Umferð - 01.02.1958, Blaðsíða 7

Umferð - 01.02.1958, Blaðsíða 7
UMFERÐ 7 (Jafgarcf i3rieín, Jiol.: GECN IMFERÐARSLYSIIM Flestir munu sammála um að þétt- býli bæja og borga hafi marga kosti í för með sér fram yfir dreifbýlið í sveiíínni, en fyrir ibúana hefur þétt- býlið einnig nokkra galla, m. a. galla, sem borgararnir eru rækilega minnt- ir á í blöðum og útvaipi í frásögnum af sorglegum umferðarslysum. Umferðarslysin hafa í huga almenn- ings sérstaklega sorglegan blæ. Ef til vill er það vegna þess, að þessi tegund slysa ætti ekki að vera eins óviðráðan- leg og mörg önnur slys, t. d. þau, sem stafa af hamförum vinds og sjávar. Umferðarslysin eru öðrum slysum fremur: ,,búin til“, sett á svið af mönn- unum sjálfum og þau eru glöggt dæmi um það, hve oft mönnum yfirsést og hve smávægilegar yfirsjónir geta haft hryllilegar afleiðingar. Enginn sezt undir stýri með þann ásetning að valda slysi. Hinir eru margir, sem haga akstri sínum þannig, að svo virðist sem þeim sé öldungis sama þótt af hon- um hljótist slys, limlesting eða dauði. Hvað er hægt að gera til þess að vekja sinnuleysingja til meðvitundar um ábyrgð þeirra í umferðinni? Sú skoðun mun nokkuð útbreidd að áhrifaríkasta ráðið sé að þyngja refs- ingar og beita ökuleyfissviptingu i rík- ara mæli en nú er gert. Það ráð hef- ur ríkisvaldið eitt í hendi sér. Umferðarnefnd Reykjavíkur er samkvæmt samþykkt bæjarráðs frá 3. marz 1955 meðal annars ætlað að vinna að því ,,að tryggja fyllsta öryggi í um- ferðinni og varna slysum.“ Á s.l. hausti lét nefndin til skarar skríða á sérstökum vettvangi þessa starfs. Með samvinnu við Bindindis- félag ökumanna (B.F.Ö.), Félag ísl. bifreiðaeigenda (F.I.B.), Slysavarna- félag Islands og bifreiðatryggingaíé- lögin í Reykjavík, var gerð tveggja vikna atrenna að umferðarslysum, ölvun við akstur o. fl. B.F.Ö. og Slysavarnarfélagið sáu að mestu leyti um síðari vikuna. Voru þá umferðarmyndir Sýndar sem auka- myndir í þrem kvikmyndahúsum í bænum, fréttaaukar um umferðarmál, einn frá hvoru félagi, erindi og leik- þáttur í útvarpi sérstaklega samið fyrir B.F.Ö. og flutt af þessu tilefni, blaðagreinar daglega um áhrif áfengis við akstur og gildi þess að aka skin- samlega, sýning ö ryggistækja við akst- ur o. fl. o. fl. Samvinna Umferðarnefndar og fyrr- greindra aðila var með ágætum og var mikið starf leyst af hendi á skömmum tíma meðan þetta tímabil stóð yfir. Um hitt má svo endalaust deila, hvort viðleitni þessara aðila hafi borið þann árangur, sem vonazt var til. Haustið er mikil slysa árstíð, öku- menn verða að breyta aksturshætti sínum og skerpa athyglina. Gangandi fólk fær iðulega slagviðri, hálku og myrkur við að stríða sem allt dregur athyglina frá hættunni af ökutækjun- um. Bif reiðum og gangandi fólki f jölg- ar ár frá ári og hættan vex að sama skapi. Þótt árangur af slysavarnarstarf- semi almennt verði sjaldnast sannað- ur með tölum er þó enginn vafi á gildi hennar. Sama má segja um hvers konar viðleitni til þess að draga úr umferðarslysum. Ég lít því svo á, að umferðarvikurnar síðastliðið haust hafi verið spor í rétta átt og starvfsem- ina, sem þá var hafin, þurfi að efla. Ég fagna því, að B.F.Ö. hefur í vaxandi mæli látið til sín taka um þessi mál. Á því sviði eru næg við- fangsefni og verðug hverjum þeim fé- lagsskap, sem vill láta gott af sér leiða, meðlimum sínum og þjóðfélag- inu öllu til farsældar. Reykjavík 18. 1. 1958. Valgarð Briem. r-----------------------------------------------------s\

x

Umferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Umferð
https://timarit.is/publication/232

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.