Alþýðublaðið - 16.10.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.10.1964, Blaðsíða 3
Ekki er búizt við stefnubreytingu WASHINGTON og LONDON 15. október (NTB-AFP). _ Frétt irnar um að Krústjov hafi látið af starfi forsætisráðherra og aí alritara kommúnistaflokksins komu á óvart í Washington í kvöld, en opinberir formælendur vildu ekkert segja um málið. Lyndon Johnson forseti er á kosn ingaferðalagi í New York og er skýrt frá gangi mála jafnharðan. Bent er á, að bandaríska stjórn in hafi stutt ósk Krústjovs forsæt isráðherra um minnkandi spennu í sambúð austurs og vesturs. Sagt er, að fráför hans virðist standa í sambandi við deilur Sovétríkj- anna og Kína. Kunnugir í Washington segja að Leonid Bresjnev, sem tekur við Starfi flokksritara, sé þekktari á Alvarlegt slys á Akureyri Akureyri, 15. okt. GS-ÁG. ALVARLEGT slys varð hér í dag í aðalspennistöð rafveitunn- ar. Mjög stór og þung hurð, sem rennur eftir bitum, losnaði og féli yfir mann. Lenti hún að einhverju leyti á honum og mun hann hafa slasast alvarlega. Maðurinn, sem lieitir Páll Jónsson og er frá Akur- eyri, var fluttur á sjúkrahús og ókunnugt var um líðan hans í kvöld. Vesturlöndum en Alexei Kosyg- in, sem tekur við starfi forsætis- ráðherra. Hins vegar eru báðir taldir aðhyllast „Krústjov-lín- una“. Á London hafa fréttirnar frá Moskvu einnig vakið ‘uppnám með al stjómmálamanna. Hins vegar er engin skýring gefin á atburð- unum. Kunnugir í London benda á, að Reykjavík, 15. okt. ÁG. VERKALÝBSFÉLAGIÐ í Hrís- ey ákvað fyrir skömmu, að af- greiða ekki vöruflutningaskip, sem þangað kæmu á næturnar og um helgaf. Síðan hafa tvö flutninga skip, sem komið hafa að nóttu til orðið frá að hverfa án þess að hægt væri að lesta þau. Stjórn frystihússins í Hrísey ákvað í gær vegna þessa ástands, að loka frysti Iiúsinu. í gærkvöldi tókust svo samningar um að skipin yrðu af- greidd, kæmu þau fyrir kl. 12 á miðnætti. Einhver brögð munu hafa verið að því, að skip kæmu til Hrís- eyjar á næturnar til að lesta fisk frá frystihúsinu. Skapaði þetta ein hverja óánægju innan verkalýðs það virðist ekki tákna neinar veru legar breytingar á utanríkisstefnu Rússa að Bresjnev sé skipaður leiðtogi kommúnistaflokksins og Kosygin forsætisráðherra. Einnig sé ósennilegt að þetta boði breytta afstöðu gagnvart Kínverj um. Fregnin um atburðina i Moskvu kom stjórnmálamönnum í Paris Framh. á 13. síðu. félagsins, og var þessi ákvörðun þá tekin. Stjórn frystihússins taldi þetta ástand valda því að starfs grundvöllur hússins yrði óörugg ari, og ©kki va^i hættandi á, að halda rekstrinum áfram. Var því ákveðið að loka húsinu. í gærkvöldi var svo haldinn fundur og varð þar að samkomu lagi, að kæmu flutningaskipin fyrir kl. 12 á miðnætti, yrðu þau lest uð og um leið var' ákveðið að frystihúsið yrði opnað' á ný. Hofsjökuli kom til Hríseyjar í fyrrinótt og var annað skipið, sem ekki fékkst þar lestað. Voru það um 800 kassar af fe’ystum ufsa, sem skipið átti að taka. Varð að fá bát frá Dalvík til að flytja fisk inn til Akureyrar. Tvö skip fengu ekki afgreiðslu MUMUMUUHMMUMMUMUUVlMlHHHWMiHUlHMmMIUMHMUMMHUWMMmUUM Reykjavík, 15. okt. ÁG. Alþýðublaðið hringdi í kvöld í dr. Kristin Guðmundsson, ambassador íslands í Moskvu og spurði hann frétta af síð- ustu atburðum. Dr. Kristinn kvaðst lítið geta um málið sagt Enn væri aðallega orðrómur á kreiki. Hann hefði haft sam- band við önnur sendiráð, og yfirleitt væri talið sennilegt að Krustjov hefði vikið. Dr. Kristinn kvaðst fyrst hafa frétt af þessu á sjöunda tím- anum í dag. Þá hefði hann ver- ið á tónleikum og hitt rúss- neskan embættismann, sem sagði honum að Krustjov hefði sagt af sér, en bað hann fyrir fréttina. Dr. Kristinn kvaðst hafa heyrt miklu. meira um málið utanlandsr frá, gegnum erlendar útvarpsstöðvar. Ambassadorinn sagði, að Krustjov hefði undanfarinn hálfan mánuð verið austur í Kákasus, og m.a. ekki setið kvöldverðarboð, sem haldið var í dag til heiðurs forseta Kúbu. Ekki vissi dr. Kristinn til þess að myndir af