Þjóðstefna - 20.07.1916, Side 3
þJÓÐSTEFNA
Frá, landssímanum.
‘Jtá áegxnttm \ áag og um jxnn oetBa
sVó^vavnM Reykjavík, Isafjörður
Borðeyri, Sauðárkrókur, Siglu-
fjörður, Akureyri og Seyðisfjörð-
ur opnar jtá M, 8 ir&egxs W \ö sÆó.
Lífsábyrgðarfélagið
5)axvxxvavfe
Vátryggingarfjárhæð 90 mllljónir.
Eignir 21 milljón. Þelr sem vllja
tryggja Iff sitt, til þess að auka láns-
traust sitt, geta ekki verið of var-
kárir f vali. — Danmark er vegna
auðæfa sinna og viturlegu stofnun-
ar rétta félaglðtil Ifftryggingar.
Lás: iðgjölcL Hár bónus
Sá sem heflr verið líítryggður
1 15 ár fær tvöfaldan bónus.
TUXHAM-mótora
og
beztu stnurningsolíurnar
selur
CLEMENTZ & CO. H|Fl
Þingholtsstræti 5. Reykjavík.
Skrifstofutími 10—2 og 5—7 Sími 575.
Hráolíumótorinn ,Yesta‘
er sérlega góð mótortegund, sem er grandgæfílega reynd, og
sem vinnur eftir S2-Takt Systemet".
Mótorlnn „Vesta“ þarf enga vatnsinnsprautingu.
Mótorinn „ Vesta* hefur rólegri, reglulegri og jafnari gang, en nokkur
annar mótor.
Mótorinn „ Vestaa eyðir minna en allir aðrir bátamótorar.
Mótorinn „Vestaa getur um lengri tíma verið í gangi án þess að
vinna, og án þess að glóðarhausnum sé haldið
heitum af lampa og sótar ekki.
Umboðsm. fyrir ísland: Magnús Guðmundsson, skipasmiður.
Skipasmíðastöðin.
Það er sannað og viðurkennt að
TUXHAM-Mótorinn
eyðir minni olíu en alllr aðrir báta-mótorar.
Reynslan hér á landi sannar það einnig.
Nýtísku
barnatryggi ngar
betri.
fást hvergi
áreiðanlegri, ódýrari
og hagkvæmari
heldur en í
lífsábyrgðarfélaginu
DANMARK
Rfkissjóður Dana tryggir
þar fjölda embættismanna sinna.
w
Alnavara.
Landsins stærsta, bezta
og ódýrasta úrval.
Sturla (ónsson
Auglýsingar
í ,Þjóðstefnu“ breiðast
út til iielstu heimila um
^ allt Island. M
hann fram fyrir yfirmann einn,
sem leggur fyrir hann alls konar
spurningar, mjög nærgöngular og
óviðeigandi að honum finst. Eða
hvað segið þið um það til dæm-
is, að þurfa að fara útlista það
með skýrum orðum, að afi ykk-
ar eða einhver nákominn hafi
grætt allan sinn auð á einskæru
brennivínsprangi! En svona vill
vélin hafa það.
þá þveitir hún honum inn til
læknanna og fær hann nú ákveðn-
ari upplýsingar um sinn eigin
skrokk á næstu tiu mínútunum,
en honum hefir nokkurn tíma
auðnast að afla sér það sem af
er æfinnar.
í herberginu er troðfult af mönn-
um, sem eru að klæða sig í og
úr allskonar flíkum og er hann
nú látinn setjast allsber á ískalda
vog, sem rólar fram og aftur og
verður að bíða þar þangað til röð-
in er komin að honum. Hann
sér hvar „undirmáls“ nýliði einn
með heyrnarpípu læknisins við
brjóstið er að sveipa að séreinu
flíkinni, sem hann er í, með báð-
um höndum og er honum vel
liðugt um málbeinið, þótt ekki sé
hann hár í loftið. Hann er að
fjargviðrast yfir því, að enda þótt
hann nái ekki hæðarmáli því, sem
heimtað sé, þá hafi þó hvorki sér
né föður sínum né afa eða langafa
orðið nokkurn tíma misdægurt,
að svo miklu leyti sem sér sé
kunnugt.
