Alþýðublaðið - 10.04.1964, Side 7

Alþýðublaðið - 10.04.1964, Side 7
Kénn hinum unga, hvaða veg hann eigi að ganga og síðar mun hann ei af honúm víkja. ÉG SIT á biðstofunni og bíð þess að vera hleypt inn, á móti mér situr kona. Hún er gráföl og rnó- leit í andliti og augnaumbúnaður- inn áberandi grár. í andlitinu er mikið af smáhrukkum. Hún ber allt útlit reykingakonunnar. Mér verður hugsað til kvennanna í sveit inni heima, þegar ég var að alast upp. Sumar voru að vísu yinnu- lúnar eldri konur. En þœr voru yfirleitt blómlegar fram á efri ár. Þá var ckki í tízku að kvenfólk reykti. Ég hef veitt því athygli, hvað kvenfólk, sem reykir, breytist í útliti. Fyrst er unga stúlkan biómleg, með blikandi skær augu. Svo fara rósirnar í kinnum hennar að fölna. Hún verður gráföl í and- liti. Smám saman lætur hún meira ásjá, verður hrukkótt og grómóleit á andliti. Síðast er hún hefur reykt mikið árum saman kemur tóbaks- liturinn alveg fram á andliti henn- ar. Augnaumbúnaðurinn fær al- veg lit tóbaksins. Flvað um heilsu- far hennar? Ég hlýddi á rabb í útvarpinu um daginn og veginn i vor og minnist þess að fyrirlesarinn sagði, að fólk íð á heilsuhælum landsins væri að deyja af völdum reykinga. En við- urkennir þetta fólk sannleikann? Eða er ekki svo, að það kennir ein hverju öðru um krankleika sinn en vill ekki horfast í augu við stað- reyndir? Út er komin í Englaodi bók, sem fjallar um skaðsemi reykinga og hina margvíslegu sjúkdóma, sem rekja má til þeirra. Þyrftum við ekki einnig á slíkri bók að halda? Ég er ekki viss um að æskan skelli alveg skollaeyrum við fræðilegum staðreyndum. Ég var einu sinni samtíða manni, sem reykti mikið. Hann hafði hósta og brjóstþyngsli. Mér datt í hug, hvort hann væri með astma. Ég sagði við hann, að hann yrði alveg að hætta að reykja, ella gæti farið illa fyrir honum. Hann þakkaði mér umhyggjusemina, en sagði að sér væri ómögulegt að hætta. Þó virðast þeir geta hætt, sem eru viljasterkir. Skal ég.nú nefna dæmi. Fyrst þegar ég kom í útlendinga skólann í Ramsgate í Englandi, hlustaði ég á, er lagðar voru 20 spurningar fyrir fjögurra manna nemendahóp. Þeir áttu að geta upp á orði, sem skrifað var á töflu og við liin gátum lesið. Einn i þess um hóp var Róbertó, sem mjög siyngur var að geta. Þetta var 24 ára gamall ítali, sem nýlokið hafði háskólaprófi í verkfræði. Ég sagði við kennara minn, að þessi piltur hlyti að vera mjög vel gefinn. ,,Það álít ég líka”, sagði kennar- inn, ,,þegar tillit er tekið til, að ailar rökræður á erlendri tungu eru mjög erfiðar”. Róbert sagði mér að hann hefði reykt mikið, en nú væri hann alveg hættur. Með honum var ailtaf vinur hans Krist- ján, sem var franskur, hann reykti, en hætti fyrir fullt og allt, skömmu eftir að ég kom í skólann. Þeir voru báðir skemmtilegir og vel gefnir piltar m. a. sögðu þeir mér að það hefði ekkert verið erf- itt að hætta-. Það var eðlilegt að þeir semdu sig að siðum hvors annars, þeir voru óaðskiljanlegir félagar. Skal síðar rætt um gildi félagsskaparins. Þeir vöktu athygli ungu piltarn- ir frá Noregi. Þeir voru tveir, sinn úr hvorum landshluta. Báðir aldir upp í Noregi. Annar Norðmaður, hinn af útlendum ættum. Þetta voru fínir og kurteisir ungir pilt- ar, sem ekki reyktu, bersýnilega vel upp aldir. Mér fannst þeir vera þjóð sinni til sóma. Þó að allt væri mjög frjálst í þessum skóla, er þá fylgzt með framkomu hinna 'ýmsu þjóðar- brota, sem