Alþýðublaðið - 10.04.1964, Blaðsíða 5
120 gæzlukonur og
fóstrur á námskeið
I'IMMTI MGINN 2. apríl hófst
í Keykijavík námskeið fyrir fóstr-
ur og gæzlukonur á leikvöli'um,
dagheimiliun og leikskólum borg-
arinnar. Það mun standa í þrjá
KVÖLDVAKA
NORRÆNA
FÉLAGSíNS
NORRÆNA félagið í Reykja-
vík efnir til kvöldvöku í Þjóð-
leikhúskjallaranum föstudaginn
10. apríl n.k. Samkoman hefst kl.
20.30.
Lars Djörup, sendikennari við
Háskóla íslands, les smásögu, er
nefnist „Vi havde en hane“ eftir
danska rithöfundinn Sven Holm.
Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari, syngur nokkur norræn
dög. Dr. Páll ísólfsson leikur und
ir á píanó.
Enn fremur verður sýnd
skemmtileg dönsk litkviKmynd, er
nefnist: „Hest pá sommerferie"
Og að lolcum verður stiginn dans.
Aðgangur er ókeypis fyrir fé-
lagsmenn og gesti þeirra. Þetta
er önnur kvnnincarvaka Norræna
félagsins. Á hinni fyrri, sem hald
in var 2. febrúar s. I., var sænslca
skáldið Gustaf Fröding kynnt og
sýnd sænsk litkvikmynd.
Félagsmenn eru livattir til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
Ennfremur býður félagið Norður
landabúa, sem hér dveljast um
lengri eða skemmri tima, v'el-
komna á kvöldvökuna.
r^UlimmiiiiMiiiiiiimiiiimimriijmiiiiMimiiiiii
mánuði. Kennsla fer fram að kvöld
inu, en þátttakendur eru yfirleitt
í vinnu á daginn.
Því hefur oft verið hreyft
áður, að nauðsynlegt væri að halda
slíkt námskeið, og á fjárhagsáætl
un borgarinnar fyrir þetta ár var
veitt fé til þess, 100 þús. krónur,
og gerir það kleift að halda nám-
ske.ðið.
Skipulagning og farmkvæmd
námskeiðsins er á vegum Barna-
ehimila- og leikvallanefndar og
Barnavinafélagsins Sumargjöf. í
framkvæmdanefnd eru Jens Guð-
björnsson og Kristinn Björnsson.
Aðalkennari er frú Guðrún
Briem Hilt. Hún er íslenzkrar ætt
ar, en starfar nú í Noregi. Þar hef-
ur hún mikið sinnt leikvalla- og
bamaheimilamálum. Hún hefur
kennt við og stjórnað námskeið-
um af svipuðu tagi og þetta, og
nú veitir hún forstöðu fyrirtæki
einu í Oslo, sem leitast við að úc-
vega og kynna leikföng, sem hafa
uppeldislegt gildi.
Kennsla er bæði verkleg og
fræðileg. Eru fluttir fyrirlestrar
öll mánudagskvöld, og að þeim
loknum gert ráð fyrir umræðum
og fyrirspurnum. Þeir eru haldnir
í samkomusal Miðbæjarskólans
fyrir ala þátttakendur. Önnur
kvöld vikunnar fer verklega nám-
ið fram, það er í húsnæði fóstur-
skólans að Fríkirkjuvegi 11. Er
þátttakendum þá skipt í smá hópa.
Kenndir eru leikir, söngvar og
föndur af ýmsu tagi, er hentað
getur, sem tómstundaiðja börnum
innan skólaaldurs.
Frú Guðrún Briem Hilt annast
verklegu kennsluna, en frú Val-
borg Sigurðardóttir skólastjóri
fósturskólans 'annast kennslu í
uppeldisfræði og barnasálarfræði.
Meðal annarra, sem flytja erindi
á námskeiðinu, eru Gunnar Bier-
Frá námskeiði fyrir fóstrur og gæzlukonur á Ieikvöllunum.
I .
ing læknir, er talar um barnasjúk-*-
dóma og heilsuvernd, Jón Oddgeir
Jónsson um öryggi, skyndihjálp
og umferðareglur, Sigurjón Björns
son sálfræðingur um taugaveikl-
un barna, Kristinn Björnsson sál-
fræðingur um vangefin börn og
Ólafur Jónsson fulltrúi talar um
barnaverndarmál.
Þátttaka er mikil í námskeiðinu.
Hafa um 120 stúlkur innritað sig í
verklega námskeiðið, en nokkru
fleiri munu hlusta á fyrirlestrana
á mánudögum.
Gæzlúkonur á leikvöllum eru nú
um 40, en á barnaheimilum Sum-
argjafar 78-80, fyrir utan sér-
menntaðar fóstrur, sem eru nær
30. Má því heita, að
þetta taki allt þátt í námsskeið-
inu. Þetta er fyrsta námskeið sinn
ar tegundar hér, en víðast er það
talið nauðsynlegt, að starfsfólk
við barnaheimili og leikvelli hljóti
nokkra fræðslu og undirbúning
undir starf sitt.
Btandadur kór frá Texas
BLANDAÐUR a capella kór
frá fylkisháskóla í Norður-
Texas dvelur hér á landi um
þessar mundir. Kór þessi, sem
hefur um 40 meðlimi, hefur
verið á tónlistarferðalagi í Ev-
rópu síðan í janúar og mun
hverfa þangað afair eftir viku
dvöl hér. Fyrstu tónleikarnir
hérlendis voru í samkomusal
Háskólans síðastliðinn sunnu-
dag. Söngskrá þessarar tón-
leikaferðar spannar rúmlega
þrjár aldir tónlistarsögunnar;
frá renaissance tímabilinu til
tónsmíða tu.tugustu a dar tón-
smiða austan hafs og vestan.