Krustjov hefðu verið teknar niður úr opin- berum byggingum, og ekki hafði hann orðið var við að lögregluvörður hefði verið auk inn á götum. Hann gat þess þó, að enginn lögregluvörður hefði verið við sendiráðið og önnur sendiráð í sumar, eins og undanfarin ár, en í gær hefðu lögreglumenn skyndilega verið komnir þar við allar dyr. Hann kvaðst engan andróður hafa heyrt gegn Krustjov og engar sögur gengið að undan- förnu um að hann væri að hætta störfum. Að lokum sagði, dr. Kristinn, að í dag hefðu Austan tjaldslöndin verið beðin að hlusta eftir fréttum í kvöld í Moskvuútvarpinu. Hann bað síðan að heilsa öllum heima. dr. Kristinn WASHINGTON, 15. október (NTB-Reuter). — Lyndon B. John- son forseti hefur skipað rannsókn í máli hins nána ráðunautar síns, Walter Jenkins, sem sagði af sér í gær. Jenkins var handtekinn 7. október fyrir ósæmilegt athæfi gagnvart 67 ára gömlum manni á KFUM-heimili í Wasliington. Á þessum sama stað var hann einn- Ag handtekinn fyrir svipað brot 1959. Formaður landsstjórnar Repú- blikanaflokksins, Dean Burch, krafðist þess fyrr í dag að gerð yrði ítarleg grein fyrir Jenkins- málinu. Hann sakaði Johnson for seta um að hafa hilmað yfir Jenk ins í 5Va ár, þar eð hann hefði leynt því að Jenkins hafði verið viðriðinn svipað mál og handtekinn þess vegna. Það var yfirmaður FBI, J. Ed- gar Hoover, sem skýrði frá því í dag, að Johnson forseti hefði fyr- irskipað nákvæma rannsókn í Jenkins-málunum. Hoover sagði, að rannsóknin væri þegar hafin. Forsetaefni repúblikana, Barry Goldwater, sagði í dag, að hann hefði fáar upplýsingar fengið um Jenkins-málið og gæti því ekkert um það sagt að svo stöddu. Hinn kunni fréttaskýrandi „New York Times“, James Res- ton, sagði í dag, að Jenkins- hneykslið gæti haft hörmulegar af leiðingar fyrir Johnson forseta. Svo virtist sem þessi ráðunautur hefði verið mjög handgenginn Jo hnson. Vitað væri, að mikil vin- átta væri með fjölskylduin John- sons og Jenkins, og þess vegna mundi' þetta ef til vill valda for- setanum áhyggjum. Formælandi Hvíta hússins neit- aði í kvöld að svara spurningu um, hvort Jenkins hefði setið fundi í þjóðaröryggisráðinu. Fundu mikið af öli í vegaræsum Reykjavík, 15. okt. ÁG. JARÐÝTUSTJÓRI, sem var að vinna í flögum við veginn hjá Eystra-Miðfelii í Borgarfirði fann um 400 flöskur af öli og gos- drykkjum í ræsum undir veginum Voru flöskurnar í kössum, og höfðu nýlega verið settar á þennan frum lega feiustað. Sigurður SigufrðSson í Stóra-í Lambhaga fann skömmu síðar tvo fulla ölkassa og tvo tóma. Ekki er vitað til að öli hafi verið stol- ið þarna úr sveitinni, og engmn kuimugt hvaðan vökvinn hefur komið. Eru þetta allt öl og gos- drykkir frá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar. Walter Jenkins Jenkins var skipaður sérlegur aðstoðarmaður Johnsons skömmu eftir að forsetinn flutti í Hvíta hússins. Árslaun hans námu 22. 500 til 25.000 dollurum. Hann hafði verið ráðunautur Johnson i nær 25 ár. Jenkins er ofursti í varaliði flughersins — sömu flugsveit og Barry Goldwater öldungadeildar maður. Dean Burch lýsti því yfir í dag, að Jenkins-málið gæfi tilefni tii alvarlegra spurninga í sambandí við þjóðaröryggi, og krafðist þess, að forsetinn veitti ítarlegar uþp- lýsingar um málið. Burch benti á, að vitað væri að auðvelt væri að múta fólki, sem gerzt hefði sekt um siðgæðisbrot, og krafðist upp lýsinga um, hvort Jenkins hefði setið fundi þjóðaröryggisráðsins, ráðuneytisfundi eða á annan hátt haft aðgang að mikilvægum hern aðarleyndarmálum. 1 árekátur á klukkustund Reykjavík 15. okt. ÓTJ. MIKILL óstyrkur virtist hafa gripið um sig meðal ökumanna s Reykjavík í dag, því aff á tíma- bilinu frá 8 fh. til 6 eh. urffu 12 árekstrar, effa rúmlega 1 á klst. Þetta er lítt skiljanlegt, því að veffur var hiff bezta, þó aff ringdi dálítiff fyrir hádegi. Flestir voru árekstrarnir iitlir og engin slys urffu á mönnum. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. október 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.