þarna eru. Kennari minn og frú hans reyktu ekki. Oft skrifaði hann ýmsar merkilegar setningar á töfluna, t. d. stóð þar einu sinni þessi setning: „Sérhver, sem reykir, á á hættu, að fá lungna krabba”. En það var um áhrif félagsskap- arins, sem ég vildi.ræða. Hann hef ur meira að segja um venjur þær, sem skapast hjá unglingum á við- kvæmu aldursskeiði, en áminn- ingar foreldra, sem oft eru nei- kvæðar, því þær ala stundum á þrjózku hjá börnum. Vorið var komið. Það mátti sjá það á æskufríðum andlitum barn- anna. Þau voru rjóð í vöngum, úti- tekin og brosmýr. Þar var m. a. á heimilinu drengur um fermingu í næsta húsi var annar drengur 16 ára. Hann var náfölur ,tekinn í and liti og námsárangur hans var slæmur. Þessi drengur reykti síga- rettur allan. daginn. Drengirnir tveir voru mikið saman. Foreldrar yngra drengsins voru mjög önnum kafin við störf sín og létu samvist- ir drengjanna afskiptalausar. Eitt fannst mér athugavert. Yngri drengurinn bað eldra drenginn svo oft að finna sig út. Ég fékk. slæman grun. Árið eftir sá ég yngra drenginn aftur, hann var þá forfallinn reykingamaður og þá þegar svo illa farinn, að hann hafði orðið að leita læknis. En svo getur þetta.farið á ann- an veg, ef að foreldramir eru vel á i verði hvern ig félagsskap barnið lendir í og ættu foreldrar að styrkja og efla æskulýðsstarfsemi þjóðkirkjunnar. Er ekki sú starf- semi.að reyna að.finna rétta-leið? í október sl. las ég í Vísi hina sorglegu grein „Vandamál föður”. Mér flaug í hug þessi íslenzki máls háttur: Það er of 'seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið í hann. Hvað á að gera til að bjarga æsk unni, svo hún verði ekki neikvætt bölsýnisfólk, herjað af eiturnautn- um? Foreldrar eru misjafnlega langsýn á vandamál þau, sem nú eru að skapast. Skal ég nefna eitt dæmi: Heimilisfaðir; sem átti heima í þéttbýli fann spillingu þá, sem gegnsýrði umhverfið. Börn hans voru að hefja skólagöngu sína. Honum bauðst staða úti í sveit, þar sem hann gat notað sér sérmenntun sína. Þrátt fyrir flutn- ingserfiðleika, fluttu hjónin, með mörg ung börn, úr þéttbýlinu í sveitina. Vandamál æskunnar virðist einn ig mega leysa á annan hátt. Merk- ur. sómamaður sagði við mig: „Forr- eldrar geta ekki ráðið því, hvort börn fara að reykja, eða ekki nema að nokkru leyti og aðeins um tak- markaðan tíma. En minn drengur. var með öðrum dreng, sem var FRÍMERKI ÞANN 24. apríl n.k„ eða daginn eftir „Sumardaginn fyrsta", koma út tvö ný íslenzk frímerki. Verð- gildi þeirra er 3,50 kr. blátt og 4,50 kr. grænt. Myndin á merkj- unum er af merki íslenzkra skáta og á þeim standa einkunnarorð skáta: „Vertu viðbúinn". — Frí- merki þessi eru teiknuð af Árna Sveinbjörnssýni og stærð þeirra er 26x36 mm. Það raun hafa verið fyrir rúm- um 50 árum, að skátahreyfingin hófst í Englandi. Upphafsmaður hennar er Baden Powell. Hann er fæddur 22. febrúar 1857 í Eng- landi. Hann var hershöfðingi í her Breta og gat sér mikillar frægðar í ýmsum styrjöldum. Hann hlaut aðalstign árið 1909, en sagði af sér hermennsku árið eftir, til þess að helga sig því starfi, sem hann hafði hugsað sér og undirbúið síð- ustu árin, þ. e. útbreiðslu drengja- FRÍMEMI m FRÍMERKI skáta-boðskaparins um allan heim. Að koma þessu í kring hefði eng- um verið hent, nema duglegum hershöfðingja, sem vanur var alls konar kringumstæðum, og þar að auki manni, sem. elskaði hrausta og góða drengi og einnig hafði fasta