Umferð - 01.02.1958, Side 10
10
UMFERÐ
AÐALÞIi\G NX.A.T. /95 7
Dagana 14. og 15. júní 1957 var háð
aðalþing N.U.A.T. (Samband bindind-
isfélaga ökumanna á Norðurlöndum)
í Helsinki. Félagasambönd Norður-
landanna allra, Noregs, Sviþjóðar,
Finnlands, Danmerkur og Islands
höfðu sent þangað fulltrúa sína. Fyrir
B.F.Ö. var mættur Ásbjörn Stefáns-
son, ritari félagsins.
Nýstofnað var í Finnlandi sérstakt
ökumannafélag sænskra manna þar í
landi, og var upptaka þess í sambandið
samþykkt á þinginu.
Erindi þau, sem lögð voru fram,
rædd og samþykkt á þinginu, voru
bæði mörg og merkileg. Starfsskýrsl-
ur einstakra félaga, sem lagðar voru
fram, sýndu, að unnið hafði verið alls-
staðar vel og sumsstaðar bæði af
kappi og forsjá.
Vegna rúmleysis, verður mjög lítið
hægt að skýra hér frá samþykktum
og ályktunum þessa þings, enda þótt
um það mætti skrifa langt mál. Verð-
ur hér aðeins drepið á örfá atriði:
Ákveðið var, að stjórn N.U.A.T. legði
fyrir framkvæmdaráð þess að gera
nýjar tillögur um leiðir til sameigin-
legrar norrænnar lagasetningar varð-
andi akstur undir áhrifum áfengis.
Þá var og ákveðið, að fela félags-
samtökum hinna ýmsu norrænu landa
að vekja athygli hlutaðeigandi heil-
brigðisyflrvalda á óheppilegum áhrif-
um nokkurra mikið notaðra lyfja á
ökuhæfni manna.
Ennfremur var ákveðið að leggja
til við ríkisstjórnir norrænu landanna,
að þær beindu því til lögregluyfir-
valda sinna að taka upp á ný almenna
notkun „drunkometer", og gefa lög-
reglumönnum umboð og hvetja þá til
að nota áhald þetta í daglegri gæzlu,
hvenær sem grunur félli á ökumann,
að hann væri undir áfengisáhrifum.
Þá taldi þingið, að tími væri kom-
inn til að setja á stofn norræna um-
ferðarstofnun, sem m. a. hefði með
höndum sameiginlega gerð á allskon-
ar áróðursgögnum fyrir hin einstöku
félög, rannsóknir varðandi umferð o.
m. fl. Komu í þessu sambandi til um-
ræðu hinar merkilegu rannsóknir,
sem Norræna skurðlæknasambandið
hefur látið gera undanfarið, og að full
ástæða væri til að halda svipuðu verki
áfram.
Unglingastarfsemin var mikið á
dagskrá, og hefur verið unnið mikið
starf á því sviði, einkum í Svíþjóð
og Noregi. Var ákveðið að koma á
reglulegum fundum leiðtoga þessarrar
starfsemi, heimsóknum unglinga landa
í milli, koma á samstarfs- og vina-
hópum (sbr. norræna vinabæi) o. fl..
Þá var og ennfremur ákveðið að at-
huga möguleika á því að koma á sam-
norrænum æskulýðsdegi.
Fjölmörg önnur mál voru rædd og
afgreidd á þiginu, en eigi verður hægt
að skýra nánar frá því hér.
I stjórn N.U.A.T. voru kjönir til
næstu tveggja ára þessir menn: For-
seti: Ragnar Horn, hæstaréttarlög-
WARSZAWA -
Bílasmiðjurnar liggja rétt utan við
höfuðborg Póllands og hafa 15 þús-
undir manna í þjónustu sinni.
Þetta er ný gerð, snotur bíll, þægi-
legur, skemmtilegur í akstri, liggur
vel, bæði á beygjum og á slæmum
vegi. Rúmur fyrir 5 manns, en getur
vel tekið 6. Sæti þægileg. Sterkur, ryð-
frítt stál í dyraþrepum, svampgúmmi
undir gólfmottum. Ágæt upphitun,
maður í Osló; aðalritari (framkvæmda-
stjóri): Rune Andreasson, forstjóri,
Stokkhólmi, og Gunnar Nelker, for-
stjóri, Stokkhólmi (allir endurkjörnir).
Ennfremur hlutu kosningu þeir: Váinö
Kuusijárvi, forstjóri, Helsinki, Sigurd
Johansen, skrifstofustjóri, Skien og C.
W. Carlsson, forstjóri, Stokkhólmi. Þá
var og ákveðið að M.A.F. í Danmörku
tilnefndi einn mann síðar.
Næsta þing var ákveðið í Stokkhólmi
um haustið 1959 (nýr þingtími) og
mjög var rætt um að halda þingið
1961 hér í Reykjavík.
Autoilijain Raittiusliitto (Bindindis-
félag ökumanna) í Finnlandi sá um
alla fyrirgreiðslu og móttökur í Hels-
inki. Voru þær með ágætum og á sum-
um sviðum ógleymanlega hrífandi. —
Fulltrúi B.F.Ö. var borinn á höndum
samstarfsmanna og vina frá því að
hann lenti á Fornebu við Osló og þar
til að hann fór aftur upp í flugvél á
sama stað á leið heim yfir hafið.
þægilegur og sterkur bíll
vatnskassatjald. Rafmagnsþurrkur
með tveim hraðastillingum.
Véltækni: Hreyfill 4 strokka, vatns-
kældur. Rafkerfi 12 v. Gír 3/1 sýn-
króniseruð á 2. og 3. Kúpling vanaleg
diskkúpling. Lengd milli öxla 2,7 m.
Barðar 600x16. Mesta lengd 4,665 m.
Mesta breidd 1,695 m. Hæð 1,64 m. Hæð
frá jörðu 21,0 cm. Þungi 1260 kg.