Umferð - 01.02.1958, Side 12
12
UMFERÐ
t----------------------------------
UMFERÐ
Tímarit Bindindisfélags öku-
manna um umferðarmál.
Ábyrgðarmaður:
Sigurgeir Albertsson.
Ritnefnd: Framkvæmdaráð B.F.Ö.
Skrifstofa blaðsins og Bindindis-
félags ökumanna Klapparstíg 26.
Sími 1-32-35.
> _________________________________/
forseti Benedikt Bjarklind, ritari Ás-
björn Stefánsson og gjaldkeri Jens
Hólmgeirsson. 1 framkvæmdaráð voru
kjörnir, auk forseta, sem var sjálf-
kjörinn, varaforseti og ritari.
DEILDIR:
Deildir B.F.Ö. eru nú átta talsins.
Þær eru:
Reykjavíkur- og Hafnarfjarðardeild.
Formaður Helgi Hannesson.
Akranesdeild. Formaður Óðinn S.
Geirdal.
Hveragerðisdeild. Formaður Jóhann-
es Þorsteinsson.
Húsavíkurdeild. Formaður Þorvald-
ur Árnason.
Akureyrardeild: Formaður Ragnar
Steinbergsson.
Gerðadeild. Formaður Vilhjálmur
Halldórsson.
Skagafjarðardeild. Formaður Magn-
ús H. Sigurjónsson.
Stykkishólmsdeild. Formaður Ingv-
ar Breiðfjörð.
Deildirnar hafa leist ýmis störf af
höndum, bæði varðandi fjölgun félaga
og útbreiðslu. Sumar hafa látið til sín
taka þegar með umferðarmál, svo sem
fyrst og fremst stærsta deildin í
Rvik-Hafnarfirði, Húsavíkurdeildin,
Stykkishólms- og Skagafjarðardeildir.
Flest aðal- eða heildarstörf hafa þó
verið unnin af sambandsstjórn, en
störf deildanna sjálfra munu fara ört
vaxandi.
Nýjar deildir eru væntanlegar viða
um land á þessu ári og er sú fyrsta
þeirra nú að hlaupa af stokkunum í
Ólafsvík og Sandi.
Framkvæmdarstjóri
B.F.Ö. hefur nú ráðið framkvæmda-
stjóra frá og með 1. febrúar 1958 að
telja. Er það Ásbjörn Stefánsson rit-
T
Kæri félagi! Um leið og vér send-
um þér fyrsta tölublað „Umferðar",
viljum vér ávarpa þig nokkrum orðum.
Þegar þú gerðist félagi B.F.Ö., hefur
það vafalaust vakað fyrir þér, fyrst
og fremst, að styrkja félagsskap, sem
þú taldir nauðsynlegan. Þér hefur
vafalaust verið Ijóst, í hve mikinn
vanda hinn sívaxandi bilafjöldi og um-
ferðarþrengsli eru að setja okkur öll.
Þú hefur haft trú á því, að B.F.Ö.
væri félag, sem með tíð og tíma, og
í samvinnu við aðra rétta og velvilj-
aða aðila, gæti leyst þann vanda að
einhverju leyti. Þú vilt því vafalaust
að B.F.Ö. eflist og vaxi, og þú getur
gert mikið til þess að svo verði, bæði
með því að vera sjálfur fyrirmyndar
félagi og með því að útvega nýja fé-
L FÉLAGA B.F.Ö.
laga. Sá áhugi, sem sprettur af hug-
sjón og þau verk, sem af þeim toga
eru spunnin, verða jafnan heilladrýgst.
Og það er vissulega góð og mikil hug-
sjón, að vilja vinna bug á voða þeim,
er af nútíma umferð stafar, og finna
úrbætur á því sviði.
En B.F.Ö. mun gefa þér meira en
ánægjuna af þvi að vinna að góðri
hugsjón. Það vinnur nú öfluglega að
hagkvæmum bílatryggingum fyr-
ir félagsmenn. Það veitir þér þeg-
ar ókeypis þetta blað og mun veita
þér sívaxandi þjónustu á ýmsum svið-
um eftir því sem hagur félagsins vex
og blómgast. Með því að vinna fyrir
B.F.Ö. eflir þú þess vegna eigin hag
um leið og þú leggur góðu málefni lið.
ari sambandsins. Skrifstofa félagsins
og „Umferðar" mun fyrst um sinn
verða til húsa að Klapparstíg 26, 1.
hæð til hægri. Verður skrifstofan op-
n dag hvern frá kl. 5—7 e. h„ nema
laugardaga frá kl. 1—3 e. h.
Orðsending
St j órn Reyk j a víkur-Haf narf j arðar-
deildar B.F.Ö. hvetur félaga sína ein-
dregið til að gera nú þegar skil á
ógreiddum félagsgjöldum til gjaldkera
deildarinnar, Jóns B. Helgasonar,
kaupmanns, í verzlun hans að Vestur-
götu 27.
Til athugunar
Gáðu vel að þér áður en þú „tekur
fram úr“. Ef bíllinn, sem þú ætlar
fram fyrir er á verulegri ferð, þá
gættu þess að aka ekki fram fyrir
hann, nema enginn bíll sé á móti a.
m. k. næstu 400 metrana.
Mundu, að sá bílstjóri gáir ekki vel
aö, sem ekki gáir aftur fyrir sig við
akstur. Spegillinn er til þess. Góður
ökumaður hefur ætíð „annað augað“
á honum. Hafðu góðan spegil og gættu
að því, að hann sé ætíð rétt stilltur.
Afturrúðu sé haldið eins gagnsærri og
unnt er, sumar og vetur. Útispeglar
eru ágætir og eiginlega nauðsynlegir,
einkum á vetrum. Það eru undur, hve
margir hirða litið um að sjá vel aftur
fyrir bílinn; af því stafa mörg slys.
Ef að hvellspringur hjá þér á fram-
hjóli á verulegri ferð, þá varastu að
bremsa alveg strax. Gríptu stýrið af
öllu afli og einbeittu þér að því að
halda bilnum á veginum; gefðu hon-
um dálítið um leið. Svo má bremsa,
varlega — ítrekað.
Mundu, að hættulegt er að bremsa
snögglega og mikið í mikilli hálku.
Bremsaðu ítrekað — lítið í senn.
Aktu beygjur með hraðaaukningu.
Byrjaðu beygjuna á hægri ferð, en
auktu hraðann jafnt og þétt í allri
beygjunni, án þess þó auðvitað að
fara of hratt í lokin. Við þetta liggur
bíllinn mikið betur og fólkið þrýstist
niður í sætin. Mikil hemlun í beygjum
er hættuleg, einkum í lausamöl og
hálku.