Alþýðublaðið - 10.04.1964, Blaðsíða 16
Spellvirki framin
í hænsnabúum
-Eeykjavík, 9. apríl. — GO.
í dag var brotist inn í hænsna-
liús fyrir ofan Arnarhraun í Hafn
-arfirói. 30 rúður voru brotnar í
‘liúsinú og eggjunum grýtt í vegg-
ina. Þá var hvolft úr föðurkössum
á gólfin og hurð milli hólfa skilin
eftir opin, þannig að hænsni á
•mismunandi aldri rugluðust sam-
an. Þá var fjöfdi hænsna rekinn
•t&t í hraun.
Ein hæna fannst dauð, en bú-
ast má við að meiðsli hafi orðið á
íleirum, þó að ekki yrði greint í
fijótu bragði. Lögreglan kom á
etaðinn og Ieit á ummerkin.
Um síðustu helgi voru bro'.nar
13 rúður í þessu sama húsi.
í dag voru líka unnin spjöll á
öðru hænsnahúsi í grenndinni, m.
a. voru brotnar þar rúður. Fyrir
^kömmu var ráðist á það hús og
, w^wvwwwwvwvwwwwvww
Sanddæluskipið Sandey er
nú að dæla sandi inni i
Yatnagörðum, en sandurinn
er sðttur upp að Eyri í Kjós.
Er þetta blágrýtissandur og
er tandurlircinn, enda tölu-
verðir straumar við Eyri, er
sjá um að halda honum
hreinum. Skipið er búið að
vera hér syðra í um það bil
viku, en áður var það á Snæ-
fellsnesi við hafnargerðina á
Rifi. Var þar dælt sandi bak
Yiff stálþil og unnið að dýpk-
un, IVIun ætlunin að skipið
fari þangað aftur í næstu
viku, en í sumar mun það
dæla sandi inn í Vatnagarða
og skeljasandi fyrir Sem-
entsverksmiðjuna á Akra-
nesi.
Sandey tekur um 500 rúm-
metra í hverri ferð og þeg-
ar vel viðrar getur hún far-
ið allt að 4 ferðir á sólar-
Uring.
unnið svipað verk og á hinu fyrra í
dag. Einnig voru þá brotnar rúð-
ur í bíl, sem þar var geymdur. Þeg
ar eigandinn kom að, sá hann að
börn hlupu frá húsinu.
Haldið er að hér séu börn að
verki og er illt til þess að vita,
að ekki skuli vera friður með
skepnur í læstum húsiun, fyrir
skrílslátum. Þetta er sannarlega
faraldur, sem verður að kveða nið
ur hið fyrsta.
MálverkauppbóÖ
til ágóöa fyrir
Tjaldanesheimilið
Reykjavík, 9. apríl. — HP.
Á morgun kl. 5 heldur Lions-
klúbburinn Þór málverkauppboð
í Sigtúni lil ágóða fyrir Tjalda-
nesheimilið, sem nú er í byggingu
Verður þar framvegis heimili
fyrir börn, sem af einhverjum á-
stæðum liafa dregist aftur úr jafn
öldum sínum í skóla eða á öðr-
um vettvangi. Roðin verða upp
milli 30-40 málverk, sem klúbbur-
inn hefur safnað, flest þeirra gjöf
klúbbsfélaga sjálfra. Meðal mál-
verkanna eru mörg eftir kunn-
ustu listmálara okkar. Uppboðinu
stjórnar Sigurður Benediktsson,
en meðan það stendur verða born
ar fram kaffiveitingar í Sigtúni.
Ættu Reykvíkingar ekki að láta
uppboðið fram hjá sér fara heldur
fjölmenna þangað og styrkja gott
málefni.
Reykjavík, 9. apríl. — KG.