trú á gagnsemi og nauðsyn þessa málefnis. Sökum þess, að Baden Powell hafði alla þessa hæfileika í rík- um mæli, heppnaðist honum starf- ið svo ágætlega, sem kunnugt er. Nú blaktir skátaliljan yfir ca. 5 milljónum drengja og stúlkna í yfir 50 löndum. Skátadrengir og skátastúlkur eru prýði þjóð sinni og þess utan svarnir vinir, bræður og systur, án tillits til litarháttar eða trúarbragða, enda vinna þeir allir að sama marki. — Lúður Badens Fowells gall um heim- inn og vakti öll góð ungmenni til starfa. Hin kjarnorða undirstaða skáta- lögmáls hans voru meðtekin með fögnuði alls staðar, enda þurfti ékki. að breyta þeim, eíns og öðr- um lögum. Þau standa í sínu fulla gildi þann dag í dag. Skátalögin boða aðeins fagrar og friðsamleg- ar hugmyndir, sem hver og einn skáti getur tamið sér sjálfur. Þessir tíu liðir hljóða þannig: 1. Skáti segir ætíð satt og geng- ur aldrei á bak orða sinna. 2. Skáti er tryggur. 3. Skáti er hæverskur í hugsun- um, orðum og verkum. 4. Skáti er hlýðinn. 5. Skáti er glaðvær. 'S. Skáti er þarfur öllum og hjálp samur. 7. Skáti er drengilegur í allri háttsemi. 8. Skáti er sparsamur. 9. Skáti er dýravinur. 10. Allir skátár eru góðir lags- menn. Það yrði of langt mál að skýra þetta nánar hér, en hver sé dreng- ur, sem verður skáti, heitir því, um leið og hann leggur hönd sína á þjóðfánann, að gjöra skyldu fína. eldri cn hann og hann dáðist að. Þessi eldri drengur hélt því fram., að eftirsóknarvert væri, að eign - ast heilbrigðan, þjálfaðan líkama. íþróttamanns. Yngri drengurinr> tók:sér þennan dreng til fyrirmymí ar, og ekki einungis hann, lieldur- yngri systkini hans líka. Þcssii" drengir vissu það, að ef drengii- reyktu, þá yrðu þeir ekki eins þolr> ir á sundi, heldur mæðnir. Sama- var að segja um aðrar íþróttir.---- Blessunarrík áhri^ þessa hugsun— arháttar hefur áhrif á allt síðara» líf:þessara barna. Iíér skal .getið tveggj a menning— arfrömuða, sem mjög settu svií>- sinn á menningarlif Skagíirðingae á uppvaxtarárum mínum og mikli» lengur. Fyrst nefni Jónas Krist- jánsson lækni á Sauðárkróki. Hanrt. var landskunnur læknir, eins oy allir vita. Stundum voru sjúkling- ar úr fjarlægum héruðum sendir- á- sjúkrahúsið á Sauðárkx-oki tilt uppskurðar. Jónas hafði stórfcr læknisumdæmi og varð að fara f. langar og erfiðar læknisvitjanir, oft um hávetur í ófærð. Þó að ég~ ætti heima austan Vatna, og værfc ekki í hans umdæmi þá man égr vel, að hann kom til mín um há— vetur í ófærð, en ég lá þá fyrii- dauðanum og var af flestum tal— in af. Síðar hlustaði. ég á Jónass Kristjánsson halda fyrirlestur Sauðárkróki. á sýslufundi þar, un>. hollustu fæðutegundanna. Ilanr.v kom þar fram með margar nýstár— legar kenningar. Ekki var nú ölluv. jafnvel tekið i fyrstu ,því að svona. róttækar skoðanir þarf fólk a?Jt hugsa vel um og melta með sér,.. En ekki man ég eftir að JónatK mætti mótspyrnu og margar hús— mæður fóru að baka úr heilhveiti.. Jónas Kristjánsson gekk ákveð - ið og snúðugt inn fundarsalinit - Frá honum stafaði lífskrafti oyr öi’yggi Hann komst strax að efn - inu og kenndi eins og sá sem vald— ið hafði. Skagfirðingar munu a> minnast hans. Fagran minnisvarðlt á Jónas, þar sem er Heilsuhælið'•£ Hveragei'ði. T Hinn menningarfrömuðurinn Oíí samtíðarmaður Jónasar vax- .■>ímhald á 10. síðn). ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10- apríl 1964. J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.