Umferð - 01.02.1958, Blaðsíða 6
6
UMFERÐ
TAUNUS 17 M.
heldur en ef við værum á næst lægra
gíri og benzínið aðeins hálfa leið niður
eða svo. Á hágírinu „píndum“ við
benzínið brann ekki til fulls, heldur
eyddist til einskis, eða öllu heldur til
verra en einskis.
Láttu þér semja vel við hreyfilinn
í bíl þínum. Þú átt að heyra og finna
strax og þarf að skipta. Að „pína“
bíl“ er það sama fyrir hreyfil hans
eins og það væri fyrir þig að aka
þungri kerru á vegi, sem t. d. græn-
sápa hefði verið borin á. Það er engin
von að hreyfillinn launi manni vel
illa meðferð. Gættu þess líka að ,þeyta‘
hreyfilinn sem minnst, einkum aldrei,
sé hann mjög kaldur (ræsing í frosti)
eða vagninn í kyrrstöðu. Lærðu að
nota gírinn rétt, svo að hreyfillinn
geti jafnan unnið við þau skilyrði,
sem honum eru hentugust.
Því miður eru margir ökumenn svo
skapi farnir, að þeir ,,nenna“ varla
að skipta gírum, enda þótt þeir oft,
ýmissa hluta vegna, hafi orðið að
kaupa bíla, sem sannarlega þyrftu
þess með. Hentugast væri fyrir þessa
menn að eiga bíla, sem gerðu þetta allt
saman fyrir þá. „Hugsaðu þér bara,
hann er kominn alla leið hingað upp
og er ennþá á 50 km.“ Góður ökumað-
ur svarar: „Bjáni, þú átt ekki skilið
að eiga góðan bíl.“
Að lokum má drepa á það, að sé
bill píndur svo mjög, að hann fari að
rykkja, fer að mæða á fleiru en hreyfl-
inum. Það má líka hafa það i huga,
að t. d. gír og drif eru dýr.
Hér er sagður mjög góður bíll á
ferðinni; skemmtilegur í akstri, vinn-
ur prýðilega, liggur vel, amerískur
í útliti, lengri og breiðari en Taunus
15 M; fyrir 5 manns. Bil á milli hjóla
hefur vei'ið aukið um 5 cm. Aftur-
sæti er 15 cm breiðara og framsæti
7 cm breiðara en í Taunus 15.
Hreyfillinn hefur 67 hk„ 4 strokka.
Öll 3 gírin synkroniseruð. Fæst líka
fjórgíraður og með sjálfvirkri kúpl-
ingu.
Mikil áherzla er lögð á öryggisút-
búnað (stýri, dyr, mælaborð o. f 1.).
Véltækni: Barðar 590x13, slöngu-
lausir. Lengd milli öxla 2,604 m. Mesta
lengd 4,375 m. Mesta breidd 1,670 m.
Hæð 1,5 m. Þyngd 1016 kg. Burðar-
þungi 384 kg. Benzíneyðsla 9,211. Mesti
hraði 125 km. Geymir 45 1.