Elding - 05.05.1901, Síða 2
82
ELDING.
Utan úr heimi.
Síðustu fregnir.
Frá Búa-ófriðnum. Mælt er að
kona Botha hershöfðingja geri sér
mikið far um að koma á friði á milli
Búa og Breta og þykir ekki með
öllu vonlaust um að henni kunni að
takast það. Hún kvað síðast er ti)
fréttist hafa verið á leið til Prætoriu
i sáttaumleituuarerindum, og ætlað
að hafa þar tal af Kitchener lávarði.
De Wet er stöðugt á höttunum
þar sem Englendinga er von og berj-
ast Búar í smáflokkum á víð og
dreif þar er helzt þykir örugt til
atlögu. Eftir síðustu fregnum eiga
Englendingar að hafa tekið alls
17,823 Búa til fanga. Síðustu vik-
urnar hefur herkostnaður Englend-
inga numið 1 y, milljón punda á
viku.
Morðvarga-bæli. Lögregluliðið í
Bosario hefur komist yfir hréf og
skjöl sem sýna það og sanna að
byltingamenn hafa bundist samtök-
um til að ráða af dögum í einni
hrotu Vilhjálm Dýzkalandskeisara,
Rússakeisara, konunginn og drotn-
inguna á Ítalíu og greifann af Tu-
rin. Morðvargafélag þetta kvað
hafa aðalbækistöðu sínu í bænum
Paterson í New- Jersey og heitir sá
Romagnoli, sem var gerður út af
félaginu til að fremja morðin. Skyldi
hann leggja af stað frá Buenos Ayres
þ. 27. marz og stíga á laud í Brima-
borg. Óðar en skeyti þessi komu
til Pýzkalands lét lögreglustjórinn í
Berlín boð út ganga í allar áttir um
að handsama Romagnoli hvar sem
hann kynni að hittast.
Aguinaldo, EilippseyjakappinD, hef-
ur lýst þvi yfir í opnu bréfi að hann
játist undir yfirráð Bandamanna í
Ameríku og ræður löndum sínum til
að gera slíkt hið sama.
Svartidauði grefur um sig í Kap
og er ílt að stemma stigu við veik-
inni, því altalað er að innfæddir
menn haldi henni leyndri dögun-
um og vikuuum saman. Pyrii- yfir-
völdunum hafa verið gefnir upp alls
456 sjúklingar og af þeim eru 185
látnir.
Eldsvcði. Nýlega kora upp eldur
í keisar.ihöllinni í Peking og brann
sá hluti hennar, er Waldersee greifi
bjó í, til kaldra kola, og greifiun
komst nauðulega út um glugga.
Einn maður brann inni, Schwartz-
hoff herforingi, sem hljóp inn í hús-
ið til að bjarga hundinum sínurn.
Eundnar gullnámur. A herferð-
unum í Kíua hafa Rússar fundið
auðugar gullnámur i Murschisoníjöll-
unum.
Or bænum og grendinni.
Bæjarstjórnarfundur (2. maí). 1.
Málið um skemtistíg kringum Tjörn-
ina. Málinu frestað til væntanlegs
aukafundar og nefndinni sérstaklega
faiið að gera tillögu um hvort sam-
þykkja eigi að fríkirkjumenn byggi
kirkju á lóð Oddfellowa við Tjörn-
ina og um vegalagningu að kirkj-
unni. 2. Bæjarstjórnin vildi eigi
nota forkaupsrétt sinn að Tjarnar-
brekkunni en samþykkir að hún verði
seld Tryggva Gunnarssyni sem ný-
jum erfðafestueiganda að þeim hluta
Melshúsatúns, og verður erfðafestu-
gjaldinu af Melshúsatúni því skift
milli hinna nýju hluta túnsins að
réttu hlutfalli. 3. Samþykt að byggja
nýtt þvottahús við Laugarnar 20 ál.
langt, 10 ál. breitt og með vegghæð
3y2 ál. með steingólfi og bekkjum
við hliðar og á miðju gólfi, og að
verja til húsagerðarinnar 1800 kr.
eða allt að 2000 kr. Veganefnd fal-
ið að láta gera nákvæma lýsingu
og uppdrátt á húsinu og láta síðan
gera húsið með undirboði í verkið
eftir auglýsingu i blöðunum. 4.