í bandarískum tónlistarhá-
skólum er sérhverjum nem-
anda skylt að vera annað hvort
í kór eða hljómsveit og við
slíka skóla eru venjulega st.arf
andi 3—4 kórar. A capella kór-
inn, eins og sá, sem er h.ér á
ferð, er venjulega þeirra fá-
mennascur og í hann er valið
úrvals söngfóilk eftir s&öng
próf.
Frammistaða þessa unga fólks,
en það er á aldrinum 18—21
árs, sýndi glöggt að „alma
mater“ þessa kórs liefur á að
skipa afbragðs röddum. Á fyrri
hluta söngskrárinnar gaf að
heyra helgitónlist eftir ýmis
renaissance, barok og róman-
tísk tónskáld, svo og verk eft-
ir bandarísk nútímatónskáld,
Bezt naut kórinn sín í nútíma-
verkunum og var eftirminni-
legastur þátturinn Tears (Tár)
úr Symhony for voices eftir
Roy Harris. Á síðari hluta tón-
leikanna voru evrópsk nútíma-
verk eftir Poulenc og Ralph
Vaughan Williams og ennfrem-
ur atriði úr söngleikunum West
Side Story og The Music Man.
Flutningur allra verkanna var
einstaklega fágaður og sann-
færandi.. Jafnvægi raddanna
var ágætt og þegar því var að
skipta var tónstyrkur yfirþyrm
andi, án þess að verða nokkurn
tíma grófur. Kórinn hefur yfir
að ráða því sem næst takmarka
lausum blæbrigðum, tækni og
aðlögunarhæfileika og virtist
alls staðar eiga jafnvel heima
í þessari efnisskrá. Það leyndi
sér reyndar ekki, að allflest
þessa söngfólks er við einsöngs
nám (einsöngsraddtækni er
alveg hið sama og kórtækni),
en þetta kom aldrei að sök hjá
kórnum. Allmargir meðiimir
komu fram sem einsöngvarar
og skilaðist það allt mjög vel.
Það er líklega ekki ofsögum
sagt, að kór þessi er sá bezti,
sem hingað til hefur heimsótt
okkar kórelsku þjóð. N
Stjórnandi kórsins er Frank
McKinley og hefur verið það
síðan 1947. Hugmyndir hans all
ar voru skýrt mótaðar, öll
stjórn hógvær og nákvæm og
er það ekkert vafamál, að fyrir
þessa einstæðu og glæsilegu
tónleika á hann mestan heiður
inn skilið.
Jón S. Jónsson.
Barnaskemmtun á
vegum Hringsins
Reykjavík, 8. apríl. KG.
Kvenfélagið Hringurinn efnir til
barnaskemmtunar í Háskólabíói á
Iaugaidaginn til ágóða fyrir barna
llllllllllllMllllllllllilllllIllllllllllllllliliillllllllllllllllllllllllllllllllKllllllllllllllllllllilllll' 1111111111111111111111111111111111* tf.
spítalasjóðinn. Verða þar mörgf
skemmtiatriði en stjórnandi ogf .
kynnir verður Svavar Gests.
Meðal þess, sem til skemmtun- .
ar verður, má nefna hljómsveit
Svavars Gests, félaga úr Fóst-
bræðrum, sem í vetur hafa sungið
í útvarpsþætti Svavars við góðan ;
orðstír, en þeir félagar komsv
annars ekki fram á skemmtunuin.
Þá mun Bryndís Schram syngja
og dansa í gerfi Mjallhvítar, Sof-
fía frænka mun líta inn. Ró~
bert Arnfinnsson og Rúrik Har~
aldsson munu annast skemmtiþátt-
sem börnin sjálf verða virkir þátt -
takendur í. Þá munu 5-16 ára böm
úr dansskóla Hermanns Ragnarsi
sýna fjölda dansa og fatnað úr
helztu sérverzlunum borgarinnar,
Og að lokum má nefna að fim-
leikastúlkur úr Ármanni muira
sýna svokallaðan jazz-ballet. Eina
og áður segir verður skemmtuia
þessi á laugardaginn 11. apríl og
hefst klukkan 2. Aðgangur atl
skemmtuninni kostar 50 krónur og
verða miðar seldir í Hljóðfæra-
verzlun Sigríðar Helgadóttur og S
. Háskólabíói fimmtudag, föstudag
og laugardag.
Hefur félagið hug á að gera
barnaskemmtanir sem þessa aðf-
föstum árlegum lið í starfsemt
sinni, þótt að þessu verði aðeina
þessi eina skemmtun. Nú mur»
Hringurinn hafa afhent alls áttsv
milljónir króna til barnaspitalaníi
og er gert ráð fyrir að hann vcrð:>
tekinn í notkun í haust.
Olíukynditæki
ásamt olíugeymi og katli, spíralhitadunk
þenslukari o. fl. til sölu.
Upplýsingar í síma 35154 kl. 17.00 — 19.00.
111111111111111111111111
iiii*ii imiiimiii
immmmmmmmmmmmmiiitiiiiimmmmmmmmmmmiimiitiimimiiiiiiiitiiii
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10- apríl 19G4.