Að því loknu kemur röðin að
nýliðanum okkar og verðurhann
þess nú var, að hann er 337j
þuml. um brjóstið, en ekki 35
einsog hann hefur þó alltaf haldið;
að hann er 5 fet og 7 þuml. á
hæð, en ekki 5 fet og 8; að hann
nístir tönnum til þess að láta ekki
lækninn sjá upp í sig; að það er
að myndast æðahnútur á vinstri
kálfanum á honum; að hann getur
baðað handleggjunum einsog vind-
mylna vængjum sínum, hoppað
tvisvar sinnum á öðrum fæti kring-
um borð, þekkt ljósrauðan þráðar-
spotta frá dökkbrúnum og lesið
stafina V L N A P Q smáletraða
gegnum greiparnar á hendinni með
hálfopnu vinstra auganu, þarsem
þeir verða ekki að öðru en einni
klessu fyrir hægra auganu, sem
honum er þó sagt að lesa með.
þá tekur vélin hann og hrlndir
honum ofan stærðar stiga inn t
eymdardalinn, sem svo er nefnd-
ur, eða inn til fyrirliðans, sem út-
hlutar einkennisbúningum nýlið-
anna. þar er honum troðið í ein-
kennisföt af ýmsum litum og ýlmsri
gerð. Getur það vel borið til, að
önnur buxnaskálmin sé græn, en
hin gul eða að vasalokin á kufl-
inum séu dökkbrún, en kuflinn
sjálfur blágrár. En víst er um
það, að einkennisbúningurinn er
einkennilegur í orðsins fyllsta
skilningi og snertir nýliðann
hvergi nema rétt á há-öxlunum.
Frh.
Frönsk sál.
Frh. ----
Gamla jungfrúin og María Iitla
horfðu undrandi á þenna útlend-
ing, þenna óvin; þeim fannst það
næstum ótrúlegt að hann gæti
verið kominn þangað til þeirra
og það á þessum tíma. það líkist
vondum draumi. „Takið það, sem
þér þurfið með“, mælti ungfrú
Cautel, „þér hafið hvort sem er
í öllum þumlum við okkur en
þyrmið að minnsta kosti barninu".
„Eg er enginn villimaður*,mælti
hinn ungi þjóðverji þóttalega „eg
er stúdent, rithöfundur og skáld.
það er annars undarlegt þetta, —
allir Frakkar halda að við séum
ósiðuð þjóð og ruddamenni og
þið kallið okkur „siðleysingja*.
þær svöruðu honum engu. —
Hann fór því næst aðspyrjaþær
spjörunum úr. Hversu margir
íbúar væru í þorpinu? Hverju
það sætti að svo mörg hús stæði
auð? Hverjir hefðu komið fólk-
inu til að forða sér? Hvar átti
bæjarstjórinn, presturinn og kenn-
arinn heima? Hvar var næsta
járnbrautarstöð? Og hversu var
langt þangað?
Gamla konan skrökvaði engu
að óþörfu. Hún vissi að það var
nóg af opinberum skjölum og
skýrslum í húsi hennar, sem hin-
ir óboðnu gátu notað til að fræð-
ast af. Hún sagði aðeins að lík-
lega væri bæjarstjórinn farinn, að
hún ekki vissi hvar presturinn
væri og að kennarinn væri undir-
foringi í hernum.
„það er þá svo að skilja að
þorpið sé komið í eyði. því
voruð þér kyrrar?* „Eg var
ekki ferðafær“. »Ó, það hefði
verið hægt að koma yður“. Jung-
frú Cautel hristi höfuðið. „Nei!
hvort eg lifi þetta af eða ekki,
yfirgef eg aldrei heimili mitt. —
Maria, farðu og náðu í brauðið
og ostinn, vínið og ávextina. —
Annað höfum við ekki til“.
þegar þjóðverjarnir voru bún-
ir að leita af sér gruninn um það,
að eigi voru fleiri fyrir í húsinu
en þær, þóttust þeir óhultari um
sig, en þeir voru of fáir saman
til þess að fást við leyniskyttum-
ar, sem þeir þóttust vita að feld-
ust í skóginum. María skyldi eigi
tal þeirra, en þó þóttist hún viss
um, að þeir væru að bíða eftir
herliði sem ætti að koma þangað
að morgni. þeir voru nú seztir
að snæðingi og drukku óspart,
höfðu þeir marghleypunrar á borð-
inu hjá diskunum. Var það vani