Alþýðublaðið - 10.06.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 10.06.1964, Blaðsíða 9
r^iiiiiiiiiiiiiiiiimiiimuimiii§iAMiiiiiir. iimimiiimmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiMiiiiiiiMimiimmiiuiiiiuiiiiiiuiiiiiiiitiiiiii 'imimiiiiiiimiiiiiimiiiiuuiuin t,A Skemmtun fyrir aidrað fólk ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykjavíkur gekkst í síðustu viku fyrir skemmtun fyrir aldr að fólk í Iðnó. Þessar skemmí- anir eru orðinn fastur liður í starfsemi félagsins og njóta mikilla vinsælda. Það var troðfullt út úr dyr- um, þegar Ijósmyndara Alþýðu blaðsins bar að, dansinn dun- aði og góð stemming ríkti. Fyr ir dansinum lék hið vinsæla RONDO-tríó, en það skipa þeir MatLj Karejs, sem leVkur á harmoniku, Gunnar Bernburg, bassaleikarf og Guðmundur Steinsson, sem leikur á tromm ur. Var gerður góður rómur að fjörugum leik þeirra þremenn- inganna. Auk dansins voru vönduð skemmtiatriði, sem leikararn- ir Rúrik Haraldsson,, Róbert Arnfinnsson og Emelía Jónas- dóttir önnuðust. Þessi skemmtun fyrir aldrað fólk þó ti takast cinkar vel og var Kvenfélagi Alþýðuflokks- ins til sóma. (Myndirnar tók J. V.). IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM 1<lllll.|ifllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll**lll*l*ll IIIIIllllllllllllllllllllllllll 1111111111111111111111111IIIIMI sl-<illllll lllllllllllllllllllllllllllllllllllllW' . Viðbygging M.R. tilbúinn í haust Reykjavík, 9. júní - IIP NÚ er búið að steypa upp nýju viðbótarbygginguna bak við Menntáskólann í Reykjavík, og er um þeesar mundir unnið að því að tnúrhúða hana og pússa að innan, auk þess sem unnið er þar að lögn- um. Stöðugt hefur verið. unnið að framkvæmdum þar að undanförnu, þó að þær hafi gengið seinna en æskilegt hefði verið vegna skorts á vinnuafli, einkum faglærðum iðnaðarmönnum. Vonir standa þó til, að hægt verði að taka megin- hluta byggingarinnar í notkun í haust. Enn er að vísu mikið eftir ógert, en ef nægilegt vinnuafl fæst í sumar, er talið líklegt, að hægt verði að hefja kennslu í nýja hús- inu í haust, enda er stefnt að því af hólfu viðkomandi yfirvalda, sem gefið hafa loforð þar að lútandi. Þegar blaðið átti tal við rektor menntaskólans, Kristinn Ármanns son í dag, kvaðst hann búast við því, að í skólanum yrðu næsta vet- ur milli 900—1000 nemendur í allt, Frh. á 13. síðu. • Vélin yðar þarfnast sérstaks þvottaefnis — þessvegna varð DIXAN til. • DXIAN freyðir lítið og. er því sérstaklega gott fyrir sjálfvirkar þvottavélar. • DIXAN fer vel með vélina og skilar beztum árangri. einnig hvað viðkemur gerfiefnum. • DIXAN er í dag mest keypta efni í þvotta- vélar í Evrópu. • DIXAN er framleitt hjá HENKEL í Vestur- Þýzkalandi. NÝ SENDING Svissneskar kvenblússur Fjölbreytt úrval. • GLUGGINN Laugavegi 30. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10. júní 1964 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.