Nokkuð harður árekstur varð
í Hafnarfirði í gær rétt eftir há-
degi. Bifreið kom akandi eftir
Reykjavíkurveginum og hugðist
bifreiðarstjórinn beygja til hægri
inn Flatahraun á móts við Frost
hf. en tók ekki eftir bifreið, sem
kom á móti eftir Reykjavíkurveg-
inum. Lenti sú aftan til á þeirri
fyrri með þeim afleiðingum, að
hún snérist við á götunni. —•
mWM%WIWMMW»W%WWWMW%W***W* l**%MM*MMMMWM%%*M**M*M*MM**MM*M**
Á aö flytja skólp frá jafn-
stóru svæði og Reykjavík er
Reykjavík, 9. apríl. — ÁG.
Gerð holræsisins mikla í Foss
vogi hefur gengið vel, og er
allt útlit fyrir að þaff verði til-
búið að ári eins og áætlað hef-
ur verið. Nú þegar hefur skurð-
urinn verið grafinn upp að
Hafnarfjarðarvegi og niður í
sjó fyrir utan Skeljungsbryggj-
una. Þessi hluti er sá erfiðasti.
Hefur þurft að grafa allt að 7
metra niður, og sprengja klapp
ir og stórgrýti.
Blaðið ræddi í gær við Ás-
geir Valdimarsson, verk-
fræðing, sem hefur yfirum-
sjón með verkinu. Hann sagði,
að skurðurinn yrði um 7 kíló-
metrar fullgerður. Liggur bann
frá Árbæjarbletti, efst í Foss-
vogi og í sjó fram fyrir utan
Árbæjarbletti, efst í Fossvogi
og í sjó fram fyrir utan Skelj-
uugsbryggju. Það var Véltækni
h.f. sem baúð lægst þcgar
verkið var boðið út, en fjórir
aðilar sendu tilboð.
Ásgeir sagði, að nú væri búið
að grafa um 1600 metra, og
væri skurðurinn kominn upp
undir Hafnarfjarðarveg. í þenn
an kafla er nú byrjað að leggja
rör, en áður hefur verið steypt
10 cm. þykk undirstöðupíata,
sem rörin eru lögð ofan á. Vél-
tækni hf. steypir rörin, og eru
þau ekki með í útboðinu.
Ásgeir sagði, að eftir áætlun-
inni ætti skurðurinn að vera
kominn upp fyrir Borgarsjúkra
húsið fyrir 15. nóvember í
haust. Öllu verkinu ætti svo
að vera lokið 15. nóv. 1965.
Ásgeir kvað allt útlit fyrir, að
þeir stæðust áætlun, euda hefði
gengið vel aö grafa og leggja
rörin. Um 40-50 menn vinna
að gerð holræsisins, og er not-
að mikið af stórvirkum vinnu-
vélum. Til dæmis var keyptur
sérstakur bor til að bora í
klappirnar fyrir sprengitúbur,
og einnig er notuð mikil frönsk
(Framhald á 13. síðu).
^^^^^^%%^%^%%%%%%%%%*%*%%%%*%%%%%%%%%%'%%%%%%%%*% **%*%***%%%%%*%%%%*%%%%*%%%%%*%%%%%%%*%%%%%%%%%%1
;Frönsk nýjung komin á markað hér:
Flotex: dúkur og
gólfteppi í senn
Reykjavík, 9. apríl. — KG. I
Komin er á markaðinn hér ný
gerð af frönskum gólfdúk, sem
nefndur er Flotex. Hefur liann
þann kost, að liann virkar bæði
sem dúkur og tcppi. Þræðirnir
j eru úr nælon og eru þeir limdir
inn í dúkinn og verður þá á-
fcrðin sú sama og á venjulegum
teppum.
Dúkur þessi er limdur á gólf-
in og auk þess, sem liann á að |
vera ínun sterkari og endingar-
belri en önnur teppi, þá er allt
viðhald hans auðveldara, því ekki
kemur;að sök, þó að hann sé þveg
inn, ef slæmir blettir koma í
hann..IIann er vatnsþéttur og sak-
ar ekki, þó að hann blotni. Þá má
að sjálfsögðu ryksuga hann og ló-
ast hann ekki. Dúkurinn er bæði
hljóð pg liitaeinangrandi. Flotex
dúkurinn er framleiddur í tveim
þykktúm og er önnur þeirra sér-
slaklega ætluð fyrir skrifstofur og
1 (Framhald á 13. siðn).