Alþýðublaðið - 10.04.1964, Page 15

Alþýðublaðið - 10.04.1964, Page 15
gert þér grein fyrir því, að þú ert fögur. — Ó, ég veit ekki, svaraði lnin og faldi andliíið við öxl lians. Hann strauk dökka lokka henn ar. Hún var svo mikið barn. Það kom honum til að finna enn bet ur til þess, hve hann var ver- aldarvanur. Hann sagði: — Þú ert alltof falleg. Eg held ég setjist upp og fái mér vindling. Þú kemur hjarta mínu til 'aö berjast ákafara en hollt er í þessum hita. Hann hló, tók silkivasaklút upp úr vasa sínum og þerraði ennið. Peta settist líka upp, dyfti nefið og Ieit feimnislega á hann ljómandi augum. — Það er heitt, samþykkti hún og hló líka. — Yið erum í Port Said, ást- in mín. Andstyggilegur staður. Hvað segir þú um að fljuga með mér til Englands í kvöld? Hún hugsaði: Bara að ég gæti það! En hún sagði ekkert. Hún~sá fyrir sér manntnn, sem lá í sjúkrahúsinu upp á hæðinni, sjúkur og máttfarinn, og reiddi sig á hana. En hvað hún hafði verið mikill kjáni. Hvernig hafði henni dottið í hug að láta meðaumkun ná svo miklu valdi á sér, að hún samþykkti þessa giftingu, sem nú hafði svo örlaga ríkar afleiðingar? Auburn tók vinding úr vindl ingaveski úr guUi, leit og henn ar og sagði: — Ætlarðu að koma með mér, engillinn mipn? — Ég get það ekki, svaraði hún, og þú veizt ekki onn þá, hvers vegna ég er héma. j —Ég hef verið of önnunvkaf inn við að elska þig, til að brjóta heilann um það. Og ef ég ,tek þig aftur í faðm minn mun ég ekki heldur kæra mig um að vita það. — Ó, Burn, sagði hun. __ þú íferð mig líka til að gleyma' því. — Þá erum við vissulega ást- fangin. Og við verðum að fljúga saman til Englands. j —• Við getum ekki gert það. Hún roðnaði og fölnaði á víxl. •— Við erum ekki . . ,-við erum ekki . . . j — Ekki gift, hvað, botnaði hann fyrir hana. Hún sat þögul. Og hann reykti líka þögull um stund. Hann átt- aði sig strax á því, sem Peta var að hugsa um. Þessi siðavendni hennar, sem honum hafði fund- izt svo skemmtileg og töfrandi í Calcutta. Það yrði gaman að reyna að yfii’vinna hana. leyfði sér meira að segjí leika sér að þeirri hugmy giftast Petu. Hún var tö: falleg, og einmitt sú stúiki mundi falla þeim gömlu vel í geð, Auburn, sem s var dæmigerður nútíman átti mjög gamaldags for sem fyrirlitu það hein: fólk, er hann umgekkst { '. a!5 Þau skiptu sér aldrei ,a Vissi hann að þau voru mótfallin öllum hinum ástaraevintýrum hans. Og • ,iafði að minnsta kosti i upplifað það að vera trúlo Framhalds- eftir Denise Robins y ,,. .. iiii'ini'iii Hvers vegna ekki að trulofast inu, og reiðzt honum þegar hann þessari stúlku? Það gæti verið áleit annað? Ó. hvað lífið var skemmtilegt, og ef hún hætti að hafa svona örvandi áhrif á hjartslátt hans, gæti hann allt- af slitið trúlofuninni. Hann sagði skyndilega: — Við giftum okkur einn góð an veðurdag, er það ekki? Peta horfði þögul á- hann. Og þegar hún kom loks upp orði, átti hún bágt með að láta í ljós hversu mikils virði þessi fáu orð, sem hann sagði svo kæru- leysislega, voru henni. Þau 17 breyttu allri veröldinni fyrir henni. Hún gat aðeins sagt: — Heldurðu-það? — Hvers vegna ekki? —'Ég hélt ekki . . . ó, ég veit ekki hvað ég hélt. Ég er algjör lega ófær um áð hugsa. — Ég líka, sagði hann leti- lega, svo við skulum bara ekkert vera að gera það. Við skulum bara lita svo á að við séiun heit- bundin. Og hvað svo um flugferð ina? Peta sá, að nú v.arð hún að segja honum frá Noel. En hún á- kvað að hún skyldi ekki segja lionum allt. Hann