Eiríkur Briem docent skýrir frá að
hann ætli að selja Eyvindi Árnasyni
og Jóni Jónssyni 27 álna breiða
I spildu meðfram Laufásvegi af erfða-
| festulaDdi sínu Útnorðurvelli frá
j húslóð Eyvindar norður að Bók-
hlöðustíg fyrir 1000 kr. og spyr
hvort bæjarstjórnin vilji nota for-
kaupsrétt sinn. Málinu frestað þang-
að til byggingarnefnd hafur sagt álit
sitt. 5. Amtmaður óskar álits bæj-
arstjórnar um hve mikinn hluta af
þurfamannaflutnings kostDaði sýsl-
unnar árið 1900 bærinn eigi að bera.
Bæjarstjórninni þótti hæfilegt að
greiddar væri úr bæjarsjóði 150 kr.
6. Lögregluþjónn Þorsteinn Gunn-
arsson sækir um lausn frá lögreglu-
starfinu og um eftirlaun. Lausnin
veitt en spurniugunni um eftirlaun
vísað til fjárhagsnefndar til álits. 7.
Bæjargjaldkerinn sækir um launa-
vlðbót. Visað til fjárhagsnefndar til
álita. 8. Kom til athugunar spurn-
ing um lóðarnám til breikkunar f
Hafnarstræti af stakkstæðinu. Vega-
nefnd falið málið til alhugunar og
viðtals við hlutaðeigendur. 9. Kom
til umræðu uppástunga frá Sigurði
Thoroddsen um að fenginn yrði
hingað maður frá Danmörku, æfður
landinspecteur, til að mæla upp bæ-
inn og gera ýtarlegan uppdrátt yfir
kaupstaðarlóðina, en slíkan mann
má fá til verksins, eftir upplýsing-
um, er Sig. Thor. hefur útvegað frá
Kaupmannahöfn, fyrir 4—5000 kr.
en varla minna. Málið fer til ann-
arar umræðu. — Allir á fundi nema
Halldór Jónsson og Sig. Thorodd-
sen.
Skarlatssóttin breiðist nú út aft-
á ný og virðist sem hvergi nærri
sé sóð fyrir endann á henni; ein-
asta bótin að „lengi tekur landsjóð-
ur við“.
Skipaferðir. „Laura“ fór héðan
á miðvikudaginn. Með henni fóru:'
frk. Þóra Priðriksson kennari, áleið-
is til París. Erökenarnar Kristín
Sigurðardóttir (fangavarðar), Ingi-
björg Helgadóttir (kaupm.), Hólm-
friður Rósinkrans og Þórunn Einns-
dóttir, allar til Englands.
Enn freinur fóru þeir Ólafurkaupm.
Arnason frá Stokkseyri og Alex..
Helssen vélameistari. Vissu fáir um
för hans, en hr. Ólafur Hjaltesteð-
hefur tekið við forstöðu verkstæðis-
ins. —
„Thyra“ fór 2. maí. Pór enginn
með henni.
„Reykjavíkin11 kom sama dag og.
byrjar núinnan skamms ferðir sÍDar.
Tíðarfar hefur verið hið ákjósan-
legasta og er nú sannarlegt sumar
komið í höfuðstaðinn.
Fiskiríið hefur gengið nokkuð
tregt upp á síðkastið.
Gifting. A fimmtudaginn voru
þau dýralæknir Magnús Einarsson
og frk. Ásta Sveinbjörnsson gefiu
saman. Var þar mikill mannfjöldi
viðstaddur.
Samsöngur var haldinn á sunnu-
daginn var í Iðuaðarmannahúsiuu,
mjög fjölsóttur. Var skemtun þessi
óvenjulega fjölbreytt og yfirleitt
gerður að henni góður rómur.
Gestir. Séra Ólafur Pinnsson frá
Kálfholti með konu og læknir Þ.