Umferð - 01.02.1958, Qupperneq 9
UMFERÐ
»
„ÖKUBYTTA"
Nýr bíll í G.M.-„fjölskyIdunni"
Ope(-$ecorcl me i 100 endurlótum
Allir kannast nú við orðið „ökuníð-
ingur“. Það er þó ekki ýkja langt síð-
an þetta orð var nýyrði I máli voru,
en nú hefur það unnið sér þar fullan
þegnrétt. Þetta er ágætt orð, þótt und-
an svíði þeim, er hafa unnið til nafn-
giftarinnar. Þannig þurfa þau orð að
vera, sem ætlað er slíkt hlutverk sem
þessu orði.
Með yfirskrift þessa greinarkorns
kynnir „Umferð’’ nýyrði í máli voru.
Það er orð, sem tunga vor hafði fulla
þörf fyrir og hefur beðið býsna lengi
eftir. Það hefði maður þó mátt ætla,
að þeir lærðu orðasmiðir, er fyrir ekki
alls löngu létu á þrykk út ganga, á
kostnað Háskóla íslands, nýyrðið:
,,vínstúka“, hefðu ekki látið lengi biða
eftir slíku orði. En nú þurfa þeir ekki
lengur að brjóta heilann um slikt orð,
því að ekki leyfi ég mér að væna þá
um það, að þeim hafi ekki verið ljós
þörfin fyrir slíkt nýyrði, þótt þeir
hafi ekki enn komið auga á hið rétta
orð. Andinn er ekki ætíð reiðubúinn,
ekki sízt ef menn hafa ofreynt hann.
Líklega hafa þeir ofreynt sig á „vín-
stúkunni“. En undarlega lengi hefur
þetta þó vafizt fyrir þeim og sannast
nú enn einu sinni hið fornkveðna, að
„skýzt þótt skýrir séu“.
Þótt þetta nýyrði sé raunar svo ljóst,
að engra skýringa sé þörf á því, þykir
þó rétt að skýra það nánar.
„Ökubytta": sá, sem ekur bifreið,
eða öðru áþekku farartæki, undir á-
hrifum áfengis. Merking þessa nýyrðis
er víðtæk og skiptir því engu máli,
hvort um einstakan verknað er að
ræða, eða ítrekaðan verknað, hvort
áfengisáhrifin eru mikil eða lítil. Orð-
ið „bytta" er fyrir löngu alþekkt í
máli voru í merkingunni drykkfelldur
maður, og þykir það næsta niðrandi
nafngift. Það þykir því e. t. v. langt
gengið að kalla þann mann ökubyttu,
sem aðeins einu sinni hefur gerzt
sekur um óverulegan ölvunarakstur.
En vér erum á öðru máli. Vér teljum
það ófyrirgefanlegan glæp að aka bif-
reið undir áfengisáhrifum og að sá,
sem gerir sig sekan um slíkt athæfi,
General Motors í Þýzkalandi hafa
á s.l. 4 árum framleitt nær 600.000
Olympia-bíla, eða nær því hálfu fleiri
en á seinustu 11 árunum þar á undan,
þegar stríðsárin eru ekki talin með.
Þessi nýi Opel er þægilegur vagn,
vinnur vel, liggur vel, dálítið stirður
í beygjum. Þægilegt að sitja við stýr-
ið, góð útsýn. Myndin sýnir einnig út-
línur á boddyi eldri gerðarinnar.
Verksmiðjurnar taka fram, að hin-
ar 100 nýju endurbætur séu ekki það
sama og að gamli Opelinn hafi haft
100 ágalla.
Véltækni: Hreyfill 4 strokka, topp-
ventlar, 52 hestöfl; benzíneyðsla 6—8
1.; geymir 40 1.; gir 3/1; lengd milli
öxla 2,541 m; mesta lengd 4,433 m;
mesta breidd 1,616 m; hæð frá jörðu
17.5 cm. Barðar 560 x 13. Þungi 905 kg.
Hámarkshraði 127 km.
eigi skilið slíka nafngift sem þá, er
honum er valin með þessu nýyrði.
Ökubytta skal hann heita frá þeirri
stundu. Ef menn vilja gera þar á ein-
hvern stigsmun verða þeir að notast
við hæfileg lýsingarorð til að auka
eða draga úr merkingunni.
Vér sjáum svo ekki ástæðu til að
hafa þessa kynningu öllu ítarlegri.
En að lokum viljum vér geta þess, að
höfundur þessa ágæta nýyrðis er Ás-
björn Stefánsson, læknir, ritari B.F.Ö.
Hann er einnig höfundur að hinu á-
gæta nýyrði: „góðakstur". Vér erum
þess fullvissir, að bæði þessi orð
munu festast í máli voru og erum
honum þakklátir fyrir orðasmíðina.
B. S. B.