Alþýðublaðið - 01.12.1964, Page 11

Alþýðublaðið - 01.12.1964, Page 11
FRÁ ÁRSÞINíGI FRÍ: Lið ÍR, sem Ieikur við írsku meistarana á laugardaginn. Landskeppni við 17. ársþing Frjálsíþróttasam- , bands íslands, sem fram fór um helgina einkenndist af bjartsýni og vaxandi trú á velgengni frjáls- íþrótta í landinu. Ingi Þorsteinsson formaður FRÍ setti þingið með ræðu og ræddi annars vegar um j starfið á liðna starfsárinu og drap á það sem framundan er. Á síðasta keppnistímabili voru framfarir stórstígar, það sýndi m. a. sigur yfir Norðmönnum og Sví- um í tugþrautarlandskeppninni og ágæt útkoma og skemmtileg keppni við V-Noreg í Rvík. — ís- lendingar töpuðu aðeins með 11 stigum í sumar, en í keppninni í Noregi 1962 tapaði íslénzka lands- liðið með 41 stigi, svo að fram- farirnar eru augljósar. Ungir og efnilegir iþróttamenn eru í greini legri framför og árangurinn batn- ar. Mörg mót voru haldin og maig ir nýir og efnilegir frjálsíþrótta- menn og konur bættu árangur sinn verulega. Næsta keppnistímabil mun lands liðið fá mörg verkefni og meðal Framhald & síðu 10. 1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. des. 1964 Ágætir leikmenn skipa írska liðið, sem leikur við fR á laugardag i n i^i FRÁ ÁRSÞINGI KSÍ: BJÖRGVIN SCHRAM KJÖR- INN FORMAÐUR Í10 SINN EINS og all flestij* íþróttaunn- endur vita, var ákveðið á sl. vori, að ÍR skyldi njóta réttar síns sem íslandsmeistarar í körfuknattleik 1964 og taka þátt í Evrópukeppn- inni í körfuknattleik, sem mun standa yfir nú í vetur og fram á vor. Um miöjan nóvember mán- uð var dregið um, hvaða lið skyldu leika saman. Lenti ísland í riðli með Englendingum, Frökkum og írum. Eiga íslendingar að leika við íra, en Englendingar og Frakkar leika saman. Síðan eiga sigurvegarar úr þessum tveimur leikjum að spila saman. Leikið er heima og heiman. Ef að likum læt ur eru Frakkar langsterkastir í þessum riðli og munu líklega sigra Englendinga. Fulltrúi írlands í keppninni eru írlandsmeistararn- ir núverandi, Collegians basketball club, í Belfast. Leikdagar hafa verið ákveðnir og verður leikið hér í íþróttahúsinu á Keflavíkur- KR-húsinu í dag í DAG kl. 13,30 áttu að fara fram nokkrir leikir í meistara- móti Reykjavíkur í körfuknatt- leik að Hálogalandi, en vegna brunans þar í gærmorgun fara þeir fram í KR-húsinu á sama tíma. flugvelli næstk. laugardag 5. des. I en leikið verður í Belfast laugar- daginn 19. des. og verður þeim leik sjónvarpað um allt Stóra- Bretland. Nokkrar upplýsingar hafa nú fengizt um írska liðið. í því eru 11 eftirtaldir leikmenn: 4. Joe Kingsmore, hæð 1,75. Ald- ur 36 ára. í úrvalsliði Ulster. Einn af stofnendum fél. Fram- herji. 5. Eddie Mutholland, hæð 1,75, aldur 26 ára. í úrvalsliði Ulst- er. Einn bezti skipuleggjari liðsins. Framherji. 6. Brian Watson, hæð 1,83. 20 ára. Yngsti leikmaður liðsins. Framherji. 7. George Clarke. 1,83 á hæð. 26 ára gamall. Hefur spilað 12 landsleiki. Stigahæsti maður- inn í írsku „línunni". Framh. 8. Merdie Shields, hæð 1,88. Ald- ur 31 árs. í úrvalsliði Ulster. Nær mörgum fráköstum. Mið- herji. 10. Alan Nesbitt. Hæð 1,83. Aldur 31 árs. í úrvalsliði Ulster. — Bakvörður. 