Alþýðublaðið - 06.09.1964, Síða 15
langar í raun og veru til að seg.ia
þér, er að þú ættir að hugsa vel
um það, hve milcils virði þú ert.
Ef þú gerir það ekki, getur hvaða
stúlka sem er krækt í þig.
— Hvers vegna hefur þú á-
hyggjur af því?
— Þetta er afar heimskuleg
spurning. Auðvitað af því að mér
geðjast svo vel að þér. Okkur
geðjast öllum svo vel að þér —
börnunum, matþegunum og Teck.
Og guðföður þínum. Og Loisu og
Fredericu. Og Welty og Euph-
oniu. Hæ, áttum við ekki að
beygja hérna?
— Svo að þú tókst eftir þvi í
þetta skipti.
—- Áttu við að þú sért búinn
að aka rangan veg áður?
— Ég er búinn að aka í kring-
um þessa húsasamstæðu síðast-
liðnar tíu mínútur.
Nú voru þau komin heim. Hann
stöðvaði bifreiðina, en þau sátu
áfram í henni hreyfingarlaus.
— Hérna býr þú, sagði hún.
— Það er gestaboð þar inni. Ef
þú kysstir mig góða nótt núna,
mundi enginn sjá það.
Hann leit á hana, en hreyfði
sig ekki.
— Langar þig ekki til þess,
spurði hún.
— Langar til? Jú, Fran, víst
langar mig til þess. Ég hef svo
mikla löngun til þess að . . . ja,
meira en ég fæ með orðum lýst.
En . . .
— Hlustaðu nú á mig, sagði
hún. — Ef big langar einhvern-
tíma til að kvssa einhverja
stúlku, þá máttu vel byrja á öll
um þínum, en ... en ... en ...
En þegar þfð er ég. sem þig lang
ar til að kyssa, þá skaltu bara
gera það.
Og það gerði hann, heitt og
innilega.
Fólkið frá Camnden Height og
Chelese fylkti liði á frumsýning-
una á leikrHjnu. sem Jonathan
lék í, og flest af þeim kunnu það
utan að. Þar voru Edmund og
Fran, Ivor. Louisa og Frederica,
lierra Bislev. Welty, Euphoia og
Teck, Sefton og frú Bisley gátu
ekki komið Wm var í heimsókn
hjá vinafóiki sínu upp í sveit, og
Sefton var nýkominn á fætur
eftir að hafa leeið í slæmri in
flúenzu. Daginn eftir ætlaði Ed-
mund að aka honum til systur
lians, sem var ekkia og bjó upp
í sveit. Þar ætlaði hann að safna
kröftum eftir veikindin.
Þessi leiksýning hafði ekki vak
ið mikla athvgli f Manchester, og
það ríkti ekki mikil eftirvænting
meðal áhorfenda. Edmund hitti
fá af kunningjum sínum, en í
stúku einni kom hann auga á
Angelu. Hann hafði ekki búist
við að sjá hana hér. Hún sá hann
líka —: og fólkið, sem hann var
með, og veifaði til hans.
Fólkið frá Campden Heights
dreifði sér um anddyrið í hléinu
eins og það hafði ákveðið fyrir
fram, og töluðu hátt og mikið
um hversu stórkostlegan leik
hinn ungi leikari, Jonathan Dee,
hefði sýnt í hlutverki sínum sem
hinn lifsleiði, ungi maður.
— Já, en þarna er jú Ed-
mund, heyrði Edmund að Angela
sagði að baki honum. — En
hvað það er gaman að sjá þig,
14
vinur minn. Þú þekkir Matt og
Betzy, er það ekki?
Hann gerði það, en Angela,
Matt og Betzy þekktu ekki ung-
frú Nash. Matt og Betzy voru
kynnt fyrir Fran sem lafði og
lávarður Bridiing. Þau voru mjög
glæsilega búin, og héldu uppi
gáfulegum og heimsmannslegum
samræðum við þau sem eftir var
af hléinu. Eftir sýninguna borð
uðu Edmund og Fran heima hjá
Edmund. Welty hafði útbúið kalt
borð fvrir þau og rommpúns. Þau
borðuðu fyrir framan árinlnn í
stofunni og ræddu um Jonathan
og leikritið — en svo settist
Fran upp í legubekknum og dró
undir sig fæturna.
— Edmund . . . ég er eitthvað
svo innilega glöð . . .
— Heyrðu mig núj hvað ertu
eiginlega búinn að drekka mikið
af r'>Tv^rv'ín,i?
— Næstum ekkert. Hún teygði
úr sér Ég er svo glöð, svo
glöð, af því að ég hitti þig.
Hann langaði tjl að segja að
hann væri lika glaður vegna þess
að hafa hitt hana, en honum
fannst það minna einum of mikið
á setningarnar í leikritinu, sem
þau höfðu verið að sjá.
