Alþýðublaðið - 09.05.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.05.1964, Blaðsíða 8
í UPPHAFI Kóreustríðsins var kona ein tekin höndum af komm únistum og dæmd til dauða af her rétttt Kona þessi var Johanna Luise, dóttir hins fræga kven- njósnara Mata Hari. Hún hafði gerzt njósnari í liði sunnanmanna í Kóreu til þess að bæta fyrir brot móður sinnar í fyrra stríð- inu. Afrek dótturinnar megnuðu þó ekki að vega upp á móti þeim verkum, sem móðirin vann og valda þ'ví að nafns hennar verður jafn lengi minnzt og fyrra stríðs- ins. Það var árið 1904 sem Marg- arethe Gertrude Zelle kom til Parísar í fyrsta sinn. Hún leitaði þá uppi hinn kunna leikhúsmann Ernest Moullier. Hún sagði hon- um, að hún væri fædd í Amster- dam árið 1876, dóttir auðugs kaup manns þar, 1895 kvaðst hun hafa gengið í hjónaband með hollenzk- um skipstjóra, sem var 30 árum eldri en hún. Sama ár eignáðist hún son. Stuttu eftir það fluttu hjónin til Jövu. Ekki leið þá á löngu þar til bæði loftslagið og# hinar óvenjulegu kringumstæður tóku að herja á taugar hennar, og þegar eiginmaðurinn varð jafn- framt stöðugt verri í sambúð, varð tilveran henni þarna óþol- andi. Morgun einn fann hún son sinn látinn, dreplnn af konu innfædds hermanns. Þegar svo hús þeirra brann stuttu eftir, ákvað hún að yfirgefa Jövu. Þegar hún hitti Moulier, var hún í atvinnuleit. Moulier stakk uþp á því. að hún reyndi sig sem javönsk dansmey. Með svart hár sitt og sveigjan- legan líkama ætti það ekki að valda henni erfiðleikum. Hún féllst á þessa hugmynd þótt upp- runalega hefði hún ætlað sér að verða sirkusreiðkona hjá Moulier. Ekki leið á löngu þar til ýms- ar sögur komust á kreik um þessa nýju dansmey. Sagt var, aiS móðir hennar hefði verið hofdansmær og hefði dáið þegar Margarethe Zelle fæddist. Þess vegna hefðu hofprestamir vígt hana guðinum Siva og gefið henni nafnið Mata' Hari, sem kvað merkja eitthvað í þá áttina: „Augnastjama morgun roðans". Hvort vinsældir hennar stöfuðu af því, að hún kom fram býsna fáklædd skal ósagt látið, en dansinn var aðallega fólginn í miklum mjaðmasveigjum og tæl andi armhreyfingum. Hvar sem hún sýndi sig var henni geysivel tfekið, jafnt opinberlega sem í einkasamkvæmu. Eitt sinn var henni hleypt inn í hof austrænna trúarbragða í París — og við það tækifæri bætti hún við dansinn löngu eintali, sem hún flutti ým- ist á frönsku, ensku, hollenzku, þýzku og javönsku, en hún gat, að sögn brugðið öllum þessum tung- um fyrir sig -án þess að greind ist, að þar talaði útlendingur. Jafnframt því sem sviðsvinsæld- ir hennar jukust yjafn og þétt, mátti sjá hana á frumsýningum og boðum þar sem hún var jafn an í fylgd með einhverju stór- menni, sérstaklega áhrifamiklum ríkismönnum. En svo kom brátt, að henni þótti of þröngt um sig í Parísis, hún vildi verða heims- kona í þess orðs bókstaflegri merkingu, og svo fór, að hún varð tíður gestur í Róm og Briissel. Þó varð henni einna tíð förlast til Þýzkalands og þar var hún stödd hinn 1. ágúst 1914, þeg ar Vilhjálmur annar las upp stríðsyfirlýsinguna gegn Frakk- landi. Hún sat þó við hlið Grie- bels, yfirmanns þýzku lögreglunn ar. Fyrstu mánuði stríðsins heyrð ist lítið frá Mata Hari, en 1915 fengu frönsku gagnnjósnirnar skeyti frá ítölsku leyniþjónustunni um, að Mata Hari væri um borð í skipi á leið til Neapel. Menn óttuðust, af einhverjum ástæðum, að endurkoma hennar til Frakk lands merkti, að hún hefði gerzt njósnari Þjóðverja. Frá þeirra stund, að hún steig á franska jörð voru tveir leyniþjónustumenn stöðugt á hælum hennar. Þegar hún kom til Parísar flutt ist hún á Grand Hótel, sem enn bar engin merki þess darraðar dans, sem stiginn var í Evrópu. Þar voru lystisemdir lifsins samar og áður. Eina breytingin var, að í stað borgaralegra samkvæmis- klæða voru komnir einkennisbún- ingar og dansleikirnir voru haldn ir til stuðnings ýmsum málefnum styrjaldarinnar. Eftirlitsmönnum Mata Hari tókst ekki að finna neitt óeðli- legt í hegðun hennar né var sá hópur, sem hún umgekkst annar en við máíti búast að öllu eðli- legu. Að vísu virtist sem svo, að í stað auðmannanna, sem hún sótt ist eftir félagsskap við fyrir stríð ið væru komnir herforingjar. Til viljun olli því, að upplýsingaþjón ustan komst að því, að hún not- aði póstsambönd hlutlausu land- anna og henni heppnaðist að kom ast yfir eitt bréf frá henni, sent í fljótu bragði virtist ekki hafa annað að geyma en venjulegar kveðjur dóttur til foreldra sinna, sem bréfið var stílað til. Það var nokkrum vikum seinna, sem net gagnnjósnakerfisins tók fyrir al- vöru að þrengjast að henni. Mata Hari bað um vegabréf til franska bæjarins Vittel, en þar stóð yfir bygging flugvallar. Hún fékk vegabréfið, en gagnnjósnun um til óblandinnar úndrunar eyddi hún öllum tíma sínum í að hjúkra rússneskum hferforingja, sem hafði misst sjónina í hetju- legri framgöngu á vígstöðvunum. Þrátt fyrir skort á sönnunar- gögnum var ákveðið að vísa Mata Hari úr landi, en þegar hún var færð fyrir hermálaráðherann, stað hæfði hún, að hún hefði einung- is heimsótt vini sína í Þýzka- landi. Eftir það bauðst hún til að halda til Brússel, þar sem fornvin ur hennar Moritz von Bissing hers höfðingi hélt sig. Hún kvaðst skyldu reyna að afla mikilvægra upplýsinga hjá honum, sem hún myndi láta Frökkum í té. Á þetta var fallizt og henni voru gefin upp nöfn 6 leynilegra franskra peningamanna í Brússel. Hinar lofuðu leynilegu upplýsing ar komu aldrei til Frakklands. Hins vegar var einn hinna frönsku sendimanna handtekinn — og sama dag yfirgaf Mata Harl Brússel og hélt af stað til Eng- lands. Scotland Yard var þegar í stað gert viðvart og hún var gripin við komuna til Englands og færð á fund sir Basil Thomson, sem hún töfraði svo gersamlega á lítilli stund, að hann hvarf al- MATA HARI — hin fræj garethe Zelle og var fædi ist með honum til Jövu. I menn á hana sem ausfræ Berlín. Undir yfirskyni bæði fyrir Þjóðverja og I ið 1917, þegar hón var a: í október sama ár va

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.