hafði beðið hennar. Ó, hafði hún ekki alltaf vitað, að hann ætlaði sér eitt- hvað með hana? Hafði hún ekki sagt Noel það, um borð í skin- dásamlegt. Auburn elskaði hana, hún mundi giftast honum, hitt hjónabandið skipti ekki máli. En sennilega yrði liún að segja Auburn frá öllu. En fyrst yrði hún að fá frelsi sitt. Henni fannst, að hún gerði rétt í því að segja ekkert um giftinguna núna. Hvers vegna sayldi hún hætta á að missa manninn, sem hún elskaði, bara af því að hún hafði verið vingjarnleg og kennt í brjósti um annan mann? Hún sagði Aubum frá því, þeg'ar hún hitti dr. Frensham um borð í skipinu og batzt honum vinattuböndum, og hvers vegna hún hefði yfirgefið skipið með honum í fyrradag. Þegar liún hafði lokið sögu sinni, sagði Auburn: — En, elsku, barnið mitt, þetta var mjög heimskulegt af þér. Ég býst við að þú hafir haft mikla meðaumkun með vesalings manninum og allt það, en mér finnst hann hafa ætlazt til ansi mikils af þér. Henni fannst hún verða að verja Noel. — Ekki ásaka hann, Bum. Hann var alltof veikur til að gera sér raunverulega.grein fyr ir því,. sem hann var að gera, og ég hafði-ekki brjóst í mér til að neita honum. Honum virtist vera svo miklð í ; mun áð ég kæmi með honum. — Jæja, en mér finnst þú samt hafa lagt töluvert í hættu með því. En þetta héfur samt sem áður allt farið mjög vel, úr því að vlð hittumst, en það hefðum við ekki gert, ef þú hefðir ekki farið með honum. — Já, maður getur líka litið þannig á það. — Er hann handlæknir í Harley Street? —- Nei, hann er hjartasérfræð ingur. Hann hefur lækninga- stofu í Wimpole Street. — Það kemur í sama stað nið ur. Heldurðu ekki að liann sé einn af þessum tízkuskottulækn um? — Nei, ég held hann sé mjög góður maður. Það álitu líka all ir á sjúkrahúsinu. Hann er mjög þekktur læknir. — Ungur eða gamall? — Ég ímynda mér að hann sé dálítið eldri enn þú. — Ég er tæplega þrítugur. — Ó, nei, hann er sennilega 39 ára eða eitthvað þar um kring. — Þú virðist vita heilmikið um hann, sagði Auburn og fann til afbrýði. Er hann aðlaðandi? Hún játaði að Noel væri skemmtilegur félagi, og að henni geðjaðist vel að honmn. Auburn slökkti í vindingnum og dró hana að sér. — Fari ég bölvaður ef ég leyfi þér að fá áhuga á þessum lækni. Þú tilheyrir mér, lieyrir þú það? Hún þrýsti sér að honum. — Ég veit það. Ég veit það, elsku Burn. Hann kyssti hana ástríðufullt, og Peta gat ekki hugsað skýrt um neitt annað en það, að hún þyrði ekki að segja honum frá giftingu sinni og Noels. Henni hafði aldrei dottið i hug að það væri hægt að vera svona ástfang in. Það var eins og hún væri ölvuð af eiturlyfjum, og hún óskaði að þessir töfrar tækju aldrei enda, þeir voru svo unaðs legir. Auburn hélt henni þétt í faðmi sér og sagði: ---Sverðu, að þú kærir þig ekkert um þennan náunga. — Auðvitað geri ég það ekki. Hann er bara vinur — kunn- Hreín frisk heilbrigð húð 1 'i Endurnýjum gömlu sængurnar.1 Seljum-úún- og fiðurhelt léreft. t NÝJA FIÐURHREINStJOTN. j Hverfisgölu 57A. Sírai 16738. 1 _______________ ' í SÆNGUR Meðlimir bláa liðsins munu nota þetta herbergi. ' i — Viljið þið varpa hlutkesti um liver stjórna skuli fyrstu umferð? hoon. — Misstuð þér eitthvað fröken Cal- hoon. — Nei, ég var bara að leita að hljóð- nemiun, — ef þetta á að vera alvöruleik- ur þá hlýtur rauða liðið að geta komizt a'ð fyrirætlunum okkar. > • ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10- apríl 1964. 1$

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.