— Með tilliti til þess, sem
skeði i kvöld, sagði hún, en
þagnaði svo og virtist hugsi. —
Segðu mér eitt . . . auðvitað vildi
ég hvergi annars staðar búa en
hér . . . en finst þér ekki dálítið
leiðinlegt, þegar ég tala um mat
söluna mína? Ég á við, þegar við
erum að ræða við fólk eins og
Angelu og vini hennar.
— Nei, mér finst það ekki agn
arögn leiðinlegt.
Hún stóð á fætur, gekk til
hans, lagði höndina á handlegg
hans og sagði hægt:
— Ertu viss um, að þú sért
ékki einmana núna, þar sem þú
umgengst þara olckur — Ivor,
Jonathan, Ramon, mig og þau
hin?
— Já, ég er viss um það.
— Og þér finnst ekki lengur,
að þú sért 108 ára gamall, er
það.
— Jú, stundum. Til dæmis ein
mitt núna, af því að þú lítur út
fyrir að vera svo hræðilega ung
og . .
Hann varð að þagna, því að
hún lagði handleggina um háls
inn á honum og dró höfuð hans
að barmi sér.
Þegar hann loksins sleppti
henni tók hann báðar hendur
hennar og hélt þeim upp að kinn
sér.
— Fran, sagði hann. — Ég
elska þig, afar, afar heitt.
— Og ég elska þig líka, sagði
liún.
Hann ók henni heim. Hann
hafði heyrt það sagt, að sumt
fólk æki afar vel undir áhrifum
áfengis og liann var ölvaður af
liamingju. Hún sat við hliðina á
honum. Hún var hans — Fran-
cesca Rosamund Annabelle Nash.
Þegar hann kom heim til sín
aftur, kom hann bifreiðinni fyrir
í bílskúrnum og ætlaði upp til
sín. Sér til mikillar undrunar
heyrði hann að Louisa var að
bjóða einhverjum gesti góða nótt,
en hann heyrði ekki að gestur-
inn svaraði því neinu. Svo lok
aði hún dyrunum hjá sér, og
hann heyrði fótatak — og svo
sá hann Teck birtast á gangstétt
inni og skildi strax af hverju
Teck hafði ekki svarað liinum
innilegu kveðjum Louisu.
Engifervínið.
Hann varð að aka gamla mann
inum heim. Hann gekk til hans,
tók um handleaeina á honum og
leiddi liann blíðlega í áttina að
bílskúrnum.
Um leið sá hann að útidyrnar
á næsta húsi onnuðust, og á tröpp
unum birtist Wiversham lávarð-
ur. Hann var að fylgja Robert
Forth til dyra.
— Gott kvöld, Edmund. Rödd
Roberts frænda hans var vin- ,
gjarnleg: — Þetta er frændi
minn Edmund. Hann er nágranni ^
þinn, Willy, eins og ég var búinn t
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu sængurnar.
Seljum dún- og fiðurheld ver.
NÝJA FEÐURHREINSUNIN
Hverfisgötu 57A. Sími 16738.
að segja þér. Varstu að koma.
heim, Edmund? (
— Nei, ég er að taka af stað^
svaraði Edmund. — Ég þarf að-
taka manni heim til sín.
— Ha — ha — hann virði^t
ekki vera upp á marga fiska,
sagði Wiversham lávarður o'g
gekk lengra niður í tröppumar
til að sjá betur. — Það var synd,
að þú skyldi vera búinn að
hringja eftir leigubifreið, Ro-
bert. Frændi þinn hefði getað ék
ið þér heim líka.
— Edmund dröslaði- Teek út
úr bifreiðini við Campden
Heights, og leitaði í vösum hans
eftir lykli að útidyrahurðinni. •'
— Hann er í vestisvasanutfi
hans, heyrði hann allt í einu Bis-
ley segja.
Hann stóð í opinu á lárberjalim
girðingunni. Hann gekk til þeirra,
fann lykilinn, og opnaði dyrnár
og hélt þeim opnum meðan að
Edmund bar Teck inn.
1
7. KAFLI.
Edmund gat ekkert sofið þessa
nótt. Um morguninn vafði hann
Sefton vel inn í teppi og ók með
hann til Somerset. Edmund var
alltof hamingjusamur, og Sefton
alltof lasinn, tii að þeir finndu
hjá sér þörf til að tala — og
alls ekki' rétta andrúmsloftið fyr-
ir Edmund til að tilkynna Seft
on trúlofun sína.
Þegar þeir náðu Somerset skall
yfir skyndilegt óveður, hræðilegt
rok og rigning. Edmund varð að
aka mjög hægt, og varð stöðugt
RDiNN ADIIID „NÚ færðu ekki meira brauð, Faxí
UKAIlnAK rninn. Mamma verðux að fá eitthvað'V.-j,
W8KDMKSQ3I2
TE!
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
6. sept. 1964 í*|
Æ