er 5 pd. sterling, en hæsta 5,000 og
10,000 pund sterl., en í sérstökum tilfell-
um hefir hann þó gefið út 100 þús. punda
seðla, og til er þar einn gamall seðill,
sem gilti eina miljón pund sterling (== 18
milj. kr.) og hangir hann nú í umgjörð á
vegg í skrifstofu útgáfudeildar bankans.
Skatturinn, sem bankinn borgar árlega af
allri seðlaútgáfunni, er um 1 milj. og 500
þús. kr.
Engan seðil lætur bankinn fara frá sér
oftar en einusinni. Hver seðill er gerður
ógildur jafnskjótt og hann kemur þangað
aftur, hvort sem hann er nýr eða gamall.
A hverju kvöldi, þegar bankanum er lok-
að, eru allir þeir seðlar, sem komið hafa
inn þann dag, sendir inn í „gömlu seðla1'-
skrifstofuna, og eru þar vélar, sem lclippa
hvern seðil í tvo jafna hluta og eru svo
allir þeir seðia-helmingar vafðir í umbúðir
og skrifað utan á þá ártal og mánaðar-
dagur, og með þeim ummerkjum eru seðl-
ar þessir geymdir í 10 ár í einni af hvelf-
ingum bankans neðanjarðar svo þeir séu
til taks, ef á þarf að halda til sönnunar í
málaferlum. Síðasta laugardag hvers mán- ■
aðar, eru allir þeir seðlar teknir og brendir^
sem komið hafa inn í bankann sama mán-
uðinn tíu árum áður. (Niðurl. næst).
JE3i*éf t appiixn.
Eg bið hina reykvíksku þjóð velvirðing-
ar á því, að alt of lengi hefir dregist að
birta henni eftirfarandi ljóð. Einkum
vona eg, að templarar virði mér á betri
veg þann drátt, þegar þeir hafa lesið á-
stæður að honum. Þær eru að vísu hálf-
óviðfeldnar, en mér alveg ósjálfráðar þó.
Eg orti kvæðið fyrir tveimur árum, og
ætlaði eg auðvitað þegar í stað að iáta