11. Jim Murphy. Hæð 1,93. 24 ára. Góður leikmaður. Framherji. 12. Colin Stanfield. Hæð 1,93. 29 ára. í úrvalsliði Ulster. Góður varnarleiksmaður. Bakvörður. 13. Bob Abott. Hæð 1,91. 25 ára. í úrvalsliði brezka flughersins. Bakvörður eða miðherji. 14. Niall Haslett. Hæð 1,93. Aldur 23 ár. í úrvalsliði Ulster. — Styrk stoð liðsins. Miðherji. 15. Brian McMahen. Hæð 1,93. 32 ára. Fyrirliði. Hefur spilað alla landsleiki írlands síðan 1955, alls 19. Fyrirliði írska lands- liðsins. Bakvörður eða mið- herji. Af þessari upptalningu sést, að hér eru eflaust margreyndir körfu knattleiksmenn á ferð og ef að lík- um lætur engir aukvisar. Liðið hefur verið írlandsmeistarar und anfarin tvö ár og án þess að tapa leik. Um styrkleik íra samanborið við íslendinga er ógerlegt að segja Hann breytist svo mikið frá ári Framhald á 10. síðu ÞING knattspyrnusambands íslands var háð hér í borg dagana 28. og 29. nóv. sl. Mættir fulltrú- ar til þingsins voru milli 70-80, víðs vegar að af landinu. Björgvin Schram formaður sam- bandsins setti þingið með ítar- legri ræðu, þar sem hann ræddi um störf þess á liðnu kjörtíma- bili, sem voru hin margvíslegustu, og gat ýmsra verkefna, sem fyrir lægju til úrlausnar í náinni fram- tíð. Auk formanns ávörpuðu þing- ið, forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson og heiðursforseti, íþróttafrömuð- urinn Benedikt' G. Waage. Þingforseti var kjörinn Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ og varaforseti Hafsteinn Guð- mundsson, formaður íþróttabanda- lags Keflavíkur, en ritari Einar Björnsson. Fyrir þinginu lágu skýrslur stjórnarinnar og nefnda í fjölriti, ýtarlegar og greinagóðar, er gáfu mjög gott yfirlit um hin marg- Framhald á 10. síðu mÓTTAFFÍÉTm , í STUTTU, MÁU Aþenu, 30. növ. Cntb-r). Grikkir sigruðu Dani 4-2 í landsleik í knattspyrnu í dag. Þetta var Ieikur í und- ankeppni heimsmeistara- keppninnar. Mulhouse, 30. nóv. (ntb-r). Frakkar sigruðu Svía í lands- leik í handknattleik í dag með 19 mörkum gegn 12. —- Staöan í hléi var 9-4 fyrir Frakkland. MtMWW HWIWWMWWMW Ármann, Fram - Valur sigruðu í karlaflokki Á SUNNUDAG voru háðir þrír leikir í meistaraflokki karla á Meistaramóti R.eykjavikur í hand- knattleik. Fyrsti leikurinn var milli ÍR og Ármanns og eins og vænta mátti sigraði Ármann, þótt munurinn væri minni en búizt var við eða aðeins tvö mörk, 19-17. í hléi var staðan 10-5 fyrir Ármann. ÍR-ing- ar sóttu sig mjög í síðari hálfleik, en sigri Ármanns var aldrei ógn- að. í lið Ármanns vantaði tvo sterka menn, Þorstein Björnsson markvörð og Einar Sigurðsson. Á- berandi var hvað varnir beggja liða voru lélegar. Fram átti ekki í neinum erfið- leikum með Víking og sigraði með 12 mörkum gegn 6. Víkingur byrj- aði mótið illa, hefur tapað öllum leikjunum, en sýnir nú betri leiki gegn sterkustu liðunum. Síðasti leikur kvöldsins í mcist- araflokki var milli Vals og Þróttar og heldur var hann bragðdaufur, en lauk með öruggum sigri Val% sem skoraði 14 mörk gegn 10. Staðan í meistaraflokki er núi þessi: KR Fram Valur Ármann ÍR Þróttur Víkingur

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.