Alþýðublaðið - 11.07.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 11.07.1964, Blaðsíða 9
1 Siúdentsprófið nýtur mikils á f= , , H lits í Frakklandi, og þeir sem jj komast í gegn um hreinsunar- 1 eld þess eru yfirleitt álitnir ( hólpnir, því prófið tryggir þeim 1 aðgang að háskólum, sem ala Iupp verðandi stjórnendur og framámenn landsins. . IStúdentsprófunum lauk í-fyrri viku í Frakklandi. Stúdentar gengust fyrir miklum gleðilát- um í tilefni þess að prófum var lokið. í sumum borgum veltu þeir um bílum, kveiktu elda á gangstéttum og köstuðu eggjum í lögregluna, og allt var þetta gert í tilefni dagsins. Sumir voru raunar að gleðjast yfir því, að flj þeir höfðu komizt yfir nokkrar • j spurninganna óður en prófin U fóru fram. p . Haft er svipað fyrirkomulag á p stúdentsprófum í Frakklandi og || hér á íslandi er haft á um lands- jj prófið. 30 frægir prófessorar @ semja prófspurningarnar, sem H síðan eru sendar til menntamála y ráðuneytis. Þaðan fara þær svo í || ríkisprentsmiðjuna, en þar fær enginn einn setjari að setja meira en eina línu úr prófunum. Þegar búið er að prenta verk- efnin eru þau geymd í læstum peningaskápum, þar til þrír dag ar eru eftir til prófs. Þá eru inn sigluð umslög með verkefnunum í send til prófstaða. Á sama tíma um landið allt eru innsiglin rof in og nemendum fengin verk- efnin í hendur. í sumar tókst ekki betur til en svo, að í Marseille komst einhver yfir hluta prófsins og hefur ver ið gizkað á að þar hafi undir- heimalýður borgarinnar verið að verki. Viku fyrir prófið gengu þrjár erfiðar spurningar úr þeim hluta prófsins, sem fjallaði um heimspeki, kaupum og sölum. Foreldrar og nemendur greiddu margir hverjir með glöðu geði rúmlega 13 þúsund krónur fyrir þessar spurningar. Spurningarnar voru þessar: Sannar skynjun tilveru hlutar? Er rétt að tala um lexíur for- tíðarinnar? Er dómgreindar- frelsi samrýmanlegt sannlciks- nauðsyn? ■IPIlll[SllffilllIlili!llllllllil!l!!l[:!!lli!!;l!!í!!!;i!l!!!!!!llllllllIl!lllIll!lllííl!! Þegar fréttir af þessari próf- y sölu bárust til Nizza, Korsíku, y Toulon og Parísar lækkaði verð-3 ið niður í um það bil 1300 hundr- uð krónur íslenzkar. Lögreglan fékk fréttir af þessu \ svindli sama dag og prófið var : haldið en, vegna skriffinsku-y báknsins reyndist ókleyft að y skipta um próf. í Marseilles var talið að 80% fg stúdenta hefðu vitað um spurn- ingarnar, og þegar einn af cm-. bættismönnunum, sem sáu um próflð þar var spurður hvers- vegna ekki væri skipt um próf, H sagði hann að menntamálaráð- M herrann, væri sá eini sem gæti ákveðið það, og það hefði alltaf verið á tali í París. Ekki stendur til að láta stúd- enlana taka prófið aftur, heldur i hefur menntamálaráðherrann.H Fouchet, ákveðið að bera skuliH saman prófúrlausnir og þau verkefni, sem' nemendur liafa : leyst af hendi í vetur. Þeir sem þykja grunsamlega háir á stúd entsprófinu, verða látnir gangaU undir munnlegt próf. !UIHÍlllUínftöl!llill!Í!li0ilifll!!!!KiilinUllllÍlílHBMiUtniliÍltóí!ÍI1iil!líill!lÖlllÍfil!!HlS og stöðvar hermanna og gert sprengjutilræði. Nýlega var sprengjum kasíað að bústað Ben Bella í því skyni að sýna Algeirs- borgarbúum og öðrum, að baráttan gegn Ben Bella væri ekki aðeins háð á fjöllum uppi heldur einnig í borgum og bæjum. Ben Bella hefur haldið margar útvarpsræður og hvatt landsmenn til að berjast gegn uppreisnarm en orá hans virðast ekki hafa haft * mikil áhrif. Þá hefur hann fyrir- skipað fjöldahandtökur, og munu alls um 100 þekktir stjórnmála- menn, Sem grunaðir eru um að fylgja stjórnarandstæðingum að málum, sitja í fangelsi. Ferrhat Abbs fyrrum forsætisráðherra er í stofufangelsi. Á fundi sem FLN hélt á laugar- daginn var samþykkt að reka fimm .helztu andstæðinga flokksins, þá Chaabani öfursta, Mohammed Bou diaf, Hocine Ait Ahmel, Hassani Moussa og Mohammed Khidder Jafnframt var þess krafizt, að Am ar Bentoumi dómsmálaráðherra, bróðir hans, og níu þingmenn aðr- ir yrðu sviptir sætum sínum á þingi. ★ AFSTADA HERSINS. Ben Bella er í miklum andbyr, og stjórnarandstöðunni vex stöð- ugt ásmegin. Andstaðan virðist nú Framh. á bls. 10 Veljib yður vini meðal blómanna 'Sýningarblómin og þúsundir annarra plantna bíða eftir yður. Gróðurhús Paul Michelsen Hveragerði. Byggingarfélag verkamanna í Reykjavík TIL SÖLU 2ja herbergja íbúð í 10. byggingarflokki. Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi umsóknilr sínar fyrir kl. 12 á hádegi mið- vikudaginn 15. þ. m. á skrifstofu félagsins, Stórholti 16. Stjórnin. Benzínafgreiðsla Ungur maður óskast til afgreiðslustarfa á benzínstöð. Tilboð, er tilgreini aldur og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsilns fyrir mánudags* kvöldl. Merkt: BENZÍNAFGREIÐSLA. Heildsölubirgðir: Kristján Ó. Skagfjörð h.f. Reykjavik. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 11. júlí 1964

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.