Alþýðublaðið - 05.01.1964, Page 1
»
IBUÐAVERÐ FER ENN HÆKKANDI, EN
LÓÐASKORTUR
ER FRAMUNDAN
MH)
44. árg. — Sunnudagur 5. Janúar 1964 — 3. tbl.
WWWWWMWWMMWW*
Þessi mynd var tekin fyr-
ir skönunu af Nornagesti,
en þá lá hann I höfn hér í
Reykjavík og var að taka ís.
Þetta er einkar fallegur bát-
ur, 265 tonn og' var eftir-
tektarvert hve hreinlegur
hann var og vel um hann
gengið. (Ljósm.: J. Vilberg)
ÓTTAZT ER UM FÆREYSKAN
BAT MEÐ 25 MANNA AHÖFN
Reykjavík 4. jan. — AG
Nú er óttazt um færeyskan bát,
Níi?rnagest, sem var að veiðum
vestur við Jökul rétt fyrir áramót-
in, en lagði af stað áleiðis til
Þórshafnar aðfaranótt gamlárs-
dags. Síðast heyrðist í bátnum um
kl. 10 á nýársdagskvöld, en liann
var þá staddur 20 mílur austur
af Vestmannaeyjum. Hafði hann
samband við annan færeyskan bát,
Grím Kamban. Þá sagði skipstjór-
inn á Nornagesti, Thorvald Andrea
sen, að veðuir værj vdnt, þeir
væru orðnir á eftir áætlun og
myndu líklega fara beint til
Grimsby þar sem báturiun átti að
selja. IÁ gamlárskvöld hafði
Nornagestur samband við Þórs-
bafnarradíó, og var þá í slæmu
veðri út af Eyrarbakka, en þá var
allt í lagi-
Nornagestur liefur að undan-
förnu verið við línuveiðar hér
við Suðurland. Átti liann nú að
fnra söluferð til Gritnsby, en á-
kveðið var að hann kæmi við í
Þórshöfn á leiðinni út. Ef bátur-
inn hefði farið beint, eins og Andr
easen gat um að þeir myndu lik-
lega gera, hefði hann átt að vera
kominn til Grimsby fyrir einum
sólarhring.
Nornagestur er frá Þórshöfn,
265 tonn, byggður úr stáli í Frakk
l*ndi árið 1961. Eigandi hans er
Thorvald Andreasen, en hann er
jafnframt skipstjóri. Blaðið hafði
í gær samband við fréttaritara
sinn í Færeyjum, Halldór Jóhanns
son. Hann sagði, að menn vonuðu
þar, að ekkert hefði komið fyrir
bátinn, en að talstöðin hefði bil-
að og þeim seinkað á leiðinni. Á
bátnum eru 25 skipverjar, og m.a-
er sonur skipstjórans um borð.
í dag voru skip fyrir sunnan
og suðaustan land beðin að svipast
Hin nýja Cloudmaster-
flugvél Flugfélags íslands
kom til Reykjavíkur um kl.
hálf fimm í gær. Við koin-
una var henni gefið nafnið
Sólfaxi, en það nafn bar flug
vélin, sem brann á Græn-
landi fyrr í vetur. Flugstjóri
í þessari fyrstu ferð var Jó-
hannes Snorrason og við
komuna á Reykjavíkurflug-
völl afhenti frú Margrét
Johnson honum blómvönd.
Þessi nýja vél er keypt af
SAS-flugfélaginu og hefuir
farið fram á henni gagngerð
skoðun og endurbætur- Hún
hefur einkennisstafina TF-
FIP og verður notuð í áætl-
unar- og Grænlandsflug.
Þetta er önnur Cloudmaster
vél Flugfélagsins.
um eftir bátnum. Flugvélar frá
varnarliðinu fóru af stað til leitar
Björn Pálsson, sem þurfti í
Framh. á 13. síðu
Reykjavík, 3. jan., GG.
FLESTUM ber saman um, að
verðlag á íbúðum og húsum hafi
farið stórhækkandi á s. 1. ári, og
skki virðist neitt benda til lækk-
■mar enn sem komið er. Blaðið
bafði í dag tal af manni, sem
gerði allítarlega könnun á þess-
um málum nýlega og má vera, að
flest þau atriði, sem valda hinu háa
verði á húsnæði komi fram í því
viðtali, og skal það því rakið hér
lítillega.
Fyrst er þá til að taka, að mað
urinn skoðaði hús, uppsteypt en
án miðstöðvar, hurða eða glers
Það var rúmir 400 rúmetrar að
stærð, flatarmálið um 160 fer--
metrar. Húsið var á mjög góðum
stað í nágrenni Reykjavíkur. Verð
ið var rúm hálf milljón fyrir hús-
ið eins og það stóð, en talið er,
að þriðjungur verðs sé kominn í
hús í slíku ástandi. Maðurinn fékk
þær upplýsingar hjá fagmanni,
sem hann spurði um raunveru-
legt verð húss af þessari stærð,
að sá, sem byggt hefði, mundi
vera búinn að setja um eða yfir
200 þúsundir í hússkrokkinn.
Nokkuð þykkt smurt þar.
Fyrrgreindur fagmaður benti
viðmælanda blaðsins á það, að eina
leiðin til að losna við að greiða
svo og svo mörg þúsund í gróða
til þeirra, sem steypa upp hús og
selja, væri að fá lóð og byggja
sjálfur. Maðurinn fór því strax
í að kanna möguleikana á að fá
lóð.
Hjá Reykjavíkurborg fékk hann
þær upplýsingar, að næsta úthlut
un lóða yrði í Fossvoginum, en
unnið mun vera að skipulagningu
hans um þessar mundir, m. a. með
tilliti til þeirra uppdrátta, sem
komu fram í verðlaunasamkeppn-
inni um árið. Varla mun vera um
að ræða lóðir í Fossvogi á næst-
unni, því að vinna við ræsið mikla
er nýhafin og á að taka tvii ár.
Framh. á 13. síðu
FYRSTU LÍNU-
BÁTARNIR FRÁ
EYJUM BYRJAÐIR
Vestmannaeyjum, 4. jan.
Ss - GO
FYRSTU línubátarnir réru héðan
í gærkvöldi, það voru þeir Stíg-
andi og Sæbjörg. Þeir munu hafa
farið austur eftir, en líklega ekki
mjög langt því að spáin var slæm.
Hér eru nú einir 15 síldarbátar
aðkomnir auk heimabátanna og
þeir voru að tinast út í morgun.
Þeir róa austur í Meðallandsbugt,
en þar varð síðast síldar vart.
Air France og
KLM lækka
LONDON 4.1 (NTB-Reuter).
Flugfélögin Air France og KLM
sem er hollenzkt, munu lækka far
gjöld sín á Atlantshafsleiðum frá
1. apríl á sama hátt og önnur stór
flugfélög, að því er tilkynnt var
í dag.